Fleiri fréttir

Persónuvernd svarar Kára
Stjórn Persónuverndar hefur birt bréf sem hún sendi í dag á Íslenska erfðagreiningu, vegna ummæla Kára Stefánssonar, forstjóra fyrirtækisins um ákvörðun Persónuverndar sem Kári hefur gagnrýnt mjög.

Vill leiða jafnaðarmenn til sigurs á ný
Guðmundur Árni Stefánsson sendiherra og fyrrverandi ráðherra sækist eftir því að leiða lista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði í komandi sveitarstjórnarkosningum. Hann segist ekki vera í framboði til bæjarstjóra á þessari stundu en hann gegndi því embætti fyrir rúmum þrjátíu árum.

Kári telur rétt að halda aðgerðum óbreyttum: „Ég held að þetta verði allt í lagi“
Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segir að eina leiðin til að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu kórónuveirunnar sé útgöngubann, en telur það þó ekki skynsamlegt hér á landi. Hann telur óbreyttar aðgerðir bestu leiðina en að styðja þurfi Landspítalann mun betur en gert hafi verið hingað til.

„Íbúar eru foxillir“
Forseti bæjarstjórnar í Reykjanesbæ segir engan vilja fyrir því meðal íbúa að kísilverið í Helguvík verði endurræst. Slíkum fyrirætlunum verði ekki leyft fram að ganga. Fyrirætlanir PCC á Bakka liggja þó ekki fyrir en ljóst er að ráðast þyrfti í kostnaðarsamar framkvæmdir, eigi að endurræsa kísilverið.

Hádegisfréttir Bylgjunnar
Í hádegisfréttum heyrum við í Kára Stefánssyni forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar um stöðuna í kórónuveirufaraldrinum.

Taka þátt í krefjandi þrautum til styrktar stúlkunni sem slasaðist alvarlega í hoppukastalanum
Aðstandendur stúlkunnar sem slasaðist alvarlega í hoppukastalaslysinu á Akureyri í sumar hafa hafið söfnun til styrktar stúlkunnar og fjölskyldu hennar.

1.101 greindist innanlands í gær
1.101 einstaklingur greindist með kórónuveiruna innanlands í gær og 105 á landamærum. 46% þeirra sem greindust innanlands voru í sóttkví við greiningu og 54% utan sóttkvíar.

Neitar að hafa snert brjóst eða kynfæri á óviðeigandi hátt
Jóhannes Tryggvi Sveinbjörnsson segist hvorki hafa komið á óviðeigandi hátt við brjóst eða kynfæri ungrar konu sem sætti meðferð hjá honum á meðferðarstofu hans árið 2012. Hann vildi lítið tjá sig fyrir dómi í morgun um ásakanir sem bornar eru á hann, umfram það sem hann hefur áður tjáð sig í skýrslutöku hjá lögreglu.

Andlát vegna Covid-19
Karlmaður á tíræðisaldri lést á Landspítala í gær af völdum Covid-19. Um er að ræða fimmta andlátið vegna Covid-19 hérlendis á þessu ári, en alls hafa 43 nú látist af völdum Covid-19 hér á landi frá upphafi faraldursins.

Umboðsmaður barna beinir því til HSS að gera úrbætur á sýnatöku barna
Salvör Nordal, umboðsmaður barna, hefur sent forstjóra Heilbrigðisstofnun Suðurnesja erindi þar sem því er beint til stofnunarinnar að gera úrbætur á framkvæmd sýnatöku barna vegna Covid-19.

Þak fauk af skúr í Ólafsvík
Björgunarsveitarmenn í Ólafsvík á Snæfellsnesi voru kallaðir út á tíunda tímanum í gærkvöldi þegar tilkynnt var um að þakplötur væru að fjúka af skúr í bænum.

Auður Perla Svansdóttir er látin
Auður Perla Svansdóttir, matvælafræðingur og formaður Mótettukórsins, er látin, 52 ára að aldri. Hún lést á Landspítalanum 6. janúar síðastliðinn.

Listamannalaunin hækka um 80 þúsund krónur á árinu
Listamannalaunin hækkuðu um tæpar 20 þúsund krónur um áramótin, til samræmis við launa- og verðlagshækkun fjárlaga 2022. Þau munu hækka enn meira á árinu vegna ákvörðunar ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra um að hækka framlög til launasjóðs listamanna um 100 milljónir króna.

Nær 300 svartfuglar fundist dauðir á Suðausturlandi
Á dögunum fannst mikill fjöldi svartfugla dauður á Suðausturlandi. Matvælastofnun hefur ákveðið að láta rannsaka sýni úr fuglunum á Tilraunastöð HÍ að Keldum, meðal annars með tilliti til fuglaflensu.

Guðmundur Árni snýr aftur í pólitík eftir sextán ár í utanríkisþjónustunni
Guðmundur Árni Stefánsson, sendiherra, fyrrverandi bæjarstjóri í Hafnarfirði og ráðherra fyrir Alþýðuflokkinn, sækist eftir því að leiða lista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði fyrir kosningarnar í maí.

Auknar takmarkanir á háskólastarfi
Ráðherra hefur gefið út nýja reglugerð um takmarkanir á háskólastarfi sem gildi tekur á miðnætti í kvöld. Í reglugerðinni felst meðal annars að nemendum ber að viðhafa tveggja metra fjarlægð í kennslu- og lesrýmum.

Þjást í reykvískri náttúru en fjölga sér eins og kanínurnar sem þær eru
Gælukanínur sem látnar eru lausar í Elliðaárdal hljóta oft grimmileg örlög eftir stutta dvöl í náttúrunni. Nú á samstillt átak að koma þeim í skjól, enda stofninn að stækka of hratt.

Veitingamenn látnir sitja á hakanum: „Tíminn vinnur ekki með þessum fyrirtækjum“
Þingmaður Viðreisnar segir að veitingageirinn hafi verið skilinn eftir þegar hertar sóttvarnaaðgerðir voru kynntar fyrir jól. Óvissan sé líklega erfiðasti þátturinn enda séu sóttvarnaaðgerðir kynntar með skömmum fyrirvara og þá stuttur tími til að bregðast við.

Árgangur sendur í húsnæði KSÍ: Enn meiri mygla í Laugalækjarskóla
Mygla hefur greinst í fimm stofum Laugalækjarskóla til viðbótar við þrjár stofur sem þegar voru til viðgerðar. Nemendur í níunda bekk eru á leið í skrifstofuhúsnæði í stúkunni í Laugardalshöll þar sem þeim verður kennt á næstu fimm til sex vikum.

Aldrei fleiri börn mætt í sýnatöku
Aldrei hafa fleiri börn mætt í sýnatöku en í dag en í dag mættu í kringum 1.200 þeirra. Þá var einnig góð mæting í bólusetningu barna í Laugardalshöll í dag.

Ein tilkynning um aukaverkun í yngsta aldurshópnum
Þriðji dagur bólusetninga barna á aldrinum fimm til ellefu ára á höfuðborgarsvæðinu hófst í Laugardalshöll í morgun en mætingin síðustu tvo daga hefur verið um sjötíu prósent. Fyrr í mánuðinum hófust bólusetningar í öðrum sveitarfélögum.

Fékk sting í hjartað þegar hún sá myndbandið og segir frásögnina ekki einsdæmi
Talskona líkamsvirðingar segir mikilvægt að foreldrar tengi umræðu um matarræði og holla hreyfingu við líðan barna en alls ekki útlit. Myndband þar sem ung kona segir móður hennar beita hana andlegu ofbeldi vegna fitufordóma hefur verið í mikilli dreifingu á samfélagsmiðlum.

Algengt að börn séu hrædd og kvíðin fyrir sýnatökur og bólusetningar
Mikilvægt er að undirbúa börn vel fyrir sýnatökur og bólusetningar því algengt eru að þau verið hrædd og kvíði því að þurfa jafnvel að fara aftur, að sögn barnasálfræðings. Þá geti sóttkví sömuleiðis haft andleg áhrif á börnin.

Rafmagn komið aftur á í miðborginni
Rafmagn er komið aftur á flestum stöðum miðborgar Reykjavíkur en rafmagnslaust var vegna háspennubilunar fyrr í kvöld. Þó er enn rafmagnslaust á Bókhlöðustíg þessa stundina.

Læknar vilja viðbótargreiðslur í samræmi við álag
Læknar vilja breytinga á kjarasamningum og leggja til viðbótargreiðslur í samræmi við aukið álag. Mikið hafi mætt á heilbrigðisstarfsfólki í kórónuveirufaraldrinum og læknar segja eðlilegt að hluti þeirra fjármuna sem fallið hafa til samfélagsins í faraldrinum fari einnig til heilbrigðisstarsfólks.

Búin að fá svínaflensuna og þrjú afbrigði af Covid19
Kona sem hefur þrisvar sinnum greinst með Covid19 segir ákveðin vonbrigði að greinast með þrjú helstu afbrigði veirunnar. Áður en Covid kom til sögunnar smitaðist hún af svínaflensunni og segir því létt í bragði að henni líði eins og tilraunadýri.

Forsvarsmenn Reykjavíkurleikanna hafa áhyggjur af hertum aðgerðum
Reykjavíkurleikarnir eru á næsta leiti en íþróttahátíðin hefst þann 29. janúar næstkomandi. Undirbúningur er nú í fullum gangi en framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Reykjavíkur hefur áhyggjur af mögulega hertum sóttvarnareglum. Í versta falli gæti þurft að fella leikana niður.

Kvöldfréttir Stöðvar 2
Sóttvarnalæknir býst við að leggja til hertar aðgerðir innanlands vegna þungrar stöðu í faraldrinum. Stefnt er að því að fækka daglegum fjölda smitaðra um helming. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Ætla að sitja við sinn keip
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum tilkynnti í gær til stæði að loka Facebook-síðu embættisins með vísan til persónuverndarsjónarmiða. Um sólarhring síðar er síðan orðinn óaðgengileg almenningi og tíu ár af Facebook-færslum á bak og burt. Engin önnur lögregluembætti hafa tekið ákvörðun um að feta í fótspor Suðurnesjamanna.

Stærsta áskorun heilbrigðiskerfisins þrátt fyrir færri sjúklinga
Landlæknir segir að heilbrigðiskerfið sé að takast á við sína stærstu áskorun frá því að faraldurinn hófst. Þó færri Covid-sjúklingar séu á sjúkrahúsi nú en þegar mest lét árið 2020 séu aðstæður að mörgu leyti óhliðhollari en áður.

Gæti komið í veg fyrir blindu milljóna í Bandaríkjunum
Íslenska sprotafyrirtækið Risk ehf. og bandarísku sykursýkissamtökin (ADA) hafa gert með sér samkomulag um að gera RetinaRisk áhættureikninn, sem reiknar út áhættu fólks með sykursýki á sjónskerðandi augnsjúkdómum, aðgengilegan almenningi í Bandaríkjunum.

Segja ólíklegt að fuglaflensa hafi valdið fjöldadauða svartfugla hér á landi
Matvælastofnun mun koma til með að senda sýni til rannsóknar úr fjölda svartfugla sem fundust dauðir á Suðausturlandi en þar verður meðal annars kannað hvort um fuglaflensa hafi valdið dauða fuglanna. Mikið er um fuglaflensu í Evrópu um þessar mundir, bæði í villtum fyglum og alifuglum.

„Ljóst að almenningi er misboðið í þessu máli“
Fyrirtæki vilja væntanlega ekki tengja sig við einstaklinga sem hafa viðhaft einhverja háttsemi sem almenningi finnst óásættanleg. Þetta kom fram í máli Gunnars Inga Jóhannssonar hæstaréttarlögmanns í Pallborðinu á Vísi í dag.

Keyrt á barn við Bústaðaveg
Ekið var á barn við Bústaðaveg í Reykjavík nærri Valsvelli á fjórða tímanum í dag. Barnið hlaut minniháttar meiðsl.

Fallist á endurupptöku í tveimur málum vegna Landsréttarmálsins
Endurupptökudómur hefur heimilað endurupptöku tveggja sakamála sem dæmd voru í Landsrétti. Grundvöllur endurupptöku er dómur Mannréttindardómstóls Evrópu í Landsréttarmálinu.

Hætta við þéttingu byggðar við Bústaðaveg
Hætt hefur verið við hugmyndir um þéttingu byggðar meðfram Bústaðavegi við Grímsbæ í Reykjavík.

„Ég hvet engan til að fara í slík partý“
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, ræður fólki eindregið frá því að hittast til þess að smitast viljandi af ómíkrónafbrigði kórónuveirunnar.

Pallborðið: Hvíslað um kynferðisbrot
Hvað mega þolendur og fjölmiðlar segja þegar kemur að kynferðisbrotamálum? Má nafngreina meinta gerendur og hvað gerist þegar enginn vill segja neitt? Um þetta og fleira var rætt í beinni útsendingu í Pallborðinu á Vísi sem Hólmfríður Gísladóttir stjórnaði.

„Aðstæður hverju sinni eru grandskoðaðar til þess að finna lausn“
Isavia hefur fjölgað veðurmælum sem mæla vindhraða á Keflavíkurflugvelli. Þetta er gert til þess að skapa þann möguleika að í einhverjum tilfellum sé hægt sé að hleypa fólki frá borði í vonskuveðri með því að færa flugvélar um stæði.

Leggur mögulega til hertar aðgerðir fyrir helgi
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir allt stefna í það að hann þurfi að leggja til að að sóttvarnarreglur verði hertar innanlands til að draga úr daglegum fjölda þeirra sem greinist með Covid-19. Hann segist jafn vel reikna með að skila tillögum um hertar aðgerðir fyrir helgi.

Hádegisfréttir Bylgjunnar
Í hádegisfréttum okkar greinum við frá því sem fram kom á upplýsingafundi almannavarna um stöðuna í kórónuveirufaraldrinum.

Æði-strákarnir veittu Guðmundi Inga innblástur sem stefnir á þriðja sætið
Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu – félags fanga, hefur ákveðið að bjóða sig fram í þriðja sæti í flokksvali Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Hann segir að strákarnir í Æði hafi veitt honum innblástur til að bjóða sig fram.

Barn á fyrsta ári með Covid-19 á Landspítala
Eitt barn á fyrsta ári liggur nú inni á Landspítala með Covid-19 og um 60 eru í eftirliti á Barnaspítala vegna sjúkdómsins. Daglega koma um tvö til fimm börn þangað til skoðunar.

Sabine býður sig fram í 3.-4. sæti í flokksvali Samfylkingarinnar
Sabine Leskopf, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og varaforseti borgarstjórnar, hefur ákveðið að bjóða sig fram í 3.-4. sæti í flokksvali Samfylkingarinnar í Reykjavík.

1.135 greindust innanlands í gær
1.135 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og sextíu á landamærum.