Þúsundir manna flýja fellibyli 18. júlí 2005 00:01
Fellibylurinn Emily skall á Yucatan-skaga í Mexíkó í fyrrinótt og skildi eftir sig slóð eyðileggingar. Ekki hafði þó frést í gær af neinum dauðsföllum eða alvarlegum meiðslum af völdum veðurofsans. Þúsundir heima- og ferðamanna leituðu skjóls í neyðarskýlum sem komið hafði verið upp í skólastofum og danssölum. Yfir hálf milljón manna flúði heimili sín á suðausturströnd Kína í gær þegar fellibylurinn Haitang, sem gengið hafði yfir Taívan, stefndi inn á meginlandið. "Það versta er yfirstaðið," sagði Felix Gonzalez, fylkisstjóri Quintana-Roo-fylkis í Mexíkó, en það nær meðal annars yfir borgirnar Cancun og Playa del Carmen á Yucatan-skaga. Þúsundir heimamanna og erlendra ferðamanna gistu í neyðarskýlum í danssölum hótela og skólastofum í borgum og bæjum á austurströnd Yucatan, en þar eru vinsælir ferðamannastaðir. Einn bæjanna á þessu svæði er Merída, þar sem hópur íslenskra ungmenna tók þátt í ólympíumótinu í stærðfræði. Vindhraðinn í hviðunum sem fylgdu fellibylnum var allt að 215 km/klst, en þar með telst bylurinn vera af styrkleikastiginu 4. Þegar bylurinn hafði gengið yfir Yucatan hafði dregið heldur úr vindhæðinni og taldist Emily því vera komin niður í byl af styrkleikastiginu 2 þegar hann hélt áfram ferð sinni út á Mexíkóflóa. Þó var reiknað með að Emily færðist aftur í aukana yfir heitum sjó og yrði aftur orðin að skaðræðisfellibyl er hann gengi á land við vestanverðan Mexíkóflóa í kvöld eða nótt. Íbúar Fujian-héraðs í Kína biðu þess að Haitang-bylurinn skylli á heimilum þeirra. 17.000 bátar sem gerðir eru út frá Fujian-héraði voru við festar í von um að þeir stæðu af sér óveðrið. Að sögn héraðsyfirvalda höfðu í gær um 540.000 manns, mikið til fiskimenn og starfsfólk fiskiræktarstöðva og fjölskyldur þeirra, verið fluttir frá ströndinni í neyðarskýli innar í landi.
Erlent Fréttir Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Fleiri fréttir Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Sjá meira