Innlent

Kjaraviðræðurnar ganga hægt

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Formenn LL, SLFÍ og SFR sitja á fundi í Karphúsinu.
Formenn LL, SLFÍ og SFR sitja á fundi í Karphúsinu. Vísir/GVA
Kjaraviðræður sjúkraliða, SFR, lögreglumanna og ríksins ganga hægt þrátt fyrir stíf fundarhöld alla helgina. Formaður Sjúkraliðafélags Íslands telur ólíklegt að samningar náist í dag en ástandið á Landspítalanum er erfitt vegna verkfalla sem nú hafa staðið í vel á aðra viku.

Verkfallsaðgerðir sjúkraliða og félagsmanna SFR hófust 15. október. Þá fóru um 1.600 starfsmenn Landspítalans í allsherjarverkfall svo og SFR-félagar hjá Tollstjóranum, hjá sýslumannsembættunum um allt land og hjá Ríkisskattstjóra. Starfsmenn um eitt hundrað og fimmtíu ríkisstofnanna til viðbótar hafa síðan farið í skemmri verkföll á þessum tíma. Á meðan hafa samninganefndir félaganna og ríkisins fundað stíft í Karphúsinu og hófst nýr fundur þeirra klukkan ellefu.

„Viðræðurnar hafa verið bara í miklum hægagangi það verður að segjast alveg eins og er,“ segir Kristín Á. Guðmundsdóttir formaður Sjúkraliðafélag íslands. Hún bindur vonir við að eitthvað þokist í rétta átt í dag en segir alveg ljóst að nýjir kjarasamningar verði ekki undirritaðir í dag. Kristín segir viðræðurnar undanfarið hafa að mestu snúist um launalið kjarasamninganna og enn eigi eftir að ná saman um nokkur atriði þar.

Verkfallsaðgerðirnar hafa haft mikil áhrif á starfsemi Landspítalans. „Það er bara gríðarlega alvarlega staða og eftir því sem að undanþágunefndin hefur tjáð mér þá eru hundruðir undanþága veitt til viðbótar þeim undanþágulista sem að fyrir lá fyrir verkfallið. Þannig að það sýnir sig bara eins og við höfum sagt í töluvert langan tíma að álagið er bara gríðarlegt á þeim sem starfa inn á sjúkrahúsunum. Það má engu muna. Það má ekki vanta hálfa manneskju þannig að það sé ekki í raun og veru bara algjört neyðarástand,“ segir Kristín.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×