Þrýst á Bush að reka Rove 18. júlí 2005 00:01
George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, sagði í gær að skyldi einhver í starfsliði hans verða uppvís að lögbroti í sambandi við upplýsingaleka sem fletti ofan af CIA-njósnara, myndi viðkomandi "ekki lengur fá að starfa í minni stjórn". Bush kom sér samt sem áður hjá því að svara beint spurningum um hlutverk stjórnmálaráðgjafa síns, Karl Rove, í málinu. "Það er alvarleg rannsókn í gangi á þessu og því eru fjölmiðlar að gera sér mat úr," sagði Bush á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í tilefni af opinberri heimsókn indverska forsætisráðherrans Manmohan Singh. Daginn áður hafði Matthew Cooper, blaðamaður vikuritsins Time, upplýst að hann hefði fyrst í símasamtali við Rove árið 2003 heyrt að eiginkona Josephs Wilson, fyrrverandi sendiherra og harðs gagnrýnanda Bush-stjórnarinnar, væri á mála hjá leyniþjónustunni CIA. Bush sagði í fyrra að hann myndi reka hvern þann sem starfaði fyrir ríkisstjórn hans, sem uppvís yrði að því að leka trúnaðarupplýsingum sem leiddu til þess að opinbert varð að eiginkona Wilsons, Valerie Plame, væri CIA-njósnari. Í gær bætti hann því við að sannað skyldi að viðkomandi hefði gerst beinlínis brotlegur við lög. "Nú er það undir dómsmálaráðuneytinu komið að finna staðreyndir málsins," sagði Bush í gær. Nokkrir þingmenn demókrata hafa krafist þess að Rove verði rekinn, en hann er yfirmaður starfsliðs forsetans. Þessa kröfu byggja þeir á því að hann hafi brotið lög frá árinu 1982 sem banna að vísvitandi sé flett ofan af réttu nafni CIA-liðsmanns. Sérskipaður rannsóknarkviðdómur er nú að kanna hvort einhver í stjórnarliðinu hafi brotið gegn alríkislögum með því að opinbera nafn Plame sem CIA-njósnara. Talsmenn Hvíta hússins höfðu neitað því staðfastlega í nærri tvö ár að einhver í liði forsetans tengdist lekanum. Síðastliðinn hálfan mánuð hefur þó enginn fulltrúi Hvíta hússins viljað láta hafa neitt eftir sér um málið.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Sjá meira