Aðalmeðferð í máli Arons Karlssonar 22. október 2012 10:23 Aron Karlsson fyrir dómi.
Aðalmeðferð fer fram í dag í máli sérstaks saksóknara gegn Aroni Karlssyni kaupsýslumanni. Hann er grunaður um fjársvik í tengslum við sölu á stórhýsi við Skúlagötu til kínverska sendiráðsins. Þrjú ár eru síðan rannsókn málsins hófst. Málið snýst um fasteignina við Skúlagötu 51. Umrætt hús var í eigu feðganna Arons Karlssonar og Karls Steingrímssonar, sem gjarnan er kenndur við Pelsinn. Feðgarnir hafa verið býsna umsvifamiklir í fasteignaviðskiptum á undanförnum árum. Á húsinu við Skúlagötu hvíldu fjögur tryggingarbréf í eigu Arion Banka, slitastjórnar Glitnis og Íslandsbanka. Hvert bréf stóð í 246 milljónum króna haustið 2008. Upphaflega var húsið í eigu félagsins Vindasúlna ehf, sem er í eigu þeirra feðga. Hinn 2. desember 2009 var gert tilboð í húsið af hálfu indversks félags. Húsið var aftur á móti flutt út úr Vindasúlum ehf. hinn níu dögum síðar, hinn 11. desember og inn í eignarhaldsfélagið 2007 ehf. Þremur dögum síðar gerði sami aðili annað tilboð í húsið upp á 575 milljónir króna. Þann 16. desember féllust bankar sem höfðu veð í fasteigninni á tilboðið og gengið var frá sölunni. En aðeins degi síðar seldi hinn nýi eigandi húsið til kínverska sendiráðsins fyrir 870 milljónir króna. Bankarnir sem áttu veð í fasteigninni telja að með þessum gjörningi hafi feðgarnir haft af þeim allt að 300 milljónir króna og kærðu málið til lögreglunnar. Fjársvik samt almennum hegningarlögum felast í að styrkja eða hagnýta sér villu brotaþola um einhver atvik og hafa þannig fé af honum eð aöðrum. Fjársvik Arons Karlssonar eru talin felast í því að hafa útbúið áðurnefnda fléttu í desember 2009 og þannig haft fé af bönkunum sem áttu veðréttindi í fasteigninni. Hinn 19. janúar 2010 framkvæmdi efnahagsbrotadeild húsleitir á þremur stöðum vegna málsins, m.á skrifstofu feðganna. Aron Karlsson er einn ákærður en fjársvik geta varðað allt að sex ára fangelsi, samkvæmt almennum hegningarlögum.
Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Sjá meira