Fleiri fréttir

Júsjenko sver embættiseið

Viktor Júsjenko sór í morgun embættiseið sem forseti Úkraínu eftir langan aðdraganda. Mikil hátíðarhöld verða í Kænugarði af þessu tilefni, einkum á Sjálfstæðistorginu þar sem mótmælendur héldu til vikum saman til að knýja fram nýjar kosningar vegna kosningasvika í forsetakosningum á síðasta ári.

Óttast að neyðarfé sé sóað

Á Srí Lanka aukast áhyggjur af því að neyðarhjálp í formi fjár sé sóað í dularfull verkefni og í vasa spilltra stjórnmála- og embættismanna. Stjórnvöld í Kólombó vilja sem minnst segja um hvernig fénu er varið og halda samtökum og héraðsstjórnum fjarri þeirri ákvarðanatöku.

Brenndu átta þorp í Darfur-héraði

Uppreisnarmenn réðust á og brenndu átta þorp í Darfur-héraði í Súdan í gær. Haft er eftir yfirmanni í her landsins að tugir hafi fallið í árásunum en uppreisnarmennirnir létu einnig greipar sópa í þorpunum.

Funda um ferðaþjónustuvanda

Forystumenn í ferðamálum í Asíu hittast í dag til þess að reyna að endurskipuleggja ferðaþjónustu í Suðaustur-Asíu í kjölfar hamfaranna annan dag jóla. Eftir að myndir af hamfarasvæðunum birtust í sjónvarpi um allan heim hafa fjölmargir hætt við ferðalög þangað og jafnvel á staði í Asíu sem eru hvergi nærri flóðasvæðunum.

Létust í snjóflóðum í Austurríki

Þrír erlendir skíðamenn hafa látist og eins er saknað eftir að tvö snjóflóð féllu í Austurríki um helgina. Tveir hinna látnu voru kanadískir ríkisborgarar en með þeim í för var Bandaríkjamaður sem enn er leitað í St. Anton í Týról. Þá lést þýsk-bandarískur snjóbrettamaður í snjóflóði sem féll í Vorarlberg í vesturhluta Austurríkis í gær.

Þokast í samkomulagsátt

Palestínska sjónvarpið hafði eftir Mamhoud Abbas, forseta Palestínu, nú í dag að hann væri mjög nálægt því að semja við uppreisnarhópa í landinu um að hætta árásum á Ísraela. Fréttir hafa borist af því að vopnahléssamkomalag væri í sjónmáli en talsmenn Abbas hafa neitað að tjá sig um málið hingað til.

Tveir gripnir í áhlaupi lögreglu

Lögregla í Þýskalandi handtók tvo menn sem grunaðir eru um að skipuleggja hryðjuverkaárásir í Írak. Þeir voru gripnir í áhlaupi lögreglu á hús í borginni Mainz og er annar þeirra talinn vera háttsettur innan hryðjuverkasamtakanna al-Qaida.

Deiluaðilar funda í Finnlandi

Fulltrúar indónesískra stjórnvalda og uppreisnarmanna í Aceh-héraði munu hittast á fundi í Finnlandi í lok næstu viku til þess að reyna að binda enda á þriggja áratuga blóðuga baráttu á Súmötru. Það voru samtök sem Martti Ahtisaari, fyrrverandi forseti Finnlands, er í forsvari fyrir sem áttu frumkvæðið að fundinum og mun Ahtisaari sjálfur reyna að miðla málum.

Ofsaveður í Bandaríkjunum

Ofsaveður olli því að fella varð niður hundruð flugferða í Bandaríkjunum í dag og umferð á vegum gekk bæði hægt og illa. Stormviðvaranir voru í gildi frá Wisconson til Nýja-Englands og víða kyngdi niður allt að hálfum metra af snjó. Í stórum hluta Norðausturríkjanna var allt í lamasessi og í Miðvesturríkjunum var ástandið litlu skárra.

Friðarhorfur vænkast

Friðarhorfurnar í Miðausturlöndum vænkast. Svo virðist sem Mahmoud Abbas hafi sannfært skæruliða um vopnahlé og Ísraelsmenn virðast hafa trú á Abbas.

Sjúkrahús brann

Eldur kviknaði í sjúkrahúsi í Nasiriyah, suðurhluta Íraks í gær með þeim afleiðingum að 14 manns eru taldir af og 75 slösuðust.

Júsjenkó sver embættiseið

Viktor Júsjenkó sór embættiseið sem forseti Úkraínu í gær, eftir tveggja mánaða kosningadeilu. Í ræðu sinni sagði hann að innsetning sín í embætti forseta væri sigur frelsis yfir einræði og nú væri þetta fyrrum sovéska ríki í miðju Evrópu.

Sáttaviðræður í Finnlandi

Stjórnvöld í Indónesíu og aðskilnaðarsinna uppreisnarmenn, munu hittast í Helsinki, Finnlandi nú í vikunni til að ræða formlegt vopnahlé í Aceh-héraði.

Fórnarlamba minnst

Franskir eftirlifendur helfararinnar vígðu í gær "Nafnavegg", minnismerki sem nafngreinir 76.000 gyðinga sem fluttir voru frá Frakklandi í síðari heimsstyrjöldinni.

Vill ekki á frímerki

Hinn einræni Nóbelsverðlaunahafi í bókmenntum árið 2004, Elfriede Jelinek, hefur hafnað tilboði austurrísku póstþjónustunnar um að eftirmynd sín verði sett á frímerki.

Eins saknað

Hjálparstarfsmenn í austurrísku Ölpunum héldu áfram leit sinni í gær að bandarískum snjóbrettamanni sem hefur verið saknað síðan snjóflóð féll á St. Anton-svæðið á laugardaginn. Að minnsta kosti þrír létust.

Fjórir létust í þyrluslysi

Flugmaður og þrír áhafnarmeðlimir létust þegar einkaþyrla hrapaði í Vestur-Englandi á laugardaginn.

Frjálslyndir missa örlítið fylgi

Stjórnarflokkarnir í Danmörku, Frjálslyndi flokkurinn og Íhaldsflokkurinn hafa misst örlítið fylgi samkvæmt skoðanakönnun sem gerð var fyrir Jótlandspóstinn og myndu missa eitt þingsæti ef úrslit kosninganna 8. febúrar yrðu þessi.

Vilja svipta ríkisborgararétti

Peter Pilz, einn af leiðtogum Græningjaflokksins í Austurríki, vill að Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri í Kaliforníu, verði sviptur austurrískum ríkisborgararétti. Hann hafi gert landinu skömm til með því að hafa samþykkt aftöku dæmds morðingja. Donald Beardslee nú í vikunni.

Tíðkast í Hollandi

Frá því árið 1997 hafa hollenskir læknar 22 sinnum framið líknardráp á nýfæddum börnum, sem vegna illvígra sjúkdóma hefðu ekki átt sér langra lífdaga auðið.

Nöfn allra skráð niður

Kínversk stjórnvöld skrá hjá sér nöfn allra þeirra, sem leggja leið sína að minningarstað um Zhao Ziyang, sem komið hefur verið upp á heimili hans í Peking.

Krefja Tíbeta um hlýðni

Kínverskir embættismenn krefjast þess að tíbetskir trúarleiðtogar sýni kínverskum yfirvöldum meiri hlýðni. Trúarleiðtogunum hefur verið hótað refsingum ef þeir sýna ekki meiri stuðning en verið hefur við stefnu Kínverja gagnvart Dalaí Lama, hinum útlæga trúarleiðtoga Tíbeta.

Segja Bush táknmynd djöfulsins

Pílagrímar í Mena í Sádi-Arabíu köstuðu í gær steinum í tákn djöfulsins, en það er hluti af pílagrímsför múslíma til helgu borgarinnar Mekka. Í viðtölum við fréttamenn sögðust margir pílagrímanna sjá George Bush Bandaríkjaforseta fyrir sér sem táknmynd skrattans.

Átta gíslum sleppt í Írak

Uppreisnarmenn í Írak kveðast ætla að sleppa átta kínverskum gíslum þeir þeir hafa haldið. Uppreisnarmennirnir sendu frá sér myndbandsupptöku þar sem þeir sögðu gíslunum verða sleppt þar sem kínversk stjórnvöld hefðu orðið við kröfum um að vara þegna sína við ferðalögum til Íraks.

Erlendar sveitir í Írak í 10-15 ár

Erlendar hersveitir verða í Írak í tíu til fimmtán ár, að mati bresks þingmanns í varnarmálanefnd breska þingsins. Engu að síður eru gerðar áætlanir um brotthvarf við fyrsta tækifæri í Washington og Lundúnum.

Óttast að lenda í miðju átaka

Hjálparstarfsmenn í Aceh-héraði í Indónesíu óttast að lenda í miðju átaka uppreisnarmanna og stjórnarhersins. Þrátt fyrir óformlegt vopnahlé halda átök áfram og hundruð hafa fallið í valinn á liðnum vikum.

Samkomulag um viðvörunarkerfi

Sérfræðingar og embættismenn sem funda í Japan um viðvörunarkerfi við flóðbylgjum hafa náð samkomulagi um tillögu að slíku kerfi eftir miklar þrætur og valdabaráttu. Kerfinu er ætlað að koma í veg fyrir hörmungar á borð við þær sem flóðbylgjan í Suðaustur-Asíu olli.

Konur mega bjóða sig fram í Íran

Konur mega bjóða sig fram í forsetakosningunum í Íran sem haldnar verða í júní. Varðaráð Írans tilkynnti þetta í morgun, en það hafði áður komist að þeirri niðurstöðu að konur mættu ekki bjóða sig fram. Þessi ákvörðun er niðurstaða túlkunar á orði í stjórnarskrá Írans, sem sérfræðingar varðaráðsins segja að geti einnig náð yfir konur.

Hollendingar hræddir við múslíma

Stór hluti Hollendinga er hræddur við múslíma samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem gerð var þar í landi. Aðeins 19 prósent landsmanna telja að sér stafi ekki hætta af múslímum, en alls býr tæplega ein milljón múslíma í landinu og eru þeir um sex prósent íbúa þar.

Bjargað eftir 25 daga

Björgunarmenn fundu fyrr í vikunni mann á lífi á einni af af eyjunum í Andaman- og Níkóbareyjaklasanum sem urðu illa úti í flóðbylgjunni á annan dag jóla. Maðurinn, sem tilheyrir nikóbarískum ættbálki, hafði verið á lítilli eyju sem nefnist Pillow Panja í 25 daga þegar björgunarmenn sáu hann veifa fána sem hann hafði búið til úr fötunum sínum.

Örlögin minna á Rómeó og Júlíu

Fjölmiðlar á Ítalíu greina frá harmrænni sögu í dag sem minnir um margt á sögu Rómeós og Júlíu. Eldri maður svipti sig lífi eftir að hafa gefist upp á að bíða eftir að konan sín vaknaði úr dái. Hún hafði legið í dái í fjóra mánuði eftir hjartaáfall.

Listinn ekki lengur til

Listi hinna staðföstu þjóða er ekki lengur til, og því illgerlegt fyrir stjórnvöld að taka Íslendinga af honum. Auglýsing Þjóðarhreyfingarinnar í New York Times í gær virðist litla sem enga athygli hafa vakið.

Ótti í aðdraganda kosninga í Írak

Ótti einkennir lífið í Írak þessi dægrin, í aðdraganda frjálsra kosninga sem eiga að fara þar fram eftir rúma viku. Jón Ársæll Þórðarson er staddur þar og segir viðmælendur sína of hrædda til að fara á kjörstað.

Deilt um dreifingu hjálpargagna

Skærur og þrætur torvelda hjálparstarf í þeim tveimur löndum sem verst urðu úti í flóðbylgjunni í Asíu. Deilt er um dreifingu hjálpargagna og tækifærið jafnvel notað til að klekkja á andstæðingum.

Listinn ekki lengur notaður

Ísland er ekki lengur á neinum lista yfir bandamenn Bandaríkjanna í Íraksmálinu, samkvæmt því sem Reuters-fréttastofan hafði eftir ónefndum bandarískum embættismanni í gær.

Hafa fallist á vopnahlé

Abu Muhammed, einn af talsmönnum Al Aksa píslarvottarsveitanna, sagði í gær að sveitirnar gætu fallist á vopnahlé, svo framarlega sem Ísraelsmenn samþykkja einnig að hætta árásum á Palestínumenn og leysi jafnframt palestínska fanga úr haldi.

Bjargað eftir 25 daga

Michael Mangal var bjargað af örlítilli eyju í Indlandshafi á föstudaginn. Hann hafði verið þar einn í 25 daga, eða allt frá því flóðbylgjan mikla reið yfir á jóladag.

Sprenging við mosku sjíta

Að minnsta kosti átta féllu í valinn í morgun þegar bílsprengja sprakk utan við mosku sjíta í vesturhluta Bagdad í Írak. Að minnsta kosti 38 slösuðust í árásinni en að sögn lögreglu er talið líklegt að tala látinna og slasaðra eigi eftir að hækka.

Al-Zarqawi býst við löngu stríði

Hryðjuverkaleiðtoginn Abu Musab al-Zarqawi í Írak segir fylgismönnum sínum að búa sig undir að stríðið gegn Bandaríkjamönnum kunni að vara í áraraðir. Á nýrri hljóðupptöku, sem sögð er frá al-Zarqawi, segir hann jafnframt að Omar Hadid, einn af leiðtogum al-Qaida í borginni Fallujah, hafi fallið í bardögum við Bandaríkjamenn en talið var að hann hefði komist lífs af.

Allir fái nauðsynleg næringarefni

Neyðaraðstoð í Ache-héraði í Indónesíu miðar nú að því að fólk fái öll nauðsynleg næringarefni en ekki bara magafylli af hverju sem er. Nær allir sem voru matarþurfi hafa nú fengið mat en að sögn yfirnæringarfræðings Sameinuðu þjóðanna er óttast að einhæf fæða geti leitt til þess að fórnarlömb hamfaranna veikist.

Fjölmenn mótmæli í Washington

Tugþúsundir manna mótmæltu þegar George Bush sór embættiseið með mikilli viðhöfn í Washington í gær. Þrátt fyrir gríðarlega öryggisgæslu náði hluti mótmælendanna að brjóta sér leið inn á svæði, sem lögregla hafði girt af, við Pennsylvaníu-breiðstræti. Lögreglumenn beittu piparúða til þess að brjóta mótmælin á bak aftur.

Jeb Bush verði arftaki bróður síns

Í nýjasta tímariti The Economist er Jeb Bush, bróður núverandi Bandaríkjaforseta, slegið upp sem vænlegasta arftaka hans innan Repúblikanaflokksins. Dick Cheney, núverandi varaforseti, hefur lýst því yfir að hann muni ekki bjóða sig fram árið 2008. Það opnar leiðina fyrir Jeb Bush, sem nú er ríkisstjóri í Flórída og verður það til ársins 2006.

Fjórtán látnir í sprengjuárás

Nú er ljóst að 14 hafa látist og 40 særst í sjálfsmorðssprengjuárás nærri mosku sjíta í vesturhluta Bagdad í morgun. Fjölmargir voru á leið til bæna í moskunni þegar bíl var ekið að henni og hann sprengdur í loft upp, en í gær hófst Eid al-Adha, trúarhátíð múslíma.

Cheney viðrar áhyggjur af Íran

Íran er efst á lista bandarískra stjórnvalda yfir vandræðasvæði víðs vegar um heiminn, að sögn Dicks Cheneys, varaforseta Bandaríkjanna. Þetta kom fram í útvarpsviðtali í gær, en undanfarna daga hafa borist af því fregnir að Bandaríkjastjórn leggi á ráðin um innrás í Íran. Talsmenn stjórnvalda hafa neitað þessu.

Boston skotmark hryðjuverkamanna

Boston-borg er talin líklegt skotmark alþjóðlegra hryðjuverkamanna sem sagðir eru ætla sér að nota svokallaðar óhreinar sprengjur, en það eru hefðbundnar sprengjur blandaðar geislavirkum bútum sem ætlað er að valda sem mestri ringulreið.

Sjá næstu 50 fréttir