Erlent

CIA gætir stokkandar

Leyniþjónusta Bandaríkjanna, sem hingað til hefur haft það hlutverk að gæta forsetans og annars merkisfólks, hefur nú tekist á herðar að gæta stokkandar sem liggur á níu eggjum. Öndin gerði sér hreiður í moldarbeði við aðalinngang fjármálaráðuneytisins og hefur fengið gælunafnið Duck Cheney. Leyniþjónustan hefur sett upp járngrindur í kringum hreiðrið og gætir þess vandlega að forvitnir ferðalangar raski ekki ró kollunnar. Ungarnir munu væntanlega skríða úr eggjunum í lok apríl en þá verður andafjölskyldan færð að stöðuvatni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×