Vinstri græn hafna olíuvinnslu og hvalveiðum Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar 25. október 2015 13:30 Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs Skjáskot
Landsfundur Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs samþykkti á fundi sínum á Selfossi að hafna með öllu olíuvinnslu við Íslandsstrendur. Í ályktuninni segir að: „Landsfundur ítrekar mikilvægi þess að horfið verði af þessari braut olíuvinnslu og nýtingar og hvetur stjórn, þingflokk, sveitarstjórnarfólk og félagsmenn alla til dáða í einarðri baráttu fyrir umbreytingu Íslands í samfélag án jarðefnaeldsneytis. Þannig getum við verið sjálfum okkur samkvæm og veitt öðrum þjóðum gott fordæmi." Ályktunin er þó breytt útfærsla á upphaflegri tillögu þar sem hreyfingin baðst afsökunar á því að ráðherra flokksins hafi árið 2013 undirritað sérleyfi til olíuvinnslu. Er þar átt við Steingrím J Sigfússon en hann var atvinnuvegaráðherra þegar leyfin voru gefin út. „Hreyfing sem ekki beitir sér eindregið gegn nýtingu jarðefnaeldsneyta getur ekki með réttu látið kenna sig við grænt framboð." Þá leggst hreyfinginn gegn hvalveiðum Íslands og segir í ályktun að greinin muni ekki ná fyrri stöðu innan atvinnulífsins og að litlar líkur séu á að hvalveiðar öðlist viðurkenningu alþjóðastofnana. „Við veiðarnar er beitt ómannúðlegum veiðiaðferðum til að viðhalda áhugamáli örfárra útgerðarmanna. Háum upphæðum af opinberu fé hefur verið kastað á glæ til að styrkja þessa áhugamenn um hvalveiðar. Nú er mál að linni," segir í samþykkt fundarins.
Mest lesið Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Innlent Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Erlent Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Innlent Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu Erlent Lögreglan mun fylgja skipverjunum úr landi Innlent Barn í hoppukastala sem tókst á loft Innlent Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Innlent Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Erlent Fleiri fréttir Stefnir í stærstu Gleðigöngu sögunnar Banderofólki brottvísað og hinsegin dagar hafnir Gætu verið fluttir á brott um borð í Bandero Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Barn í hoppukastala sem tókst á loft Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Alvarlegt að ógna fólki með því sem það heldur að sé vopn Lögreglan mun fylgja skipverjunum úr landi Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Ítrekað hjólað á móti umferð Marktækur munur á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Ný ESB-könnun, skipverjar Bandero og óþarfa hætta á Hverfisgötu Skipverjarnir mega allir fara frá borði Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Minnst einn skipverji Bandero má fara frá borði „Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ „Við erum svolítið strand“ Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Slökktu eld í jepplingi á „örskotsstund“ Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólarhringa „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Gríðarlegur fjöldi fyrir norðan og mikil óþolinmæði á heimleið Kólumbíumenn í haldi og skipverjar Bandero bíða örlaga sinna Sjá meira