Lisbeth Berg-Hansen: Refsiaðgerðir gegn Íslandi ef ekki verður samið Þorbjörn Þórðarson skrifar 4. september 2012 12:00 Lisbeth Berg-Hansen, sjávarútvegsráðherra Noregs.
Lisbeth Berg-Hansen, sjávarútvegsráðherra Noregs, segir að hvorki Íslendingar né Færeyingar hafi sýnt neinn samningsvilja á fundinum í makríldeilunni Lundúnum í gær. Hún segir að haldi Íslendingar og Færeyingar að veiða jafn mikið án kvóta, eins og allt útlit er fyrir, segist hún ætla beita sér fyrir refsiaðgerðum gegn ríkjunum. Engin niðurstaða varð af samningafundi Steingríms J. Sigfússon, atvinnuvegaráðherra með sjávarútvegsráðherrum Noregs og Færeyja og Maríu Damanakí, sjávarútvegsstjóra Evrópusambandsins á samningafundi í Lundúnum í gær. Lisbeth Berg-Hansen, sjávarútvegsráðherra Noregs, sagði í viðtali við norska ríkissjónvarpið NRK í gærkvöldi að hún væri vonsvikin að engin niðurstaða hafi náðst á fundinum og hvorki Ísland né Færeyingar hafi sýnt neinn vilja til að semja. Eðli málsins samkvæmt er þetta allt önnur upplifun en hjá Steingrími J. Sigfússyni, sem sagði í fréttum okkar í gær að ekki væri við Íslendinga að sakast. Lisbeth Berg-Hansen sagði í viðtalinu við NRK að Norðmenn myndu beita sér fyrir því að Ísland verði beitt viðurlögum ef ríkið heldur áfram að veiða án þess að hafa hlutdeild í makrílkvótanum, en Íslendingar hafa veitt 16-17 prósent af öllu sem veitt er af makríl á undanförnum árum, án kvóta. Fréttamaður NRK spurði Berg-Hansen hvort hún væri að vísa til þeirrar vinnu sem væri í gangi hjá Evrópusambandinu. Berg-Hansen sagði að Evrópusambandið hefði sinnt sínum undirbúningi en það myndu Norðmenn gera einnig. Þá var hún spurð hvaða aðgerðir hún væri að tala um af hálfu Norðmanna, en vildi ekkert gefa upp. Vinnan sem Lisbeth Berg-Hansen er að vitna til hjá Evrópusambandinu er að sjávarútvegsnefnd Evrópuþingsins samþykkti fyrr á þessu ári tilskipun um refsiaðgerðir gegn ríkjum sem stunda ósjálfbærar veiðar úr sameiginlegum stofnum sem deilt er um, eins og til dæmis makríl, en reglugerðin felur ekki aðeins í sér löndurbann á íslensk skip heldur einnig viðskiptaþvinganir eins og takmarkanir á sölu fiskiafurða. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Innlent Fleiri fréttir Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Sjá meira