Erlent

Líkist Bankastræti á Menningarnótt

„Bankastræti á Menningarnótt!“ Þannig lýsir Íslendingur andrúmsloftinu og mannmergðinni sem nú er í miðborg Rómar, vegna útfarar Jóhannesar Páls páfa annars á morgun.

Róm virðist vera að springa utan af þeim hátt í fimm milljónum manna sem síðustu daga hafa bæst við þær þrjár milljónir sem búa í borginni. Yfirvöld hafa brugðið á það ráð að hvetja fólk til að halda sig fjarri miðborginni og fylgjast í staðinn með framvindu mála á risaskjám sem komið hefur verið upp úti um alla borgina.

Íslenska sendinefndin sem verður við útförina á morgun lenti í Róm síðdegis. Steingrímur Ólafsson er í föruneyti Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra. Hann segir að hverfin í kringum Vatíkanið og miðborg Rómar líkist Bankastræti á Menningarnótt. Varla sé hægt að ganga þar um án þess að rekast í fólk sem sé komið alls staðar að úr heiminum. Hins vegar sé öllu rólegra í hverfunum í kring.

Steingrímur segir enn fremur að fulltrúar annarra landa í jarðarförinni sem hann hafi rætt við geti ekki annað en dáðst að skipulagi Ítala og hefði einn þeirra sagt að goðsagan um það hversu óskipulagði Ítalir væru hefði endanlega verið kveðin niður.

Jarðarförin á morgun verður að öllum líkindum sá viðburður í heimssögunni þar sem flest fyrirmenni hafa komið saman. Gríðarleg öryggisgæsla er vegna þessa. Steingrímur segir að þarna séu samankomnir kóngar og drottningar, prinsar, hertogar, forsetar og forsætisráðherrar í röðum og hver um sig hafi sína öryggisgæslu sem síðan þurfi að samræma við ítölsk yfirvöld.

Steingrímur segir að ef tekið hefði verið upp myndband án hljóðs gæti einhver ályktað að það hefði verið gerð stjórnarbylting í ríki í Suður-Ameríku, slíkur sé fjöldi hermanna og lögregluþjóna á götunum. Reyndin sé hins vegar sú að þeir séu afskaplega vingjarnlegir og reyni að greiða götu allra. Ítalir virðist leggjast á eitt um að jarðarförin gangi sem allra best á morgun en það séu önnur saga hvað gerist á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×