Erlent

Áratuga samband kórónað

Karl Bretaprins gekk í gær að eiga heitkonu sína Camillu Parker Bowles í borgaralegri hjónavígslu í ráðhúsi Windsor-bæjar vestur af Lundúnum. Þar með var kórónað áratugalangt samband þeirra, sem hefur staðið af sér ansi margt, svo sem aðgangsharða hnýsni gulu pressunnar, hneykslismál og hjónaband Karls og Díönu prinsessu. Brúðhjónin gengu hönd í hönd út úr ráðhúsinu að vígslunni lokinni en fagnandi mannfjöldinn sem þar var saman kominn fékk ekki að sjá neinn opinberan brúðarkoss. Þá var hinu nýgifta pari ekið í viðhafnarbifreið af Rolls-Royce-gerð í kapellu Windsor-kastala þar rétt hjá. Þar blessaði erkibiskupinn af Kantaraborg, Rowan Williams, brúðhjónin við hátíðlega en hófstillta athöfn. Loks fór fram brúðkaupsveisla í boði Elísabetar Englandsdrottningar í salarkynnum Windsor-kastala. Við hina kirkjulegu blessunarathöfn játuðu brúðhjónin "syndir og misgjörðir" sínar og sóru að vera hvort öðru trú í hjónabandinu. Elísabet drottning var viðstödd athöfnina og 800 boðsgestir, þar á meðal Tony Blair forsætisráðherra. Við giftinguna tekur Camilla formlega við fyrra hlutverki Díönu sem prinsessan af Wales, en hún hefur lýst því yfir að hún hyggist ekki nota þann titil. Hún hefur þess í stað valið titilinn hertogaynjan af Cornwall. Sjónvarpað var beint frá blessunarathöfninni, þar á meðal hingað til lands. Ólíku var saman að jafna, hinni látlausu hjónavígslu Karls og Camillu nú eða íburðarmiklu brúðkaupi Karls og Díönu árið 1981. Díana vann hug og hjörtu Breta og almennings víða um heim, en missti ást eiginmannsins. Hún lést í bílslysi í París árið 1997. Hjónin nýgiftu hyggjast eyða hveitibrauðsdögunum í veiðihúsi í Skotlandi sem áður tilheyrði langömmu Karls. Þau munu þó þurfa að gera hlé á þeim til að vera við útför Rainiers Mónakófursta á föstudaginn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×