Með fiðrildi í maganum Álfrún Pálsdóttir skrifar 5. maí 2013 20:30 Björt er viss um að bakrunnur hennar úr sálfræði og mannauðsstjórnun eigi eftir að koma sér vel í nýja starfinu þar sem góð samskipti séu nauðsynleg til að ná árangri á Alþingi. Mynd/Pjetur
Björt Ólafsdóttir er eitt af nýju andlitunum sem taka sæti á Alþingi. Þar mun hún sitja fyrir hönd Bjartrar framtíðar en Björt er sveitastúlka sem ólst upp á meðferðarheimili þar sem áhuginn á sálfræði kviknaði en sú reynsla gæti nýst í nýju starfi. Eftir langt atvinnuumsóknarferli hefur Björt Ólafsdóttir loksins fengið svar, hún mun taka sæti á Alþingi næsta haust ásamt fimm flokksystkinum sínum í hinum nýstofnaða flokki Bjartri framtíð. Björt verður ein af 27 nýjum þingmönnum sem taka sæti á Alþingi og viðurkennir að hún sé með nokkur fiðrildi í maganum yfir væntanlegu starfi. „Ég er svona að átta mig á þessu núna. Ég hlakka líka mikið til að takast á starfið og leggja mitt af mörkum. Ég verð samt örugglega smá stressuð fyrir mína fyrstu ræðu í pontu en það er eðlilegt," segir Björt hlæjandi er hún tekur á móti blaðamanni í fallegri risíbúð í miðbæ Reykjavíkur. Þar býr Björt ásamt unnusta sínum, Birgi Viðarssyni, og þriggja ára syni þeirra, Garpi. Árið 2013 er viðburðaríkt í lífi Bjartar. Hún fagnaði þrítugsafmæli sínu í byrjun árs, sagði upp vinnu sinni sem mannauðsráðgjafi hjá Capacent og ákvað að skella sér í framboð. Einnig fékk hún bónorð og er að skipuleggja veglegt sveitabrúðkaup í sumar. Björt er nefnilega sveitastúlka sem ólst upp við heldur óvanalegar aðstæður.Ólst upp á meðferðarheimili „Mér og bræðrum mínum hefur aldrei þótt þetta neitt sérstakt tiltökumál en flestum finnst mjög merkilegt þegar við segjumst hafa alist upp á meðferðarheimili," segir Björt og vísar þar í æskuheimilið, Torfastaði í Biskupstungum. Foreldrar Bjartar ráku meðferðarheimili fyrir unglinga á aldrinum 12-17 ára samhliða því að reka búskap á bænum í 28 ár. Samtals voru þau yfirleitt 12 á heimilinu, fimm fjölskyldumeðlimir, en Björt á tvo bræður, sex unglingar og einn vinnumaður. Yfirleitt var um barnaverndarmál að ræða þar sem vímuefnamisnotkun kom stundum við sögu. Björt lærði snemma á mikilvægi góðra samskipta og kallaði þá unglinga sem dvöldu hjá þeim hverju sinni stjúpsystkini sín. „Krakkarnir sem dvöldu hjá okkur voru aldrei minna en ár í senn, sum komu svo aftur til að vinna og búa hjá okkur. Auðvitað tengdist maður þeim mismikið en mörg þeirra eru í sambandi við okkur enn þann dag í dag. Hafa verið með okkur á jólunum í seinni tíð og skírt börn sín í höfuðið á foreldrum mínum," segir Björt og bætir við að þau hafa yfirleitt tæklað öll vandamál sem komu upp á svona stóru heimili saman. „Maður lærði aga og að maður þurfti að vinna fyrir hlutunum. Ég man ekkert sérstaklega eftir neinu einstöku sem kom upp en ég held að mamma og pabbi hafi sofið með annað augað opið í 28 ár. Við vorum hins vegar aldrei skert af ást og umhyggju þó að stundum reyndi á að deila athygli foreldra okkar með öðrum."Ætlaði að hætta í menntaskóla Björt gekk í grunnskóla Biskupstungna í Reykholti, í tíu manna bekk þar sem allir fengu að blómstra, en er hún lauk grunnskólagöngu fór hún að renna hýru auga til höfuðborgarsvæðisins. Hana langaði í Menntaskólann við Hamrahlíð þó að móðir hennar hafi frekar viljað hafa einkadótturina nær. Björt hafði vinninginn og flutti 16 ára gömul til Reykjavíkur. „Mömmu var ekki alveg rótt að sleppa hendinni af einkadótturinni svo hún fékk konu sem hafði verið hjá okkur á Torfastöðum til að flytja inn með mér ásamt fjölskyldu sinni. Svo var ég oft lokkuð heim um helgar. Ég er svo mikill sælkeri að pabbi hringdi oft í mig á föstudögum og sagðist vera með lambalæri eða eitthvað annað gott í ofninum og þá var ég fljót að koma," rifjar Björt upp hlæjandi. Það var krefjandi fyrst um sinn að koma úr sveitinni í jafn stóran skóla og MH. Hins vegar voru það týpurnar og ekki síst hinn frægi Hamrahlíðarkór sem heilluðu Björt, sem var fljót að kynnast fólki og koma sér inn í félagslífið. „Ég hafði alltaf verið afburðanemandi en kannski hentaði fjölbrautakerfið mér ekki alveg nógu vel. Eftir annað árið þurfti ég að horfast í augu við raunveruleikann og spýta í lófana ef ég ætlaði að útskrifast á réttum tíma," segir Björt sem á þeim tíma var jafnvel að spá í hætta í skóla og halda út í heim. „Ég fékk þá flugu í hausinn að læra fatahönnun í Flórens 18 ára en þá settu foreldrar mínir mér stólinn fyrir dyrnar og sögðu mér að gjöra svo vel og klára skólann. Eftir það gæti ég gert það sem ég vildi. Þá lá hins vegar sálfræðin beinast við og ég sé ekki eftir því í dag. Ég hef samt enn þá mikinn áhuga á hönnun og tísku."Þrífst á mannlegum samskiptum Björt fór í sálfræði í Háskóla Íslands og vann á geðdeildum Landspítalans samhliða námi sínu. Hún segir áhugann á sálfræði líklega vera hægt að rekja til æsku sinnar þegar hún lærði að takast á við og eiga samskipti við mismunandi einstaklinga á heimili sínu. Í starfi sínu á geðdeildunum kynntist hún samtökunum Geðhjálp þar sem hún síðar gegndi formennsku á árunum 2011 til lok árs 2012. „Geðhjálp var sjálfboðavinna sem ég sinnti samhliða vinnu minni sem ráðgjafi hjá Capacent og ég lærði heilan helling í því starfi. Ég var með gott fólk í kringum mig sem studdi mig og kynntist líka nokkrum alþingismönnum sem ég þurfti að eiga í samskiptum við." Björt flutti ásamt unnusta sínum til Lundar í Svíþjóð þar sem hún nældi sér í mastersgráðu í mannauðsstjórnun. Þau fluttu svo heim í miðju hruni en Björt datt í lukkupottinn og fékk draumastöðuna hjá Capacent. „Ég hef alltaf sóst eftir því að vera í ábyrgðarstöðu og viljað vera í eldlínunni. Ég er mikil félagsvera og þrífst þegar ég er í mannlegum samskiptum við sem flesta en þar kemur sálfræðin sér vel. Að kunna að tækla mismunandi einstaklinga með misjafnar skoðanir og þarfir. Ég býst við því að það eigi eftir að koma sér vel inni á Alþingi líka."Bjartari framtíð Björt tók sér langan umhugsunarfrest um hvort hún ætti að hella sér út í pólitíkina þegar Heiða Kristín Helgadóttir, annar formaður Bjartar framtíðar, viðraði þessa hugmynd við hana í byrjun árs. „Ég hef alltaf haft áhuga á stjórnmálum og fékk pólitískt uppeldi þar sem okkur var kennd gagnrýn hugsun. Ég hef samt aldrei verið virk í neinum flokki." Eins og flestir fylgdist Björt með velgengni Besta flokksins úr fjarlægð og fékk í kjölfarið góða tilfinningu fyrir stjórnmálum. „Þetta er ábyrgðarfullt hlutverk sem ég vildi ekki taka að mér í neinni fljótfærni. Því hugsaði ég þetta vel og lengi, auðvitað með mínum nánustu sem studdu mig áfram. Það kom mér því ekki á óvart að komast á þing enda var það markmiðið allan tímann og ég undir það búin." Ýmsar raddir hafa heyrst þess efnist að Björt hafi ekki verið nógu áberandi í kosningabaráttunni miðað við hversu hátt sæti hún skipaði á lista en Björt sat í fyrsta sæti í Reykjavíkurkjördæmi norður. "Ég var úti um allt á meðan á baráttunni stóð, í viðtölum í sjónvarpi og útvarpi. Í oddvitaþætti RÚV, sat pallborð hjá hinum ýmsu hagsmunaaðilum, fór á fjölmarga vinnustaði og stóð vaktina í verslunarmiðstöðvum. Björt framtíð er ólíkur öðrum flokkum því það eru tveir formenn. Það er eðlilegt að Gummi og Heiða hafi kannski virkað meira áberandi fyrir suma. Við höfðum takmarkað aðgengi að fjölmiðlum og vorum ekki með neina styrki frá ríkinu eins og margur til að koma okkur á framfæri. En mér þykir vænt um að heyra að fólk hafi viljað sjá meira af mér, sumir hringdu bara í mig og mæltu sér mót við mig."Góð samskipti lykillinn Björt framtíð hafa lýst því yfir að þau vilji breyta til á Alþingi og meðal annars breyta vinnuferlum, minnka átök og málþóf. Þau eru aðgengilegur flokkur sem vill þjónusta almenning með stjórnmálaþátttöku sinni. „Alþingi er ekkert öðruvísi en aðrir vinnustaðir þar sem góð samskipti eru lykillinn að góðum árangri. Það skiptir máli að tala saman, setja sitt egó út fyrir rammann og hugsa um heildina. Hvað er besta leiðin hverju sinni," segir Björt sem setur spurningarmerki við flokkshollustu. „Mér finnst það skrýtin pæling enda virðist sem fólk blindist á allar aðrar leiðir en sínar eigin. Stundum er það ekki besta leiðin og við erum ráðin í þetta starf til að einmitt finna bestu útfærslurnar hverju sinni. Það sem skiptir mestu máli er að komast að sameiginlegri niðurstöðu. Ég set spurningarmerki við það að fylgja ákvörðunum sem ég hef ekki tekið þátt í og er kannski ekki sammála." segir Björt sem hlakkar til að hefjast handa. „Nú ætla ég að vera skipulögð og sumarið verður nýtt í undirbúning fyrir þennan spennandi vetur sem er fram undan."
Mest lesið „Það er bara ömurlegt að fá þessi tíðindi núna“ Innlent Ofurhugi lést eftir brotlendingu í svifvængjaflugi Erlent Séríslenskt gervi-Oxy í mikilli dreifingu Innlent Önnur sprunga opnast Innlent Skipulögð skref í átt að aðild án umboðs þjóðarinnar Innlent Donald Trump greindur með langvinna bláæðabólgu Erlent Mótmælendur lokuðu veginum að Bláa lóninu Innlent Boða tvíhliða varnarsamning við Evrópusambandið Innlent Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Erlent Atvinnurekendur í Grindavík argir: „Míga inn um bréfalúguna, dingla og spyrja hversu langt þú dreifst“ Innlent Fleiri fréttir „Það er bara ömurlegt að fá þessi tíðindi núna“ Skipulögð skref í átt að aðild án umboðs þjóðarinnar Séríslenskt gervi-Oxy í mikilli dreifingu Grindavík opin fyrir almenning á nýjan leik Ferðamenn streyma í Hrísey alla daga vikunnar Tilkynnt um þjófnað í fjórum verslunum Boða tvíhliða varnarsamning við Evrópusambandið Mótmæli, sviknir strandveiðimenn og hættulegar falsaðar töflur Von der Leyen segir aðildarumsókn Íslands enn gilda Þriggja bíla árekstur á Hringbraut Strandveiðum er lokið í sumar Í beinni: Blaðamannafundur Kristrúnar og von der Leyen Atvinnurekendur í Grindavík argir: „Míga inn um bréfalúguna, dingla og spyrja hversu langt þú dreifst“ Gosið lifir enn og mengun norður í landi Flugvél snúið við vegna eldgossins: Var í fjörutíu klukkustundir á leið til Íslands Grindvíkingar setja þrýsting á lögreglustjóra Háskólinn fær 200 milljónir vegna vatnslekans Telur stuðning við ESB-viðræður til staðar Telur enga leið til þess að lengja strandveiðitímabilið Flutti tæp þrjú kíló af kókaíni til landsins og fær tvö ár Ætlar ekki að þegja til að láta fordómafullu fólki líða betur Strandveiðar færast frá Viðreisn til Flokks fólksins Myndir: Flugu til Þórsmerkur og Grindavíkur Mótmælendur lokuðu veginum að Bláa lóninu „Annars lítur þetta ekki mjög vel út fyrir þær“ „Sýnið nú kjark og dug og gerið þetta almennilega“ Grunur um að maður hafi kveikt í húsi í Reykjanesbæ Staðan á gosinu og óánægja með lokanir í Grindavík Segir ferðaþjónustunni mismunað og efnir til mótmæla Félag eldri borgara vildi bygginguna nær lóðarmörkunum Sjá meira
Atvinnurekendur í Grindavík argir: „Míga inn um bréfalúguna, dingla og spyrja hversu langt þú dreifst“ Innlent
Atvinnurekendur í Grindavík argir: „Míga inn um bréfalúguna, dingla og spyrja hversu langt þú dreifst“
Atvinnurekendur í Grindavík argir: „Míga inn um bréfalúguna, dingla og spyrja hversu langt þú dreifst“ Innlent