Fleiri fréttir

Nærri þrefalt fleiri leita til talmeinafræðinga

Nærri þrefalt fleiri leituðu sér aðstoðar talmeinafræðinga á síðasta ári en fimm árum áður. Formaður Félags talmeinafræðinga segir um árs bið vera eftir því að komast að með börn hjá talmeinafræðingum.

Útlit fyrir að verkföll haldi áfram

Útlit er fyrir að verkföll sjúkraliða og SFR-félaga haldi áfram á morgun. Þrátt fyrir stíf fundarhöld í Karphúsinu alla helgina virðist enn nokkuð í að samkomulag náist um nýja kjarasamninga.

Vinstri græn hafna olíuvinnslu og hvalveiðum

Landsfundur Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs samþykkti á fundi sínum á Selfossi að hafna með öllu olíuvinnslu við Íslandsstrendur. Þá ályktaði fundurinn gegn hvalveiðum Íslands.

Kjaraviðræðurnar ganga hægt

Kjaraviðræður sjúkraliða, SFR, lögreglumanna og ríksins ganga hægt þrátt fyrir stíf fundarhöld alla helgina. Formaður Sjúkraliðafélags Íslands telur ólíklegt að samningar náist í dag en ástandið á Landspítalanum er erfitt vegna verkfalla sem nú hafa staðið í vel á aðra viku.

Verk Milan Kundera rædd

Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur og Bókmennta- og listfræðistofnun Háskóla Íslands efndu til málþings.

Vill efla tengsl VG við verkalýðshreyfinguna

Vinstri grænir þurfa að efla tengsl sín við verkaflýðshreyfinguna og vill Björn Valur Gíslason, sem endurkjörinn var varaformaður flokkins í dag, beita sér fyrir því. Nokkuð óvænt mótframboð kom fram gegn honum í gær.

Almenningi gefið það sem hann á þegar

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri-grænna, segir almenning sjá í gegnum hugmyndir fjármálaráðherra um að afhenda landsmönnum 5% hlut í bönkunum enda séu þær til þess fallnar að dreifa athygli frá stóra málinu sem sé hvernig haga eigi eignarhaldi á bönkunum.

Leitað í hellum að Herði

Leitað hefur verið í öllum hellum í kringum höfuðborgarsvæðið í dag og á útivistarsvæðum að Herði Björnssyni sem saknað hefur verið í tíu daga. Lögreglan segir allt benda til þess að hann vilji ekki finnast. Hann sækir í einveru og óttast fólk en engin hætta stafar þó af honum.

Sjá næstu 50 fréttir