Innlent

Þyrla flutti slasaðan fjallgöngumann á slysadeild

Fjallgöngumaður slasaðist þegar hann hrapaði í klettabelti í Botnsúlum inn af Hvalfirði í gærkvöldi og rann drjúgan spöl niður hlíðina.

Þrír göngufélagar hans kölluðu þegar eftir aðstoð og voru björgunarsveitir sendar á vettvang.

Vegna bakmeiðsla þóttti ekki ráðlegt að bera hann til byggða svo kallað var eftir þyrlu Gæslunnar, sem sótti hann og flutti á slysadeild Landsspítalans, en björgunarsveitarmenn fylgdu félögum hans niður á láglendi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×