Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Urðu fyrir vonbrigðum með viðbrögð Darlings Sendinefnd íslenskra ráðherra og embættismanna sem fór til fundar með Alistair Darling, fjármálaráðherra Breta, í byrjun september 2008 varð fyrir miklum vonbrigðum með fundinn. Þetta sagði Jón Þór Sturluson, aðstoðarmaður Björgvins G. Sigurðssonar, fyrrverandi viðskiptaráðherra, fyrir Landsdómi í dag. 8.3.2012 09:45
Fulltrúar bankanna mæta í Landsdóm í dag "Mér var ljóst að það voru aðsteðjandi hættumerki frá því í ársbyrjun 2008,“ sagði Jón Þór Sturluson, aðstoðarmaður Björgvins G. Sigurðssonar, fyrrverandi viðskiptaráðherra. "En sú hætta var ekki bráð framan af. Hættan magnaðist upp í takt við það sem tíminn leið,“ sagði hann. 8.3.2012 09:22
Skrópaði fyrir dómi og mundi svo ekki neitt „Brotin eru mjög alvarleg og beindust gegn lífi og heilsu brotaþola,“ sagði Margrét Unnur Rögnvaldsdóttir aðstoðarsaksóknari í lokamálflutningi vegna skotárásar sem átti sér stað á lóð bílasölu við Tangabryggju í Reykjavík í nóvember síðastliðnum. Aðalmeðferð málsins lauk um hádegisbil í gær fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur og dóms að vænta eftir þrjár til fjórar vikur. 8.3.2012 09:15
Lóa var í raun starri að herma Lóan er ekki komin til landsins, að sögn Jóhanns Óla Hilmarssonar fuglafræðings og formanns Fuglaverndarfélags Íslands. 8.3.2012 09:00
Opið hús hjá Stígamótum Opið hús verður hjá Stígamótum í dag í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Stígamót halda upp á afmæli sitt á þessum degi og gefa út ársskýrslu sína af því tilefni. 8.3.2012 08:30
Fundur Varðbergs um glæpastarfsemi er í dag Í Fréttablaðinu í dag, fimmtudag, er lítil frétt um fund á vegum Varðbergs um skipulagða glæpastarfsemi þar sem Jón F. Bjartmarz yfirlögregluþjónn og Karl Steinar Valsson aðstoðaryfirlögregluþjónn tala. Fréttablaðið segir fundinn á morgun. Hið rétta er að fundurinn er í dag, fimmtudag, milli 12.00 og 13.00 í ráðstefnusal Þjóðminjasafnsins. 8.3.2012 07:56
Varað við borgarísjökum undan Horni á Ströndum Tveir stórir borgarísjakar sáust nokkrar sjómílur aust-suðaustur af Horni á Ströndum þegar flugvél Landheglisgæslunnar flaug þar yfir í gær. 8.3.2012 07:43
Herjólfur siglir að nýju til Eyja Vestmannaeyjaferjan Herjólfur getur nú aftur siglt á milli Eyja og Þorlákshafanr og verður farið í fyrri ferðina samkvæmt áætlun. Ekki er enn ljóst hvort hægt verður að fara síðari ferðina. 8.3.2012 07:41
Reyndi að brjótast inn í MH Liðlega tvítugur karlmaður var handtekinn um þrjú leitið í nótt eftir að hann hafði brotið rúðu í Menntaskólanum í Hamrahlíð og ætlaði þar inn, en þó ekki til skólasetu. Hann verður yfirheyrður í dag. 8.3.2012 07:40
Páfagaukur í óskilum á lögreglustöð Ungur páfagaukur, blár, grár og hvítur að lit, líklega svonefndur Gári, er í vörslu lögreglunnar á Akureyri eftir að skólastúlkur gómuðu hann í bókasafni Háskólans þar í bæ í gærkvöldi. 8.3.2012 07:26
Dópaðir ökumenn teknir úr umferð á Selfossi Ung kona var tekin úr umferð á Selfossi í gærkvöldi vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna. Í framhaldi af því var gerð húsleit heima hjá henni þar sem lítilræði af fíkniefnum fannst. 8.3.2012 07:17
LÍ segir útilokað að lagarökin standist Læknafélag Íslands segir rök landlæknis er varða afhendingu á lista yfir konur með sílikonbrjóst ónæg. Persónuvernd úrskurðar í næstu viku. Lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefur ákveðið að slíkur gagnagrunnur verði gerður þar í landi. 8.3.2012 07:00
Áliðnaðurinn mikilvægur hagkerfinu Hagfræðistofnun metur framlag áliðnaðarins á Íslandi 6 til 6,8 prósent af landsframleiðslu. Í greininni starfa um 2.000 manns en að auki áætlar stofnunin að um 2.800 manns starfi í tengdum greinum sem þjónusta áliðnaðinn. 8.3.2012 04:30
Glæpir og yfirvöld til umræðu í hádeginu Varðberg, samtök um vestræna samvinnu og alþjóðamál, efnir til hádegisfundar á morgun til að ræða skipulagða glæpastarfsemi og viðbrögð yfirvalda við henni. 8.3.2012 00:01
"Ef þið ætlið að gráta, hafið það þá gleðitár vegna fallegra minninga" Ef þið ætlið að gráta, hafið það þá gleðitár vegna fallegra minninga. Þetta sagði Sigursteinn Gíslason fótboltamaður við ættingja sína þegar hann lá banaleguna. Hann lést í janúar á þessu ári eftir baráttu við krabbamein. 7.3.2012 20:48
Fluttu til Reykjavíkur til að koma syni sínum í blóðskilun Ólafur Karl Óskarsson er aðeins þriggja ára en hefur þegar verið sem samsvarar tæpum mánuði alls í blóðskilunarvél. Fjölskylda hans reif sig upp með rótum á Akureyri og flutti til Reykjavíkur, þar sem einu blóðskilunardeild landsins er að finna. 7.3.2012 21:21
Enginn fékk 112 milljónir Enginn var með allar tölurnar réttar í Víkingalottóinu en dregið var út í kvöld. Potturinn verður því tvöfaldur næst. Fyrsti vinningur kvöldsins var tæplega 112 milljónir króna. Einn íslenskur spilari var þó með allar jókertölurunar réttar og fær tvær milljónir króna í sinn hlut. Miðinn var seldur í Olís á Sæbraut við Sundagarða í Reykjavík. 7.3.2012 19:12
Guðni Bergsson: "Ég áttaði mig ekki á því að hann hefði stungið mig“ „Ég sá þegar árásin átti sér stað, þannig ég hljóp inn á skrifstofuna og sá þá blóð. Þá þá reyndi ég að ná hnífnum af manninum," segir Guðni Bergsson, þegar hann bjargaði samstarfsfélaga sínum Skúla Eggert Sigurz, sem var stunginn sex sinnum að sögn Guðna í viðtalinu sem var tekið við hann á fréttavef í bænum Bolton á Englandi. 7.3.2012 15:42
Þór Saari: Það kemur að því að fólk snappar "Það voru margir í fjölmiðlum sem sögðust ekki geta skilið hvernig þetta gæti gerst. Ef ég hefði verið spurður að því, hefði ég getað svarað því. Það kemur að því að fólk snappar,“ segir Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, um hnífstunguárásina á lögmannsstofu í Lágmúla í vikunni. Þór var gestur í Kastljósi í kvöld. 7.3.2012 20:13
Tók í hönd framkvæmdastjórans, kippti honum að sér og stakk Framkvæmdastjóri Lagastoða hafði lækkað skuld árásarmannsins um þrjátíu þúsund krónur og þeir komist að samkomulagi áður en sá síðarnefndi réðist á hann og veitti honum lífshættulega áverka. Hinn særði er enn í lífshættu. 7.3.2012 18:45
700 fyrirtæki tengjast áliðnaði á Íslandi Álverin standa undir níutíu milljörðum króna af landsframleiðslu Íslendinga, að mati Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands. Ragnar Árnason prófessor segir koma á óvart hversu stórt framlag tengdra greina áliðnaðarins er. Þrjú álver eru rekin á Íslandi og hjá þeim starfa um tvöþúsund manns en þegar bætt er við þeim sem tengjast álverunum teljast nærri fimm þúsund manns starfa í áliðnaði og tengdum greinum. 7.3.2012 18:45
Líkti íslensku bönkunum við Maddoff Íslensku bankarnir voru með alþjóðlegar endurskoðunarskrifstofur. Það er því með ólíkindum að reikningar bankanna hafi verið með þeim hætti sem þeir voru sagði, Jón Sigurgeirsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri skrifstofu bankastjórnar Seðlabanka Íslands, fyrir Landsdómi í dag. 7.3.2012 17:35
GR og Eimskip vinna saman að forvörnum Golfklúbbur Reykjavíkur og Eimskip hafa undirritað samstarfssamning til næstu þriggja ára sem felur í sér fjölbreytt samstarf félaganna á ýmsum sviðum, fyrst og fremst á sviði forvarnarmála en einnig hvað varðar almenna framþróun golfíþróttarinnar á Íslandi. 7.3.2012 16:48
Meintur barnaníðingur áfram í gæsluvarðhaldi Karlmaður sem er ákærður fyrir að hafa misnota ellefu ára dóttur sína með grófum hætti mun sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi. Maðurinn var handtekinn í desember á Akranesi, þar sem hann er búsettur. 7.3.2012 16:43
Eignir bankanna að stórum hluta loft Geir Haarde hafði mikinn hug á því að koma Icesave inn í breskt dótturfélag, sagði Jón Sigurðsson, fyrrverandi stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins, fyrir Landsdómi í dag. "Ég held að það sé ekki hægt að segja a ðhann hafi vanrækt það að gera það sem þurfti að gera til að fá þessu framgengt,“ sagði Jón. 7.3.2012 16:38
Suðurlandsvegur lokaður vegna slyss Suðurlandsvegur ofan við Sandskeið, í átt til Reykjavíkur, er lokaður eins og er vegna umferðarslys. Í tilkynningu frá lögreglu er sagt að ekki sé búist við því að vegurinn verði lokaður lengi en að búast megi við töfum. Sjúkrabíll er á leið á vettvang en slysið var nálægt Litlu Kaffistofunni. Nánar verður greint frá málinu þegar upplýsingar berast. 7.3.2012 16:32
Kortaþrjótarnir komu fullkomnum afritunarbúnaði fyrir Valitor segir í tilkynningu að í flestum tilvikum komust rúmensku kortasvikararnir yfir upplýsingar um debetkort, en sú fjárhæð sem tókst að svíkja út í heildina, er ekki há. 7.3.2012 16:14
Fjármálaeftirlitið var allt of lítið Jón Sigurðsson, fyrrverandi stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins, segir að eftirlitið hafi verið allt of lítið af umfangi í ársbyrjun 2008 þegar hann tók við stöðu stjórnarformanns þess. "Ég tel að það hafi verið þá alveg bersýnilegt að fjöldi starfsmanna hjá eftirlitinu var langt um minna en vera þyrfti miðað við stærð bankakerfisins sem hafði vaxið á undanförnum árum,” sagði Jón. 7.3.2012 16:03
Suðurlandsvegur opnaður að nýju Lögreglan hefur opnað að nýju fyrir umferð um Suðurlandsveg ofan við Sandskeið í átt að Reykjavík. Veginum var lokað fyrr í dag vegna umferðaróhapps. Enginn slasaðist alvarlega í slysinu en mikil hálka er á þessu svæði og beinir lögregla þeim tilmælum til ökumanna að aka varlega. 7.3.2012 17:47
Skúli hafði rætt við árásarmanninn í klukkustund Skúli Sigurz, framkvæmdastjóri Lagastoðar sem nú liggur á gjörgæsludeild með lífshættuleg stungusár, hafði rætt við árásarmann sinn í um klukkutíma áður en maðurinn, Guðgeir Guðmundsson, lét til skarar skríða. 7.3.2012 15:39
Rúmenskir kortaþrjótar handteknir - afrituðu þúsund kort Tveir rúmenskir karlmenn hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald eftir að hafa afritað segulrendur að minnsta kosti þúsund greiðslukort í tveimur hraðbönkum á höfuðborgarsvæðinu. 7.3.2012 15:20
Meiningarmunur um ríkisábyrgð á Icesave Viðskiptaráðuneytið og Fjármálaeftirlitið töldu að íslenska ríkið bæri ábyrgð á lágmarkstryggingu innistæðna samkvæmt EES tilskipunum. Þetta sagði Bolli Þór Bollason, fyrrverandi ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu og formaður samráðshóps um fjármálastöðugleika, fyrir Landsdómi í dag. 7.3.2012 15:04
Segir Geir ekki hafa haft beina aðkomu að Icesave-málinu Bolli Þór Bollason, fyrrverandi ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytisins, svaraði aðspurður að það hefði aldrei verið farið fram á aðkomu Geirs H. Haarde að Icesave-málinu þegar unnið var að því að koma reikningunum í dótturfélag í Bretlandi. Þessu svaraði hann í Landsdómi þegar Andri Árnason spurði hvort það hefði verið farið fram á að Geir hefði afskipti af málinu. 7.3.2012 14:39
Dómari benti á möguleikann á handtöku fjórmenninganna Dómari í Al Thani málinu svokallaða gerði athugasemd við það að enginn sakborninga hafi mætt fyrir dóminn þegar málið var þingfest klukkan tvö í dag. Framhald á þinghaldi hefur verið boðað 29. mars, meðal annars vegna þessa. 7.3.2012 14:23
Enginn sakborninganna mættu í dómssal í Al-Thani málinu Þingfesting í Al-Thani málinu svokallaða er hafin. Enginn hinna ákærðu mætti fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjavíkur en það eru fyrrverandi stjórnendum Kaupþings, Hreiðar Már Sigurðsson, Sigurður Einarsson og Magnús Guðmundsson auk Ólafs Ólafssonar, kenndan við Samskip, sem eru ákærðir í málinu. 7.3.2012 14:01
Úlfar með eina bestu matreiðslubók heims Matreiðslubókin Stóra bókin um villibráð eftir Úlfar Finnbjörnsson, matreiðslumeistara sem bókaútgáfan Salka gefur út, var meðal þeirra bóka sem lentu í efstu sætum Gourmand-verðlaunanna þegar þau voru tilkynnt í gærkvöldi. 7.3.2012 13:49
Vissu að fall eins banka myndi orsaka fall hinna Bolli Þór Bollason, fyrrverandi ráðuneytisstjóri í forsæitsráðuneytinu, segir að samráðshópur um fjármálastöðugleika hafi gert sér grein fyrir því að ef einn stóru viðskiptabankanna myndi falla þá myndu þeir allir falla. 7.3.2012 13:32
Skólarúta fauk út af veginun - sautján börn í bílnum Skólarúta fauk út af Reykjanesbrautinni í morgun þegar hún var á leið frá Vogum á Vatnsleysisströnd suður í Reykjanesbæ. Sautján börn voru í rútunni þegar sterkir vindar virðast hafa valdið því að ökumaður missti stjórn á rútunni og endaði utanvegar. 7.3.2012 13:20
Farið fram á sex ára fangelsi - fórnarlambið minnislaust Farið var fram á sex ára fangelsisdóm yfir Kristjáni Halldóri Jenssyni í Héraðsdómi í morgun fyrir tilraun til manndráps þegar hann beitti afsagaðri haglabyssu í átökum í Bryggjuhverfinu í Reykjavík í nóvember í fyrra. Aðalmeðferð í málinu lauk nú laust fyrir hádegi. 7.3.2012 13:11
Öll vitnin telja að ómögulegt hafi verið að minnka bankakerfið Allir þeir sem hafa borið nú þegar borið vitni í máli Alþingis gegn Geir Haarde telja að það hafi verið ómögulegt fyrir bankana að minnka efnahagsreikning sinn með því að selja eignir. 7.3.2012 12:57
Vilja ekki loka Laugaveginum fyrir umferð - kenna bílahatri um Fjörutíu kaupmenn rótgróinna verslunar á Laugaveginum mótmæla áformum um lokun götunnar fyrir bílaumferð. Þeir segja rekstrargrundvöll verslana vera í húfi. 7.3.2012 12:52
Lýsing frá Landsdómi á nýjum Twitter reikningi Sú nýbreytni að lýsa gangi mála í Landsdómi á Twitter hefur vakið mikla athygli síðustu daga. Twitter-reikningur Vísis er aðgengilegur efst á forsíðu vefsins en sökum þess að beinar útsendingar voru ekki verið leyfðar frá réttarhöldunum var ákveðið að greina frá gangi mála með þessum hætti. Þannig fá lesendur innsýn í það sem fram fer í réttarsalnum. 7.3.2012 12:50
Bætist á vitnalistann Nú eru þriðji dagur í Landsdómsmáli, réttarhöldum yfir Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra. Málið hófst á skýrslutöku yfir Geir sjálfum á mánudag og á þriðjudag mættu þeir Björgvin G. Sigurðsson, Arnór Hannibalsson og Davíð Oddsson. Vitnalistinn telur nú um fimmtíu manns en hann getur þó tekið breytingum. Eins og staðan er nú er vitnalistinn sem hér segir. 7.3.2012 12:45
Geir ekki beðinn um að beita sér í Icesave Aldrei kom til greina hjá samráðshópi um fjármálastöðugleika að fá atbeina Geirs Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, til þess að hvetja Landsbankann til þess að flytja Icesave reikningana úr útibúi bankans yfir í dótturfélag hans í Bretlandi. Þetta sagði Baldur Guðlaugsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins, í vitnaleiðslum fyrir Landsdómi í dag. 7.3.2012 12:12
Mál gegn Kaupþingsmönnum og Al-Thani þingfest í dag Mál sérstaks saksóknara á hendur fyrrverandi stjórnendum Kaupþings Hreiðari Má Sigurðssyni, Sigurði Einarssyni og Magnúsi Guðmundssyni auk Ólafi Ólafssyni, kenndan við Samskip, verður þingfest í héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 7.3.2012 12:03