Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lenín endist í 100 ár í viðbót Líkið af Lenín sem er til sýnis í grafhýsi hans á Rauða torginu er enn í góðu standi og endist að minnsta kosti eitt hundrað ár í viðbót, en í dag er 81 ár síðan byltingarleiðtoginn lést. Einn sérfræðinganna sem annast líkið, segir að það fari hins vegar að líða að því að leiðtoginn þurfi að fá ný föt. 21.1.2005 00:01
ESB íhugar auglýsingabann Evrópusambandið íhugar að banna auglýsingar á sælgæti og skyndibitamat grípi framleiðendur ekki sjálfir til sinna ráða. Offituvandi barna og unglinga í Evrópu er alvarlegur að mati matvælaráðherra sambandsins sem ætlar að leggja fram tillögur að samræmdum reglum sem fyrirtækin geti sett sér í þessu efni. 21.1.2005 00:01
Funda um trúnað í utanríkisnefnd Halldór Ásgrímsson neitar að verða við beiðni fjölmiðla um viðtal vegna Íraksmálsins. Formaður utanríkismálanefndar segir að ekki standi til að aflétta trúnaði á fundargerðum nefndarinnar. </font /></b /> 21.1.2005 00:01
Tveir menn hálshöggnir í Írak Hópur á vegum al-Qaida hryðjuverkaleiðtogans Abus Musabs al-Zarqawis sendi frá sér myndband á Netinu fyrr í dag þar sem sýnt er þegar tveir Írakar eru hálshöggnir, en þeir eiga að hafa unnið í bandarískri herstöð. 21.1.2005 00:01
Meirihluti Íraka hyggst kjósa Yfirgnæfandi meirihluti Íraka ætlar að mæta á kjörstað 30. janúar þrátt fyrir mannskæðar árásir vígamanna undanfarið, ef marka má skoðanakönnun sem unnin var fyrir bandarísku samtökin International Republican Institute. Samkvæmt henni segja fjórir af hverjum fimm kjósendum líklegt að þeir kjósi. 21.1.2005 00:01
Skutu tvo þrettán ára pilta Ísraelskir hermenn skutu 13 ára palestínskan dreng til bana eftir að hafa tekið hann í misgripum fyrir vígamann. Pilturinn var í hópi barna og unglinga á Vesturbakkanum sem gerðu hróp að hermönnunum. Þegar hann dró upp leikfangabyssu og beindi að þeim töldu þeir að um vígamann væri að ræða og skutu hann. Hann lést í sjúkrabíl á leið á sjúkrahús. 21.1.2005 00:01
Sammála Bush en efins um árangur Meirihluti Bandaríkjamanna er sammála því markmiði George W. Bush Bandaríkjaforseta að koma á lýðræði sem víðast í heiminum, meirihlutinn er þó jafnframt efins um að Bandaríkin megni að gera það samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallup fyrir CNN og USA Today. 21.1.2005 00:01
Viðurkenna landamæri Ísraels Forysta Hamas hefur í fyrsta sinn í sögu sinni dreift skjölum þar sem fram kemur að samtökin viðurkenni landamæri Ísraels frá árinu 1967 og tekið er undir markmið Fatah um stofnun sjálfstæðs palestínsks ríkis með Jerúsalem sem höfuðborg. 21.1.2005 00:01
Enn á móti smokknum Kaþólska kirkjan á Spáni hefur í engu breytt afstöðu sinni og er enn andvíg notkun smokksins. Þetta segja forystumenn kirkjunnar og gera lítið úr orðum Juan Antonio Martinez Camino, biskups og talsmanns samtaka spænskra biskupa, sem sagði á þriðjudag að smokkurinn ætti sér hlutverk í baráttunni gegn alnæmi. 21.1.2005 00:01
Danir kærðir fyrir misþyrmingar Fimm danskir hermenn hafa verið ákærðir fyrir að misþyrma íröskum föngum sem haldið var í herbúðum nærri Basra í fyrra. Hæst setti hermaðurinn, höfuðsmaður, sætir fjórum ákærum fyrir vanrækslu við störf. 21.1.2005 00:01
Aldrei fleiri pílagrímar Fleiri pílagrímar sækja hajj, trúarhátíð múslima, heim í ár en nokkru sinni fyrr. Meira en tvær og hálf milljón pílagríma var komin til Sádi-Arabíu í gær á Eid al-Adha, hátíð fórnarinnar, sem er mikilvægasti helgidagur múslima. 21.1.2005 00:01
Dani í haldi Ísraela Dönskum ríkisborgara, sem grunaður er um tengsl við líbanska Hezbollahskæruliða, er haldið í fangelsi af ísraelskum yfirvöldum. Maðurinn var handtekinn 6. janúar en ekki var upplýst um handtöku hans fyrr en á fimmtudag og hefur það vakið reiði danskra yfirvalda. 21.1.2005 00:01
Bresk börn í mestum efnum Bresk börn og unglingar eru allra evrópskra barna duglegust við að nauða í foreldrum sínum um peninga. Þetta kemur fram í úttekt Datamonitor á því hversu mikið fé íbúar Evrópuríkja láta börn sín hafa. 21.1.2005 00:01
Lítið umburðarlyndi trúarskóla Einkareknir íslamskir skólar eru skárri í að kenna börnum umburðarlyndi en einkareknir kristnir skólar. Þetta er niðurstaða breskrar stofnunar sem hefur eftirlit með menntun í Bretlandi. 21.1.2005 00:01
Glæsifley reynist vandræðadalllur Eitt mesta glæsifley heims er vandræðadallur. Aurora nefnist flaggskip P&O-skemmtiskipakeðjunnar. Fyrir hálfum mánuði lagði skipið af stað í hundrað daga rándýra ferð um heiminn en komst ekki nema út á Ermarsund þar sem vélarnar gáfu sig. Eftir margra daga pínlega bið úti á hafi voru farþegarnir færðir í land í gær. 21.1.2005 00:01
Hyggst færa heiminum frelsi Maðurinn, sem gárungar sögðu forseta fyrir slysni, verður forseti Bandaríkjanna í fjögur ár í viðbót og nú með miklum meirihluta atkvæða. George Bush ætlar að færa heimsbyggðinni frelsi og segir það tryggja öryggi Bandaríkjanna. 21.1.2005 00:01
Segir afstöðu ráðast af fordómum Írak og Íran eru þau ríki sem eru efst á verkefnalista George Bush í utanríkismálum. Víða á Vesturlöndum eru þessi lönd álitin vandamál. Magnús Þorkell Bernharðsson, sérfræðingur í málefnum Miðausturlanda, hefur ritað nýja bók þar sem hann fjallar um sögu þessara ríkja, menningu þeirra og trúarbrögð. Hann segir afstöðu Vesturlanda ráðast meira af innanríkispólitík og fordómum en nokkru öðru. 21.1.2005 00:01
Höfuðblæjur má banna Hæstiréttur Danmerkur komst að þeirri niðurstöðu að stórmarkaðurin Føtex mátti banna íslömskum konum að bera höfuðblæju í vinnunni og reka 26 ára konu sem neitaði að taka blæjuna niður. 21.1.2005 00:01
Vinna fyrir hjálpargögnum Fórnarlömb hamfaranna í Asíu eru nú látin vinna fyrir hjálpargögnunum sem dreift er þar sem sérfræðingar hjálparstofnana óttast að öðrum kosti verði hundruð þúsunda háð gjöfum. Neyðarhjálp er nú víða lokið og uppbygging tekin við. 21.1.2005 00:01
Sjálfsmorðsárás í Afganistan Tveir slösuðust í sjálfsmorðsárás utan við mosku í norðurhluta Afganistans í morgun. Afganskur yfirhershöfðingi sem var við bænir inni í moskunni slapp ómeiddur en talið er að tilræðið hafi beinst gegn honum. 20.1.2005 00:01
Viðvörun frá FBI Bandaríska alríkislögreglan hefur hefur sent út leitarviðvörun vegna fjögurra Kínverja sem hugsanlega eiga aðild að hryðjuverkasamtökum og gætu verið á leiðinni til Boston. Alríkislögreglunni barst símhringing frá ónafngreindum aðila í gær þar sem varað var við Kínverjunum sem ekki hafa komið áður við sögu lögreglu í Bandaríkjunum. 20.1.2005 00:01
Geysileg öryggisgæsla í Washington Sex þúsund lögreglumenn og 2500 hundruð hermenn verða í viðbragðsstöðu vegna embættistöku George Bush Bandaríkjaforseta sem fram fer í Washington í dag. Þetta er í fyrsta sinn sem forseti Bandaríkjanna er svarinn í embætti eftir hryðjuverkin þann 11. september árið 2001 og tekur öryggisgæslan mið af því. 20.1.2005 00:01
Lokaáfrýjun Janúkovítsj hafnað Hæstiréttur Úkraínu staðfesti í gærkvöldi að Viktor Júsjenkó hefði sigrað forsetakosningarnar í Úkraínu sem haldnar voru á annan í jólum. Lokaáfrýjun Viktors Janúkovítsj var hafnað og eru honum því endanlega allar bjargir bannaðar. Fastlega er reiknað með því að Júsjenkó sverji embættiseið um helgina. 20.1.2005 00:01
38 merkur við fæðingu Drengur sem vó þrjátíu og átta merkur við fæðingu fæddist í Brasilíu í gær. Ademilton Dos Santos er stærsta barn sem fæðst hefur í Brasilíu og er stærð hans þegar á við meðalstórt hálfs árs gamalt barn. Það þarf því vart að koma á óvart að hann hefur þegar hlotið viðurnefnið „Risabarnið“. 20.1.2005 00:01
Skref í friðarátt Palestínumenn lögðu í dag fyrir Ísraela ítarlega áætlun um hvernig öryggissveitum verði beitt til þess að stöðva árásir á ísraelskar landnemabyggðir á Gasasvæðinu. Háttsettur foringi í öryggissveitum Palestínumanna sagði að þeir væru reiðubúnir að senda sveitirnar inn hvenær sem er; þeir biðu bara eftir viðbrögðum Ísraela við áætluninni. 20.1.2005 00:01
Rice viðurkennir mistök í Írak Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, viðurkenndi í gær að ríkisstjórn George Bush hefði gert ýmis mistök í Írak. Til dæmis hefði stjórnin ekki búist við að það yrði svona erfitt að koma á stöðugleika í landinu eftir að Saddam Hussein var steypt af stóli. 20.1.2005 00:01
Meirihluti 1-7 ára barna fórst Svo virðist sem meirihluti barna á aldrinum 1-7 ára hafi farist þegar flóðbylgjan skall á Aceh-héraði í Indónesíu á annan í jólum. 20.1.2005 00:01
Amnesty skorar á Bush Amnesty International hvetur Bush Bandaríkjaforseta til að binda enda á pyntingar og fara að alþjóðalögum í áskorun sem samtökin hafa sent forsetanum. Þar segir að Bandaríkin brjóti mannréttindi á föngum sem þeir hafa í haldi vegna stríðsins gegn hryðjuverkum. 20.1.2005 00:01
Landslag á Títan líkt því íslenska Landslag á Títan, fylgitungli Satúrnusar, er um margt líkt því sem er á Íslandi - nema hvað þar er ekkert líf að finna segja vísindamenn. 20.1.2005 00:01
Sví tekinn af lífi Írakskir uppreisnarmenn segjast hafa rænt og tekið af lífi sænskan og breskan ríkisborgara í borginni Beiji í miðhluta Írak. Þeir segja að mennirnir hafi unnið fyrir vantrúaða og því hafi þeir tekið þá af lífi. 20.1.2005 00:01
786 Svía enn saknað Sænska lögreglan hefur gert nýjan lista yfir þá sem saknað er eftir hamfarirnar í Suðaustur-Asíu. 786 manns eru á listanum og hefur þeim sem saknað er þannig fækkað um rúmlega eitthundrað. Af þessum eru 400 sem lögreglan hefur ýmis konar upplýsingar um sem hægt er að nota til að bera kennsl á lík þeirra, svo sem DNA-sýni og tannlæknaskýrslur. 20.1.2005 00:01
Júsjenko heimsækir Rússland Nýkjörinn forseti Úkraínu, Viktor Júsjenko, ætlar að heimsækja Rússland strax eftir að hafa verið settur inn í embætti á sunnudag. Stjórnvöld í Rússlandi studdu keppinaut hans, Viktor Janúkovítsj, í kosningabaráttunni en Valdimír Pútín Rússlandsforseti hefur boðið Júsjenko velkominn. 20.1.2005 00:01
Guðni hugsaði ekki nógu vítt Framsóknarmaðurinn Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra ræðir á heimasíðu sinni um átökin varðandi Íraksmálið. Þar segir hún að ummæli Guðna Ágústssonar, varaformanns flokksins, um að tveir menn hefðu tekið ákvörðunina um stuðning við Íraksinnrásina beri vott um að hann hafi ekki hugsað nógu vítt og verið að reyna að spila frítt. 20.1.2005 00:01
Enginn hungurdauði á flóðasvæðum Enginn þeirra sem lifðu af hamfarirnar við Indlandshaf fyrir tæpum mánuði mun deyja af völdum hungurs, fullyrðir Tony Banbury, yfirmaður matvælaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna. "Við munum koma mat til allra þeirra sem þess þarfnast," sagði hann eftir heimsókn í þorp á vesturströnd Indónesíu. 20.1.2005 00:01
Ráðherra kallar Rice fasista Ráðherra í Simbabve vísar á bug fullyrðingum Condoleezza Rice, verðandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, um að Simbabve sé eitt af harðstjórnarríkjum heims. "Við höfum ekki áhyggjur þegar fasistar gera svona athugasemdir," sagði Didymus Mutasa, ráðherra gegn spillingu, í viðtali við BBC. 20.1.2005 00:01
Fjölga áhlaupum í Írak Níu voru handteknir og vopn gerð upptæk í áhlaupi bandaríska hersins í írösku borginni Mosul í fyrrinótt. Bandaríski herinn hefur fjölgað áhlaupum til að handtaka andspyrnumenn sem hafa hótað ófriði í væntanlegum kosningum. Stærstu götum Bagdad hefur verið lokað eftir tíðar bílsprengjur undangengna daga. 20.1.2005 00:01
Skutu dreng til bana Þrettán ára drengur var skotinn til bana af ísraelskum hermönnum á Vesturbakkanum í gær eftir að hann beindi leikfangabyssu að þeim. 20.1.2005 00:01
Zapatero vill frið við ETA Jose Zapatero, forsætisráðherra Spánar segist munu grípa minnsta tækifæri til að tryggja varanlegan frið í Baskahéruðum Spánar en aðeins með því skilyrði að ETA, aðskilnaðarhreyfing Baska, leggi niður vopnin. 20.1.2005 00:01
Vill aðra rannsókn á Kúrsk Rússneskur lögfræðingur hefur farið fram á það við Mannréttindadómstól Evrópu að slys kafbátsins Kúrsk, sem fórst árið 2000, verði rannsakað aftur þar sem fyrri rannsókn málsins hafi verið ábótavant. Rússneskir dómstólar höfnuðu því að taka málið upp aftur í desember í fyrra. 20.1.2005 00:01
Stjórnvöld vissu af listanum Stjórnvöld vissu þegar ákveðið var að styðja innrásina í Írak, 18. mars 2003, að með því væru Íslendingar komnir á lista yfir hinar 30 staðföstu þjóðir. Framsóknarmenn halda því fram að listinn hafi verið "síðari tíma tilbúningur". </font /></b /> 20.1.2005 00:01
Enn ekki krafist lausnargjalds Lykilkort hins horfna auðjöfurs í Svíþjóð var í fyrrinótt notað til að komast inn á skrifstofu í fyrirtækinu hans. Enn hafa ekki borist neinar kröfur um lausnargjald. 20.1.2005 00:01
Bush kvikar hvergi Helgasta skylda mín er að verja Bandaríkin sagði George Bush þegar hann sór embættiseið sem forseti Bandaríkjanna nú síðdegis. Hann sagðist hvergi mundu kvika við þau skyldustörf. 20.1.2005 00:01
Da Vinci freskur finnast Löngu týnd vinnustofa og íbúð lista- og uppfinningamannsins Leonardos da Vincis er fundin í Flórens á Ítalíu. Þar eru meðal annars freskur eftir da Vinci sem enginn vissi að væru til. 20.1.2005 00:01
ESB hótar lagasetningu Evrópusambandið vill að matvælafyrirtæki hætti að beina auglýsingum um óhollan mat til barna. Sambandið ætlar að setja lög verði fyrirtækin ekki við kröfum þess. Um 25 prósent barna innan Evrópusambandsins eru of feit. </font /></b /> 20.1.2005 00:01
Bush hét kúguðum aðstoð "Frelsið sem við njótum í okkar eigin landi veltur æ meira á því hvort frelsið nái fram að ganga í öðrum löndum." sagði George W. Bush í gær þegar hann sór eið sem 43. forseti Bandaríkjanna fyrir framan um hálfa milljón manns á tröppum þinghússins í Washington. 20.1.2005 00:01