Fleiri fréttir

Aukið landamæraeftirlit í Evrópu

Bæði Frakkar og Ítalir hafa í kjölfar hryðjuverkaárásanna í Lundúnum á dögunum ákveðið að taka upp landamæraeftirlit á innri landamærum Schengen-svæðisins. Ferðamenn og aðrir geta því búist við því að þurfa að sæta vegabréfaeftirliti við komu og brottför frá þessum löndum

Á bátum í skólann

Miklar rigningar sem fylgt hafa í kjölfar fellibylsins Dennis á karabíska hafinu hafa orðið til þess að grunnskólabörn í Seaview skólanum á Jamaika hafa þurft að fara á bátum í skólann síðustu daga.

Hungurverkfall á Guantanamo

Um 180 afganskir fangar í Guantanamo eru komnir í hungurverkfall til að mótmæla illri meðferð í fangelsinu og knýja á um lausn sína segja tveir fangar sem var sleppt í gær.

Leyniþjónustan grunlaus

Breska leyniþjónustan komst að þeirri niðurstöðu aðeins mánuði fyrir árásirnar í London að enginn hópur hefði bæði getu og vilja til að gera stóra hryðjuverkaárás á Bretland. Þetta kemur fram í dagblaðinu New York Times í dag, þar sem vitnað er í trúnaðarskýrslu leyniþjónustunnar. Í kjölfarið var hættuástand lækkað um eitt þrep. Yfirmenn leyniþjónustunnar neita að tjá sig um málið.

Tíu drepnir í Írak

Írakskir uppreisnarmenn myrtu í morgun tíu manns sem voru á leiðinni í herstöð Bandaríkjamanna í borginni Bakúba. Árásarmennirnir voru á tveim bílum og sátu fyrir lítilli rútu, sem var á leiðinni í herstöðina. Þeir skutu alla sem voru í rútunni til bana, en auk þess létust þrír óbreyttir borgarar þegar rútan rann stjórnlaus á bíl þeirra í kjölfar skotárásarinnar.

Haitang enn á ferð

Átta hundruð þúsund manns hafast nú við í neyðarskýlum í suð-austurhluta Kína, þar sem óttast er að hvirfilbylurinn Haitang fari yfir á næstu klukkutímunum. Þrír létust af völdum bylsins á Taiwan og fjölmargir slösuðust.

Mótmæli á Gaza

Tugþúsundir ísraelskra lögreglumanna eru nú í viðbragðsstöðu á Gaza svæðinu, þar sem fjölmenn mótmælaganga á að hefjast í dag. Þúsundir mótmælenda stefna inn á landnemabyggðir Gyðinga, til að láta í ljós óánægju með fyrirhugaðan brottfluttning Ísraela frá Gaza, sem á að hefjast um miðjan ágúst.

Stuðningur við Íraksstríðið ástæða

Tveir af hverjum þrem Bretum telja stuðning Breta við Íraksstríðið ástæðuna fyrir hryðjuverka árásunum á Lundúni. Samkvæmt könnun dagblaðsins Guardian telur minna en þriðjungur Breta að árásirnar hafi ekkert með Íraksstríðið að gera. Þá telja þrír af hverjum fjórum líklegt að fleiri árásir af þessum toga verði gerðar á Bretland í nánustu framtíð.

Discovery á loft eftir viku

Geimferjunni Discovery verður í fyrsta lagi skotið á loft í næstu viku. Nú er liðin vika síðan hætt var við að skjóta henni á loft, þar sem skynjari í eldsneytistanki reyndist bilaður. Enn er verið að rannsaka orsakir bilunarinnar og hvers vegna hennar varð ekki fyrr vart.

Útbreiðsla fuglaflensunnar

Tuttugu manns hafa látið lífið eftir að hafa smitast af fuglaflensu í Víetnam frá því í desember á síðasta ári. Alls hafa fjörutíu látist úr flensunni í landinu. Til að reyna að uppræta flensuna ætla stjórnvöld nú að bólusetja meira en fjögur hundruð milljónir fugla, meðal annars endur.

Vaxandi vinsældir Angelu Merkel

Sífellt meira kapp færist í kosningabaráttuna í Þýskalandi og ýmislegt bendir til þess að flokksformaður og kanslaraframbjóðandi Kristilegra demókrata eigi vaxandi vinsældum að fagna.

Tengja árásir stríðsrekstri

Tveir af hverjum þrem Bretum telja stuðning Breta við Íraksstríðið ástæðuna fyrir hryðjuverkaárásunum á Lundúnir, samkvæmt könnun dagblaðsins Guardian sem birt var í morgun.

Langvarandi þurrkar í Suður-Evrópu

Langvarandi þurrkarr valda vaxandi vandræðum í Evrópu. Steikjandi hiti gerir illt verra, og óttast er að þetta geti valdið mannskaða líkt og fyrir tveimur árum, þegar tugþúsundir fórust.

Njósnahneyksli

Valerie Plame var árum saman njósnari hjá CIA. Hún sinnti leyniverkefnum og beitti AK-47 hríðskotariffli af mikilli færni. En hefur nú látið af störfum eftir að flett var ofan af henni í bandarískum fjölmiðlum. Það er brot á alríkislögum og var hafin rannsókn á lekanum.

Aðgerðarsveitir gegn öfgaöflum

Tony Blair hitti forystumenn breskra múslima í gær og boðaði í kjölfarið til stofnunar aðgerðasveita sem uppræta eiga "illa hugmyndafræði".

Banað vegna nefndarsetu

Mijbil Issa, einn fulltrúi súnnía í stjórnarskrárnefnd Íraks, var skotinn til bana ásamt tveimur aðstoðarmönnum sínum í Bagdad í gær.

Átök lögreglu og mótmælenda

Ísraelskar öryggissveitir vörnuðu andstæðingum brottflutnings landnema frá Gaza-ströndinni vegar í gær. Á sama tíma vex spennan í herbúðum Palestínumanna.

Kvæntist móður sinni

Íraskur flóttamaður með dvalarleyfi í Noregi kvæntist móður sinni í örvæntingarfullri viðleitni við að fá fjölskyldu sína til sín.

Hryðjuverk í Tsjetsjeníu

Fjórtán manns féllu í valinn eftir skotárás og sprengjutilræði tsjetsjenskra uppreisnarmanna í þorpinu Znamenskoje í Tsjetsjeníu. Tuttugu eru særðir.

Tuttugu ára fangelsi

Sakadómur Lundúnaborgar dæmdi í gær Faryadi Zardad, 42 ára stríðsherra frá Afganistan, í 20 ára fangelsi.

Fimmtungur konur og börn

Tæplega 25.000 borgarar hafa látist af völdum átaka í Írak síðan ráðist var þar inn vorið 2003.

Hungursneyð í Níger

Hungursneyð ríkir í Afríkuríkinu Níger en þar búa 3,6 milljónir manna við alvarlega vannæringu. Börn eru talin í sérstakri hættu.

Mexíkó næst í röðinni

Tæplega þriggja metra háar öldur hafa skollið á Jamaíku og eyðilagt tugi húsa eftir að fellibylurinn Emily gekk þar yfir í nótt. Búist er við að óveðrið skelli á Cancun í Mexíkó í fyrramálið en fréttastofan hefur heimildir fyrir að hópur íslenskra unglinga sé á staðnum. Þrjátíu þúsund ferðamönnum hefur verið skipað að yfirgefa svæðið.

220 látnir í flóðum á Indlandi

Alls hafa 220 manns látist og um 150 þúsund heimili eyðilagst í flóðum í norðausturhluta Indlands frá því regntímabilið hófst í vor. Um fjörutíu og fimm þúsund manns hafa verið fluttir í björgunarbúðir og búa nú þúsundir manna í opinberum byggingum, aðallega í skólum og á lestarstöðvum.

Fellibylurinn Emily í Mexíkó

Fellibylurinn Emily gengur nú sem stendur yfir Cancun í Mexíkó og hafast um þrjátíu þúsund ferðamenn við í neyðarskýlum. Alls hafa um hundrað og þrjátíu þúsund ferðamenn þurft að færa sig um set í Mexíkó síðan um helgina vegna fellibylsins.

Skógareldar á Spáni

Fjórtán spænskir slökkviliðsmenn fórust í baráttu við skógarelda í gær. Eldarnir hafa þegar eyðilagt um fimm þúsund hektara af skógi vöxnu landi og hafa hundruðir þurft að yfirgefa heimili sín vegna þessa.

Harry Potter í sjö milljónir

Nýjasta bókin um Harry Potter og ævintýri hans seldist í nærri sjö milljón eintökum fyrsta sólarhringinn eftir að hún kom út. Þetta þýðir að meira en tvö hundruð og fimmtíu þúsund eintök seldust á hverjum klukkutíma, en flestar bækur eru ekki gefnar út í svo mörgum eintökum. Þegar hefur verið ákveðið að auka upplag bókarinnar í 13,5 milljónir eintaka.

Kennir Ísraelum um

Leiðtogi Palestínumanna kennir Ísraelum um að allt sé á leiðinni á versta veg á Gaza svæðinu. Mahmoud Abbas segist ætla að gera allt til að koma í veg fyrir árásir palestínskra uppreisnarmanna á byggðir Ísraela á gaza svæðinu á næstunni.

Sjítar spá borgarastyrjöld

Írak er á barmi allsherjar borgarastyrjaldar að mati leiðtoga Sjíta í landinu. Sjítaklerkurinn og þingmaðurinn Sjeik- al Saghir sagði á írakska þinginu í gær að stríð gegn sjítum væri að brjótast út og með sama áframhaldi yrði erfitt að stöðva herská samtök Sjíta, sem brátt myndu svara fyrir sig og þá væri voðinn vís.

Edward Heath látinn

Edward Heath, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, lést í gær áttatíu og níu ára að aldri. Hann var Íslendingum vel kunnur enda forsætisráðherra þegar annað þorskastríðið stóð.

Ofsaveður í Taívan og Mexíkó

Mjög öflugir stormar leika nú bæði Mexíkó og Taívan grátt. Fellibylurinn Emily gengur nú sem stendur yfir Cancun í Mexíkó og hvirfilbylurinn Haitang ber að norðausturströnd Taívans.

Bresk yfirvöld sofandi á verðinum

Chatham-house rannsóknarstofnunin sendi í gærkvöldi frá sér skýrslu, þar sem fullyrt er að stríðið í Írak hafi aukið stuðning við al-Qaeda og auðveldað bæði nýliðun og fjáröflun. Bretland væri fyrir vikið í meiri hættu en ella og tapaði á því að hafa fylgt Bandaríkjamönnum að máli. Það hafi reynst dýrt, bæði í mannslífum talið og einnig þegar litið væri til hryðjuverkavarna.

Úrskurður hindrar framsal

Þýski stjórnlagadómstóllinn úrskurðaði í gær að maður sem grunaður er um tengsl við al-Kaída skyldi ekki framseldur til Spánar þar sem evrópska handtökutilskipunin, sem framsalsbeiðnin byggði á, bryti í bága við þýsku stjórnarskrána.

Óveður á Taívan og Mexíkó

Öflugir stormar ollu manntjóni og miklum skemmdum í dag. Á Taívan fórust nokkrir þegar hvirfilbylurinn Haitang reið yfir og tugir þúsunda ferðamanna flýðu fellibylinn Emily í Mexíkó. Þeirra á meðal var hópur íslenskra ungmenna.

Þúsundir manna flýja fellibyli

Fellibylurinn Emily skall á Yucatan-skaga í Mexíkó í fyrrinótt og skildi eftir sig slóð eyðileggingar. Ekki hafði þó frést í gær af neinum dauðsföllum eða alvarlegum meiðslum af völdum veðurofsans. Þúsundir heima- og ferðamanna leituðu skjóls í neyðarskýlum sem komið hafði verið upp í skólastofum og danssölum hótela.

Þrýst á Bush að reka Rove

George W. Bush sagði í gær að skyldi einhver í starfsliði hans verða uppvís að lögbroti í sambandi við upplýsingaleka sem fletti ofan af CIA-njósnara, myndi viðkomandi "ekki lengur fá að starfa í minni stjórn". Bush kom sér samt sem áður hjá því að svara beint spurningum um hlutverk stjórnmálaráðgjafa síns, Karl Rove, í málinu.

Ásakanir um andvaraleysi MI5

Vangaveltur um hvort bresk yfirvöld hefðu sofið á verðinum færðust í aukana í gær, eftir að sagt var frá því í fjölmiðlum að innanríkisleyniþjónustan MI5 hefði tekið til athugunar að minnsta kosti einn mannanna fjögurra sem frömdu sprengjutilræðin í London þann 7. júlí.

Enn friðarvon

Ísraelsk stjórnvöld munu ekki senda hersveitir inn á Gazaströnd ef Mahmoud Abbas tekst að koma í veg fyrir árásir vígamanna á Ísrael sagði Ehud Olmert, varaforsætisráðherra Ísraels. Hann segir Ísraela ekki vilja gera neitt sem geti orðið vatn á myllu herskárra Palestínumanna sem vilji binda enda á vopnahléið frá síðasta vetri.

Flugeldur banaði barni

Sautján ára danskur piltur hefur verið ákærður fyrir að verða barni að bana. Hann hefur viðurkennt að hafa skotið flugeldi lárétt um síðustu áramót. Flugeldurinn fór í brjóstið á tveggja ára barni sem lést samstundis. Pilturinn segist ekki hafa orðið var við að flugeldurinn hafi hitt nokkurn en er ákærður fyrir manndráp af gáleysi.

Lítill áhugi á Tyrkjum

Einungis 35 prósent íbúa aðildarríkja Evrópusambandsins eru hlynnt aðild Tyrklands að sambandinu samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem gerð var fyrir framkvæmdastjórn sambandsins. Tæpur helmingur styður aðild Rúmeníu að sambandinu en helmingur vill hleypa Búlgaríu í sambandið.

Stríðsherra dæmdur fyrir pyntingar

Breskur dómstóll hefur fundið afganskan stríðsherra sekan um pyntingar og gíslatöku sem áttu sér stað í útjaðri Kabúl, höfuðborgar Afganistans, á árunum upp úr 1990.

Deilt um sekt efnafræðingsins

Deilt er um hvort maðurinn sem handtekinn var í Kaíró í gær sé einn skipuleggjenda hryðjuverkanna í London. Lögreglan í Bretlandi telur að svo sé en innanríkisráðherra Egyptalands segir það af og frá.

Mynd af hryðjuverkamönnunum

Breska lögreglan hefur birt mynd úr eftirlitsmyndavél sem sýnir mennina fjóra sem grunaðir eru um að hafa staðið fyrir sjálfsmorðsárásunum í Lundúnum í síðustu viku. Myndin er tekin á lestarstöðinni Luton, stuttu áður en árásirnar voru gerðar.

Írak: 70 látnir og 160 særðir

Að minnsta kosti 70 létust og um 160 særðust í sjálfsmorðssprengingu í Írak í gær. Árásarmaðurinn sprengdi sig í loft upp við bensínstöð nærri mosku sjíta múslima í borginni Mussayyib, 60 kílómetra suður af Bagdad, höfuðborg Íraks.

Tólf látnir eftir flóð í Indlandi

Að minnsta kosti tólf fórust og um 150.000 heimili eyðilögðust vegna flóða í norðausturhluta Indlands í morgun. Alls hafa nú yfir 220 látist af völdum flóða í landinu frá því regntímabilið hófst í vor.

Sjá næstu 50 fréttir