Skjálftinn gæti orðið af stærri gerðinni 22. október 2012 19:45 Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur segir að með samfelldri vöktun megi sjá fyrir stóra skjálfta,
Skjálftahrinan út af Norðurlandi er enn í fullum gangi en með vægari kippum en í gær. Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur segir að hrinan geti komið af stað stærri atburði og brýnt sé að taka upp strangari vöktun. Þannig megi sjá fyrir stóran skjálfta. Fyrir norðan er fólki brugðið og þótt jarðskjálftafræðingurinn segi ekkert benda til að meira sé yfirvofandi telur hann hrinuna geta hrundið af stað atburðarás sem leiði til stórs skjálfta. Ragnar segir að Íslendingar eigi nú þegar gott jarðskjálftamælingakerfi en taka þurfi upp samfelldari og meiri vöktun og vinna verði hratt úr upplýsingunum. Hann segir að með samfelldri úrvinnslu megi sjá fyrir hvar og hvenær stór skjálfti verði, til dæmis á Skjálfandaflóa. „Við þurfum að túlka frá degi til dags hvað sé að gerast á þessu svæði og reyna þannig að fikra okkur áfram og freista þess að sjá fyrir hugsanlegan jarðskjálfta sem gæti orðið þarna, sem væri af stærri gerðinni," segir Ragnar. Hann ítrekar að ekkert bendi til þess að stór skjálfti sé yfirvofandi. „En við ættum að fara búa okkur undir að það væri ekkert mjög langt í hann."
Mest lesið Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Erlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Allt að sautján stiga hiti í dag Veður „Þurfum að huga að forvörnum“ Fréttir Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Innlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Fleiri fréttir Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Átök í Sósíalistaflokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffistofunnar Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Sjá meira