Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vilja ná til óbólusettra Katrín Jakobsdótir forsætisráðherra segir að ríkisstjórnin vilji ná betur til þeirra einstaklinga sem hafi ekki þegið bólusetningu vegna Covid-19, með það að markmiði reyna að fá viðkomandi í bólusetningu. 6.8.2021 13:25
Hefja skimun á bólusettum með tengsl við Ísland Ríkisstjórnin hefur ákveðið að taka upp skimun bólusettra ferðamanna sem koma hingað til lands og hafa tengsl við Ísland. 6.8.2021 12:48
Unnur Eggerts í stjórnmálin Leikkonan Unnur Eggertsdóttir mun stýra kosningum Vinstri grænna í Reykjavík fyrir komandi alþingiskosningar. 6.8.2021 12:18
Ekki sjálfsagt að heilbrigðisstarfsfólk setji líf sitt til hliðar Það er ekki sjálfsagt að líf fólks sé sett til hliðar til þess að það geti staðið vaktina á Landspítala þegar álag er mikið. Þetta segir formaður félags hjúkrunarfræðinga sem fundaði með stjórnvöldum í morgun. 6.8.2021 12:03
Frekari skimanir á landamærum og endurbólusetningu flýtt Ríkisstjórn Íslands fundar enn á vikulegum ríkisstjórnarfundi í ráðherrabústaðnum. Fundurinn hefur staðið yfir síðan klukkan hálf tíu í morgun. 6.8.2021 11:55
Áhyggjur af skriðuföllum á Sauðárkróki Kallað hefur verið eftir því að hættumat verði gert eins fljótt og auðið er fyrir Varmahlíð vegna aurskriðanna sem féllu þar í júní. Þá eru einnig áhyggjur um skriðuföll á Sauðárkróki og hefur sveitarstjóri Skagafjarðar lagt fram formlega beiðni um að hættumat verði gert á ákveðnum svæðum þar. 6.8.2021 11:42
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Heldur færri greindust smitaðir af kórónuveirunni í gær en í fyrradag eða hundrað og átta á móti hundrað fimmtíu og einum. Við heyrum í formanni Hjúkrunarfræðingafélags Íslands sem fundaði með ráðherranefnd um kórónuveirufaraldurinn í morgun 6.8.2021 11:32
103 greindust smitaðir af veirunni í gær Að minnsta kosti 103 greindust smitaðir af kórónuveirunni innanlands í gær. Ekki liggur fyrir hve margir þeirra voru bólusettir en þær tölur eru nú uppfærðar á covid.is fyrir klukkan 16 alla daga. 6.8.2021 10:52
Atvinnuleysi var 5,6 prósent í júní Atvinnuleysi var 5,6 prósent í júní 2021 samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum úr vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands. Árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka var 79,2 prósent og árstíðaleiðrétt hlutfall starfandi 74,5 prósent. 6.8.2021 10:25
Lentu í Keflavík með veikan farþega Vél á leið frá New York í Bandaríkjunum til Mumbai á Indlandi var snúið við þegar hún var á leið sinni yfir Ísland og lenti á Keflavíkurflugvelli rétt upp úr klukkan 5 í morgun. 6.8.2021 09:48
„Spurningin er: Ætla ég að neita barninu mínu um þessa vernd?“ Prófessor í barnalækningum segir að afleiðingar Covid-veikinda fyrir börn séu mun alvarlegri en aukaverkanir bólusetninga. Hann segir nýlegar rannsóknir benda til þess að bólusetningar barna gegn Covid gangi vel en skilur hins vegar að foreldrar séu hikandi þegar kemur að bólusetningum. 6.8.2021 08:56
Enn eitt dæmið um almannatengla sem misskilja hlutverk sitt „Það virðist vera að yfirmenn spítalans hafa meiri og betri skilning á hlutverki sínu og stöðu gagnvart fjölmiðlum og mikilvægi þeirra varðandi veitingu upplýsinga heldur en samskiptastjóri spítalans sjálfur,“ segir Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, um tölvupóst sem samskiptastjóri Landspítala sendi á yfirmenn í gær. 6.8.2021 06:53
Fasteignamat hótels í Borgarnesi lækkað til muna Þjóðskrá hefur lækkað fasteignamat B59 hótels í Borgarnesi og tengdra bygginga úr 876 milljónum króna í 587 milljónir króna. Um er að ræða þriðjungslækkun en eigandi hótelsins kærði fyrra matið eftir að Þjóðskrá neitaði að lækka það. 6.8.2021 06:35
Reyndi að stela kjöti fyrir 85 þúsund krónur Lögregla var kölluð á vettvang í gær þegar maður varð uppvís að því að stela kjöti að verðmæti um það bil 85 þúsund króna úr verslun í Háaleitis- og Bústaðahverfi. 6.8.2021 06:16
Glóandi hraun aftur sjáanlegt á Fagradalsfjalli Hraun er aftur tekið að renna á Fagradalsfjalli í fyrsta sinn frá því á mánudagsmorgun. Hraunárnar hafa nær alfarið runnið til austurs og niður í Meradali síðustu vikur en hraunáin virðist núna hafa tekið stefnu í aðra átt. 5.8.2021 23:35
Líklegt að börn verði boðuð í bólusetningu eftir rúmar tvær vikur Til skoðunar er að boða börn á aldrinum 12 til 15 ára í bólusetningu gegn Covid-19 dagana 23. og 24. ágúst næstkomandi. Enn er unnið að útfærslu bólusetningarinnar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins en fyrirhugað er að hún fari fram í Laugardalshöll. 5.8.2021 22:51
Ekki verið að múlbinda stjórnendur spítalans Deildarstjóri samskiptadeildar Landspítalans hafnar því að nýjum tilmælum sé ætlað að takmarka upplýsingaflæði til fjölmiðla. 5.8.2021 21:46
Katrín segir ekkert eiga að hindra kosningar Að óbreyttu var síðasti ríkisráðsfundur ríkisstjórnarinnar á Bessastöðum í dag þar sem farið var yfir lagatillögur sem ráðherrar lögðu fram á liðnu ári. 5.8.2021 21:01
Kallar eftir samtali við börn um bólusetningar Varaformaður þingflokks Pírata telur rétt að ræða við börn um vilja þeirra áður en mögulega verður byrjað að bólusetja 12-15 ára unglinga gegn kórónuveirunni. Það sé á ábyrgð menntamálaráðherra og stjórnvalda að hefja það samtal. 5.8.2021 20:54
Mikilvægt að börn fái að lifa sem eðlilegustu lífi Barnasmitsjúkdómalæknir segist skilja áhyggjur fólks af bólusetningum barna en að ekkert bendi til þess að þær hafi alvarlegar afleiðingar í för með sér. Mikilvægt sé að börn fái að lifa sem eðlilegustu lífi sem fyrst og þar spili bólusetningar stórt hlutverk. 5.8.2021 19:47
Samskipti stjórnenda við fjölmiðla verði áfram góð Yfirlæknir á ónæmisfræðideild Landspítalans reiknar með því að samskipti stjórnenda spítalans og fjölmiðla verði áfram góð þrátt fyrir mikið álag um þessar mundir. Stjórnendum spítalans hefur verið skipað að svara ekki fyrirspurnum fjölmiðla. 5.8.2021 19:26
Erlendur ferðamaður alvarlega slasaður eftir bílveltu á Biskupshálsi Einn er talinn vera alvarlega slasaður eftir að bíll valt á Biskupshálsi, milli Grímsstaða á Fjöllum og Möðrudals. Fimm erlendir ferðamenn voru í bílnum sem fór fram af háum bakka og tók nokkrar veltur utan vegar. 5.8.2021 18:52
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Kerfi samfélagsins eru komin að þolmörkum að mati þríeykisins og er ótti um að ef stjórnvöld grípa ekki í taumana gæti skapast sú staða covidsjúklingar fái ekki þá læknisþjónustu sem þeir þurfa á að halda. Fjallað verður ítarlega um stöðuna í kvöldfréttum Stöðvar 2. 5.8.2021 18:01
Engin þyrla tiltæk þegar óskað var eftir aðstoð Gæslunnar vegna slyss Karlmaður slasaðist þegar fjórhjól hans fór fram af skurðarbarmi í Vestur-Landeyjum skammt frá Hvolsvelli rétt fyrir klukkan fjögur í dag. Óskað var eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar en engin af þremur þyrlum hennar hefur verið til taks í rúman sólarhring vegna bilana. 5.8.2021 17:32
Stjórnendum á Landspítalanum sagt að hætta að svara fjölmiðlum Stjórnendur Landspítalans sem telja á þriðja hundrað manns fengu í gærkvöldi tölvupóst frá deildarstjóra samskiptadeildar Landspítalans. Skilaboðin voru skýr. Stjórnendur ættu að beina öllum fyrirspurnum og símtölum frá fjölmiðlum til samskiptasviðs. 5.8.2021 16:43
Breyta reglugerð til að létta á sóttvarnahúsum Heilbrigðisráðuneytið hefur gert breytingu á reglugerð um sóttkví og einangrun og sýnatöku við landamærin vegna kórónuveirunnar. Með breytingunni verður aðgengi að sóttvarnarhúsum takmarkað og áhersla lögð á að nýta húsin fyrst og fremst fyrir fólk sem þarf á einangrun að halda. 5.8.2021 15:39
Fjalar nýr upplýsingafulltrúi dómsmálaráðuneytisins Fjalar Sigurðarson hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi í dómsmálaráðuneytinu. Fjalar tekur við starfinu af Hafliða Helgasyni sem gegndi því í tæp þrjú ár. 34 sóttu um starfið. 5.8.2021 15:30
Kviknaði í fólksbíl á leið inn í Hvalfjarðargöngin Ökumaður slapp með skrekkinn þegar kviknaði í fólksbíl hans á leið inn í Hvalfjarðargöngin að norðanverðu á þriðja tímanum í dag. Slökkvilið er að ljúka störfum á staðnum. 5.8.2021 15:07
Læknar vilja óskert sumarfrí og segja þörf á hugarfarsbreytingu Félag sjúkrahúslækna segir mikilvægt að tryggja að heilbrigðisstarfsmenn fái óskert sumarfrí. Alvarlegt ástand á Landspítalanum vegna fjölgunar þeirra sem smitast hafa af Covid-19 hefði ekki átt að koma á óvart og hugarfarsbreytingu þurfi í stjórnun spítalans. 5.8.2021 14:57
Lýsir mikilli partýstemmningu við eldgosið Segja má að stemmingunni við eldgosinu í Fagradalsfjalli sé líkt við útihátíð eða næturklúbb í nýrri grein í veftímaritinu Condé Nast Traveler. 5.8.2021 14:41
Guðni segir stöðuna vonbrigði en hvetur landsmenn til þess að fara ekki á taugum Forsti Íslands segir stöðu faraldursins og fjölgun smita vera vonbrigði enda hafi hann ekki vænst þess eftir bólusetningar. Hann hvetur þó landsmenn til þess að fara ekki á taugum, missa ekki móðinn og sýna náungakærleik. 5.8.2021 14:04
Binda vonir við nýtt bóluefni gegn delta-afbrigðinu Heilbrigðisyfirvöld binda vonir við nýtt bóluefni gegn delta-afbrigði kórónuveirunnar en Pfizer er nú þegar með slíkt í þróun. Það gæti orðið til þess að raunverulegt hjarðónæmi myndaðist gen SARS-CoV-2. 5.8.2021 14:04
Skimun bólusettra landsmanna á landamærum til skoðunar Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að eitt af því sem sé til skoðunar í augnablikinu sé tillaga sóttvarnalæknis um skimun bólusettra einstaklinga á landamærum sem búsettir eru hér á landi. Lagaheimildir í þeim efnum þurfi að vera skýrar. Hún merkir mikla þreytu hjá landanum eftir átján mánaða faraldur og aðgerðir honum tengdum. 5.8.2021 13:58
Einkaþotan laus úr slitlaginu og farin burt Einkaþotan sem festist í slitlagi á flugvellinum á Rifi á Snæfellsnesi á dögunum var dregin upp á flugbraut í gær. Var henni flogið á brott eftir að flugvirkjar frá Þýskalandi fóru yfir hana. 5.8.2021 13:37
Lögreglan lýsir eftir Guðbrandi Ólafssyni Lögreglan á Suðurlandi lýsir eftir Guðbrandi Ólafssyni. Síðast er vitað um ferðir hans í nágrenni við Selfoss seinni partinn í gær. Var hann þá á bifreiðinni YB-720, KIA SORENTO blá að lit. 5.8.2021 13:21
Bæta þurfi aðstöðu á vellinum ef aðgerðir á landamærum eru til langs tíma Rauður litur Íslands á korti Sóttvarnastofnunar Evrópu mun ekki hafa bein áhrif á stöðuna á Keflavíkurflugvelli, þó komufarþegum kunni að fækka á næstunni. Yfirlögregluþjónn segir stöðuna þunga og að breytinga sé þörf á vellinum, verði takmarkanir á landamærunum viðvarandi. 5.8.2021 12:56
Heilbrigðiskerfið megi ekki alltaf vera einni bylgju eða rútuslysi frá því að fara á hliðina Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, segir starfsfólk spítalans vera örþreytt. Ýmislegt hafi verið gert til að mæta álagi sem fylgi kórónuveirufaraldrinum en meira þurfi til. Mikilvægt sé að efla heilbrigðiskerfið svo það sé ekki „alltaf einni faraldursbylgju eða rútuslysi frá því að fara á hliðina". 5.8.2021 12:00
„Það er ekki í boði í krísu að taka ekki ákvörðun“ Innviðir munu að óbreyttu bresta og það dugir ekki að sitja hjá aðgerðalaus. Þetta kom fram í máli Víðis Reynissonar yfirlögregluþjóns, Kamillu Sigríðar Jósefsdóttur, staðgengils sóttvarnalæknis, og Páls Matthíassonar, forstjóra Landspítala, á upplýsingafundi vegna kórónuveirufaraldursins rétt í þessu. 5.8.2021 11:51
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Ekkert lát er á fjölgun þeirra sem greinast smitaðir af kórónuveirunni. Hundrað fimmtíu og einn greindist í gær. Við förum yfir stöðu mála í hádegisfréttum Bylgjunnar. 5.8.2021 11:33
Ýmis kerfi komin að þolmörkum Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra segir stöðu kórónuveirufaraldursins hafa þyngst og að ýmis kerfi séu komin að þolmörkum. 5.8.2021 11:15
151 greindist með Covid-19 í gær 151 greindist með Covid-19 í gær. Alls voru 68 í sóttkví en 83 utan sóttkvíar. 5.8.2021 10:48
Bein útsending: Hvað er „terf-ismi“ og hvernig má sporna við honum? Enska skammstöfunin TERF stendur fyrir „trans-exclusionary radical feminist“, eða „trans-útilokandi öfgafullur femínisti“. Hugtakið er nokkuð umdeilt en hefur með tímanum verið útvíkkað til að ná almennt til áróðurs gegn transfólki. 5.8.2021 10:46
Ísland orðið rautt eins og reiknað var með Ísland er orðið rautt á nýútgefnu korti Sóttvarnarstofnunar Evrópu, eins og reiknað var með að myndi gerast. 5.8.2021 10:21
Guðmundur Auðunsson leiðir lista Sósíalista í Suðurkjördæmi Sósíalistaflokkurinn hefur skipað framboðslista sinn í Suðurkjördæmi. Guðmundur Auðunsson hagfræðingur skipar fyrsta sætið en hann hefur starfað í framkvæmdastjórn Sósíalistaflokksins síðastliðin tvö ár samkvæmt tilkynningu frá flokknum. 5.8.2021 09:14
„Kannski eru þjóðþing ekki rétti aðilinn til að setja kosningalög“ Frá Alþingiskosningum 2013 hefur það verið þannig að jöfnunarþingsæti hafa sett fylgi flokka úr jafnvægi við fjölda Alþingismanna sem hver flokkur fær á þingi og hefur þá einn flokkur fengið einum manni um of inn á þing miðað við fylgi á landsvísu. 5.8.2021 08:28