Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Um sex hundruð starfsmenn Landspítalans eru enn óbólusettir og til skoðunar gæti komið að meina þeim sem ekki hafa fyrir því gilda ástæðu að mæta til vinnu. Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segir enga réttlætingu fyrir því að tíu prósent starfsmenna spítalans séu óbólusettir. Málið sé grafalvarlegt. 27.10.2021 18:00
Dauður hvalur fannst í fjörunni við Þorlákshöfn Hræ hvals fannst í fjörunni við Þorlákshöfn í morgun. Dýrið virðist ekki hafa verið dautt lengi. 27.10.2021 14:14
Bakvarðasveit heilbrigðisstarfsfólks virkjuð á ný Bakvarðasveit heilbrigðisstarfsfólks hefur verið virkjuð á ný vegna fjölgunar kórónuveirusmita í samfélaginu. Um sé að ræða nauðsynlegt viðbragð til að mæta mönnunarvanda sem skapast geti vegna veikinda eða tímabundinnar sóttkvíar heilbrigðisstarfsfólks, komi smit upp á heilbrigðisstofnunum. 27.10.2021 14:09
Flaug fjóra metra vegna loftstreymis frá einkaþotu Hún var myndarleg byltan sem flugáhugamaðurinn Benedikt Sveinsson fékk er hann var að fylgjast með einkaþotu hefja flugtak á Reykjavíkurflugvelli á dögunum. Lofstreymi frá hreyflum vélarinnar feykti honum um koll út á Suðurgötuna. Spurningamerki hefur verið sett við öryggi vegfarenda á þessum slóðum í umræðum um málið. 27.10.2021 14:04
Telma Líf er fundin en fjölskylduna grunar að henni hafi verið byrluð ólyfjan Telma Líf Ingadóttir er fundin heil á húfi eftir að hún hvarf af sjúkrahúsi á Alicante á Spáni í gærmorgun. Ingi Karl Sigríðarson, faðir Telmu, segir sterkan grun um að henni hafi verið byrluð ólyfjan á bar, sem Telma var á á mánudagskvöld. 27.10.2021 13:26
Sex hundruð starfsmenn á Landspítalanum eru óbólusettir „Gripið hefur um sig óraunsæ bjartsýni í samfélaginu sem hefur smitast inn í stjórnmálin og lýsir sér með umræðum um miklar afléttingar og frelsi - nokkuð sem faraldurinn leyfir ekki endilega því ennþá eru að greinast 50-90 nýir sjúklingar á dag.“ 27.10.2021 13:10
Páll ekki rekinn en hlýtur ákúrur frá skólameistara Kristinn Þorsteinsson skólameistari Fjölbrautarskólans í Garðabæ hefur sent nemendum og aðstandendum skólans bréf þar sem hann fer yfir mál Páls Vilhjálmssonar kennara við skólann sem varða afar umdeild bloggskrif hans um Helga Seljan fréttamann. Skólameistari lýsir sig afar ósáttan við skilaboð Páls til geðsjúkra. 27.10.2021 12:14
Grunaður um ólöglegan innflutning á slöngum og tarantúlum Matvælastofnun hefur óskað eftir opinberri rannsókn lögreglu á einstaklingi sem grunaður er um að hafa flutt til landsins án leyfis slöngur, snáka, eðlur og tarantúlur. 27.10.2021 12:12
Þórólfur svartsýnn og segir ekki lengur samstöðu um aðgerðir Sóttvarnalæknir er afar svartsýnn vegna fjölda smitaðra síðustu daga. Hann óttast álag á spítalann og róðurinn sé þungur núna þegar sóttvarnaaðgerðir njóti minni stuðnings í samfélaginu, þar á meðal lítils stuðnings meðal ráðherra. 27.10.2021 12:02
Bjarni segir verðbólguna ekki komna úr böndunum Fjármálaráðherra segir verðbólguna ekki farna úr böndunum en hún hélt áfram að aukast í þessum mánuði og mælist nú fjögur komma fimm prósent. Hækkun húsnæðisverðs heldur áfram að drífa verðbólguna áfram en án hennar mælist verðbólgan þrjú prósent á síðustu tólf mánuðum. 27.10.2021 12:00
Fara í hvert einasta atvinnuhúsnæði og kortleggja búsetu fólks Fulltrúar slökkviliðs munu á næstu mánuðum fara í hvert einasta atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og kortleggja búsetu fólks. Ráðist er í verkefnið í kjölfar brunans á Bræðraborgarstíg og slökkviliðsstjóri segir markmiðið að tryggja öryggi þeirra sem búa í slíku húsnæði. 27.10.2021 11:59
Vara við að tæki séu hlaðin á nóttunni Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, HMS, varar við því að raftæki séu hlaðin á nóttunni, á meðan enginn getur fylgst með þeim. Borið hefur á að eldur hafi kviknað út frá raftækjum, til dæmis símum, rafhjólum og rafhlaupahjólum. 27.10.2021 11:51
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður rætt við sóttvarnalækni sem er afar svartsýnn á ástandið í kórónuveirufaraldrinum í ljósi fjölgunar smitaðra síðustu daga. Þ 27.10.2021 11:34
Fyrst koma innviðirnir, svo uppbyggingin „Undanfarin ár hafa verið algjör metár í uppbygginu í borginni og það sem við erum að leggja upp með er að það haldi áfram. Og raunar ætlum við að bæta í heldur en hitt.“ Þetta sagði Dagur B. Eggertsson borgarstjóri í Bítínu á Bylgjunni í morgun, þar sem rætt var um húsnæðismál í höfuðborginni. 27.10.2021 11:13
Ganga strandlengjuna í leit að Telmu Líf: „Hún er búin að vera týnd í allt of langan tíma“ Fjölskylda Telmu Lífar Ingadóttur gengur nú strandlengju Benidorm í leit að henni en hún hvarf í gærmorgun af sjúkrahúsi í borginni. Faðir Telmu segist dauðhræddur um að henni hafi verið rænt. 27.10.2021 11:03
Þrettán nú inniliggjandi vegna Covid-19 Þrettán sjúklingar liggja nú inni á Landspítala vegna COVID-19. Um mikla fjölgun er að ræða milli daga, en á mánudaginn voru sjö inniliggjandi. 27.10.2021 10:21
84 greindust smitaðir af veirunni í gær Áttatíu og fjórir greindust smitaðir af Covid-19 innanlands í gær. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á Covid.is. 35 þeirra voru í sóttkví við greiningu, eða 42 prósent. 49 voru utan sóttkvíar, eða 58 prósent. 27.10.2021 10:14
Ríkarður Örn Pálsson fallinn frá Ríkarður Örn Pálsson, tónskáld, bassaleikari og tónlistargagnrýnandi, er látinn, 75 ára að aldri. 27.10.2021 08:41
Fimm starfsmenn FSu hafa greinst og skólanum lokað Fjölbrautaskóli Suðurlands verður lokaður í dag vegna kórónuveirusmita meðal starfsfólks skólans. Fimm starfsmenn skólans og að minnsta kosti einn nemandi hafa greinst með veiruna. 27.10.2021 07:28
Hvítur Scheffer og franskur fjárhundur Hundarnir Frídó og Meiko eiga ekki annað sameiginlegt en að vera hundar því þeir eru mjög ólíkir. Annar er hvítur Scheffer og hinn er franskur fjárhundur með mikinn felld. Báðir vöktu þeir mikla athygli á hundasýningu, sem þeir tóku þátt í. 27.10.2021 07:06
Ekið á níu ára dreng og unga konu Ekið var á níu ára dreng á reiðhjóli í gær. Tilkynning barst um klukkan 17 og var sjúkrabifreið send á staðinn. Drengurinn var aumur í hnjánum eftir slysið en fór af vettvangi með móður sinni. 27.10.2021 06:26
Leita átján ára íslenskrar stúlku á Spáni Leit stendur yfir að átján ára íslenskri stúlku á Spáni sem ekkert hefur sést til frá klukkan hálf sex í morgun. Að sögn foreldra Telmu Lífar Ingadóttur gekk hún út af Villajosa-sjúkrahúsinu í Alicante í morgun og skildi eigur sínar eftir. 26.10.2021 23:39
Allt að ársbið eftir sálfræðingi Dæmi eru um að fólk þurfi að bíða í allt að ár eftir sálfræðiaðstoð hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Skortur er á sálfræðingum að sögn framkvæmdastjóra geðheilbrigðismála. 26.10.2021 22:00
Sóttvarnalæknir birtir færslur um þróun faraldursins Frá og með deginum í dag má vænta þess að Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir birti stuttar færslur á Covid.is, vef Landlæknis og almannavarna, nokkrum sinnum í viku og fjalla um stöðu kórónuveirufaraldursins hér á landi. Fyrsta færslan birtist í dag en þar segir sóttvarnalæknir fyllstu ástæðu til að hafa áhyggjur af þróun faraldursins hér á landi. 26.10.2021 21:46
Glænýr og allt öðruvísi Flatus lifir Listaverk sem hefur lifað með þjóðinni áratugum saman hefur tekið á sig nýja mynd í Kollafirði. Flatus lifir enn og nafn hans vísar að þessu sinni til vindgangs í huga listamannsins. 26.10.2021 20:48
Alelda bíll við Þjóðarbókhlöðuna Bifreið á bílastæði Þjóðarbókhlöðunnar í vesturbæ Reykjavíkur varð alelda nú í kvöld. 26.10.2021 19:43
„Ég held að við þurfum aðeins að endurskoða stöðuna“ Forstöðumaður hjarta- og æðaþjónustu Landspítala, teljur að endurskoða þurfi fyrirætlanir stjórnvalda um að aflétta öllum sóttvarnatakmörkunum þann 18. nóvember næstkomandi, í ljósi fjölgunar smita í samfélaginu. 26.10.2021 18:54
Dýralæknir MAST segir Gústa Jr. sýna skýr merki um streitu og telur brotið á honum Þóra Jóhanna Jónasdóttir, sérgreinadýralæknir hjá Matvælastofnun (MAST), segist telja þörf á því staðreyndir í máli refsins Gústa Jr. komi fram, en talsvert hefur verið fjallað um málið í fjölmiðlum að undanförnu. Hún segir það skýrt að verið sé að brjóta gegn velferð refsins. 26.10.2021 18:32
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Sóttvarnalæknir telur að endurskoða geti þurft áform um allsherjarafléttingu ef innlögnum fjölgar mjög á sjúkrahúsum vegna Covid-19. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar telja að framvindan undanfarna daga gefi ekki tilefni til þess að breyta um stefnu. 26.10.2021 18:00
Fella niður skólahald og herða heimsóknarreglur vegna útbreiðslu Covid Skólahald í Auðarskóla í Dalabyggð hefur verið fellt niður út þessa viku og heimsóknarreglur á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Silfurtúni verið hertar, vegna útbreiðslu kórónuveirunnar í sveitarfélaginu. 26.10.2021 17:16
Tveir Íslendingar í varðhaldi í sex vikur Tveir íslenskir karlmenn eru enn í gæsluvarðhaldi hjá lögreglunni í Kaupmannahöfn, tæpum sex vikum eftir að þeir voru handteknir. 26.10.2021 17:03
Smitsjúkdómadeild Landspítala gerð að farsóttareiningu vegna ástandsins Tekin hefur verið ákvörðun um að smitsjúkdómadeild A7 á Landspítala verði gerð að farsóttareiningu og muni deildin því helga sig umönnun Covid-19 sjúklinga. 26.10.2021 16:48
Skotveiðimenn skelkaðir og búast við banni við veiðum á rjúpu Stjórn Skotveiðifélags Íslands hefur borist boð um að mæta til fundar í umhverfis og auðlindaráðuneytinu á fimmtudaginn. Skotveiðimenn eru sannfærðir um að þar verði þeim kynnt bann við veiðum á rjúpu nú í ár. 26.10.2021 16:47
Gekk um með boga og örvar á Selfossi í nótt Maður sem var á gangi um Selfoss með boga og örvar var handtekinn í nótt. Tilkynning barst til lögreglunnar á fimmta tímanum um mann vopnaða boga og örvum á gangi við Tryggvatorg á Selfossi. 26.10.2021 15:49
Segir jarðakaup Bretans ofbjóða öllum og vera ömurlega þróun „Þetta er farið að ofbjóða öllum,“ segir Jóhannes Sigfússon, bóndi á Gunnarsstöðum í Þistilfirði, um jarðakaup breska auðjöfursins Jims Ratcliffes í sveitinni, og segir Hafralónsá nánast í gíslingu vegna tilrauna hans til að ná meirihluta í veiðifélaginu. 26.10.2021 15:42
Stytting á sóttkví grunnskólabarna til skoðunar Til skoðunar er að stytta sóttkví grunnskólabarna og gætu nýjar tillögur legið fyrir í lok vikunnar. Mennta- og menningarmálaráðherra ræddi stöðuna á ríkisstjórnarfundi í morgun. 26.10.2021 15:13
Síbrotamaður sem rauf einangrun áfram í varðhaldi Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að karlmaður rauf einangrun vegna Covid-19 og sýndi starfsmönnum farsóttarhúss mikinn skapofsa og hrækti í andlit starfsmanns sitji áfram í gæsluvarðhaldi. Alls er lögregla með sautján mál tengd manninum til rannsóknar. 26.10.2021 14:02
Geislafræðingur sem ráðist var á við vinnu fær ekki bætur frá ríkinu Íslenska ríkið var í dag sýknað í Héraðsdómi Reykjavíkur af kröfum geislafræðings sem hafði við störf sín árið 2016 orðið fyrir líkamsárás. Vildi geislafræðingurinn meina að ríkið ætti að greiða henni bætur í samræmi við kjarasamninga ríkisins við Félag geislafræðinga. 26.10.2021 13:49
Aðstoðarleikstjóri Rust starfaði við tökur á Íslandi Aðstoðarleikstjóri kvikmyndarinnar Rust, sem spjótin beinast að vegna dauða kvikmyndatökustjórans Halynu Hutchins, varði tíma hér á landi veturinn 2016/17 vegna framleiðslu myndarinnar Arctic. Dave Halls var einnig aðstoðarleikstjóri þeirrar myndar sem var meðal annars framleidd af Pegasus og Einari Þorsteinssyni. 26.10.2021 13:23
Gætu séð til lands í næstu eða þarnæstu viku Forsætisráðherra segir að flokkarnir þrír sem eru í stjórnarmyndunarviðræðum gætu farið að sjá til lands í næstu eða þarnæstu viku. Búið er að setja niður texta um einstaka málaflokka en heildarmyndin liggur ekki fyrir. 26.10.2021 13:11
Telur mansal falinn vanda á Íslandi Þrettán tilfelli komu upp á síðasta ári þar sem grunur var um mansal, og tvö tilfelli þar sem um var að ræða smygl á fólki. Þetta kom fram í erindi teymisstjóra Bjarkarhlíðar á ráðstefnu félagsráðgjafa í dag. Hún telur að um sé að ræða falinn vanda og grunar að í raun séu mun fleiri tilfelli sem varða mansal. 26.10.2021 12:31
Þórólfur: Mögulegt að endurskoða þurfi afléttingar Áttatíu greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og innan við helmingur þeirra var í sóttkví. Sóttvarnalæknir telur mögulegt að endurskoða þurfi áætlanir um afléttingar. 26.10.2021 12:13
Siggi hakkari í gæsluvarðhaldi grunaður um umfangsmikil fjársvik Einn sætir gæsluvarðhaldi og fjórtán til viðbótar eru með réttarstöðu sakbornings í tengslum við umfangsmikla rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á fjársvikum, peningaþvætti og skjalafalsi. Tugir milljóna eru undir í málinu að sögn aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglu. 26.10.2021 12:09
Smituðum fjölgar í hópsmiti á hjartaskurðdeild Sex manna hópsmit er komið upp á hjartaskurðdeild Landspítalans. Þar af er einn starfsmaður smitaður. Þessi atburðarás skapar töluvert álag á starfsemi sjúkrahússins en hjartalæknir segir ógerning að koma alveg í veg fyrir að veiran berist inn fyrir dyrnar. 26.10.2021 11:45
Klemmdist á Keflavíkurflugvelli og fær sextán milljónir Tryggingarfélagið Sjóvá þarf að greiða karlmanni sem starfaði hjá IGS á Keflavíkurflugvelli 16,3 milljónir, eftir vinnuslys sem varð í hvassviðri á flugvellinum. Maðurinn klemmdist á fæti við að ferma flugvél. 26.10.2021 11:34
Óforsvaranlegt að 2,1 milljarði verði varið til listaverkakaupa fyrir nýja Landspítalann Innlent