Lítil kjörsókn afleiðing hrunsins Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 30. júní 2012 20:10 Grétar Þór Eyþórsson, prófessor við Háskólann á Akureyri.
Nokkuð ljóst er að það stefnir í minni kjörsókn en búist var við að mati prófessor í stjórnmálafræði. Hann telur minni kosningaþátttöku geta verið ein af afleiðingum hrunsins. Kjörsókn í forsetakosningunum í dag hefur verið dræmari en í kosningum á undanförnum árum. Þannig var kjörsókn í Reykjavíkurkjördæmi suður 17% minni klukkan sex en hún var í Alþingiskosningum 2009. Grétar Þór Eyþórsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Akureyri, segir ljóst að það stefni í minni kjörsókn en búist var við. „Kjörsókn í öllum alvöru forsetakosningum hefur yfirleitt haldist í hendur við kjörsókn í Alþingiskosningum," segir Grétar en ef fer sem horfir gæti það breyst nú. Grétar segist hafa gert sér það í hugarlund að dregið gæti úr kosningþátttöku nú þar sem slíkt hafi gerst í sveitarstjórnarkosningunum árið 2010. „Þetta gæti verið ein af afleiðingum hrunsins að dregið hafi úr kosningaþátttöku," segir Grétar. „Þetta er eitthvað sem við höfum verið að sjá eftir hrunið að það er meiri vantrú á pólitík og einhvert meira áhugaleysi," segir Grétar. Þannig dróst kosningaþátttaka saman um 5% á milli sveitarstjórnarkosninganna 2006 og 2010. Þá fór hún úr 79% í 73%. Þá segir Grétar erfitt að meta hvaða áhrif minni kosningaþátttaka hafi á frambjóðendur nú. Það fari eftir því í hvaða kjördæmum hún er minnst. Þannig séu frambjóðendur missterkir í ákveðnum kjördæmum og bendir Grétar til að mynda á að Þóra Arnórsdóttir hafi mælst með mest fylgi á suðvesturhorni landsins.
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Fleiri fréttir „Fyrst og fremst erfitt“ Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Sjá meira