Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Slasaðist á leiðinni til læknis - ríkið ber skaðabótaábyrgð Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi konu á sjötugsaldri í vil í morgun en hún höfðaði mál gegn Ríkissjóði Íslands eftir að hún rann til í bleytu á Landspítalanum við Hringbraut árið 2008. Konan var á leiðinni í læknismeðferð þegar hún rann til. Ekki greint á um meiðsl konunnar, sem hlaut samfallsbrot um miðbik brjósthryggjar og féllu tveir hryggjarliðir saman. Konan var lögð inn á spítalann til verkjastillingar og þar lá hún í sex daga. 2.10.2012 14:50
Réðst á tvo lögreglumenn sömu nóttina Tveir menn hafa verið ákærðir fyrir að ráðast á lögreglumenn. Annar maðurinn, karlmaður á þrítugsaldri, réðst á lögreglumann við lögreglustöðinni á Selfossi og veitti honum ítrekuð hnefahögg í andlit og höfuð. Við atlöguna nefbrotnaði lögreglumaðurinn, hlaut bólgu og mar á vinstra eyra og kúlu hægra megin á hnakka. Seinna sömu nótt réðst maðurinn aftur að öðrum lögreglumanni sem sinnti skyldustörfum í fangaklefanum þar sem maðurinn var vistaður og veittist að honum, meðal annars með hnefahöggi og hnéspörkum í andlit lögreglumanns. Seinni ákæran beinist að karlmanni á fertugsaldri en hann veittist að lögreglumönnum á heimili sínu í Hafnafirði snemma á þessu ári. Hann er sakaður um að hafa haft í hótunum við lögreglumennina og gripið í fingur hægri handar annars lögreglumannsins, haldið fast og rykkt hendinni ítrekað til, með þeim afleiðingum að lögreglumaðurinn hlaut tognun á vísifingri og löngutöng hægri handar. 2.10.2012 14:43
Skafti Harðarson kærði DV til sérstaks saksóknara Skafti Harðarson, hefur fyrir hönd Samtaka skattgreiðenda, kært útgáfufélag DV til sérstaks saksóknara fyrir að hafa ekki staðið skil á opinberum gjöldum. 2.10.2012 14:27
Skoðun á Landsdómi kemur ekki á óvart - þetta er gallað tæki "Þetta er gallað tæki og kemur í sjálfu sér ekkert á óvart að það sé skoðað,“ segir Mörður Árnason, varaformaður Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins, um minnisblað sem Pieter Omtzigt, fulltrúi Hollands í Evrópuráðsþinginu, lagði fyrir laganefnd Evrópuráðsþingsins. Í minnisblaðinu eru réttarhöldin yfir Geir H. Haarde, fyrir landsdómi, gagnrýnd. Þar segir að með því að draga Geir fyrir dómstóla sé pólitískt andrúmsloft eitrað án þess að reynt sé að fá réttlætinu fullnægt. 2.10.2012 13:23
Ekið á litla stúlku Ekið var á litla stúlku á gatnamótum við Kalmannsbraut á Akranesi í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akranesi þá slasaðist stúlkan lítið, og mun betur fór en á horfði í upphafi. 2.10.2012 12:15
Evrópuráðsþingmaður fordæmir málsmeðferðina gegn Geir Það var rangt að draga Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, fyrir dómstóla. Þetta segir í minnisblaði sem lagt var fyrir laganefnd Evrópuráðsþingsins og var send fjölmiðlum nú rétt fyrir fréttir. Í minnisblaðinu segir að með því að draga Geir fyrir dómstóla sé pólitískt andrúmsloft eitrað án þess að reynt sé að fá réttlætinu fullnægt. Pieter Omtzigt, fulltrtúi Hollands í nefndinni, vinnur að skýrslu fyrir nefndina um það hvernig best sé að halda pólitískri ábyrgð aðskildri frá sakamálum. Hann gagnrýnir málsmeðferðina gegn Geir og segir að íslensk stjórnmál hafi sett niður við hana. 2.10.2012 12:07
Sóley: "Jafn fráleitt og að selja virkjanir eða veitustarfsemi“ "Ég er alfarið á móti því að við seljum innviði grunnþjónustunnar, þetta er jafn fráleitt og að selja virkjanir eða veitustarfsemi,“ segir Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi Reykjavíkurborgar og stjórnarmaður í Orkuveitu Reykjavíkur, en eigendanefnd Orkuveitu Reykjavíkur hefur samþykkt tillögu um að selja tæplega helmings hlut í Gagnaveitu Reykjavíkur. 2.10.2012 11:39
Hjólhýsi fauk á hliðina Nokkur umferðarteppa hefur myndast á Kjalarnesinu en þar fauk hjólhýsi á hliðina fyrir stundu. Myndatökumaður á vegum fréttastofu var á staðnum og tók myndir af eiganda og öðrum sem náðu að rétta hjólhýsið af. 2.10.2012 11:31
Lítill stuðningur við mannvirkjagerð á hálendinu Rúmur þriðjungur almennings er andvígur fyrirhugaðri háspennulínu Landsnets yfir hálendið um Sprengisand, en nokkru færri, eða 28,6%, eru henni fylgjandi. Þetta kemur fram í könnun sem Capacent Gallup vann fyrir Landvernd. 2.10.2012 11:21
Heil búslóð á opnu svæði við Gálgaklett Það má finna heila búslóð á opnu svæði við Gálgaklett á Suðurnesjum. Samkvæmt frétt á vef Víkurfrétta má þar finna ísskáp, sjónvarp, rúm og jafnvel eldhúsinnréttingar. Semsagt heila búslóð með öllu sem til þarf, og fleira. 2.10.2012 10:30
Iceland Express stundvísasta flugfélagið Af þeim fjögur hundruð og sjö ferðum sem farnar voru til útlanda frá Keflavíkurflugvelli seinni hluta september seinkaði aðeins tuttugu og fjórum. Þetta þýðir að níutíu og sjö prósent brottfara frá Keflavíkurflugvelli í síðasta mánuði fóru í loftið á réttum tíma. 2.10.2012 10:02
Björk gefur kost á sér Björk Vilhelmsdóttir borgarfulltrúi og félagsráðgjafi mun gefa kost á sér í 3.-4. sæti í væntanlegu forvali Samfylkingarinnar í Reykjavík, vegna Alþingiskosninga 2013. 2.10.2012 09:35
Einkaþjónn páfa fyrir rétt Réttarhöld yfir einkaþjóni Benedikts Páfa sextánda hefjast í Páfagarði í dag. Hann er sakaður um að hafa komið trúnaðarupplsýningum til blaðamanns en sá hinn sami skrifaði ítarlega bók um spillingu í Páfagarðti. 2.10.2012 09:30
Umferð dróst saman um 2.3 prósent Umferð um 16 mælingastöðvar Vegagerðarinnar á hringveginum dróst saman um 2,3 prósent frá sama mánuði í fyrra og nemur samdrátturinn það sem af er árinu 0,4 prósentum. 2.10.2012 08:30
Hafþór þriðji sterkasti maður heims Aflraunamaðurinn Hafþór Júlíus Björnsson var úrskurðaður þriðji sterkasti maður heims í keppni um titilinn, sem lauk í Los Angeles í gærkvöldi. Tveir litháar skiptu með sér efstu sætunum og bandaríkjamaður varð í fjórða sæti. Hafþór er á ótvíræðri uppleið, því hann var í sjötta sæti í fyrra. 2.10.2012 08:15
Jarðskjálfti upp á 3.8 við Kolbeinsey Jarðskjálfti upp á 3,8 stig varð um 260 kílómetra norður af Kolbeinsey laust fyrir hádegi í gær, sem er snarpasti skjálfti sem mælst hefur hér við land um nokkurt skeið. 2.10.2012 08:00
Heitavatnslaust í Grafarvogi Heitavatnslaust hefur verið í Hamrahverfi og hluta Húsa- og Foldahverfa í Grafarvogi frá klukkan átta og verður svo fram á kvöld vegna viðgerðar á hitavatnslögn. 2.10.2012 07:45
Bifhjólamaður féll í götuna Ekið var á lamb á veginum um Svalbarðsströnd við Eyjafjörð í gærkvöldi og drapst það samstundis. Ökumanni tókst á halda bílnum á veginum þrátt fyrir mikið högg. 2.10.2012 07:26
Áskilur sér rétt til að skipta um skoðun síðar Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi og varaformaður Samfylkingarinnar, hefur hvorki í hyggju að fara í framboð fyrir næstu alþingiskosningar né taka þátt í formannsslag Samfylkingarinnar, segja heimildir Fréttablaðsins. 2.10.2012 07:00
Páfagaukur býður í afmælið sitt Páfagaukurinn Olli, eða Ollie Kinchin eins og hann heitir fullu nafni, heldur upp á tvítugsafmælið sitt í dag. Af því tilefni tekur hann á móti gestum í miðasölu Fjölskyldu- og húsdýragarðsins á opnunartíma og gerir það sem honum finnst skemmtilegast; hitta fólk, segja „halló“ og bjóða því upp á hnetur. 2.10.2012 05:00
Fangi skráði örnefni í landi Sogns í Ölfusi „Ég á tvö sumur hérna eftir enn þá. Ég get komið ýmsu í verk á þeim tíma,“ segir Ágúst Dalkvist fangi, sem í sumar skráði og hnitsetti örnefni á landareign fangelsisins á Sogni. „Þetta er ekki dýr framkvæmd en er mjög flott verk hjá honum,“ segir Margrét Frímannsdóttir fangelsisstjóri, sem hefur nú sent bæjaryfirvöldum í Hveragerði, Ölfusi og Árborg bréf og boðið fram þjónustu fanga við örnefnaskráningu á svæðinu. 2.10.2012 05:00
Hvetja verktaka til að klára verk Verkefnisstjóri við byggingu hjúkrunarheimilis í Sjálandshverfi í Garðabæ segir í greinargerð til bæjarstjórnar að framkvæmdir á vegum Hamarsfells ehf. við innanhúsfrágang gangi seint og séu átta til níu vikum á eftir áætlun. Verktakanum hafi því verið send orðsending þar sem hann er hvattur til að „grípa til árangursríkra ráðstafana til að uppfylla skyldur sínar samkvæmt verksamningi um að skila verkinu á umsömdum tíma,“ 2.10.2012 04:00
Landsbjörg æfir með erlendum Slysavarnafélagið Landsbjörg tekur þessa dagana þátt í áhafnaskiptum með sjö evrópskum sjóbjörgunarfélögum. Verkefnið gengur út á það að frá Íslandi fara sjö sjálfboðaliðar sem eru í áhöfnum björgunarskipa eða báta til nokkurra Evrópulanda og á móti koma sjálfboðaliðar frá sömu löndum. 2.10.2012 04:00
Gaman að matreiða dílamjóra „Við vorum svo heppin að fá slatta af dílamjóra á fiskmarkaðnum,“ segir Magnús Ingi Magnússon, veitingamaður á Sjávarbarnum við Grandagarð 9. Þar er um þessar mundir boðið upp á þessa óvenjulegu fisktegund. 2.10.2012 04:00
Í kröfum Íslendinga er ekkert sem ekki má leysa „Það er ekkert þarna sem ég tel vera óleysanlegt,“ sagði Johannes Hahn, byggðamálastjóri Evrópusambandsins, um samningsafstöðu Íslands í byggðamálum. „Það er farið fram á ýmsa hluti sem snerta sérstöðu Íslands hvað varðar legu landsins og staðsetningu. Það er ekkert óvenjulegt við að ríki, sem sækja um aðild að ESB, vilji ná fram einhverju er varðar sérstöðu þeirra, en allt það þarf að ræða ítarlega í samningaviðræðunum.“ 2.10.2012 04:00
Speglaveggur á MR fer aftur í leyfisferli Leyfi skipulagsyfirvalda í Reykjavík vegna endurbyggingar á austur- og vesturhlið Þingholtsstrætis 18 var nýlega fellt úr gildi. Umrædd bygging er hluti af húsnæði Menntaskólans í Reykjavík. 2.10.2012 04:00
Ríkið styðji byltingu í tækjamálum skóla Skólastjóri Melaskóla telur rétt að íhuga hvort stefnubreytingar sé þörf í tækni- og námsgagnaútgáfu fyrir grunnskóla. Íhuga mætti að færa hefðbundið námsefni yfir í stafrænt form fyrir spjaldtölvur og lesbretti. Þannig sparist fjármunir, sem nýta mætti til að aðstoða skólana við að endurnýja tölvur og tækjabúnað, sem er ein af frumforsendum þess að nýta nýja tækni í skólastarfi. 2.10.2012 04:00
Stuðningur við landbúnað er tvöfalt hærri hér á landi Ísland greiðir fimmta hæsta stuðning við landbúnað af OECD-löndunum. Noregur trónir á toppnum og Sviss, Kórea og Japan greiða öll hærri stuðning en Ísland. Þetta kemur fram í skýrslu OECD. 2.10.2012 04:00
386 milljóna tap á hálfu ári Rekstrarniðurstaða samstæðu Kópavogsbæjar var neikvæð um 386 milljónir króna á fyrri helmingi ársins. Áætlanir höfðu gert ráð fyrir 153 milljóna króna halla. Niðurstaðan á fyrri helmingi ársins er þó betri en á sama tímabili í fyrra þegar hallinn var 1.162 milljónir. Lakari niðurstaða er að stærstum hluta rakin til fjármagnsliða. Nettó fjármagnsgjöld voru 1.820 milljónir króna, en gert var ráð fyrir 1.275 milljónum. Í greinargerð segir að frávikið megi einkum skýra með verðbólguskoti sem varð í upphafi ársins. 2.10.2012 00:00
Þjófóttar mæðgur með allt of vægan dóm Dómur yfir þjófóttum mæðgum sem voru dæmdar í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag er allt of vægur að mati Samtaka verslunar og þjónustu. Mæðgurnar voru dæmdar fyrir ítrekaðan þjófnað og verðmæti varanna sem þær stálu hljóp á milljónum. 1.10.2012 21:30
Lömb sem fundust undanfarna daga fá líklega að lifa veturinn Lömb sem eru grafin úr fönn eru ekki endilega óæt en þau þurfa klárlega á því að halda að þau séu tekin á hús og fái tíma til að jafna sig áður en þau eru send á sláturhús. Þetta segir Sigurður Eyþórsson, framkvæmdastjóri Landssambands sauðfjárbænda, samtali við Reykjavík síðdegis. 1.10.2012 20:58
Fundu 600 töflur af rítalíni og skotvopn í húsleit Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á haglabyssur, riffla með hljóðdeyfum, lyfseðilsskyld lyf og peninga í húsleit síðastliðinn föstudag. 1.10.2012 17:55
Hópur pilta réðst á einn - 10 spor saumuð Hópur pilta réðst á mann um tvítugt í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Piltarnir börðu hann og spörkuðu í hann með þeim afleiðingum að sauma þurfti tæplega tíu spor í höfuð hans og nef. Talið var að hann hefði nefbrotnað. Árásarmennirnir töldu sig eiga vantalað við félaga þess sem ráðist var á og komu að íbúð hins fyrrnefnda í því skyni. Maðurinn varnaði þeim inngöngu og réðust þeir þá á hann. Lögregla rannsakar málið. 1.10.2012 16:46
Stálu vörum fyrir rúmar 6 milljónir Mæðgur hafa verið dæmdar fyrir stórfelldan þjófnað úr verslunum, en dómur þess eðlis féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í síðustu viku. Móðirin skal sæta fangelsi í fimmtán mánuði, en 12 mánuðir eru skilorðsbundnir. Dóttirin fékk fjögurra mánaða fangelsisdóm en refsingu er frestað og fellur hún niður eftir þrjú ár haldi hún skilorð þann tíma. 1.10.2012 16:32
Próf- og beltislaust talandi í síma á óskoðuðum bíl Lögreglan á Suðurnesjum hefur undanfarna daga haft afskipti af allmörgum ökumönnum sem ekki hafa verið til fyrirmyndar í umferðinni. 1.10.2012 15:24
Dópaður og réttindalaus Lögreglan á Suðurnesjum handtók um helgina rúmlega tvítugan ökumann þar sem hann var grunaður um ölvun við akstur. 1.10.2012 15:23
Ráðherra í myrkri Rafmagn fór af hluta Skuggahverfis rétt eftir klukkan eitt í dag þegar bilun varð í háspennukerfi við Lindargötu. Meðal annars fór rafmagnið af í umhverfisráðuneytinu en það komst þó fljótt á þar aftur. 1.10.2012 15:16
Ísland áfangastaður ársins að mati lesenda The Guardian Ísland hefur verið valið land ársins í Evrópu 2012, í árlegu vali lesenda breska dagblaðsins The Guardian á áhugaverðustu áfangastöðum heims, eða hinum svokölluðu Guardian Readers‘ Travel Awards. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsstofu. 1.10.2012 15:06
Katrín fer gegn Árna Páli Katrín Júlíusdóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, ætlar að sækjast eftir fyrsta sæti í suðvesturkjördæmi í prófkjöri Samfylkingarinnar. "Ég hef verið að melta þetta með mér í nokkurn tíma og ég hef ákveðið að gefa kost á mér í það sæti. Svo er það félagsmanna í suðvesturkjördæmi að taka ákvörðun um það hvernig þeir vilja stilla upp. Ég allavega býð mig fram," segir Katrín, sem tók við lyklavöldum í ráðuneytinu nú skömmu eftir hádegið. Árni Páll Árnason er fyrsti þingmaður Samfylkingarinnar í kjördæminu og sækist hann áfram eftir því sæti., en Katrín er annars Bæði hafa þau verið orðuð við formannsframboð. Spurð hvort hún ætli að bjóða sig fram til formanns svarar Katrín: "Ég segi nú bara: Eitt í einu! Það er heilmikið að gefa kost á sér að vera oddviti í kjördæmi. Ef það gengur eftir þá mun ég auðvitað sjá til. En það er einn slagur fyrst og síðan mun ég meta stöðuna í framhaldi af því. En það er ekkert ákveðið og ég hef ekki gengið með formanninn í maganum hingað til en maður á aldrei að útiloka neitt í pólitík," segir Katrín. Árni Páll gefur heldur enn ekkert upp um hvort hann stefni á að verða næsti formaður Samfylkingarinnar. Hann segir ekki heldur ljóst hvenær hann gerir upp hug sinn. "Það bara kemur þegar það kemur," segir hann. 1.10.2012 14:00
Illa unnið að framkvæmdum OR á Hengilssvæðinu Framkvæmdir við niðurdælingu vatns frá Hellisheiðarvirkjun, sem leysti úr læðingi jarðhræringar við Húsmúla á Hengilssvæðinu haustið 2011 eru sagðar hafa verið illa undirbúnar og illa unnar. Þetta kemur fram í skýrslu sérfræðinga sem unnin var fyrir Orkuveitu Reykjavíkur. Í skýrslunni segir að jarðskjálftar vegna framkvæmdarinnar hafi komið á óvart og vakið um tíma kvíði og tortryggni. Fyrstu viðbrögð hafi verið fálmkennd og nokkurn tíma hafi tekið að átta sig á atburðarrásinni og hvernig við skyldi brugðist. 1.10.2012 13:43
Heildarupphæð barnabóta hækkar um 30% Síðasta embættisverk Oddnýjar Harðardóttur á stóli fjármálaráðherra var að kynna breytingar á barnabótakerfinu en á Ríkisráðsfundi nú rétt fyrir hádegið tók Katrín Júlíusdóttir við ráðuneytinu af Oddnýju. Heildarupphæð bótanna hækkar um þrjátíu prósent og tekjuskerðingarmörk hækka einnig. 1.10.2012 12:25
Sveinn Arason: Upphlaup hjá fjárlaganefnd Ríkisendurskoðandi segir það hreint upphlaup hjá fjárlaganefnd að neita að afhenda honum frumvarp til umsagnar. Hann telur sinn enn njóta fulls trausts forseta Alþingis. 1.10.2012 12:13
Oddný út - Katrín inn Ríkisráðsfundur stendur nú yfir á Bessastöðum en fundurinn markar breytingar á ráðherraliði ríkisstjórnarinnar. Oddný Harðardóttir kveður í dag efnahags- og fjármálaráðuneytið og Karín Júlíusdóttir tekur þar formlega við lyklavöldum klukkan hálf eitt í dag. 1.10.2012 12:09
Grófu 150 fjár upp úr snjó Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra skipulagði nú um helgina umfangsmiklar aðgerðir, í samvinnu við Slysavarnafélagið Landsbjörgu, búnaðarráðunauta, bændur og aðrar hlutaðeigandi. 1.10.2012 11:56
Reyndi að kveikja í Kaffi Krús Mikil hætta myndaðist þegar eldur kom upp á veitingastaðnum Kaffi Krús á Selfossi á föstudagskvöld. Gestir á veitingastaðnum tóku eftir að kveikt hafði verið í blómaskreytingu sem stóð upp við húsvegg. 1.10.2012 10:58