Fleiri
Tveir þriðju sögðu já 22.10.2012 06:00 30 gera athugasemdir við breytingar á Hjartagarði Alls bárust borginni 32 athugasemdir um skipulag á Hljómalindarreitnum í miðborg Reykjavíkur. Þrjátíu þeirra fjalla að einhverju eða öllu leyti um Hjartagarðinn, þar sem breytingar á honum eru gagnrýndar. 22.10.2012 00:00 Í eina sæng eftir næstu áramót Sveitarfélögin Álftanes og Garðabær munu sameinast, undir merkjum hins síðarnefnda, í upphafi næsta árs. Sameining var samþykkt í báðum sveitarfélögum um helgina. 22.10.2012 00:00 "Það er kannski verið að eyðileggja líf þessa unga manns“ Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari segir að dómstólar hafi í seinni tíð gert of vægar sönnunarkröfur í kynferðisbrotamálum. Mun vægari kröfur en í öðrum tegundum sakamála. Hann segir að allt bendi til þess að ungur maður hafi fyrr á þessu ári verið dæmdur í fangelsi fyrir kynferðisbrot sem hann framdi ekki. 21.10.2012 18:30 Telur brýnt að stofna millidómstig Álagið á Hæstarétti er allt of mikið og afar brýnt að stofnað verði millidómstig, til dæmis í sakamálum. Þetta segir Jón Steinar Gunnlaugsson fyrrverandi hæstaréttardómari. Hann telur rétt að fækka dómurum við Hæstarétt og til kasta réttarins komi aðeins stærri mál, líkt og þekkist erlendis. 21.10.2012 16:24 Skýr krafa um breytingu á stjórnarskránni Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að almenningur hafi í gær sett fram skýra kröfu á þingmenn að þeir ljúki nú við frumvarp að nýrri stjórnarskrá svo hægt verði að kjósa um það í vor. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að framhaldið sé enn óljóst. 21.10.2012 20:30 Óhugur í Siglfirðingum eftir skjálftana Óhugur er í Siglfirðingum eftir öfluga skjálftahrinu frá því í gærkvöldi. Þar hrundi úr hillum í nótt og rúður sprungur þegar skjálfti upp á 5,6 stig reið yfir, sem er sá stærsti sem komið hefur norðanlands frá Kópaskersskjálftanum árið 1976. Jarðskjálftafræðingur segir að menn þurfi að búa sig undir stærri skjálfta nær Skjálfandaflóa. 21.10.2012 20:21 Björgunarsveitir sækja slasaðan göngugarp Björgunarsveitir voru ræstar nú fyrir stundu eftir að spurðist af slösuðum manni í Botnssúlum innaf Hvalfirði. 21.10.2012 19:33 Nöfn mannanna sem létust í flugslysinu Mennirnir sem létust í flugslysinu á Njarðvíkurheiði þegar fisflugvél brotlenti rétt sunnan við Seltjörn í gær hétu Hans Óli Hansson og Ólafur Felix Haraldsson. 21.10.2012 18:46 Sjá næstu 50 fréttir
Rannsaka stuld á stórri gröfu á Ísafirði Lögreglan á Ísafirði rannsakar nú hver var að verki þegar stórri gröfu var stolið af byggingasvæði nýs öldrunarheimilis að Torfnesi og ekið að verslunarkjarnanum Neista aðfararnótt sunnudags. 23.10.2012 06:48
Niðurstöðu um loftrýmisgæslu ekki að vænta í bráð Ekki er að vænta niðurstöðu um hvort Svíþjóð og Finnland taki þátt í loftrýmisgæslu yfir Íslandi fyrr en eftir nokkrar vikur. 23.10.2012 06:40
Stundvísasta félag Evrópu Icelandair var stundvísast allra evrópskra flugfélaga sem eru í AEA, Evrópusambandi flugfélaga, í alþjóðaflugi í september. 23.10.2012 06:15
Alls 179 utangarðs í Reykjavík Kortlagning velferðarsviðs Reykjavíkurborgar á fjölda og högum utangarðsfólks sýnir að í Reykjavík teljast 112 karlar og 64 konur heimilislaus eða utangarðs. Alls fylla þennan hóp 179 manns, en í rannsókninni kemur ekki fram kyn þriggja einstaklinga. 23.10.2012 06:00
Aðalmeðferðinni á að ljúka í dag Síðdegis í dag á að ljúka aðalmeðferð sem hófst í gærmorgun fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í máli sérstaks saksóknara gegn Aroni Pétri Karlssyni kaupsýslumanni. 23.10.2012 06:00
Ræða sundlaug og hjólabrú Borgarráð Reykjavíkur og bæjarráð Kópavogs hafa skipað fulltrúa í tvo starfshópa sem fjalla eiga um sundlaug í Fossvogsdal og gerð hjóla- og göngubrúar yfir Fossvog. 23.10.2012 06:00
Ætlar aftur út að hlaupa í dag Tékkneska blaðamanninum René Kujan var ákaft fagnað í Elliðaárdalnum í gær þegar hann lauk tæplega 1.300 kílómetra hlaupi sínu umhverfis landið á þrjátíu dögum. Kujan hljóp rúmlega maraþon á hverjum degi og er fyrsti maðurinn til að hlaupa hringinn í kringum Ísland. 23.10.2012 05:30
Átök á mili Vítisengla og Útlaga - mikill titringur vegna málsins Átök urðu á milli meðlima vélhjólagengjanna Hells Angels og Outlaws um helgina og ríkir töluverður titringur í báðum herbúðum vegna málsins samkvæmt heimildum Vísis. Meðlimur Vítisenglanna skallaði meðlim Outlaws í andlitið á bifvélaverkstæði um helgina. Ástæðan var sú að sá sem var skallaður var klæddur í peysu merktri Outlaws. Vítisengillinn, sem var með nokkrum félögum úr klúbbnum, skipaði þá Útlaganum að klæða sig úr peysunni. Þegar sá neitaði skallaði Vítisengillinn Útlagann í andlitið. Félagi Vítisengilsins skarst þá í leikinn og kom í veg fyrir frekari átök. 22.10.2012 22:00
Sigurður Líndal harðorður: Veruleikafirring eða spilling? "Mér finnst hálfgerð pólitísk ólykt af þessu,“ sagði Sigurður Líndal lagaprófessor í viðtali í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag, en hann skrifaði í dag grein þar sem hann gagnrýndi þjóðaratkvæðagreiðsluna um tillögur stjórnlagaráðsins harðlega. 22.10.2012 21:30
Margmilljóna stóðhestur fluttur úr landi Einn verðmætasti stóðhestur landsins, Álfur frá Selfossi, yfirgaf landið í dag og hélt til Noregs þar sem eigandi hans er búsettur. 22.10.2012 21:00
Notar eigin verðlaunapumpu en gefur ekkert upp um sentímetra Íslenskt hugvit vekur enn á ný heimsathygli, nú fyrir hönnun á hjálpartæki ástarlífsins fyrir karlmenn. Tækið var sett á markað í sumar og selst víst eins og heitar lummur. 22.10.2012 20:30
Skjálftinn gæti orðið af stærri gerðinni Skjálftahrinan út af Norðurlandi er enn í fullum gangi en með vægari kippum en í gær. Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur segir að hrinan geti komið af stað stærri atburði og brýnt sé að taka upp strangari vöktun. Þannig megi sjá fyrir stóran skjálfta. Fyrir norðan er fólki brugðið og þótt jarðskjálftafræðingurinn segi ekkert benda til að meira sé yfirvofandi telur hann hrinuna geta hrundið af stað atburðarás sem leiði til stórs skjálfta. 22.10.2012 19:45
Keyptu og seldu gjaldeyri á Lækjartorgi - lögreglan fylgdist með úr fjarska Stjórn Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, keypti gjaldeyri á Lækjartorgi í dag fyrir krónur. Samkvæmt tilkynningu frá SUS þá komu margir með gjaldeyri og keyptu íslenskar krónur af Heimdellingum. 22.10.2012 19:41
Bjartsýn á að umræðu ljúki fyrir jól - ekki yfir miklu að þumbast Þingið hefur fengið skýr skilaboð um að auðlindir skuli í þjóðareign, segir formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Hún segir ekkert því til fyrirstöðu að ljúka fyrstu umræðu um breytingar á stjórnaskránni, fyrir jól. 22.10.2012 18:43
Lýsing segir dóminn ekki eiga við sig - Helgi vill frekari svör Lýsing telur að dómur Hæstaréttar á fimmtudag um gengistryggð lán eigi ekki við um sitt lánasafn og mun því ekki ráðast í endurútreikninga. Formaður efnahags- og viðskiptanefndar segir Lýsingu þurfa að útskýra þá afstöðu nánar og hefur kallað forsvarsmenn fyrirtækisins aftur á fund nefndarinnar ásamt lögfræðingum. 22.10.2012 18:26
Barist við Lúpínu í Þórsmörk - best að efla birkiskóginn Tilraun til þess að stemma stigu við útbreiðslu Lúpínunnar í Þórsmörk með eitri árið 2009 mistókst gjörsamlega að sögn Svandísar Svavarsdóttur, umhverfis- og auðlindarráðherra. Þetta kom fram í svari hennar við fyrirspurn Unnar Brá Konráðsdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins á Alþingi í dag, um aðgerðir sem hafa verið gripið til þess að hefta útbreiðslu þessarar lífseigu plöntu í Þórsmörk. 22.10.2012 17:51
Hríseyingar hvattir til að spenna beltin Hverfisráð Hríseyjar hefur áhyggjur af umferðarmenningunni á staðnum. Var málið sérstaklega rætt á síðasta fundi nefndarinnar. Ákveðið var að senda áskorun til íbúa og gesta um að virða umferðarlög og reglur. 22.10.2012 17:41
Fréttir á Gull Bylgjunni Fréttir frá fréttastofu Bylgjunnar, Vísis og Stöðvar 2 hljóma nú einnig á Gull Bylgjunni. Gull Bylgjan á marga dygga hlustendur sem njóta þess að hlusta á „þessi gömlu góðu" sem hljóma þar allan sólarhringinn. Nú hefur þjónusta við hlustendur stöðvarinnar verið stórbætt því þar hljóma nú fréttir frá klukkan sjö á morgnanna til klukkan fimm síðdegis. 22.10.2012 17:05
Jóhanna gefur fimleikastúlkum fimm milljónir Ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita Fimleikasambandi Íslands fimm milljóna króna styrk af ráðstöfunarfé sínu, til áframhaldandi uppbyggingarstarfs. Þetta er gert í viðurkenningarskyni fyrir glæsilegan árangur kvenna- og stúlknalandsliða Íslands á Evrópumótinu í hópfimleikum, þar sem bæði liðin unnu til gullverðlauna. 22.10.2012 16:47
Borgari kyrrsetti ölvaðan ökuþór Húsráðandi í Reykjanesbæ kyrrsetti ölvaðan ökuþór þar til lögreglan á Suðurnesjum kom á vettvang í nótt. 22.10.2012 16:00
Vilja hækka hámarkshraða á Reykjanesbraut Æskilegt er að hækka hámarkshraða á Reykjanesbraut upp í 110 kílómetra á klukkustund til langs tíma litið, sagði Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra á Alþingi í dag. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði hann út í málið. Ögmundur sagði þó að ekki væri tímabært að gera þessa breytingu núna því að skilyrði væru ekki uppfyllt. 22.10.2012 15:59
Sagðist vera grískur ferðamaður Á föstudag var karlmaður stöðvaður við komuna til landsins í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, en hann framvísaði fölsuðum skilríkjum. Maðurinn, sem var að koma frá Kaupmannahöfn, framvísaði grísku ferðaskilríki, sem lögreglumenn sáu að átt hafði verið við. Hann var færður á lögreglustöð, þar sem hann viðurkenndi að hann væri alls ekki grískur heldur annarar þjóðar. Málið er í rannsókn hjá lögreglu. 22.10.2012 14:47
Um 180 utangarðsmenn í Reykjavík Alls teljast 179 einstaklingar utangarðs, eða án heimilis samkvæmt nýrri skýrslu sem unnin var fyrir velferðarsvið Reykjavíkurborgar. Þessir einstaklingar hafa leitað til ýmissa annarra stofnana og félagasamtaka eftir þjónustu og stuðningi. Í skýrslunni kemur fram að utangarðsfólk er almennt ánægt með þá þjónustu sem fyrir hendi er þó flestum finnist vanta sólarhringsúrrræði. 22.10.2012 14:38
Hættir í bæjarstjórn Árborgar og segir sig úr Sjálfstæðisflokknum Elfa Dögg Þórðardóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Sveitarfélaginu Árborg hefur ákveðið að hætta í bæjarstjórn og segja sig líka úr Sjálfstæðisflokknum. Sjálfstæðisflokkurinn er með hreinan meirihluta í Árborg. Hún hefur sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu vegna málsins. 22.10.2012 14:26
Verdi á fjölunum - Keppast um hylli hefðarkonu Sígaunasonur og greifi keppast um hylli fagrar hefðarkonu í einu frægasta óperuverki Verdis, Il trovatore, sem nú er á fjölum íslensku óperunnar. Hugrún Halldórsdóttir og Baldur Hrafnkell myndatökumaður fóru í gær á frumsýningu óperunnar átakanlegu. 22.10.2012 13:34
Fá leitarskanna sem var notaður á Ólympíuleikunum Fangelsið á Litla Hrauni hefur fjárfest í notuðum leitarskanna frá Ólympíuleikunum í London í sumar, sem starfsmenn og gestir þurfa að ganga í gegnum á leið sinni inn í fangelsið. Öryggismál hafa verið í ólestri á Litla Hrauni vegna fjárskorts enda segir forstöðumaður fangelsins að öryggismálin hafa verið keyrð á sveitamennskunni hingað til. 22.10.2012 12:23
Amman ræktar epla- og appelsínutré við Drangajökul Amman í Skjaldfannardal í Ísafjarðardjúpi, Ása Ketilsdóttir, vakti athygli í þættinum "Um land allt" á Stöð 2 í gærkvöldi þegar hún sýndi skrúðgarðinn sem hún er búinn að rækta upp á bæ sínum, Laugalandi, inn undir Drangajökli. Þar er hún með á þriðja hundrað tegunda, þeirra á meðal margar sem teljast suðrænar, eins og bóndarós, og það á svæði sem þekkt er fyrir kuldaleg örnefni; Kaldalón, Snæfjallaströnd og Skjaldfönn. "Það er líka til Unaðsdalur," bætti Ása við og minnti á nafn næsta dals norðan Kaldalóns. 22.10.2012 11:47
Hjólbarði fór undan bíl í Hvalfjarðargöngunum Um klukkan hálf tíu í morgun var tilkynnt um eld í bifreið í miðjum Hvalfjarðargöngum en þegar slökkvilið og lögregla komu á vettvang reyndist um minniháttar brima að ræða. Því var ekki talin þörf á að loka göngunum. Að sögn lögreglu hafði hjólbarði farið undan bifreið og við það komið upp eldur. Bifreiðin var fjarlægð af vettvangi með krana en engin slys urðu á fólki. 22.10.2012 11:23
Brennuvargur ætlar ekki að áfrýja Karlmaður sem grunaður erum að hafa borið eld að ýmsum stöðum á Selfossi að undanförnu ætlar ekki að áfrýja fjögurra vikna gæsluvarðhaldi sem hann var úrskurðaður í á fimmtudag. 22.10.2012 10:30
Aðalmeðferð í máli Arons Karlssonar Aðalmeðferð fer fram í dag í máli sérstaks saksóknara gegn Aroni Karlssyni kaupsýslumanni. Hann er grunaður um fjársvik í tengslum við sölu á stórhýsi við Skúlagötu til kínverska sendiráðsins. Þrjú ár eru síðan rannsókn málsins hófst. 22.10.2012 10:23
Braust inn á lögreglustöð og stal lögreglubíl Karlmaður braut rétt fyrir klukkan fjögur í nótt inn á lögreglustöðina á Ísafirði, þegar lögreglumenn á vakt sinntu útkalli vegna skemmda og ökuláta. Einn maður var þar að verki. Hann fór beint í bílgeymslu lögreglunnar, tók þar jeppabifreið lögreglu og ók honum út úr bílgeymslunni og um nokkrar götur í bænum. Talsverð hálka var á götum bæjarins. Lögreglan segir að af af vegsummerkjum að dæma hafi maðurinn ekið mjög ógætilega um bæinn og endaði akstur sinn á gangstíg í Miðtúni. Lögreglubifreiðin er mikið skemmd eftir akstur hans. 22.10.2012 09:14
Stór hrefna reyndist hvalreki fyrir einhverja Stóra hrefnu rak nýverið á fjöru við bæinn Berg við Grundarfjörð, sem vart er í frásögu færandi, nema fyrir það að þetta hefur reynst einhverjum raunverulegur hvalreki. 22.10.2012 06:55
Íbúafundur hafnar háspennuloftlínu fyrir norðan Fundur íbúa á áhrifasvæði háspennuloftlínu, sem Landsnet fyrirhugar að leggja á milli Blöndu og Akureyrar, og haldinn var um helgina, hafnar hugmyndinni. 22.10.2012 06:51
Þyrla flutti slasaðan fjallgöngumann á slysadeild Fjallgöngumaður slasaðist þegar hann hrapaði í klettabelti í Botnsúlum inn af Hvalfirði í gærkvöldi og rann drjúgan spöl niður hlíðina. 22.10.2012 06:37
Eftirskjálfti upp á 4,1 stig fyrir norðan í morgun Eftirskjálfti upp á 4,1 stig mældist á skjálftasvæðinu út af Norðurlandi á sjötta tímanum í morgun, þar sem snörp hrina hófst í fyrrinótt. 22.10.2012 06:27
Ljúka fyrstu umræðu um nýja stjórnarskrá fyrir jól Lögfræðinganefnd skilar af sér skýrslu um stjórnarskrárdrög innan tveggja vikna. Frumvarp til nýrrar stjórnarskrár lagt fram í kjölfarið. Stjórn og stjórnarandstaða búast við að fyrstu umræðu ljúki fyrir jól. 22.10.2012 06:00
30 gera athugasemdir við breytingar á Hjartagarði Alls bárust borginni 32 athugasemdir um skipulag á Hljómalindarreitnum í miðborg Reykjavíkur. Þrjátíu þeirra fjalla að einhverju eða öllu leyti um Hjartagarðinn, þar sem breytingar á honum eru gagnrýndar. 22.10.2012 00:00
Í eina sæng eftir næstu áramót Sveitarfélögin Álftanes og Garðabær munu sameinast, undir merkjum hins síðarnefnda, í upphafi næsta árs. Sameining var samþykkt í báðum sveitarfélögum um helgina. 22.10.2012 00:00
"Það er kannski verið að eyðileggja líf þessa unga manns“ Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari segir að dómstólar hafi í seinni tíð gert of vægar sönnunarkröfur í kynferðisbrotamálum. Mun vægari kröfur en í öðrum tegundum sakamála. Hann segir að allt bendi til þess að ungur maður hafi fyrr á þessu ári verið dæmdur í fangelsi fyrir kynferðisbrot sem hann framdi ekki. 21.10.2012 18:30
Telur brýnt að stofna millidómstig Álagið á Hæstarétti er allt of mikið og afar brýnt að stofnað verði millidómstig, til dæmis í sakamálum. Þetta segir Jón Steinar Gunnlaugsson fyrrverandi hæstaréttardómari. Hann telur rétt að fækka dómurum við Hæstarétt og til kasta réttarins komi aðeins stærri mál, líkt og þekkist erlendis. 21.10.2012 16:24
Skýr krafa um breytingu á stjórnarskránni Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að almenningur hafi í gær sett fram skýra kröfu á þingmenn að þeir ljúki nú við frumvarp að nýrri stjórnarskrá svo hægt verði að kjósa um það í vor. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að framhaldið sé enn óljóst. 21.10.2012 20:30
Óhugur í Siglfirðingum eftir skjálftana Óhugur er í Siglfirðingum eftir öfluga skjálftahrinu frá því í gærkvöldi. Þar hrundi úr hillum í nótt og rúður sprungur þegar skjálfti upp á 5,6 stig reið yfir, sem er sá stærsti sem komið hefur norðanlands frá Kópaskersskjálftanum árið 1976. Jarðskjálftafræðingur segir að menn þurfi að búa sig undir stærri skjálfta nær Skjálfandaflóa. 21.10.2012 20:21
Björgunarsveitir sækja slasaðan göngugarp Björgunarsveitir voru ræstar nú fyrir stundu eftir að spurðist af slösuðum manni í Botnssúlum innaf Hvalfirði. 21.10.2012 19:33
Nöfn mannanna sem létust í flugslysinu Mennirnir sem létust í flugslysinu á Njarðvíkurheiði þegar fisflugvél brotlenti rétt sunnan við Seltjörn í gær hétu Hans Óli Hansson og Ólafur Felix Haraldsson. 21.10.2012 18:46