Ragnheiður Elín: Svona er pólitíkin og þetta er niðurstaða formannsins 4. september 2012 11:53 Ragnheiður Elín Árnadóttir heldur ræðu. „
Svona er pólitíkin og þetta er niðurstaða formannsins, það þýðir þó ekki að ég sé ánægð með hana," segir Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, en Illugi Gunnarsson var í dag kjörinn þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins eftir að Bjarni Benediktsson, formaður flokksins, lagði fram tillögu um að Illugi yrði nýr þingflokksformaður á þingflokksfundi í morgun. Sú tillaga var svo samþykkt með meirihluta þingflokksins. Ragnheiður Elín segist auðvitað ekki vera ánægð með niðurstöðuna, hún hafi gegnt þessu embætti í tvö ár, eða frá því Illugi Gunnarsson fór í leyfi frá Alþingi á meðan málefni sjóðs 9 í Glitni var til rannsóknar. Ragnheiður segist hafa haft mikla ánægju af starfi sínu sem þingflokksformaður og talið sig standa sig vel í því vandasama starfi. „En nú er bara verkefnið að koma ríkisstjórninni frá, það kemur dagur eftir þennan dag," segir Ragnheiður sem bætir við að hún hafi metnað til þess að vera í framvarðasveit flokksins. „Nú get ég einbeitt mér ennfrekar að því að tryggja Suðurkjördæmi sem stærstan sigur í næstu kosningum og þannig gert mitt besta til þess að koma þessari ömurlegu ríkisstjórn frá," segir Ragnheiður. Spurð hvaða efnislegu rök hefðu verið lögð fram vegna málsins vísar Ragnheiður Elín á formann Sjálfstæðisflokksins.
Tengdar fréttir Illugi nýr þingflokksformaður Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur tekið við stöðu þingflokksformanns að nýju. Hann staðfestir þetta í samtali við Vísi. "Þetta var tillaga formanns sem var síðan rædd og síðan varð hún niðurstaðan,“ segir Illugi í samtali við Vísi. 4. september 2012 11:15 Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Sjá meira
Illugi nýr þingflokksformaður Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur tekið við stöðu þingflokksformanns að nýju. Hann staðfestir þetta í samtali við Vísi. "Þetta var tillaga formanns sem var síðan rædd og síðan varð hún niðurstaðan,“ segir Illugi í samtali við Vísi. 4. september 2012 11:15