Líklega góðkunningjar lögreglu 23. ágúst 2004 00:01
Lögreglan í Ósló er engu nær um felustað mannanna sem rændu tveimur þekktustu málverkum Edvards Munchs af safni í Ósló í gær. Þó er talið að ekki séu fagmenn á ferð heldur svokallaðir góðkunningjar lögreglu. Ræningjarnir tveir réðust með bægslagangi inn í Munch-safnið í Ósló í gær og af lýsingum sjónarvotta að dæma báru þeir sig ekki mjög fagmannlega að. Þeir vissu til að mynda hvorki hvar málverkin héngu í safninu né hvernig þau voru hengd upp og áttu í mestu vandræðum með að ná þeim niður. Þeir óku á brott með verkin, rifu þau úr römmum og skiptu um bíl. Samkvæmt fréttum norskra fjölmiðla hefur lögreglan upplýsingar um seinni bílinn og gerir sér að auki vonir um að finna lífsýni á römmunum. Von lögreglunnar er raunar sú að ungir og óreyndir góðkunningjar sínir séu á ferðinni og því reynist auðvelt að hafa uppi á þeim. Listasérfræðingar segja með öllu vonlaust að selja þessi verk á frjálsum markaði, til þess séu þau alltof þekkt. Helst er talið að ræningjarnir ætli sér að krefjast lausnargjalds fyrir verkin en þeir hafa þó enn sem komið er ekki látið frá sér heyra. Listasafnið þar sem myndirnar voru sætir nú mikilli gagnrýni fyrir slakan öryggisbúnað og segja fjölmiðlar ótrúlegt að ekki sé meira mál að stela þjóðargersemunum en að ræna sígarettupakka í sjoppu. Borgaryfirvöld í Ósló sáu sér eingöngu fært að tryggja verkin gegn bruna og vatnsskaða af fjárhagsástæðum. Norskir fjölmiðlar segja myndirnar um sex hundruð og fimmtíu milljón norskra króna virði en það samsvarar 6,9 milljörðum króna. Fjárhagsskaðinn er því töluverður. Að auki er myndbandsupptaka, sem lögregla hefur undir höndum, svo léleg að hún kemur ekki að neinu raunverulegu gagni. Fjöldi sjónarvotta hefur þó gefið sig fram og gera lögreglumenn sér vonir um að það leiði til handtöku ræningjanna von bráðar.
Erlent Fréttir Mest lesið Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Fleiri fréttir Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Sjá meira