Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hvergerðingar gera ráð fyrir rúmlega hundrað milljónum króna í bætur Fráfarandi bæjarstjóri Hveragerðis segir framtíð Hamarshallarinnar, sem varð mikið bitbein í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum, alfarið vera í höndum nýrrar bæjarstjórnar. Þá segir hann að gert sé ráð fyrir því að tjónabætur vegna hallarinnar muni nema 108 milljónum króna. 26.5.2022 11:43
Stöðug skjálftavirkni á Reykjanesskaga Skjálftavirkni hefur verið stöðug á Reykjanesskaga seinustu daga en um 200 skjálftar hafa mælst frá því á miðnætti. 26.5.2022 11:14
Fimm á slysadeild eftir að eldur kom upp Fimm voru fluttir á slysadeild eftir að eldur kom upp í herbergi í fjölbýlishúsi við Miklubraut um klukkan níu í morgun. Enginn er þó alvarlega slasaður en grunur er um að fólkið hafi fengið reykeitrun. 26.5.2022 09:49
Allt að fjórar vikur í einangrun fyrir apabólusmitaða Þeir sem greinast smitaðir með apabólu hér á landi þurfa að vera í einangrun þar til öll útbrot hafa gróið. Ferlið getur tekið allt að fjórar vikur. 26.5.2022 09:39
Lögreglan skutlaði manni í strætó sem gekk síðan í skrokk á bílstjóranum Maður sem var skilinn eftir af strætó á bensínstöð á Blönduósi fékk far með lögreglunni að Varmahlíð þar sem hann fór aftur í vagninn. Þegar komið var að endastöð gekk hann í skrokk á strætóbílstjóranum ásamt félaga sínum. 26.5.2022 08:11
Ók rafhlaupahjóli á kyrrstæða bifreið Klukkan rétt rúmlega tvö í nótt voru tvö rafhlaupaslys í miðbænum tilkynnt til lögreglu. Í því fyrra hafði rafhlaupahjóli verið ekið á kyrrstæða bifreið og í því seinna hafði ökumaður misst stjórn á farartækinu þegar hann var með farþega á hjólinu. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. 26.5.2022 07:16
Ásdís verði næsti bæjarstjóri Kópavogs Ásdís Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, verður bæjarstjóri Kópavogs samkvæmt nýjum málefnasamningi flokksins við Framsókn. 25.5.2022 22:50
Ná saman í Hveragerði og auglýsa eftir bæjarstjóra Fulltrúar Okkar Hveragerðis og Framsóknarflokksins skrifuðu undir málefnasamning í Hveragerði í kvöld. Flokkarnir munu mynda meirihluta á komandi kjörtímabili. 25.5.2022 22:28
Þurfa ekki að greiða fyrir þá sem borguðu ekki fyrir bílastæðin Brimborg ehf. þarf ekki að greiða Rekstrarfélagi Hafnartorgs rúmar fimmtíu þúsund krónur í deilu félaganna um hvort að Brimborg bæri ábyrgð á því að greiða fyrir þá viðskiptavini bílaleigu félagsins sem nýttu sér bílastæði við Hafnartorg án þess að greiða fyrir það. 25.5.2022 22:00
Staðan mjög þung þetta vorið Staðan á heilbrigðiskerfinu er mjög þung þetta vorið að mati yfirlæknis á bráðamóttöku Landspítalans. Þetta birtist meðal annars í því að í dag var biðlað til lítið slasaðra og veikra að leita annað en á bráðamóttöku á þessari stundu. 25.5.2022 20:31
Ríkisstjórnarsamstarfið ekki mikilvægara en mannúð Formaður Ungra vinstri grænna segir ríkisstjórnarsamstarfið ekki mega trompa mannúð. Hún fagnar gagnrýni félagsmálaráðherra á framgöngu dómsmálaráðherra í brottvísanamálum - en ummæli hans komi of seint. Þá sé forsætisráðherra ekki nógu afdráttarlaus. 25.5.2022 20:00
Uppbygging vegna fólksfjölgunar í Hafnarfirði efst á blaði Uppbygging vegna mikillar fyrirsjáanlegrar fjölgunar íbúa verður eitt aðalverkefni nýrrar bæjarstjórnar í Hafnarfirði að mati oddvita Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks sem hafa náð samkomulagi um meirihlutasamstarf. Oddvitarnir munu hafa vistaskipti í stóli bæjarstjóra og formanns bæjarráðs á miðju kjörtímabili. 25.5.2022 19:20
Framsókn og Sjálfstæðisflokkur „raði sér á jötuna“ án skýrrar stefnu Oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði fer ekki í grafgötur með það að sér þyki vonbrigði að Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn hafi ákveðið að fara í áframhaldandi meirihlutasamstarf í bænum. Hann segir samstarfið snúast um stóla og völd, en ekki aðgerðir. 25.5.2022 18:54
Einar segir að ákalli kjósenda um breytingar í Reykjavík verði svarað Formlegar meirihlutaviðræður hófust í Reykjavík í dag. Oddviti Framsóknarflokksins segir að ákalli kjósenda um breytingar verði svarað. En í samningaviðræðum verði allir að gefa eitthvað eftir. 25.5.2022 18:31
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Öryggisgæsla hefur verið hert í skólum víða í Bandaríkjunum eftir að ungur maður vopnaður rifflum myrti nítján börn og tvo kennara í grunnskóla í Texas í gær. Fjölmargir kalla eftir hertri skotvopnalöggjöf en árásin er sú mannskæðasta í skóla þar í landi í áratug. 25.5.2022 18:00
Ný göngu- og hjólabrú við Breiðholtsbraut Vonir standa til að ný göngu- og hjólabrú yfir Dimmu og Breiðholtsbraut verði tekin til notkunar sumarið 2023, að því er fram kemur á vef Reykjavíkurborgar. Nýja brúin verður staðsett um 200 metra neðan við núverandi brú og verður lágreist trébrú með aðskildum göngu- og hjólastígum. 25.5.2022 17:14
Biðla til lítið slasaðra og veikra að leita annað en á bráðamóttöku Landspítalinn varar við því að mikið álag sé nú á spítalanum og sérstaklega á bráðamóttökunni í Fossvogi. Forgangsraða þurfi því verkefnum eftir bráðleika og vísa fólki á önnur úrræði ef mögulegt er. 25.5.2022 16:05
Bein útsending: Heilbrigð jörð - heilbrigt líf Viðburðurinn Heilbrigð jörð – heilbrigt líf er hluti af viðburðaröðinni Í liði með náttúrunni sem Stofnun Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun stendur fyrir í samstarfi við Norræna húsið. Viðburðurinn hefst klukkan 16 og verður í beinu streymi hér að neðan. 25.5.2022 15:50
Prestar eigi að bregðast við þegar valdhafar dæmi jaðarsetta til helvítisvistar Sindri Geir Óskarsson sóknarprestur í Glerárkirkju á Akureyri segir varhugavert að veita eigi prestum tiltal fyrir að vera harðorðir þegar tilefni sé til. Hann segir þá skjóta skökku við að biskup Íslands hafi gagnrýnt ríkisstjórn landsins fyrir fyrirhugaðar fjöldabrottvísanir en veiti presti tiltal fyrir að gagnrýna það sama. 25.5.2022 15:25
Segir Framsókn hafa svikið loforð um samtal Guðmundur Árni Stefánsson oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði segist vonsvikinn að Framsóknarflokkurinn hafi myndað meirihluta með Sjálfstæðisflokki í Hafnarfirði. Hann segir meirihlutann „mix um bæjarstjóradjobb“ og segir Framsókn hafa svikið fyrirheit sín um að ræða við Samfylkingu eftir sveitarstjórnarkosningarnar. 25.5.2022 14:38
Spyr hvort LOGOS hafi verið að meta eigin verk Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur lagt fram fyrirspurn til Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, um greiðslur ráðuneytisins og Bankasýslunnar til LOGOS lögmannsþjónustu. Lögmannsstofunni var falið að meta hvort sölumeðferð á 22,5% eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka stæðist reglur um jafnræði en LOGOS hafði áður veitt Bankasýslunni ráðgjöf í aðdraganda sölunnar. 25.5.2022 14:01
Vonast til að kynna nýjan meirihluta í Norðurþingi eftir helgi Hjálmar Bogi Hafliðason, oddviti Framsóknar í Norðurþingi, segist vona til að hægt verði að kynna málefnasamning nýs meirihluta í sveitarfélaginu strax eftir helgi. Framsókn og Sjálfstæðismenn hafa síðustu daga átt í viðræðum um myndun nýs meirihluta. 25.5.2022 13:48
Fregnir berist af meirihlutaviðræðum í Reykjanesbæ um og eftir helgi Meirihlutaviðræður Framsóknarflokksins, Samfylkingarinnar og Beinnar leiðar í Reykjanesbæ mjakast og búast má við fregnum af þeim um og eftir helgi. Þetta segir Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir oddviti Samfylkingarinnar í samtali við Vísi. 25.5.2022 13:36
„Ég held það komi í ljós síðar í dag hvað gerist á Akureyri“ Staðan er enn galopin á Akureyri eftir að aðrar meirihlutaviðræður sigldu í strand eftir sveitarstjórnarkosningar. Í morgun varð ljóst að meirihluti BDSM væri úr sögunni þegar oddviti Samfylkingarinnar sleit viðræðum vegna ágreinings um málefni. 25.5.2022 13:19
„Ólík sjónarmið“ á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir ólík sjónarmið hafa komið fram á ríkisstjórnarfundi í gær um yfirvofandi brottvísanir fólks sem sótt hefur um vernd hér á landi. Hún svarar því ekki beint hvort hún taki undir óánægju félagsmálaráðherra með framgöngu dómsmálaráðherra - en segist taka undir ákveðin sjónarmið þess fyrrnefnda. 25.5.2022 12:08
Björn verður áfram sveitarstjóri í Múlaþingi Björn Ingimarsson mun áfram gegna embætti sveitarstjóra í Múlaþingi á kjörtímabilinu sem framundan er. Oddvitar Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins í Múlaþingi undirrituðu samkomulag um meirihlutasamstarf í Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs í Sláturhúsinu á Egilsstöðum í gær. 25.5.2022 11:52
„Ummæli Davíðs Þórs dæma sig algjörlega sjálf“ Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir ummæli Davíðs Þórs Jónssonar sóknarprests, sem biskup áminnti hann fyrir, dæma sig sjálf. 25.5.2022 11:50
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður rætt við Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra um hælisleitendur sem til stendur að vísa úr landi og skiptar skoðanir innan ríkisstjórnarinnar í málinu. 25.5.2022 11:39
Atvinnuleysi dregist saman milli ára Atvinnuleysi hefur dregist saman um 6,1 prósentustig milli ára, að því er fram kemur í skýrslu Hagstofunnar. 25.5.2022 11:34
Formlegar meirihlutaviðræður hefjast í Reykjavík í dag Oddvitar flokkanna sem reyna að mynda meirihluta í Reykjavík koma saman til fyrsta formlega viðræðufundarins eftir hádegi. Reiknað er með að byrjað verði á að setja saman viðræðuáætlun. Síðasti fundur borgarráðs á kjörtímabilinu sem er að líða fór fram í morgun. 25.5.2022 11:30
Biskup hefur veitt séra Davíð formlegt tiltal fyrir „harkaleg og ósmekkleg skrif“ Biskup Íslands hefur veitt séra Davíði Þór Jónssyni formlegt tiltal fyrir þau „harkalegu og ósmekklegu skrif sem hann viðhafði á Facebook-vettvangi“ sínum í gær. Davíð Þór sagði þar að sérstakur staður væri í helvíti fyrir stjórnarliða Vinstri grænna. 25.5.2022 11:16
Valdimar tekur við af Rósu í ársbyrjun 2025 Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn hafa komist að samkomulagi um myndun nýs meirihluta í Hafnarfirði. Oddvitar flokkanna munu hafa stólaskipti á miðju kjörtímabili. 25.5.2022 10:24
BDSM úr sögunni á Akureyri Samfylkingin hefur slitið meirihlutaviðræðum við Sjálfstæðisflokkinn, Framsókn og Miðflokkinn á Akureyri. Ástæðan er sögð vera mikill málefnalegur ágreiningur, meðal annars í velferðar- umhverfis- og skipulagsmálum. 25.5.2022 09:45
69 prósent sjúklinga á lífi fimm árum eftir aðgerð Árangur kransæðahjáveituaðgerða hjá einstaklingum með hjartabilun er góður hér á landi og á pari við sérhæfðari og stærri hjartaskurðdeildir í nágrannalöndum. 25.5.2022 09:29
Mjög vongóður um að fá vinnu á Bæjarins bestu í sumar Allir tíundu bekkingar sem Ísland í dag ræddi við voru með vinnu í sumar, eða í þann mund að landa henni. Betra þannig, sögðu þeir, annars er maður dæmdur til að hanga inni í herbergi allt sumar. 25.5.2022 08:00
Hætt við að senda barnshafandi konu úr landi Barnshafandi konu sem var í þeim hópi hælisleitenda sem til stendur að senda úr landi á næstunni hefur nú verið forðað frá brottvísun. 25.5.2022 07:35
Hressar sjósundskonur í Stykkishólmi Þær kalla ekki allt ömmu sína hópur kvenna í Stykkishólmi, sem fer saman í sjósund nokkrum sinnum í viku. Næsta verkefni þeirra er að byggja upp saunabað við aðstöðuna sína. 25.5.2022 07:03
Guðmundur Ingi óánægður með Jón Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, segist ekki vera ánægður með hvernig Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur haldið á og rætt um mál þeirra hælisleitenda sem stendur til að vísa úr landi á næstunni eftir langa dvöl hér á landi. Guðmundur Ingi segist hafa gert alvarlegar athugasemdir við málsmeðferð málsins á ríkisstjórnarfundi í dag. 24.5.2022 22:48
Rostungsbein sem enduðu í Kænugarði fyrir þúsund árum fóru líklega um Ísland Ný rannsókn sýnir að rostungstennur, sem fundust í Kænugarði fyrir fimmtán árum, eru komnar úr norrænu byggðinni á Grænlandi og eru frá tímum víkinga. Fornleifafræðingur telur mjög líklegt að Íslendingar hafi komið að verslun með grænlensk rostungabein. 24.5.2022 22:40
Forsætisráðherra segir fordæmi fyrir inngripi Forsætisráðherra segir til athugunar að endurskoða það að vísa fólki úr landi til Grikklands. Heldur hefur fækkað í hópi þeirra sem vísa á úr landi á næstu dögum, samkvæmt upplýsingum frá ríkislögreglustjóra. 24.5.2022 21:00
Tár féllu á síðasta borgarstjórnarfundi en Vigdís sér ekki eftir neinu Síðasti borgarstjórnarfundur kjörtímabilsins sem er að líða fór fram í dag. Og síðasti fundur í borgarstjórn þýðir auðvitað síðasti dagurinn í vinnunni fyrir þá borgarfulltrúa sem voru ekki kosnir inn í síðustu kosningum. 24.5.2022 20:11
„Ef það verður ekki komið í veg fyrir þessa ósvinnu þá verður Alþingi að grípa í taumana“ Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að dómsmálaráðherra hafi það í hendi sér að koma í veg fyrir „Íslandsmet í fjöldabrottvísunum.“ Hann telur að þingið geti þurft að stíga inn og stöðva fyrirætlanir stjórnvalda um að vísa fjölda fólks frá landinu. 24.5.2022 19:19
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Formlegar meirihlutaviðræður eru hafnar í Reykjavík milli Samfylkingarinnar, Framsóknarflokks, Pírata og Viðreisnar. Flokkarnir hafa viku til að ná saman um stór mál og ákveða hver næsti borgarstjóri verður. Píratar útiloka ekki að gera tilkall til embættisins. 24.5.2022 18:00
Trúleysingjar æfir yfir styrk ráðherra til Þjóðkirkjunnar Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, veitti nýverið Þjóðkirkjunni styrk að upphæð 10 milljónir króna til þess að geta boðið aðstandendum fanga upp á þjónustu, stuðning og ráðgjöf. Styrkveitingin féll í grýttan jarðveg hjá samtökum trúleysingja. 24.5.2022 17:04
Sagði vinkonu stökkva á vagninn vegna annarrar nauðgunarkæru Karlmaður hefur verið sýknaður af nauðgun árið 2009 þar sem dómurinn taldi ákæruvaldið ekki hafa tekist að sanna sekt hans. Fá sönnunargögn lágu fyrir í málinu og byggði málið að miklu leyti á framsögu vitna. 24.5.2022 16:29