Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gísl sleppt í Írak Bandarískum blaðamanni, Micah Geran, sem verið hefur í haldi mannræningja í Nassiríja í Írak, var sleppt úr haldi seint í gær. Honum var rænt þrettánda ágúst síðastliðinn og er hann sagður vel á sig kominn. 23.8.2004 00:01
Olíuverð á svipuðu reiki Olíuverð er á svipuðu reiki og fyrir helgi en seint á föstudag lækkaði það skyndilega um tæp níutíu sent, var 47,86 sent á fatið. Sérfræðingar töldu þá allar líkur á að verðið færi yfir fimmtíu dollara og segja þeir þá spá enn í gildi. Verðið hefur hækkað lítillega í morgun. 23.8.2004 00:01
Málverka Munchs enn leitað Enn hefur hvorki fundist tangur né tetur af ræningjunum sem gengu með tvö þekktustu málverk Edvards Munchs, Ópið og Madonnu, út úr listasafni hans í Ósló í gær. Ræningjarnir hafa heldur ekki haft samband til yfirvöld til að krefjast lausnargjalds, eins og búist var við. 23.8.2004 00:01
Ísraelar byggja í landnemabyggðum Ísraelar byggja nú hundrað ný heimili í landnemabyggðum á svæði Palestínumanna úti fyrir Jerúsalem. Framkvæmdirnar hafa valdið nokkurri ólgu meðal Palestínumanna sem sökuðu bandarísk stjórnvöld í gær um að ganga þvert á samþykktir um friðarferli í Miðausturlöndunum með því að samþykkja stækkun á landnemabyggðunum. 23.8.2004 00:01
Olíuverð hækkar aftur Olíuverð hækkaði í morgun eftir að hafa lækkað skyndilega um tæp níutíu sent skömmu áður en viðskiptum lauk á föstudag. Sérfræðingar töldu þá allar líkur á að verðið færi yfir fimmtíu dollara og segja þeir þá spá enn í gildi. 23.8.2004 00:01
Meintur morðingi framseldur Meintur morðingi Zorans Djindjic, forsætisráðherra Serbíu, verður framseldur frá Grikklandi til Serbíu von bráðar. Dejan Milenkovic var handtekinn í Þessalóniku á Grikklandi fyrr á þessu ári en hann er talinn lykilmaður innan mafíuhóps sem talinn er bera ábyrgð á morðinu á Djindjic. 23.8.2004 00:01
Harka og ósvífni í kapphlaupinu Harka og ósvífni er komin í forsetakapphlaupið í Bandaríkjunum. Hópar sem tengjast Bush forseta saka John Kerry um að ljúga til um hetjudáðir í Víetnamstríðinu og gefa í skyn að hann sé engin stríðshetja. Kerry segir þetta skítkast úr herbúðum forsetans. 23.8.2004 00:01
Líklega góðkunningjar lögreglu Lögreglan í Ósló er engu nær um felustað mannanna sem rændu tveimur þekktustu málverkum Edvards Munchs af safni í Ósló í gær. Þó er talið að ekki séu fagmenn á ferð heldur svokallaðir góðkunningjar lögreglu. 23.8.2004 00:01
Moskan á valdi skæruliðanna Barist er í nánd við Imam Ali moskuna í Najaf í Írak sem er enn á valdi Mehdi-skæruliðasveita Muqtada al-Sadrs. Nokkur óvissa hefur ríkt um hvernig ástandið í Najaf væri í raun og veru og á hvers valdi Imam Ali moskan væri. 23.8.2004 00:01
Yfir 500 íbúðir verða reistar Ísraelar reisa nú hundrað og tuttugu íbúðir í landnemabyggðum á landssvæðum Palestínumanna í nágrenni Jerúsalem. Samkvæmt heimildum Reuters-fréttastofunnar er stefnt að því að reisa yfir fimm hundruð íbúðir á svæðinu. Bandaríkjastjórn er sögð hafa veitt óformlegt leyfi fyrir þessu. 23.8.2004 00:01
Vill réttarhöldin frá Bagdad Bandarískur hermaður sem ákærður er fyrir pyntingar og kynferðislega niðurlægingu á írökskum föngum í Abu Ghraib fangelsinu hefur óskað eftir því að réttarhöldin verði færð frá Bagdad. Hermaðurinn, Charles Graner að nafni, segist ekki eiga möguleika á sanngjörnum réttarhöldum í íröksku höfuðborginni og bar þessa ósk því fram í dag. 23.8.2004 00:01
Málverkin einhvers staðar í Ósló Norska lögreglan telur að málverkunum sem stolið var úr Munch-safninu í Ósló í gær hafi verið komið fyrir einhvers staðar í borginni. Tveir vopnaðir menn höfðu útgáfur af frægustu verkum Munchs á brott með sér í gærmorgun, Ópinu og Madonnu. Tugir gesta voru í safninu á þessum tíma og hafa þeir gefið þann vitnisburð að mennirnir hafi borið sig klaufalega. 23.8.2004 00:01
Þrettán Nepölum rænt í Írak Þrettán nepölskum ríkisborgurum var rænt í Írak í dag að því er nepalska utanríkisráðuneytið tilkynnti fyrir stundu. Fólkið er allt starfsmenn jórdansks fyrirtækis og hafði verið sent á þess vegum til Íraks til að vinna. Að sögn nepalska utanríkisráðuneytisins var því rænt þegar það var að stíga upp í bifreið, stuttu eftir komuna til landsins. </font /> 23.8.2004 00:01
Fellibylur ógnar Taívan Líkur eru á að fellibylur gangi yfir Taívan á næstu dögum með tilheyrandi flóðum og aurskriðum. Af þeim sökum hefur verið ákveðið að loka öllum skólum, fjármálamörkuðum og fyrirtækjum í höfuðborginni Taípei og fleiri stöðum í norðvesturhluta landsins á morgun. 23.8.2004 00:01
Stór eiturlyfjabarón handtekinn Mexíkóska lögreglan hefur handtekið eiturlyfjabarón þar í landi sem grunaður er um að standa fyrir smygli á u.þ.b. helmingi þess magns eiturlyfja sem smyglað er árlega til Bandaríkjanna frá Mexíkó. 23.8.2004 00:01
Al-Sadr farinn frá Najaf Muqtada al-Sadr er farinn frá Najaf. Reyndar segir lögreglustjórinn í borginni að hann hafi farið úr Imam Ali moskunni fyrir rúmri viku. Mehdi-hersveitir hans berjast samt áfram og hafa í dag tekist á við bandaríska og írakska hermenn í návígi. Sjónarvottar segja bardagana þá hörðustu síðan átök blossuðu upp í borginni fyrir þremur vikum. 23.8.2004 00:01
Myndirnar ekki bannaðar Myndir sem sýna bandaríska hermenn níðast á föngum í herfangelsum í Írak verða ekki bannaðar. Lögmenn hermannanna fóru þó fram á það við frumréttarhöld í Þýskalandi í dag. 23.8.2004 00:01
Nýjar byggingar í landnemabyggðum Stjórnvöld í Ísrael tilkynntu í gær að þau munu reisa rúmlega 500 byggingar á Vesturbakkanum, til viðbótar við þúsund nýbyggingar sem einnig munu rísa í landnemabyggðum. Þá kunngjörðu þau að smíði aðskilnaðarmúrsins ljúki ekki fyrr en árið 2005, ári á eftir áætlun. 23.8.2004 00:01
Bush fordæmir rógsherferð George W. Bush Bandaríkjaforseti fordæmir sjónvarpsauglýsingar frá einkaaðilum sem gera lítið úr honum eða John Kerry, mótframbjóðanda sínum. Hann hvetur fólk til að láta af slíkum rógi og segir þetta slæmt fyrir kosningarnar. 23.8.2004 00:01
Hörmungarnar í Darfúr gætu aukist Farsóttir gætu aukið enn hörmungar flóttamanna frá Darfur-héraði í Súdan. Þrátt fyrir fögur fyrirheit um bætt ástand eru skæruliðasveitir stjórnvalda enn sagðar á kreiki í Darfur. 23.8.2004 00:01
Dómsmálaráðherra sýnt banatilræði Fjórir létust og átta særðust þegar dómsmálaráðherra Íraks var sýnt banatilræði. Sjálfsmorðsárás var gerð á bílalest ráðherrans í í Bagdad, en hann slapp ómeiddur. Hryðjuverkasamtök Jórdanans al-Zarqawi, hafa lýst sig ábyrg fyrir sprengingunni. 22.8.2004 00:01
18 létust á útifundi í Bangladesh Að minnsta kosti 18 léstust þegar sprengjur sprungu á útifundi í Bangladesh seint í gærkvöldi. Fyrrverandi forsætisráðherra landsins Hasina Wajed var í aðalhlutverki á fundinum og taliðað árásin hafi beinst að henni. Um 300 manns særðust í árásinni. 22.8.2004 00:01
Enn kom til átaka í Najaf Að minnsta kosti 40 létust í gær í við borgina Najaf þegar til átaka kom milli herskárra sjíta-múslima og bandarísks herliðs. Átökin áttu sér stað í nálægum bæ, Kufa, sem er einn af mörgum stöðum þar sem sjíta-múslimar sem eru stuðningsmenn róttæka herklerksins Moqtada al-Sadr, hafa gert uppreisn. 22.8.2004 00:01
Ópi Munchs rænt Málverkin, Ópið og Maddonna, sem rænt var úr Munch safninu í Osló í dag, eru svo þekkt að ómögulegt verður fyrir þjófana að selja þau, segja listasérfræðingar. Það er því talið líklegt að ræningjarnir muni fara fram á lausnargjald fyrir málverkin. 22.8.2004 00:01
Lögreglan í viðbragðsstöðu Írakska lögreglan er í viðbragðsstöðu komi til þess að írakski forsætisráðherrann krefjist þess að þeir taki Imam Ali moskuna í borginni Najaf með valdi. Enn hafa liðmenn uppreisnarklerksins Moqtada al-Sadr moskuna á sínu valdi. 22.8.2004 00:01
Gyðingahatur færist í vöxt Brennuvargar brenndu athvarf í gyðingahverfi í París í morgun, þá voru hakakrossar málaðir á veggi þess. Forseti Frakklands, Jacques Chirac, hefur fordæmt verknaðinn. Þetta er ein margra árása sem gerðar hafa verið á samfélag gyðinga að undanförnu. 22.8.2004 00:01
Fyrsta þing Sómalíu í 13 ár Fyrsta þing Sómalíu í 13 ár verður að öllum líkindum að veruleika í dag, þegar innsetning þess verður haldin í höfuðborg Kenya, Nairobi. Komist hefur verið að samkomulagi um 275 þingsæti en umræður hafa staðið í tvö ár milli stjórnmálaflokka. 22.8.2004 00:01
25 létust í flugslysi 25 létust þegar flugvél flughersins í Venesúela, brotlenti vestur af Caracas. Talið er að slæmt veður hafi ollið slysinu. Þrír voru í áhöfn vélarinnar og 22 farþegar. Þegar björgunarlið kom á staðinn var enginn á lífi. Flugumferðarstjórar misstu samband við flugvélina síðdegis á laugardag, en vélin var að koma frá karabísku eyjunni La Orchila. 22.8.2004 00:01
Þrír látast í launsátri Starfsmaður frá Indónesíu og tveir Írakar, létust í launsátri í íröksku borginni Mosul í dag. Þá særðist maður frá Filipseyjum. Útlendingarnir tveir voru verktakar hjá erlendu fyrirtæki. 22.8.2004 00:01
Mótmæla veru Bandaríkjahers 93 framámenn í samfélagi múslima, sem eru andvígir veru Bandaríkjahers í Írak, hafa hvatt múslima um heim allan að styðja andspyrnu gegn herjum Bandaríkjanna og bráðabirgðastjórn Íraka sem tók við völdum í júní. 22.8.2004 00:01
Ræninginn talaði norsku Mikið lið lögreglu rannsakar nú rán á málverkum sem stolið var af Munch safninu í Osló í dag. Málverkin eru margra milljóna virði og eru eftir Edward Munch. Lögregla rannsakar nú bæði safnið sjálft og svo flóttabíl ræningjanna sem fannst stuttu eftir ránið mannlaus. 22.8.2004 00:01
Fyrstu réttarhöldin í Guantanamo Fjórir af föngum Bandaríkjahers í Guantanamo á Kúbu koma fyrir herdómstól í vikunni. Þetta verða fyrstu réttarhöldin yfir föngum í Guantanamo. 22.8.2004 00:01
Grunur um raðmorð Breska lögreglan telur ýmislegt benda til þess að Amelie Delagrange, sem var myrt í London á fimmtudaginn, hafi verið fórnarlamb raðmorðingja. 22.8.2004 00:01
Stálu Ópinu og Madonnu Hinu fræga málverki Edvards Munch, Ópinu, var stolið frá Munch-safninu í Ósló í gær ásamt fleiri málverkum. Meðal þeirra var annað frægt verk eftir Munch, og heitir það Madonna. Tveir eða þrír vopnaðir menn gengu inn í safnið, hótuðu starfsfólki með byssum og fóru með málverkin út í bifreið sem beið fyrir utan safnið. 22.8.2004 00:01
Afhenda Sistani moskuna Liðsmenn Moqtada al-Sadr munu afhenda al-Sistani æðsta klerk sjíta, Ali moskuna í Najaf í Írak. Enn er á huldu hvar al-Sadr sjálfur heldur sig. Misvísandi fregnir berast þó enn af stöðu mála. 21.8.2004 00:01
Höfðar mál gegn fangelsi Bretinn Richard Reid, sem dæmdur var í lífstíðar fangelsi, fyrir að gera tilraun til að sprengja farþegaflugvél American Airlines, með sprengiefni sem hann kom fyrir í skóm sínum, hefur höfðað mál gegn bandarískum fangelsismálayfirvöldum. 21.8.2004 00:01
Læknar sakaðir um pyntingar Alvarlegar ásakanir um misþyrmingar gagnvart föngum eru settar fram í hinu virta læknatímariti Lancet, á hendur læknum og hjúkrunarfólks innan bandaríkjahers. Blaðið birtir upplýsingar úr gögnum frá stjórnvöldum sem gefa til kynna að heilbrigðisstarfsfólkið beri ábyrgð á slæmri meðferð fanga í Abu Graib fangelsinu í Írak, og hafi einnig gengið í skrokk á föngunum, líkt og fangaverðirnir. 21.8.2004 00:01
Átök við borgina Hilla Pólskur hermaður lést og sex aðrir slösuðust þegar bíll var sprengdur við bílalest hersveitarinnar við borgina Hilla í Írak. Þar með er tala látinna pólskra hermanna komin í 14 frá september þegar Pólland tók við stjórn átta þúsund manna alþjóðlegum her í Írak. Þetta var þriðja árásin á herliðið á skömmum tíma. 21.8.2004 00:01
Vill banna auglýsingarnar John Kerry, forsetaframbjóðandi demókrata, hefur lagt fram beiðni til bandarísku kosningastjórnarinnar, að banna auglýsingar sem birtar hafa verið í sjónvarpi þar sem köstuð er rýrð á feril hans sem hermanns í Víetnam stríðinu. 21.8.2004 00:01
Tvær sprengjur í strandbæ Tvær sprengjur sprungu í ruslagámum í tveimur strandbæjum á Norðvesturströnd Spánar fyrir um það bil klukkustund. Varað var við sprengjunum í símtali til dagblaðs í Baskalandi og staðhæft að aðkilnaðarsamtök Baska, ETA, bæru ábyrgð á þeim. Ekki er vitað hvort einhverjir hafi særst í sprengingunum. 21.8.2004 00:01
Átök við Ali moskuna í morgun Til átaka kom við Ali moskuna í Najaf í Írak í morgun, á milli Bandaríkjahers og Medi-hers sjítaklerksins Moqtadas al-Sadrs. Al-Sadr hefur gefið frá sér yfirráð yfir Imam Ali grafhýsinu, en Ali moskan er þó enn á valdi manna hans. 21.8.2004 00:01
Fótboltallið Írak gagnrýnir Bush Knattspyrnulið Íraka sem vann riðil sinn á Ólympíuleikunum, hefur gagnrýnt Bush Bandaríkjaforseta harðlega fyrir að nota liðið í auglýsingum fyrir kosningabaráttu sína. Margir liðsmenn eru Bush mjög reiðir og sagði einn þeirra að ef hann væri ekki á Ólympíuleikunum væri hann heima að berjast gegn bandaríska herliðinu. 21.8.2004 00:01
Sprenging í Bangladesh Að minnsta kosti fjórir létust í Bangladesh í dag þegar ein eða fleiri sprengjur sprungu við höfuðstöðvar helsta stjórnarandstöðuflokks landsins í höfuðborginni Dhaka á sama tíma og fyrrverandi forsætisráðherra landsins ávarpaði fund sem þar stóð yfir. 21.8.2004 00:01
Fuglaflensuveiran finnst í svínum Vísindamenn í Kína telja sig hafa fundið hina skæðu fuglaflensuveiru í svínum þar í landi, og segjast þeir hafa fundið hana á nokkrum bóndabæjum í Kína. Yfir 20 manns létust og um 200 milljónir fuglar voru drepnir, þegar fuglaflensufaraldur gekk yfir Asíu fyrr á þessu ári. 21.8.2004 00:01
Starfslið SÞ ætti að fara Starfsmannasamtök Sameinuðu þjóðanna telja að allt starfslið Sameinuðu þjóðanna í Afganistan eigi að yfirgefa landið þar sem þeim sé hætta búin. Líklegt þykir að starfsmenn Sameinuðu þjóðanna verði skotmörk þegar líður að kosningum í landinu í október. Þá verður kosinn nýr forseti, en ný stjórn verður kosin í apríl á næsta ári. 21.8.2004 00:01