Fá leitarskanna sem var notaður á Ólympíuleikunum Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 22. október 2012 12:23 Litla Hraun
Fangelsið á Litla Hrauni hefur fjárfest í notuðum leitarskanna frá Ólympíuleikunum í London í sumar, sem starfsmenn og gestir þurfa að ganga í gegnum á leið sinni inn í fangelsið. Öryggismál hafa verið í ólestri á Litla Hrauni vegna fjárskorts enda segir forstöðumaður fangelsins að öryggismálin hafa verið keyrð á sveitamennskunni hingað til. Engin aðstaða er á Litla Hrauni til að leita í vörum sem koma inn í fangelsið og hvað þá til að leita á fólki sem er að sækja fangelsið heim en alls eru heimsóknirnar um tuttugu þúsund á ári. Öryggismál hafa verið í miklum ólestri á hrauninu vegna fjárhagsskorts. Margrét Frímannsdóttir, forstöðumaður Litla Hrauns, segir að öryggismálin hafi alls ekki verið nógu góð. „Núna þurfum við að taka okkur á ef við eigum að standa undir nafni sem fangelsi. Við þurfum að fá fjármagn til þess." Nú á loksins að fara að setja upp sérstakt leitarhús á Litla Hrauni. „Við ætlum að setja upp komuhús hérna og fáum í fyrsta skiptið leitarskanna, eins og eru á flugvöllunum. Það eru bæði gestir og starfsmenn sem þurfa að ganga í gegnum hann. Öryggisfulltrúinn okkar hefur verið að skoða þessi mál og hann rakst á einn skanna sem var á Ólympíuleikunum. Hann er lítið notaður og er eins og nýr. Við fáum hann á góðum kjörum." Margrét segir að það sé alltaf verið að reyna að smygla einhverju inn í fangelsið og vinsælt sé að kasta hlutum yfir girðinguna. „Ein leiðin er sú að henda yfir girðinguna. Við leitum hérna á hverjum degi, það er starfsfólk sem er í vinnu að leita á milli girðinga og hérna á útivistarsvæðinu."
Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Sjá meira