Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sprengja í Kasmír Að minnsta kosti sex fórust í sprengjutilræði í Srinagar, sumarhöfuðborg Jammu-Kasmír héraðs, og 20 meiddust. 20.7.2005 00:01
Meintur forsprakki handtekinn Pakistanska lögreglan hefur mann í haldi sem hún segir hafa átt beinan þátt í sprengjutilræðunum í Lundúnum 7. júlí. 20.7.2005 00:01
Súnníar hættir í nefndinni Súnníar hafa dregið sig úr stjórnarskrárnefnd Íraks eftir að Mijbil Issa félagi þeirra var myrtur í fyrradag. Þá var gerð sjálfsmorðsárás í Bagdad sem tíu manns dóu í. 20.7.2005 00:01
Forskot kristilegra minnkar Kristilegu flokkarnir í Þýskalandi halda miklu forskoti á stjórnarflokkana, jafnaðarmenn og græningja, í nýjustu skoðanakönnuninni sem niðurstöður voru birtar úr á miðvikudag. Kosið verður til þings í Þýskalandi í september. 20.7.2005 00:01
Bush velur íhaldsmann í Hæstarétt George W. Bush Bandaríkjaforseti útnefndi á þriðjudag John G. Roberts í embætti hæstaréttardómara, en þetta er í fyrsta sinn í áratug sem nýr maður er skipaður í Hæstarétt Bandaríkjanna. Repúblikanar fögnuðu valinu á Roberts en demókratar eru lítt hrifnir, enda hefur Roberts skapað sér orðstír fyrir að vera mjög íhaldssamur. 20.7.2005 00:01
50 ára trúarstríð framundan Hryðjuverk um alla veröld er eins og kjarnorkusprengja sem hrint hefur verið af stað, segir faðir eins þeirra sem frömdu hryðjuverkin í Bandaríkjunum 11. september árið 2001. Um leið fullyrti hann að frekari árásir myndu fylgja í kjölfarið og sagði árásirnar á Lundúnir, New York og Madrid aðeins vera upphafið að hálfrar aldar löngu trúarstríði. 20.7.2005 00:01
Þrír látast úr fuglaflensu Yfirvöld í Indónesíu staðfestu í morgun að þrír Indónesar hefðu látist úr fuglaflensu. Rannsókn á líkum mannanna þriggja í Hong Kong staðfesti dánarorsökina. Þetta eru fyrstu Indónesarnir sem látast úr fuglaflensu. 20.7.2005 00:01
Eftirlit á innra svæðinu Dóms- og kirkjumálaráðuneytið vekur athygli á því að Frakkar og Ítalir hafa ákveðið að taka upp landamæraeftirlit á innri landamærum aðildarríkja Schengen-samningsins. Ferðamenn sem og aðrir geta því vænst þess að þurfa að sæta vegabréfaeftirliti við komu og brottför frá Frakklandi og Ítalíu. 20.7.2005 00:01
Mótmælendur skotnir af lögreglu Að minnsta kosti ellefu mótmælendur voru drepnir í átökum lögreglu og mótmælenda í Jemen í dag. Verið var að mótmæla hækkun bensínverðs í landinu sem tvöfaldaðist í verði nýverið í kjölfar aðgerða ríkisstjórnar Jemens í efnahagsmálum. 20.7.2005 00:01
Aukið landamæraeftirlit í Evrópu Bæði Frakkar og Ítalir hafa í kjölfar hryðjuverkaárásanna í Lundúnum á dögunum ákveðið að taka upp landamæraeftirlit á innri landamærum Schengen-svæðisins. Ferðamenn og aðrir geta því búist við því að þurfa að sæta vegabréfaeftirliti við komu og brottför frá þessum löndum 20.7.2005 00:01
Á bátum í skólann Miklar rigningar sem fylgt hafa í kjölfar fellibylsins Dennis á karabíska hafinu hafa orðið til þess að grunnskólabörn í Seaview skólanum á Jamaika hafa þurft að fara á bátum í skólann síðustu daga. 20.7.2005 00:01
Hungurverkfall á Guantanamo Um 180 afganskir fangar í Guantanamo eru komnir í hungurverkfall til að mótmæla illri meðferð í fangelsinu og knýja á um lausn sína segja tveir fangar sem var sleppt í gær. 20.7.2005 00:01
Leyniþjónustan grunlaus Breska leyniþjónustan komst að þeirri niðurstöðu aðeins mánuði fyrir árásirnar í London að enginn hópur hefði bæði getu og vilja til að gera stóra hryðjuverkaárás á Bretland. Þetta kemur fram í dagblaðinu New York Times í dag, þar sem vitnað er í trúnaðarskýrslu leyniþjónustunnar. Í kjölfarið var hættuástand lækkað um eitt þrep. Yfirmenn leyniþjónustunnar neita að tjá sig um málið. 19.7.2005 00:01
Tíu drepnir í Írak Írakskir uppreisnarmenn myrtu í morgun tíu manns sem voru á leiðinni í herstöð Bandaríkjamanna í borginni Bakúba. Árásarmennirnir voru á tveim bílum og sátu fyrir lítilli rútu, sem var á leiðinni í herstöðina. Þeir skutu alla sem voru í rútunni til bana, en auk þess létust þrír óbreyttir borgarar þegar rútan rann stjórnlaus á bíl þeirra í kjölfar skotárásarinnar. 19.7.2005 00:01
Haitang enn á ferð Átta hundruð þúsund manns hafast nú við í neyðarskýlum í suð-austurhluta Kína, þar sem óttast er að hvirfilbylurinn Haitang fari yfir á næstu klukkutímunum. Þrír létust af völdum bylsins á Taiwan og fjölmargir slösuðust. 19.7.2005 00:01
Mótmæli á Gaza Tugþúsundir ísraelskra lögreglumanna eru nú í viðbragðsstöðu á Gaza svæðinu, þar sem fjölmenn mótmælaganga á að hefjast í dag. Þúsundir mótmælenda stefna inn á landnemabyggðir Gyðinga, til að láta í ljós óánægju með fyrirhugaðan brottfluttning Ísraela frá Gaza, sem á að hefjast um miðjan ágúst. 19.7.2005 00:01
Stuðningur við Íraksstríðið ástæða Tveir af hverjum þrem Bretum telja stuðning Breta við Íraksstríðið ástæðuna fyrir hryðjuverka árásunum á Lundúni. Samkvæmt könnun dagblaðsins Guardian telur minna en þriðjungur Breta að árásirnar hafi ekkert með Íraksstríðið að gera. Þá telja þrír af hverjum fjórum líklegt að fleiri árásir af þessum toga verði gerðar á Bretland í nánustu framtíð. 19.7.2005 00:01
Discovery á loft eftir viku Geimferjunni Discovery verður í fyrsta lagi skotið á loft í næstu viku. Nú er liðin vika síðan hætt var við að skjóta henni á loft, þar sem skynjari í eldsneytistanki reyndist bilaður. Enn er verið að rannsaka orsakir bilunarinnar og hvers vegna hennar varð ekki fyrr vart. 19.7.2005 00:01
Útbreiðsla fuglaflensunnar Tuttugu manns hafa látið lífið eftir að hafa smitast af fuglaflensu í Víetnam frá því í desember á síðasta ári. Alls hafa fjörutíu látist úr flensunni í landinu. Til að reyna að uppræta flensuna ætla stjórnvöld nú að bólusetja meira en fjögur hundruð milljónir fugla, meðal annars endur. 19.7.2005 00:01
Vaxandi vinsældir Angelu Merkel Sífellt meira kapp færist í kosningabaráttuna í Þýskalandi og ýmislegt bendir til þess að flokksformaður og kanslaraframbjóðandi Kristilegra demókrata eigi vaxandi vinsældum að fagna. 19.7.2005 00:01
Tengja árásir stríðsrekstri Tveir af hverjum þrem Bretum telja stuðning Breta við Íraksstríðið ástæðuna fyrir hryðjuverkaárásunum á Lundúnir, samkvæmt könnun dagblaðsins Guardian sem birt var í morgun. 19.7.2005 00:01
Langvarandi þurrkar í Suður-Evrópu Langvarandi þurrkarr valda vaxandi vandræðum í Evrópu. Steikjandi hiti gerir illt verra, og óttast er að þetta geti valdið mannskaða líkt og fyrir tveimur árum, þegar tugþúsundir fórust. 19.7.2005 00:01
Njósnahneyksli Valerie Plame var árum saman njósnari hjá CIA. Hún sinnti leyniverkefnum og beitti AK-47 hríðskotariffli af mikilli færni. En hefur nú látið af störfum eftir að flett var ofan af henni í bandarískum fjölmiðlum. Það er brot á alríkislögum og var hafin rannsókn á lekanum. 19.7.2005 00:01
Aðgerðarsveitir gegn öfgaöflum Tony Blair hitti forystumenn breskra múslima í gær og boðaði í kjölfarið til stofnunar aðgerðasveita sem uppræta eiga "illa hugmyndafræði". 19.7.2005 00:01
Banað vegna nefndarsetu Mijbil Issa, einn fulltrúi súnnía í stjórnarskrárnefnd Íraks, var skotinn til bana ásamt tveimur aðstoðarmönnum sínum í Bagdad í gær. 19.7.2005 00:01
Átök lögreglu og mótmælenda Ísraelskar öryggissveitir vörnuðu andstæðingum brottflutnings landnema frá Gaza-ströndinni vegar í gær. Á sama tíma vex spennan í herbúðum Palestínumanna. 19.7.2005 00:01
Kvæntist móður sinni Íraskur flóttamaður með dvalarleyfi í Noregi kvæntist móður sinni í örvæntingarfullri viðleitni við að fá fjölskyldu sína til sín. 19.7.2005 00:01
Hryðjuverk í Tsjetsjeníu Fjórtán manns féllu í valinn eftir skotárás og sprengjutilræði tsjetsjenskra uppreisnarmanna í þorpinu Znamenskoje í Tsjetsjeníu. Tuttugu eru særðir. 19.7.2005 00:01
Tuttugu ára fangelsi Sakadómur Lundúnaborgar dæmdi í gær Faryadi Zardad, 42 ára stríðsherra frá Afganistan, í 20 ára fangelsi. 19.7.2005 00:01
Fimmtungur konur og börn Tæplega 25.000 borgarar hafa látist af völdum átaka í Írak síðan ráðist var þar inn vorið 2003. 19.7.2005 00:01
Hungursneyð í Níger Hungursneyð ríkir í Afríkuríkinu Níger en þar búa 3,6 milljónir manna við alvarlega vannæringu. Börn eru talin í sérstakri hættu. 19.7.2005 00:01
Mexíkó næst í röðinni Tæplega þriggja metra háar öldur hafa skollið á Jamaíku og eyðilagt tugi húsa eftir að fellibylurinn Emily gekk þar yfir í nótt. Búist er við að óveðrið skelli á Cancun í Mexíkó í fyrramálið en fréttastofan hefur heimildir fyrir að hópur íslenskra unglinga sé á staðnum. Þrjátíu þúsund ferðamönnum hefur verið skipað að yfirgefa svæðið. 18.7.2005 00:01
220 látnir í flóðum á Indlandi Alls hafa 220 manns látist og um 150 þúsund heimili eyðilagst í flóðum í norðausturhluta Indlands frá því regntímabilið hófst í vor. Um fjörutíu og fimm þúsund manns hafa verið fluttir í björgunarbúðir og búa nú þúsundir manna í opinberum byggingum, aðallega í skólum og á lestarstöðvum. 18.7.2005 00:01
Fellibylurinn Emily í Mexíkó Fellibylurinn Emily gengur nú sem stendur yfir Cancun í Mexíkó og hafast um þrjátíu þúsund ferðamenn við í neyðarskýlum. Alls hafa um hundrað og þrjátíu þúsund ferðamenn þurft að færa sig um set í Mexíkó síðan um helgina vegna fellibylsins. 18.7.2005 00:01
Skógareldar á Spáni Fjórtán spænskir slökkviliðsmenn fórust í baráttu við skógarelda í gær. Eldarnir hafa þegar eyðilagt um fimm þúsund hektara af skógi vöxnu landi og hafa hundruðir þurft að yfirgefa heimili sín vegna þessa. 18.7.2005 00:01
Harry Potter í sjö milljónir Nýjasta bókin um Harry Potter og ævintýri hans seldist í nærri sjö milljón eintökum fyrsta sólarhringinn eftir að hún kom út. Þetta þýðir að meira en tvö hundruð og fimmtíu þúsund eintök seldust á hverjum klukkutíma, en flestar bækur eru ekki gefnar út í svo mörgum eintökum. Þegar hefur verið ákveðið að auka upplag bókarinnar í 13,5 milljónir eintaka. 18.7.2005 00:01
Kennir Ísraelum um Leiðtogi Palestínumanna kennir Ísraelum um að allt sé á leiðinni á versta veg á Gaza svæðinu. Mahmoud Abbas segist ætla að gera allt til að koma í veg fyrir árásir palestínskra uppreisnarmanna á byggðir Ísraela á gaza svæðinu á næstunni. 18.7.2005 00:01
Sjítar spá borgarastyrjöld Írak er á barmi allsherjar borgarastyrjaldar að mati leiðtoga Sjíta í landinu. Sjítaklerkurinn og þingmaðurinn Sjeik- al Saghir sagði á írakska þinginu í gær að stríð gegn sjítum væri að brjótast út og með sama áframhaldi yrði erfitt að stöðva herská samtök Sjíta, sem brátt myndu svara fyrir sig og þá væri voðinn vís. 18.7.2005 00:01
Edward Heath látinn Edward Heath, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, lést í gær áttatíu og níu ára að aldri. Hann var Íslendingum vel kunnur enda forsætisráðherra þegar annað þorskastríðið stóð. 18.7.2005 00:01
Ofsaveður í Taívan og Mexíkó Mjög öflugir stormar leika nú bæði Mexíkó og Taívan grátt. Fellibylurinn Emily gengur nú sem stendur yfir Cancun í Mexíkó og hvirfilbylurinn Haitang ber að norðausturströnd Taívans. 18.7.2005 00:01
Bresk yfirvöld sofandi á verðinum Chatham-house rannsóknarstofnunin sendi í gærkvöldi frá sér skýrslu, þar sem fullyrt er að stríðið í Írak hafi aukið stuðning við al-Qaeda og auðveldað bæði nýliðun og fjáröflun. Bretland væri fyrir vikið í meiri hættu en ella og tapaði á því að hafa fylgt Bandaríkjamönnum að máli. Það hafi reynst dýrt, bæði í mannslífum talið og einnig þegar litið væri til hryðjuverkavarna. 18.7.2005 00:01
Úrskurður hindrar framsal Þýski stjórnlagadómstóllinn úrskurðaði í gær að maður sem grunaður er um tengsl við al-Kaída skyldi ekki framseldur til Spánar þar sem evrópska handtökutilskipunin, sem framsalsbeiðnin byggði á, bryti í bága við þýsku stjórnarskrána. 18.7.2005 00:01
Óveður á Taívan og Mexíkó Öflugir stormar ollu manntjóni og miklum skemmdum í dag. Á Taívan fórust nokkrir þegar hvirfilbylurinn Haitang reið yfir og tugir þúsunda ferðamanna flýðu fellibylinn Emily í Mexíkó. Þeirra á meðal var hópur íslenskra ungmenna. 18.7.2005 00:01
Þúsundir manna flýja fellibyli Fellibylurinn Emily skall á Yucatan-skaga í Mexíkó í fyrrinótt og skildi eftir sig slóð eyðileggingar. Ekki hafði þó frést í gær af neinum dauðsföllum eða alvarlegum meiðslum af völdum veðurofsans. Þúsundir heima- og ferðamanna leituðu skjóls í neyðarskýlum sem komið hafði verið upp í skólastofum og danssölum hótela. 18.7.2005 00:01
Þrýst á Bush að reka Rove George W. Bush sagði í gær að skyldi einhver í starfsliði hans verða uppvís að lögbroti í sambandi við upplýsingaleka sem fletti ofan af CIA-njósnara, myndi viðkomandi "ekki lengur fá að starfa í minni stjórn". Bush kom sér samt sem áður hjá því að svara beint spurningum um hlutverk stjórnmálaráðgjafa síns, Karl Rove, í málinu. 18.7.2005 00:01