Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ummerki um fleiri flóð Snjóathugunarmenn Veðurstofunnar eru byrjaðir að skoða aðstæður á Austfjörðum eftir snjóflóð gærdagsins. Ummerki eru um að fleiri snjóflóð hafi fallið fyrir ofan Neskaupstað en þau sem vart varð við í gær. 28.3.2023 09:52
Fit for 55: „Eins og að segja fólki að fara til útlanda með Norrænu“ Utanríkisráðherra segir það algjörlega kristaltært að ekkert verði af loftlagssköttum ESB um millilandaflug án þess að tillit verði tekið til séríslenskra aðstæðna. Um sé að ræða víðtækasta mál frá því að Ísland varð aðili að EES samningnum og forgangsröðun eftir því. Þingmaður Miðflokksins segir að verði innleiðingin samþykkt sé verið að rústa stöðu Íslands sem stoppistöðvar í tengiflugi. 28.3.2023 09:34
Tveimur fjallgöngumönnum bjargað á Hamragarðaheiði Tveir lentu í hremmingum í nótt þar sem þeir voru að klífa Fagrafell á Hamragarðaheiði við Eyjafjallajökul. Í tilkynningu frá Landsbjörg segir að annar maðurinn hafi fallið niður fellið nokkurn spöl og við það endaði hinn í sjálfheldu og komst ekki niður til félaga síns. 28.3.2023 07:46
Samskiptastjóri Carbfix var efasemdamaður í loftslagsmálum „Það er alveg kristaltært í mínum huga að loftslagsváin er ein alvarlegasta ógnin sem mannkynið stendur frammi fyrir. Við höfum stefnt lífsskilyrðum til framtíðar í stórhættu og á okkur öllum hvílir þung ábyrgð um að bregðast hratt og afgerandi við.“ 28.3.2023 07:34
Ekkert frést af frekari snjóflóðum Ekkert hefur frést af frekari snjóflóðum á Austfjörðum í nótt og hefur veðrið verið með rólegasta móti. 28.3.2023 07:33
Fresta kynningu fjármálaáætlunar Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar verður ekki kynnt í dag eins og til stóð og mun hún væntanlega líta dagsins ljós á morgun þess í stað. 28.3.2023 07:26
„Hún vaknaði upp við það að glugginn og flóðið kemur yfir hana“ Þrjú snjóflóð féllu í Neskaupstað í morgun og þá hafa snjóflóð fallið í Mjóafirði og á Reyðarfirði utan byggðar. Íbúi í Neskaupstað segir atburðina erfiða fyrir marga og áminning um mannskæð snjóflóð í bænum fyrir hálfri öld. 27.3.2023 23:46
Hnupluðu reiðufé af ferðamönnum með útsmoginni aðferð Á rúmum mánuði hefur Þjóðgarðinum á Þingvöllum borist upplýsingar um fimm vasaþjófnaði á Hakinu og á öðrum stöðum í Almannagjá þar sem mannmergð er. 27.3.2023 23:14
Allt skólahald fellt niður í Fjarðabyggð á morgun Ekkert skólahald verður í leik- og grunnskólum í Neskaupstað, á Eskifirði, og Fáskrúðsfirði á morgun. 27.3.2023 22:34
„Fólkinu líður eðlilega illa, þetta er mikið áfall“ Að minnsta kosti þrjú snjóflóð féllu í morgun í Neskaupstað og síðan þá hafa önnur flóð fallið fyrir austan. Fjölmargir viðbragðsaðilar hafa streymt austur og eru til taks ef fleiri flóð verða. Að sögn lögreglustjórans á Austurlandi líður fólki á svæðinu illa. 27.3.2023 21:14
Lítur blóðmælingar Greenfit alvarlegum augum Formaður læknafélagsins segist lítað það alvarlegum augum að fyrirtæki sem sérhæfi sig í heilsufarsmælingum bjóði upp á blóðmælingar og segir nauðsynlegt að skýr skil séu á milli þess hvað telst heilbrigðisþjónusta og hvað ekki. Embætti landlæknis skoðar nú tilkynningar um fyrirtækið. 27.3.2023 21:00
Leikskólabörn rappa um Kjarval Krakkar á leikskólanum Kvistaborg fóru í hljóðver í dag til að taka upp frumsamið rapplag sem fjallar um listmálarann Jóhannes Kjarval. Krakkarnir sömdu textann sjálfir og máluðu málverk úti í náttúrunni að hætti myndlistarmannsins. 27.3.2023 20:00
Fluttu ólétta konu yfir á Egilsstaði Þyrla Landhelgisgæslunnar fór í loftið á ellefta tímanum í morgun og fór austur á land vegna snjóflóðanna sem féllu þar í morgun. Í kvöld flutti þyrlan svo ólétta konu frá Neskaupstað og yfir á Egilsstaði. Gert er ráð fyrir því að þyrlan verði fyrir austan í nótt. 27.3.2023 19:56
Fara af neyðarstigi á hættustig Þegar snjóflóð féllu á Neskaupstað í morgun var neyðarstigi Almannavarna lýst yfir. Nú hefur ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Austurlandi ákveðið að fara af neyðarstigi niður á hættustig. 27.3.2023 19:15
Snjóflóð féll á yfirgefna byggingu á Seyðisfirði Snjóflóð féll á byggingu á Seyðisfirði í dag. Samkvæmt upplýsingafulltrúa Landsbjargar var um að ræða yfirgefna byggingu. Töluverður fjöldi björgunarsveitarmanna eru nú komnir austur og tilbúnir til aðstoðar. 27.3.2023 18:45
Leita að eiganda peninga í óskilum Heiðarlegur borgari fann peninga í verslun í Mosfellsbæ í síðustu viku og kom þeim í hendur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Eigandans er nú leitað. 27.3.2023 18:45
Fanney Birna ráðin dagskrárstjóri Rásar 1 Fanney Birna Jónsdóttir blaðamaður og formaður siðanefndar Blaðamannafélags Íslands hefur verið ráðin dagskrárstjóri Rásar 1. Hún tekur við af Þresti Helgasyni en hann sagði starfi sínu lausu í febrúar síðastliðnum eftir að hafa gegnt starfinu í nærri níu ár. 27.3.2023 18:34
Hlupu uppi fíkniefnasala sem reyndist vera í ólöglegri dvöl Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði fyrr í dag afskipti af aðila sem grunaður var um að að selja fíkniefni. Sá reyndi að komast undan á hlaupum en var hlaupinn uppi af lögreglumönnum. 27.3.2023 18:18
Mættir austur með tryllitæki Að minnsta kosti þrjú snjóflóð féllu í Neskaupstað í Norðfirði í morgun. Björgunarsveitarmenn hafa fjölmennt þangað og í önnur bæjarfélög á svæðinu til að hjálpa og vera til taks ef önnur snjóflóð falla. 27.3.2023 17:49
Landsbankinn vekur athygli á fölsuðu myndefni í dreifingu Landsbankinn segir miður að einhver sjái sér hag í að vega að Eddu Falak með ósmekklegum hætti. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum vegna falsaðs myndskeiðs og myndar sem eru í dreifingu á samfélagsmiðlum. 27.3.2023 16:34
Leita að ökumanni sem ók á ungan strák á hlaupahjóli Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar að ökumanni bifreiðar sem ók á ungan pilt á rafmagnshlaupahjóli á gangbraut á Neshaga í Reykjavík síðastliðinn föstudagsmorgun. 27.3.2023 15:43
Vilja breyta orðalagi laganna til að tryggja gagnsæi hjá dómstólum Þingmenn Viðreisnar hafa lagt til breytingu á lögum um meðferð einka- og sakamála til að skýra lög sem dómstólar hafa undanfarið vísað til þegar þeir hafa takmarkað fréttaflutning úr dómssal. Þingmennirnir segja samfélagið hafa ríka hagsmuni af því að starfsemi dómstóla sé gagnsæ og fari fram fyrir opnum tjöldum. 27.3.2023 15:43
Brýnt að ljúka ofanflóðavörnum: „Þetta sýnir þörfina svo vel“ Bæjarstjóri Fjarðabyggðar segir snjóflóðin sem féllu í Neskaupstað í morgun skiljanlega hafa áhrif á íbúa en flestir þekki söguna af mannskæða flóðinu 1974. Mikilvægi þess að ljúka ofanflóðavörnum í bænum hafi bersýnilega komið í ljós í morgun og bæjarstjóri segir þau vinna að málinu með íbúum sem ein heild. 27.3.2023 12:31
Sjötíu viðbragðsaðilar á leið með flugi austur: „Það er mjög mikil snjóflóðahætta á svæðinu“ Rýming stendur yfir vegna minnst þriggja snjóflóða sem féllu í Neskaupstað í Norðfirði í morgun og taka þær til 160 húsa. Eitt flóðanna féll á fjölbýlishús í bænum og eru tíu slasaðir, enginn alvarlega. Leitarhundar eru á leið austur með þyrlu Landhelgisgæslunnar auk sjötíu viðbragðsaðila sem fara með flugi á svæðið í dag. Mikil snjóflóðahætta er á svæðinu og neyðarstigi almannavarna lýst yfir. 27.3.2023 12:21
Móðir sýknuð af því að sparka í og slá fimm ára son sinn Héraðsdómur Reykjaness hefur sýknað móður af því að hafa sparkað í og slegið fimm ára gamlan son sinn. Það var þáverandi eiginmaður konunnar og faðir drengsins sem tilkynnti um málið. 27.3.2023 11:55
Glæsileg þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi opnuð Ný þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi var formlega opnuð á föstudaginn fyrir helgi. Miðstöðin er um sjö hundruð fermetrar að stærð og kostaði ríflega sex hundruð milljónir króna. 27.3.2023 11:45
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður sjónum aðallega beint austur á firði en í morgun féllu þrjú snjóflóð í Norðfirði. 27.3.2023 11:36
Fólki mjög brugðið og ýfir upp gömul sár Íbúum í Neskaupstað er mjög brugðið eftir snjóflóðin í morgun, að sögn íbúa í bænum. Fjöldi fólks hefur komið sér fyrir í fjöldahjálparstöð í Egilsbúð. Flóðin ýfa upp gömul sár eftir mannskæð snjóflóð fyrir fjórum áratugum. 27.3.2023 11:22
Lýsir hvernig hurðin „sprakk“ og snjór ruddist inn Íbúi á annarri hæð húss við Starmýri í Neskaupstað segir snjóflóðið sem féll úr Nesgili í morgun hafa náð inn í íbúðina og fjölskyldumeðlimir orðið fastir inni í herbergi. Fjölskyldumeðlimir hafi meiðst lítillega. 27.3.2023 11:06
Leitarhundar á leiðinni austur með þyrlu Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leiðinni í loftið með þrjá björgunarsveitarmenn og jafnmarga leitarhunda á Hornafjörð til að vera til taks vegna snjóflóðanna og viðvarandi snjóflóðahættu á Austfjörðum. 27.3.2023 10:36
Afmarka göngugötuhluta Laugavegs betur Gatnamót Laugavegs og Frakkastígs, þar sem fyrrnefnd gatan verður að göngugötu, verða betrumbætt á næstu dögum og afmörkun göngugötusvæðisins gerð skýrari. 27.3.2023 10:24
Gróðursetja milljón plöntur á fimm árum Með verkefninu Nýmörk sem nýlega var sett á laggirnar er stefnt að því að gróðursetja eina milljón plöntur á næstu fimm árum víðs vegar um landið. Gert er ráð fyrir því að plönturnar muni ná að þekja fjögur hundruð til fimm hundruð hektara af landi. 27.3.2023 10:10
Vaktin: Snjóflóð féllu í Neskaupstað og unnið að rýmingu Að minnsta kosti þrjú snjóflóð féllu í Neskaupstað í Norðfirði í morgun og féll eitt þeirra á fjölbýlishús við Starmýri í bænum. Unnið er að rýmingu og búið er að lýsa yfir neyðarstigi almannavarna. Fylgst er með gangi mála í vaktinni hér neðst í fréttinni. 27.3.2023 10:03
Það sem skal gera við rýmingu Lögreglan á Austurlandi hefur birt tilmæli á Facebook-síðu sinni um hvað skal gera við rýmingu. Unnið er að því að rýma hús bæði í Neskaupstað og á Seyðisfirði. 27.3.2023 09:37
Neyðarstigi Almannavarna lýst yfir vegna flóðanna Neyðarstigi Almannavarna hefur verið lýst yfir vegna snjóflóðanna sem féllu í Norðfirði í morgun. Hjördís Guðmundsdóttir upplýsingafulltrúi Almannavarna segir að verið sé að reyna að ná yfirsýn yfir ástandið. 27.3.2023 08:43
Snjóflóð féll á fjölbýlishús í Neskaupstað og verið að rýma fjölda húsa Að minnsta kosti tvö snjóflóð féllu í Neskaupstað í Norðfirði í morgun og vitað er að annað þeirra féll á fjölbýlishús við Starmýri í bænum. Gluggar hafa brotnað og bílar henst til. Verið er að rýma mikinn fjölda húsa í bænum vegna snjóflóðahættu og hefur neyðarstigi Almannavarna verið lýst yfir. 27.3.2023 08:13
Snjóflóð féll í Norðfirði og búið að rýma eitt hús Snjóflóð féll í Norðfirði í nótt vestan leiðigarða við Urðarteig í nótt. Flóðið fór yfir Strandgötu og í sjó fram. Verið er að rýma eitt hús. 27.3.2023 07:27
Eldur í Víkurskóla í Grafarvogi og ekki hægt að útiloka íkveikju Eldur kom upp í Víkurskóla í Grafarvogi um klukkan hálf fjögur í nótt. Eldurinn virðist hafa komið upp í vinnurými í skólanum eða fundaraðstöðu að sögn Stefáns Kristinssonar varðstjóra hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. 27.3.2023 06:44
Ákærður fyrir að nauðga konu í bifreið við bensínstöð í Reykjavík Héraðssaksóknari hefur höfðað mál gegn manni sem er grunaður um að hafa nauðgað konu í bifreið við bensínstöð í Reykjavík í janúar síðastliðnum. Málið var þingfest 21. mars síðastliðinn. 27.3.2023 06:38
Læra íslensku sem er sérhæfð fyrir vinnu í skólum Í Reykjanesbæ er rekin svokölluð leikskólasmiðja þar sem innflytjendur læra íslensku sem er sérsniðin fyrir störf í leik- og grunnskólum en skortur á íslenskukunnáttu getur staðið fólki af erlendum uppruna fyrir þrifum. 26.3.2023 23:14
„Einhver vitleysingur“ að kveikja sinuelda í borginni Slökkvilið vinnur nú að því að ráða niðurlögum minniháttar sinuelda í Reykjavík. Kveikt hefur verið í á að minnsta kosti þremur stöðum í borginni. 26.3.2023 22:48
Vínbúðir gætu opnað á sunnudögum Enginn vilji er til þess að áfengi verði selt í almennum verslunum segir þingkona Framsóknarflokksins en frumvarp um rýmkun opnunartíma vínbúða hefur verið lagt fyrir Alþingi. 26.3.2023 22:06
Taldi lögreglu hafa hótað sér í skýrslutökum Endurupptökudómur hefur hafnað beiðni Guðlaugs Agnars Guðmundssonar, sem dæmdur var fyrir peningaþvætti í tengslum við stórkostlegt fíkniefnasmygl, um endurupptöku á dómnum. Guðlaugur byggði meðal annars á því að við rannsókn málsins hafi lögregla beitt hann hótunum um að gera föður hans að sakborningi í málinu. 26.3.2023 21:28
Hundur og hæna elska að fara saman á hestbaki Hundurinn Dreki er ein af skærustu kvikmyndastjörnunum landsins um þessar mundir því hann leikur stórt hlutverk í myndinni „Á ferð með mömmu“. Þegar Dreki vill hafa það rólegt og njóta lífsins heima hjá sér í sveitinni þá finnst honum skemmtilegast að fara á hestbak með hænunni Svanhvíti. 26.3.2023 20:06
Bugaðir foreldra tilkynna sig til barnaverndar Biðlistar eftir greiningum hafa nærri tvöfaldast á einu ári og segir yfirlæknir dæmi um að foreldrar tilkynni sig sjálfir til barnaverndar til að reyna að fá aðstoð. 26.3.2023 19:01
Kristrún á leiðtogafundi um varnarmál: Þjóðirnar í Norður-Atlantshafi þurfi að sýna forystu Innlent