Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ótti um öryggi lággjaldaflugfélaga Flugslysið í Phuket í Taílandi í gær sem kostaði 88 manns lífið hefur vakið spurningar um hvort kostnaður lággjaldaflugfélaga gæti verið of mikill fyrir þau. Hlutabréf í Malasíska lággjaldafélaginu AirAsia, sem var hið fyrsta sinnar tegundar í Asíu, féllu í dag um rúmlega tvö og hálft prósent vegna ótta um öryggi lággjaldaflugfélaga. 17.9.2007 16:26
McCann hjónin ekki aftur til Portúgals Portúgalskur dómari hefur synjað beiðni lögreglunnar um að kalla McCann hjónin aftur til Portúgals, til frekari yfirheyrslu. Dómarinn ætlar þess í stað að senda bresku lögreglunni lista með spurningum og biðja hana um að leggja þau fyrir hjónin. 17.9.2007 16:22
Hafðu stelpu með þegar þú ferð á séns Nýtt fyrirtæki í Bandaríkjunum tekur að sér að koma karlmönnum á séns með því að senda stúlkur með þeim í samkvæmi eða öldurhús. Þetta hefur gengið svo vel að það er strax farið að opna útibú í öðrum löndum, meðal annars í Danmörku. Viðskiptavinirnir eru í skýjunum og segjast aldrei hafa kynntst jafn mörgum konum. 17.9.2007 15:36
O.J. - Frá betrunarheimili til frægðar O.J. Simpson var handtekinn í gærkvöldi fyrir vopnað rán á hótelherbergi í Las Vegas í Bandaríkjunum. Hann gæti átt von á allt að 30 ára fangelsisdómi verði hann fundinn sekur um rán með hættulegu vopni. Simpson var lengi holdgervingur ameríska draumsins og ímynd hans þótti brúa bil kynþátta. Eftir morð fyrrverandi eiginkonu hans snarbreyttist það og gæfan brosir ekki við hetjunni lengur. 17.9.2007 14:48
Flug- og hljóðritar fundnir í Phuket Rannsóknarmenn í Tælandi hafa fundið flug- og hljóðrita farþegaflugvélarinnar sem fórst í Phuket í Tælandi í gær. Alls fórust 89 menn í slysinu, 34 Tælendingar og 55 útlendingar, en 41 komst lífs af. 17.9.2007 12:47
Umbætur halda áfram í Grikklandi Grískir íhaldsmenn segjast munu halda áfram efnahagslegum umbótum í landinu, þó að þeir hafi nú mun tæpari meirihluta á þingi eftir kosningar í gær. 17.9.2007 12:45
Microsoft tapaði fyrir Evrópudómstólnum Evrópudómstóllinn staðfesti í dag ákvarðanir framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins gegn bandaríska tölvurisanum Microsoft. Ákvörðun dómsins getur haft verulega áhrif á Microsoft og Windows hugbúnaðinn. 17.9.2007 12:44
Simpson í járnum OJ Simpson var handtekinn í gærkvöldi fyrir vopnað rán á hótelherbergi í Las Vegas í Bandaríkjunum. Simpson segist einfaldlega hafa ætlað að ná í ýmsa muni úr eigin safni, sem hann segir að óprúttnir minjagripasalar hafi komist yfir með ólöglegum hætti. 17.9.2007 12:43
Íranar öskuillir út í Frakka Utanríkisráðherra Frakka varaði umheiminn í gær við kjarnorkuáætlun Írana og sagði ráðlegast að undirbúa stríð á hendur þeim vegna hennar. Viðvörunin hefur vakið afar hörð viðbrögð í írönskum fjölmiðlum sem segja Frakka apa eftir Bandaríkjamönnum og að Nicolas Sarkozy forseti sé undir miklum bandarískum áhrifum. 17.9.2007 12:22
Dani fékk hryðjuverkaþjálfun í Pakistan Einn af múslimunum ungu sem voru handteknir í Danmörku á dögunum fyrir að undirbúa hryðjuverk hafði verið í þjálfunarbúðum í Pakistan. Dagblaðið New York Times hefur þetta eftir heimildarmönnum sínum í bandarísku leyniþjónustunni. Það voru Bandaríkjamenn sem létu leyniþjónustu dönsku lögreglunnar vita af mönnunum átta. 17.9.2007 10:46
McCann hjónin halda tvíburunum Bresk barnaverndaryfirvöld hafa úrskurðað að Gerry og Kate McCann fái að halda tvíburabörnum sínum. Fulltrúar yfirvalda heimsóttu þau á fimmtudag í síðustu viku. Vinir hjónanna segja að þau hafi sjálf beðið um þá heimsókn eftir að fram komu kröfur á bloggsíðum um 17.9.2007 10:11
Flotaskvísur fá brjóstastækkanir Stjórnarandstæðan í Ástralíu hefur gagnrýnt það að kvennkynssjóliðar í flota landsins geta nú fengið brjóstastækkanir á kostnað ríkisins. Telur stjórnarandstaðan, það er Verkamannaflokkurinn, að þarna sé illa farið með almannafé. 17.9.2007 09:27
Næturklúbbaheimsókn kostaði 3 milljónir Norskur viðskiptamaður varð fyrir ruddalegu áfalli þegar hann sá kortareikning sinn eftir kvöldstund í Kaupmannahöfn um helgina. Hann heldur því nú fram að honum hafi verið byrluð ólyfjan á næturklúbbunum Kakadou og Leslee Night Club en reikningur hans eftir kvöldið á þessum stöðum hljóðar upp á tæpar 3 milljónir króna. 17.9.2007 09:23
Fengu reykháf í hausinn Það fór heldur illa þegar fella átti þrjá stóra reykháfa í bænum Berlín í New Hampshire í Bandaríkjunum í gær. Þúsundir manna höfðu safnast saman til þess að horfa á þessi hæstu mannvirki bæjarins falla til jarðar. 16.9.2007 21:48
Reinfeldt gagnrýnir hótanir vegna Múhameðsmynda Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, gagnrýndi í dag líflátshótanir al-Qaida á hendur sænska teiknaranum Lars Vilks. Eftir því sem sænska ríkisútvarpið greinir frá sagði Reinfeldt að taka yrði hótanirnar alvarlega. 16.9.2007 20:37
Frakkar verði reiðubúnir í stríð við Írana Bernard Kouchner, utanríkisráðherra Frakklands, sagði í dag að Frakkar yrðu að vera reiðubúnir að fara í stríð við Írana vegna kjarnorkuáætlana landsins. Hann taldi þó ekki að stríð væri yfirvofandi. 16.9.2007 20:00
Danskir bílstjórar fjarlægja númeraplötur til að losna við stöðumælasektir Óprúttnir ökumenn í Kaupmannahöfn hafa fundið upp nýja leið til að sleppa við stöðumælasektir. Með því að fjarlægja númeraplötur af bílum sínum gera þeir stöðumælavörðum ókleift að gefa út sektir. 16.9.2007 19:00
Skora á ríki að ráða kennara og lækna í þróunarlöndunum Bresku hjálparsamtökin Oxfam skoruðu fyrir helgi á ríki heims að ráða sex milljón kennara og lækna í þróunarlöndum og tryggja þannig öllum jarðarbúum menntun og heilbrigðisþjónustu. 16.9.2007 19:00
Simpson handtekinn vegna ráns Lögreglan í Las Vegas handtók í dag fyrrverandi ruðningshetjuna O.J. Simpson vegna meintrar aðildar hans að vopnuðu ráni á spilavíti þar í borg. 16.9.2007 18:53
Olía en ekki almannahagur Hagur Íraka var aldrei aðal ástæðan fyrir innrásinni í Írak 2003 heldur olía. Þetta segir Alan Greenspan, fyrrverandi seðlabankastjóri Bandaríkjanna. Afgerandi yfirlýsing frá annars orðvörum manni segir íslenskur stjórnmálafræðingur. 16.9.2007 18:45
Gates hafnar því að Íraksstríðið snúist um olíu Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, vísaði í dag á bug þeim fullyrðingum Alans Greenspan, fyrrverandi seðlabankastjóra landsins, að ráðist hefði verið inn í Írak vegna olíuhagsmuna Vesturveldanna en ekki til þess að frelsa Íraka undan oki Saddams Husseins. 16.9.2007 18:11
Skógareldar í fjallahéruðum Kaliforíu Yfir fimm þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sína vegna skógarelda sem geisa í San Bernardino skóginum í Kaliforníu. Eldsins varð vart á föstudag og hefur slökkviliðsmönnum gengið illa að ná tökum á honum, en hann geisar á 18.000 ekra svæði. 16.9.2007 17:17
Útgönguspár benda til sigurs Karamalis Útgönguspár eftir þingkosningar í Grikklandi benda til þess að Nýi lýðræðisflokkurinn, íhaldsflokkur forsætisráðherrans Costas Karamanlis, hafi tryggt sér nógu mörg þingsæti til þess að halda áfram völdum. 16.9.2007 16:55
Fjölþjóðlegur hópur um borð í vélinni Í það minnsta 87 manns hafa fundist látnir eftir að farþegaflugvél frá taílenska lággjaldaflugfélaginu One-Two-Go brotlenti á Phuket-eyju í suðurhluta Taílands fyrr í dag. Farþegar frá 13 löndum lifðu slysið af. 16.9.2007 16:36
Branson styður við vörn McCann-hjónanna Milljarðarmæringurinn Sir Richard Branson hyggst leggja fram 100 þúsund pund, jafnvirði um 13 milljóna króna, í sjóð til þess að hjálpa foreldrum bresku stúlkunnar Madeleine McCann að hreinsa nafn sitt. Breska blaðið Sunday Times greinir frá þessu í dag. 16.9.2007 16:10
Sex látnir eftir að fellibylur gekk yfir hluta Suður-Kóreu Sex eru látnir og fjögurra er saknað eftir að fellibylurinn Nari gekk yfir suðurströnd Suður-Kóreu í dag. Fimm hinna látnu og þeir sem saknað er voru á eyjunni Cheju, sem er vinsæll ferðamannastaður úti fyrir meginlandinu, þegar bylurinn gekk yfir. 16.9.2007 15:21
Krefjast aðgerða í Súdan Efnt verður til mótmæla í um 30 löndum í dag til þess að vekja athygli á því ástandi sem ríkir í Darfur-héraði. Þar hafa um 200 þúsund manns látist á síðustu fjórum árum í átökum uppreisnarmanna og arabískra vígasveita sem sagðar eru njóta stuðnings ríkisstjórnarinnar. 16.9.2007 14:43
Þriðjungur komst lífs af úr flugslysi Fjörutíu og þrír eru nú sagðir hafa komist lífs af þegar farþegaflugvél frá taílenska flugfélaginu One-Two-Go hrapaði á Phuket-eyju í suðurhluta Taílands í morgun. Ríkisstjóri Phuket-eyju segir að um helmingur farþeganna hafi verið útlendingar og hafa yfirvöld staðfest að átta Bretar, tveir Ástralar og sjö Taílendingar hafi verið í hópi þeirra sem komust lífs af. 16.9.2007 13:50
Talið að skógareldar felli grísku ríkisstjórnina Grikkir ganga að kjörborðinu í dag og kjósa þing - hálfu ári fyrr en áætlað var. Talið er að skógareldarnir í síðasta mánuði komi í veg fyrir að ríkisstjórn landsins haldi velli. 16.9.2007 13:30
McRae meðal þeirra sem létust í þyrluslysi Lögregla í Skotlandi hefur staðfest að Colin McRae, fyrrverandi heimsmeistari í rallakstri, og sonur hans hafi verið meðal þeirra fjögurra sem létust í þyrluslysi í gær. 16.9.2007 12:13
61 látinn og 40 saknað eftir flugslys Ríkisstjóri Phuket-eyju segir 61 látinn og 40 saknað eftir að flugvél á vegum taílenska lággjaldaflugfélagsins One-Two-Go brotlenti við flugvöllinn á eyjunni. 16.9.2007 11:52
Freyðandi sjór við Jótland? Fjöldi Dana á Norðausturhluta Jótlands þarf væntanlega ekki að hafa áhyggjur af hárþvotti á næstunni ef marka má fréttir héraðsblaðsins Nordjyske Stiftstidende. 16.9.2007 11:30
Flugvél brotnaði í tvennt í lendingu í Taílandi Farþegaflugvél hrapaði til jarðar á flugvelli við Phuket-strönd í Taílandi í morgun og er óttast að fjöldi fólks hafi látist. Eftir því sem fram kemur á fréttavef BBC voru 123 farþegar í flugvélinni og skall hún harkalega til jarðar þegar flugmenn hugðust lenda henni í vondu veðri. Hún brotnaði í tvennt. 16.9.2007 11:12
Lögregla verndar Vilks þegar hann snýr aftur heim Sænski listamaðurinn Lars Vilks, sem hótað hefur verið lífláti vegna teikninga af Múhameð spámanni, snýr aftur til Svíþjóðar í dag eftir að hafa dvalið að undanförnu í Þýskalandi. 16.9.2007 10:46
Grikkir ganga til kosninga Grikkir ganga að kjörborðinu í dag og kjósa þing. Costas Karamanlis forsætisráðherra flýtti kosningum um hálft ár í von um að tryggja mið- og hægristjórn sinni fjögur ár í viðbót. 16.9.2007 10:17
Írak var hernumið vegna olíunnar, segir Greeenspan Írak var hernumið vegna olíunnar en ekki til að frelsa Íraka undan oki Saddams Hússeins. Þetta segir Alan Greenspan, fyrrverandi seðlabankastjóri Bandaríkjanna, í nýrri sjálfsævisögu sem kemur út á morgun. 16.9.2007 10:00
Óttast að McRae hafi látist í þyrluslysi Óttast er að Skotinn Colin McRae, fyrrverandi heimsmeistari í rallakstri, hafi farist í þyrluslysi í Skotlandi í gær. Fjórir voru í þyrlunni þegar hún skall til jarðar í skóglendi nærri heimili hans í Lanark. 16.9.2007 09:51
Þúsundir mótmæltu Íraksstríðinu Þúsundir manna tóku í dag þátt í mótmælum í Washington í Bandaríkjunum þar sem þess var krafist að endi yrði bundinn á Íraksstríðið. 15.9.2007 21:56
SAS aflýsir yfir 160 flugferðum næstu þrjá daga Enn er óljóst hvenær norræna flugfélagið SAS getur notað Dash-8 vélar sínar á ný en þær voru kyrrsetar fyrr í vikunni vegna tíðra bilana. Flugmálayfirvöld taka afstöðu til þess á mánudag hvort flugbanni vélanna verði aflétt en hvort sem verður búast forsvarsmenn SAS ekki við því að vélarnar fari í loftið fyrr en á miðvikudag. 15.9.2007 20:51
Fyrrverandi dómari talinn líklegur dómsmálaráðherra Talið er líklegt að fyrrverandi alríkisdómari í New York verði næsti dómsmálaráðherra Bandaríkjanna og taki við af Alberto Gonzales sem sagði af sér á dögunum. 15.9.2007 20:32
Stökkmýs í geimnum Rússneska geimferðastofnunin sendi í gær tíu stökkmýs út í geiminn til þess að rannsaka hvaða áhrif geimferðir manna til Mars kunni að hafa. Stökkmýsnar verða 12 daga úti í geimnum og eru í sérstökum búrum með matarbirgðum í Soyouz-geimfari sem skotið var frá Kasakstan. 15.9.2007 19:45
Þyrla í eigu McRaes hrapar í Skotlandi Þyrla í eigu Colins McRae, fyrrverandi heimsmeistara í ralli, hrapaði til jarðar nærri Lanark í Mið-Skotlandi í dag. Óttast var að að minnsta kosti einn hefði látist í slysinu en ekki er vitað hvort McRae var um borð. 15.9.2007 19:35
Sendiskrifstofa og rammasamningur Færeyingar opnuðu í dag sendiskrifstofu í Reykjavík. Við það tækifæri var undirritaður rammasamningur um samstarf Íslendinga og Færeyinga í heilbrigðismálum. 15.9.2007 18:45
Ísland ekki lengur í alfaraleið Ísland verður síður í alfaraleið í sjóflutningum þegar Norð-vestur siglingaleiðin er að verða greiðfær skipum. Þetta segir íslenskur skipulagsfræðingur og segir að bráðunin íss á svæðinu sé töluvert á undan áætlun. 15.9.2007 18:30
Hreyfing al-Sadrs dregur sig út úr bandalagi sjía Stjórnmálahreyfing sjíaklerksins Moqtada al-Sadrs hefur dregið sig út úr bandalagi sjía sem heldur um stjórnartaumana í Írak. Þetta kom fram á blaðamannafundi í hinni helgu borg Najaf í dag. 15.9.2007 18:22