Fleiri fréttir

Íslensk fræðibók um hrunið gefin út samtímis í Bandaríkjunum og Evópu

"Þetta er svona á stærri skala en ég hef áður verið á,“ segir Dr. Eiríkur Bergmann, prófessor við Háskólann á Bifröst, en eitt virtasta útgáfufélag á sviði fræðibóka, Palgrave Macmillan, ætlar að gefa út fræðirit Eiríks um hrunið hér á landi. Bókin heitir "Iceland and the international financial crisis: Boom, Bust and Recovery“.

Skemmdir unnar á fimm bílum

Skemmdir voru unnar á fimm bifreiðum í Keflavík aðfararnótt laugardagsins. Tvær bifreiðanna stóðu við Ránargötu og þrjár við Suðurgötu. Í öllum tilvikum voru hliðarspeglar bifreiðanna brotnir og ein þeirra hafði einnig verið rispuð. Lögreglan á Suðurnesjum biður þá sem kunna að búa yfir upplýsingum um hver eða hverjir voru þarna að verki að hafa samband í síma 420-1800

Stór verkefni krefjast styrks þingmeirihluta

Viðræður um myndun ríkisstjórnar hófust í gær þegar Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson settust að fundi. Sigmundur segir eðlilegast að leita eftir sem öflugustum þingmeirihluta í ljósi þeirra verkefna sem liggi fyrir.

Vilja lax í lækinn en enga kópa í Kópavog

"Þetta er nú frekar hugsað til þess að bæta ímynd læksins, en það er ekki útilokað að leyfa börnum að veiða þarna í framtíðinni,“ segir Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Kópavogi, en tillaga hans um að kannað verði hvort það sé mögulegt að sleppa eldisfiski í Kópavogslæk var samþykkt á fundi bæjarráðsins fyrir helgi.

Ætla að byrja að tala saman fyrir hádegi

Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson munu hefja fundarhöld upp úr klukkan ellefu, samkvæmt upplýsingum Vísis. Þeir óku saman, ásamt aðtoðarmönnum sínum, út fyrir borgarmörkin í gær og funduðu fram á kvöld. Litlar upplýsingar hafa borist af fundarhöldum gærdagsins annað en það að verslað var í Krónunni og menn gæddu sér á vöfflum með kaffinu. Fátt annað hefur frest í dag, annað en að málefnin verða rædd á breiðum grundvelli.

Réttindalaus stöðvuð í áttunda sinn

Lögreglan á Suðurnesjum hafði í gærdag afskipti af tæplega fertugri konu sem ók um án þess að hafa endurnýjað ökuskírteini sitt. Var þetta í áttunda skiptið sem lögregla stöðvar akstur konunnar vegna þessa.

Rakarinn fagnar nýrri aðferð gegn skalla

Ný rannsókn, svokölluð vampíruaðferð, gefur nýja von gegn skalla; vandamáli sem fylgt hefur mannkyni frá örófi alda. Torfi Geirmundsson hársskeri fagnar þessu að vonum og sér fyrir sér að meira verði að gera á rakarastofunni.

Vellauðugir þjófar á kreiki í IKEA

Lögfræðingar, eigandi lögfræðistofu, framkvæmdastjóri fyrirtækis í ferðaþjónustu og hjúkrunarfræðingur eru meðal þeirra sem eru kærð til lögreglu fyrir meintan stórfelldan og skipulagðan þjófnað í IKEA.

Strætóbílstjórar reknir vegna kynferðisbrota

Maðurinn sem er til rannsóknar hjá lögreglu vegna kynferðisbrots gegn þroskaheftri konu í Kópavogi var ráðinn til Strætó stuttu eftir að honum var sagt upp störfum hjá Smartbílum. Eftir að í ljós kom að hann væri grunaður um kynferðisbrot var hann þó líka látinn hætta hjá Hagvögnum, sem eru verktakar fyrir Strætó.

Fyrirtæki í eigu Disney stal íshrúti

Þorsteini Úlfari Björnssyni, kvikmyndagerðarmanni og áhugaljósmyndara, brá heldur betur í brún á dögunum þegar furðuvera í líki ísbjarnar með hrútshöfuð, sem hann sjálfur hafði búið til og sett saman með aðstoð myndvinnsluforritsins Photoshop, birtist í tölvuleik sem hann var að spila.

Ekkert lát á snjóþyngslum nyrðra

„Það eru engin sérstök hlýindi á næstunni en það verður þó hlýrra en hefur verið undanfarnar vikur,“ segir Teitur Arason, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Spurður hvort Norðlendingar, sem margir eru orðnir langþreyttir á snjónum, megi búast við leysingum segir Teitur að ekki megi búast við meiri snjó eftir að stytti upp síðdegis í dag. „Þá ætti ekki að snjóa meira í bili. En það þarf að fá hlýja sunnanátt til að taka snjóinn, og hún er því miður ekki sjáanleg næstu sjö, átta daga.“

Bílstjóri jeppa grunaður um ölvun

„Dóttir mín, tveggja og hálfs árs, var með okkur í bílnum en blessunarlega slapp hún ótrúlega vel,“ segir Bjarki Kristjánsson. Bíll sem hann ók lenti í hörðum árekstri við jeppa við Leirubrú á Akureyri á laugardag. Í bílnum var einnig systir Bjarka.

Leggja upp úr vinalegu viðmóti

Djúpavogshreppur, tæplega 500 manna sveitarfélag á sunnanverðum Austfjörðum, hefur hlotið inngöngu í Cittaslow-hreyfinguna, fyrstur byggða á Íslandi. Markmið Cittaslow-sveitarfélaga er að auka lífsgæði íbúa og leggja áherslu á sérstöðu þeirra. Verndun náttúrunnar og fegrun umhverfisins er þar í forgrunni; notkun nýjustu tækni í þágu samfélagsins, staðbundin matarmenning og framleiðsla.

Eldur í Argentínu

Eldur gaus upp í skorsteini veitingahússins Argentínu aðfararnótt sunnudags.

Kolmunnaveiðum að ljúka

Sex íslensk kolmunnaskip eru nú að veiðum suður af Færeyjum og eru einhver þeirra í sinni síðustu veiðiferð, þar sem þau eru að klára kvóta sína.

Flugdólgur laus úr haldi

Kona á fertugsaldri, sem lét dólgslega í flugvél Flugfélags Íslands á leið til Akureyrar síðdegis á laugardag, var útskrifuð úr fangageymslu á Akureyri að yfirheyrslum loknum í gær.

Útigangsmenn í fangelsi

Tíu manns gistu fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Þar af eru sjö heimilislausir útigangsmenn, sem ekki höfðu í önnur hús að vernda.

Mjaldurinn líkur Sigmundi Davíð

Mjaldur heldur sig þessa dagana á Steingrímsfirði á Ströndum og syndir þar reglubundna hringi með viðkomu á Hólmavík; að því er Bæjarins besta greinir frá.

Slæm færð á Vestfjörðum

Nokkrir fjallvegir á Vestfjörðum eru ófærir eftir hríðarveður í gær og þar er víða krap á vegum.

Í skugga Guðmundar og Geirfinns

Hvörf eru nýtt íslenskt leikverk sem frumsýnt var í Kúlunni í gærkvöld. Leikstjóri verksins og einn höfunda er Rúnar Guðbrandsson, sem fékk hugmyndina eftir samskipti við Sævar Ciesielski fyrir nítján árum. Verkið hefur tekið miklum breytingum á meðgöngunn

Með fiðrildi í maganum

Björt Ólafsdóttir er eitt af nýju andlitunum sem taka sæti á Alþingi. Þar mun hún sitja fyrir hönd Bjartrar framtíðar en Björt er sveitastúlka sem ólst upp á meðferðarheimili þar sem áhuginn á sálfræði kviknaði en sú reynsla gæti nýst í nýju starfi.

Ný ríkisstjórn þarf að horfa til framtíðar

Formaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs segir nýja ríkisstjórn þurfa að hafa breiða skírskotun og horfa til framtíðar. Hún segir áherslur Sjálfstæðisflokks og Framsóknar á skattalækkanir og niðurfellingu skulda ekki til þess fallnar að til að tryggja félagslegt réttlæti á Íslandi.

Fengu sér vöfflur með kaffinu

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, borðuðu vöfflur með kaffinu í dag, samkvæmt upplýsingum frá Jóhannesi Þ. Skúlasyni, aðstoðarmanni Sigmundar Davíðs.

Skora á félagana að skoða strimilinn

Samtök verslunar og þjónustu skora á Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, og Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Framsóknarflokksins, að skoða strimilinn sem þeir fengu við matarinnkaupin í Krónunni í Mosfellsbæ í morgun.

Spiluðu í Saturday Night Live

Íslensku krakkarnir í hljómsveitinni Of Monsters and Men spiluðu í gærkvöldi í einum vinsælasta skemmtiþætti Bandaríkjanna, Saturday Night Live.

Samfylkingin lagðist gegn eignanámssátt um hluta Vatnsenda

Samfylkingin í Kópavogsbæ lagðist gegn því að gerð yrði eignarnámssátt um hluta Vatnsendajarðarinnar 2007. Þetta segir oddviti flokksins sem telur bæinn ekki hafa þurft að standa í málaferlum við ábúanda Vatnsenda hefði hefðbundin eignarnámsleið verið farin.

Kannabisneysla eykst hjá fullorðnum

Kannabisneysla dregst saman á meðal barna en eykst meðal fullorðinna. Samkvæmt nýjum mælingum félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands hefur fjórðungur fullorðinna neytt kannabisefna. Prófessor í félags- og mannvísindum segir niðurstöðurnar koma á óvart og aukninguna vera minni en ætla mætti.

Gerir ekki kröfu um að verða forsætisráðherra

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, telur sig geta náð samkomulagi við formann Framsóknarflokksins um skuldamál heimilanna og skattalækkanir. Formlegar stjórnarmyndunarviðræður flokkannna fyrir hádegi en er fundað fyrir utan borgarmörkin.

Keyptu saman í matinn í morgun

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sáust í Krónunni í Mosfellsbæ snemma í morgun.

Vonast til að ný ríkisstjórn geri allt til að koma álverinu í Helguvík í gang

Ragnheiður Elín Árnadóttir, oddviti Sjálfstæðisfokksins í Suðurkjördæmi segir að ef Sjálfstæðismenn verði við stjórnvölinn í næstu ríkisstjórn vonast hún til að samstaða verði um það í þingflokknum og í ríkisstjórn að gera allt sem er á valdi stjórnvalda til að koma álverinu í Helguvík í gang.

Stundvís flugfélög

Síðustu misseri hefur stundvísi í millilandaflugi verið með miklum ágætum hér á landi. Á vefsíðunni Túristi.is segir að vélarnar taki þó oftar á loft á réttum tíma en þær lenda.

Eldur í skorsteini

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út í nótt vegna elds sem kviknaði í skorsteini á veitingahúsi við Barónsstíg. Vel gekk að slökkva eldinn og skemmdir voru ekki alvarlegar.

Huang Nubo með einkakokk á Everest

Kínverski auðkýfingurinn Huang Nubo, sem ætti að vera Íslendingum vel kunnugur, er nú á leiðinni á Everest í annað sinn.

"Þetta er stolt okkar Íslendinga"

Þjóðgarðsvörður á Þingvöllum segir að Ísland hafi ekki verið undirbúið undir komu þeirra ferðamanna sem hingað streyma. Hann segir það til skammar að það fyrsta sem mæti ferðamönnum á Þingvöllum sé bílaþvaga og útsparkað land.

Deilan um Vatnsenda: "Þetta splundraði bara fjölskyldunni"

Yngsti sonur Sigurðar Hjaltested, sem var eigandi Vatnsenda á sjöunda áratugnum, segir niðurstöðu Hæstaréttar í gær mikinn sigur en í raun bara upphafið að endinum. Hann segist finna til léttis að viðurkennt hafi verið að Vatnsendi sé enn í eigu dánarbús föður síns. Það hafi tekið verulega á þegar hann og fjölskylda hans voru borin út af heimili sínu fyrir tæpum 45 árum.

Sigmundur og Bjarni Ben í formlegar viðræður

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, ætlar að hefja formlegar stjórnarmyndunarviðræður við Sjálfstæðisflokkinn á næstu dögum. Þetta kom fram í máli Sigmundar Davíðs í samtali við blaðamenn nú fyrir stundu.

Fyrstir til að semja tónlistina í Simpsons

Íslenska hljómsveitin Sigur Rós er fyrsta hljómsveitin í sögu Simpsons-þáttanna sem semur tónlist sérstaklega fyrir þáttinn. Sveitinni bregður fyrir í lokaþætti 24. þáttaraðarinnar sem verður sýnd vestanhafs 19. maí næstkomandi, og á Stöð 2 daginn eftir.

Flugdólgur handtekinn á Akureyri

Ölvuð kona á fimmtugsaldri var handtekinn á flugvellinum á Akureyri í dag eftir að hún lét ófriðlega um borð í flugvél sem lenti á Akureyrarflugvelli á öðrum tímanum.

Bílstjórinn yfirbugaði farþegann

"Samskipti okkar fram að þessu voru búin að vera mjög fín, þetta var bara eins og þruma úr heiðskýru lofti," segir leigubílstjórinn Jón Oddur Hammer Kristinsson, sem varð fyrir árás farþega í nótt.

Guðmundar og Geirfinnsmálið einstakt á heimsmælikvarða

Gísli Guðjónsson réttarsálfræðingur segir Guðmundar og Geirfinnsmálið einstakt á heimsmælikvarða og hefur niðurstaða starfshópsins sem vann að málinu hafa vakið athygli fræðasamfélags á alþjóðavettvangi.

Áratuga löng barátta um Vatnsenda: Hvað tekur nú við?

Réttarstaða afkomenda Sigurðar Hjaltested heitins, eiganda Vatnsenda jarðarinnar í Kópavogsbæ, hefur skýrst verulega eftir niðurstöðu Hæstaréttar í gær. Þetta er álit lögmanns afkomenda Sigurðar sem vill engu spá um framhald málsins.

"Á tímabili var röð út úr búðinni"

Fullt var út úr dyrum í sumum apótekum í gær og segir lyfjafræðingur hjá Lyfju daginn hafa verið einn þann stærsta upphafi þegar sala á lyfjum er skoðuð. Umdeilt greiðsluþátttökukerfi vegna lyfjakaupa tók gildi á miðnætti.

Sjá næstu 50 fréttir