Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þingmenn gistu í flugrútu „Ísland stóð svo sannarlega undir nafni þegar það tók á móti okkur,“ segir Siv Friðleifsdóttir alþingismaður sem lenti í hrakningum ásamt fleiri þingmönnum við komuna til landsins í fyrrakvöld. 27.1.2012 04:00
Þvinga á fram gögn um brjóstastækkanir Velferðarráðherra mun beita sér fyrir lagabreytingum til að krefja lýtalækna um að afhenda landlæknisembættinu upplýsingar, leysist málin ekki á næstunni. Hópur lýtalækna neitar landlækni enn um upplýsingar varðandi brjóstastækkanir sem þeir hafa gert á sjúklingum sínum frá árinu 2000. Þeir hafa leitað með málið til Persónuverndar. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra segir afstöðu sína í málinu afar skýra. 27.1.2012 03:15
Fyrirtæki upplýsi hvert þeirra notaði iðnaðarsalt Upplýsingar um það hvaða fyrirtæki notuðu iðnaðarsalt og í hvaða vörum verða aðgengilegar á vef talsmanns neytenda á næstu dögum. Þegar hafa einhver fyrirtæki sett sig í samband við embættið. 27.1.2012 03:15
Segir sig úr stýrihópi borgarinnar Elín Hjálmsdóttir fulltrúi foreldra í stýrihópi Reykjavíkurborgar um breytingu á þremur skólum í Grafarvogi hefur sagt sig úr nefndinni. Ástæðan er sú að óskir foreldra og jafnvel fyrirspurnir eru algerlega virtar að vettugi að hennar mati. Málið snýst um breytingu á Foldaskóla í heildstæðan safnskóla á unglingastigi og flutning nemenda í 8.-10.bekk úr Hamraskóla og Húsaskóla. 26.1.2012 23:36
Hellisheiðin enn lokuð Hellisheiðin er enn lokuð. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er unnið að mokstri. Verkið mun sækjast seint því að sumir virðast hafa hunsað lokunina og lagt í ferð yfir Heiðina þrátt fyrir að það væri bannað. Lögreglan á Selfossi hafði ekki upplýsingar um það hvernig gengi að losa þá bíla sem fastir voru. 26.1.2012 21:46
Bænastundir vegna sjóslyssins á morgun Bænastundir verða haldnar á morgun í Ytri Njarðvíkurkirkju og Grafarvogskirkju vegna sjóslyssins í gær þegar togarinn Hallgrímur SI-77 fórst. Þær hefjast báðar klukkan 18. Nöfn mannanna þriggja sem taldir eru af voru gerð opinber í dag. Sá fjórði dvelur á sjúkrahúsi í Álasundi. Ólíklegt þykir að hann verði útskrifaður í dag vegna andlegs ástands en honum hefur nú verið veitt áfallahjálp til að takast á við afleiðingar slyssins. 26.1.2012 19:13
Ögmundur bíður með að tjá sig um ívilnun til Nubos Tilraun Kínverjans Nubos til að fá Grímsstaði á langtímaleigu með ívilnun frá iðnaðarráðherra gæti leitt af sér ný átök milli stjórnarflokkanna. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra ætlar ekki að tjá sig um málið að sinni. Eftir að Ögmundur hafnaði því að veita fyrirtæki Nubos undanþágu til að kaupa jörðina Grímsstaði lýsti Katrín Julíusdóttir því yfir að leitað yrði annara leiða til að greiða fyrir tugmilljarða fjárfestingum Nubos á Íslandi. 26.1.2012 19:10
Fjórir fengið ívilnanir - Nubo vill líka Iðnaðarráðherra hefur á grundvelli nýlegra laga um ívilnanir þegar veitt fjórum aðilum undanþágur frá lögum vegna nýfjárfestinga á Íslandi. Kínverjinn Huang Nubo hefur nú sótt um að fá að njóta samskonar ívilnunar til að leigja Grímsstaði og byggja upp lúxushótel. 26.1.2012 14:05
Tíkin Perla týnd Tíkin Perla hvarf frá Holtunum í Hafnarfirði í dag um hálffimmleytið. Hún er ekki merkt um hálsinn, en með örmerki. Hún er með rauða ól og taum. Ef einhver hefur orðið hennar var eða veit hvar hún er þá hringið í Hrefnu í síma 698 3132. 26.1.2012 22:19
Rannsókn á tildrögum sjóslyssins hafin Rannsókn á tildrögum slyssins sem varð þegar Hallgrímur SI-77 sökk út frá ströndum Noregs er hafin, hún fer fram á Íslandi og verður í höndum rannsóknarnefndar sjóslysa. Lögregla og björgunaraðilar í Noregi vinna nú við að safna gögnum og verða þau send hingað til lands. Þar er til dæmis um að ræða veðurspár undanfarna daga, skýrslur frá björgunaraðilum og lögreglu. 26.1.2012 19:44
Margt óunnið áður en þjóðin tekur afstöðu til grundvallarmála Lagastofnun Háskóla Íslands telur nokkuð óunnið og óútfært í sambandi við frumvarp stjórnlagaráðs og til þess að taka að sér að framkvæma álagspróf á frumvarpinu þurfi stofnunin langan tíma og talsvert frelsi við að útfæra verkefnið. Stefnt er að því að leggja frumvarpið, lítillega breytt, í ráðgefandi atkvæðagreiðslu samhliða forsetakosningum. 26.1.2012 19:14
Nauðgunardómur þyngdur um eitt ár Liðlega þrítugur karlmaður, Grétar Torfi Gunnarsson, var dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir að hafa nauðgað konu á dvalarstað sínum og beitt hana ofbeldi eftir að þau, ásamt fleira fólki, hittust á veitingastað en fóru svo á dvalastað Grétars. Hann var einnig dæmdur til að greiða konunni 1,2 milljónir í miskabætur með vöxtum. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður dæmt Grétar í þriggja ára fangelsi og þyngdi Hæstiréttur því dóminn um eitt ár. Ákvörðun um refsingu var tekin með tilliti til þess að brotavilji Grétars var sagður vera einbeittur, brotið alvarlegt og það hafi valdið konunni líkamlegum áverkum og vanlíðan. 26.1.2012 17:59
Hæstiréttur vítir lögreglu, ákæruvald og héraðsdóm Hæstiréttur sýknaði í dag karlmann sem hafði verið dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness í tveggja ára fangelsi fyrir innflutning á tveimur kílóum á kókaíni. Hæstiréttur taldi ekki að sekt mannsins hafi verið sönnuð og að meðferð málsins hafi farið úr skorðum. Taldi Hæstiréttur meðal annars að brotið hefði verið gegn ákvæðum laga um meðferð sakamála um trúnað sakbornings og verjanda og um bann við framlagningu gagna sem hafa að geyma upplýsingar um það þeim hefur farið á milli. 26.1.2012 17:13
Nöfn þeirra sem er saknað Nöfn mannanna sem eru taldir af eftir sjóslys í Noregshafi í gærdag þegar togarinn Hallgrímur SI-77 fórst, hafa verið gerð opinber. 26.1.2012 16:26
Keyptu úr fyrir 2 milljónir með fölsuðum kortum Tveir karlmenn frá Malasíu voru dæmdir í fangelsi 9 mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag, þar af eru sex mánuðir skilorðsbundnir. Mennirnir keyptu rólex úr í verslun í Reykjavík að verðmæti rúmlega tveggja milljóna króna með tveimur fölsuðum greiðslukortum en bæði kortin voru með stolnum upplýsingum um greiðslukortanúmer annarra korthafa á kortinu og í segulrönd. Mennirnir fóru þó aldrei út úr búðinni, með úrin, þar sem starfsmenn búðarinnar hringdu á lögreglu eftir að greiðsluposinn gaf til kynna að kortin væru vákort. Þá sviku mennirnir einnig út gistingu á hóteli með sömu aðferð. Þegar mennirnir voru handteknir voru þeir með 25 slík kort í fórum sínum. Þeir neituðu sök fyrir dómara og sögðust ekki vita að kortin væru fölsuð. 26.1.2012 15:45
Zia Mahmood spilar á Bridge-hátíðinni í Reykjavík Einn kunnasti briddsspilari heims, Pakistaninn Zia Mahmood, er meðal þátttakenda á Reykjavíkur Bridge-hátíðinni, sem nú er hafin á Hótel Loftleiðum. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, setur mótið formlega klukkan 19 í kvöld. Briddshátíðin, sem að þessu sinni heitir Iceland Express Reykjavík Bridgefestival, hefur verið haldin ár hvert síðan 1982. 26.1.2012 15:39
Björg Eva Erlendsdóttir kjörin í stjórn RÚV Björg Eva Erlendsdóttir var kjörin í stjórn Ríkisúvarpsins ohf. í stað Svanhildar Kaaber. Kosið var í stjórn RÚV á Alþingi í morgun. Björg Eva hefur sjálf unnið sem fréttamaður í áraraðir auk þess sem hún á lítinn hlut í fréttavefnum Smugunni.is sem Vinstri grænir eiga stærstan hlut í. 26.1.2012 15:12
Útskrifaður af sjúkrahúsinu í Álasundi Sjómaðurinn, sem bjargað var í gær eftir að togarinn Hallgrímur fórst í Noregshafi, var útskrifaður af sjúkrahúsinu í Álasundi eftir hádegi í dag. Samkvæmt upplýsingum frá Arndt Sommerlund, upplýsingafulltrúa sjúkrahússins, reyndust áverkar hans ekki þess eðlis að ástæða væri til að hann dveldi lengur á sjúkrahúsinu en hann hyggst leita sér aðstoðar og áfallahjálpar þegar hann kemur heim til Íslands. Maðurinn er 36 ára gamall. 26.1.2012 15:12
Ótrúlega erfiðar aðstæður við björgun sjómannsins Norski þyrluflugmaðurinn Olver Arnes segir í viðtali við NRK að björgunaraðgerðir á Norðurhafi í gærdag hafi verið einstaklega erfiðar. Hann var á annarri björgunarþyrlunni af tveimur, sem var við leit, þegar Hallgrímur SI-77 sökk í gærdag. 26.1.2012 14:49
Hélt að bílnum hefði verið stolið - fann hann svo í snjóskafli Snjórinn sem liggur nú yfir allri borginni hefur ruglað suma í ríminu. Þannig hafði bíleigandi einn samband við lögreglu og tilkynntu að bílnum hefði verið stolið. Boðaði hann komu sína á lögreglustöð til þess að leggja fram formlega kæru í málinu. 26.1.2012 14:30
Yfirvofandi uppsagnir hjá Vinnumálastofnun Á félagsfundi SFR stéttarfélags sem haldinn var í gær að frumkvæði starfsmanna Vinnumálastofnunar kom fram mikil óánægja meðal fundarmanna vegna fyrirhugaðs tilraunaverkefnis sem felur í sér að hluti starfsemi stofnunar muni færist yfir á skrifstofur stéttarfélaga. 26.1.2012 14:11
Gætið ykkar á asahlákunni; svona forðast þú tjón Sjóvá vekur athygli á að spáð er rigningu og hita næstu daga og því er von á hláku og vatnsveðri. Reynslan undanfarnar vikur sýnir að flest tjón við þessar aðstæður hafa orðið þar sem ekki var nægilega vel hreinsað frá niðurföllum, snjór hreinsaður af svölum eða þökum. Þetta eru tjón sem í mörgum tilfellum hefði verið hægt að koma í veg fyrir. 26.1.2012 13:57
Vegurinn um Víkurskarð lokaður vegna umferðaróhapps Vegurinn um Víkurskarð er lokaður um óákveðinn tíma vegna umferðaróhapps. Vegna veðurs verður Hellisheiði einnig lokuð um óákveðin tíma. 26.1.2012 13:45
Margir á sumardekkjum í snjónum Mikil snjókoma hefur verið á höfuðborgarsvæðinu síðustu daga, eins og ætti að vera öllum ljóst. Í gær aðstoðaði lögreglan fjölmarga ökumenn sem sátu fastir víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu. Í tilkynningu frá lögreglu segir að það hafi vakið athygli að í allnokkrum tilvikum var um að ræða bíla sem voru búnir sumardekkjum. "Það verður að teljast heldur mikil bjartsýni að ætla sér að komast leiðar sinnar með slíkan búnað undir bílnum við þær aðstæður sem nú eru í umdæminu. Vegna þessa ítrekar lögreglan það við ökumenn að þeir leggi ekki af stað á vanbúnum bílum,“ segir í tilkynningu frá lögreglu. 26.1.2012 13:33
Jóhann Hauksson ráðinn upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar Jóhann Hauksson, blaðamaður, hefur verið ráðinn til forsætisráðuneytisins sem upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar. 26.1.2012 13:20
Hamagangur á Reykjanesbrautinni - myndband Mikið gekk á við Reykjanesbrautina í morgun en henni var lokað á miðnætti í gær og opnuð um klukkan hálf ellefu í morgun. Fjölmargir bílar sitja fastir og aðstoðuðu björgunarsveitarmenn ökumenn að komast til síns heima í nótt. Þó að búið sé að opna brautina eru ökumenn hvattir til þess að aka rólega og af yfirvegun. 26.1.2012 13:18
Ógnaði björgunarsveitarmanni sem þurfti að flýja inn í bíl Ófærðin fer illa í suma sem sannaðist í Reykjanesbæ í morgun þegar ökumaður veittist að björgunarsveitarmanni og ógnaði honum. Björgunarsveitarmaðurinn sá þann kost vænstan að flýja inn í bíl og læsa að sér og þá barði maðurinn í rúðuna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörgu. Að lokum var lögregla kölluð til og skakkaði hún leikinn. 26.1.2012 12:14
Tveir mannanna frá Suðurnesjum Tveir af sjómönnunum þremur sem eru taldir af eftir að togarinn Hallgrímur SI-77 fórst í Noregshafi í gærdag, eru frá Suðurnesjum. Ekki er hægt að greina frá nöfnum þeirra að svo stöddu. Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta. 26.1.2012 12:09
Hættuástandi vegna snjóflóða aflýst á Ísafirði og Hnífsdal Hættuástandi vegna snjóflóða hefur verið aflýst á Ísafirði og í Hnífsdal og þeim sem gert var að rýma hús sín fengið að snúa aftur. 26.1.2012 12:06
Tafir á dreifingu Fréttablaðsins Dreifing Fréttablaðsins hefur farið úr skorðum í dag enda ófærðin með eindæmum mikil í höfuðborginni og í nágrannasveitarfélögum. Hannes Hannesson framkvæmdastjóri Póstdreifingar sem sér um að dreifa blaðinu segir að ástandið sé mjög slæmt á öllum göngustígum á höfuðborgarsvæðinu. „Borgar og bæjaryfirvöld eru einfaldega ekki að sinna mokstri nægilega vel," segir Hannes og bendir á að þegar fari að blása í skaflana sem safnast hefur í, eins og gerði í nótt, þá verði einfaldlega allt ófært. 26.1.2012 11:14
Sjómaðurinn var í þrjár og hálfa klukkustund í sjónum Íslenski sjómaðurinn, sem var bjargað úr Noregshafi í gærdag, var búinn að vera í þrjár og hálfa klukkustund í sjónum þegar þyrlu norsku gæslunnar fann hann. Maðurinn var vel búinn enda komst hann í flotbúning áður en togarinn Hallgrímur SI-77 sökk í gærdag. 26.1.2012 11:01
Stúdentar kvarta til umboðsmanns Alþingis vegna einkunnaskila Stúdentaráð Háskóla Íslands hefur kvartað til umboðsmanns Alþingis ástand einkunnaskila við Háskóla Íslands. Í yfirlýsingu frá ráðinu er bent á að samkvæmt reglum skólans skuli skila einkunnum innan tveggja vikna, en auka vika er veitt yfir jólin. 26.1.2012 10:46
Reykjanesbrautin opin en þungfær Vegagerðin hefur nú opnað Reykjanesbrautina. Lögreglan á Suðurnesjum hvetur fólk þó til þess að sýna sérstaka tillitssemi og varúð. Mælst er til þess að menn taki ekki fram úr heldur aki rólega og af yfirvegun. Enn skefur mikið þótt ofankoma sé hætt og verst er ástandið við afleggjarana til Grindavíkur og til Voga. 26.1.2012 10:40
Saksóknarar segja ekkert hafa breyst í landsdómsmálinu Sigríður J. Friðjónsdóttir og Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknarar Alþingis, segja ekkert hafa breyst efnislega í málinu frá því ákært var í því. 26.1.2012 10:38
Rautt þýðir ófært Það hefur varla farið framhjá neinum að víðast hvar um land er ófært eða mjög þungfært. Á heimasíðu Vegagerðarinnar er að finna kort af öllum landsfjórðungum þar sem færð er skráð í rauntíma. Svona var staðan klukkan tíu í morgun en rauðu vegirnir eru ófærir. Eins og sjá má eru Vestfirðir til að mynda kolófærir og þá er kolófært víðast hvar á Suðvesturlandi. 26.1.2012 10:09
Rútur í fylgdarakstri á Reykjanesbrautinni - ófært á Vestfjörðum Rútur og vel búnir bíla eru í fylgdarakstri starfsmanna Vegagerðarinnar á Reykjanesbraut þessa stundina. Verið er að ryðja götuna og bílar aka á eftir snjóruðningstækjunum. 26.1.2012 10:03
Brottför Herjólfs frestast til hádegis Búið er að fresta brottför Herjólfs til hádegis í dag. Í tilkynningu segir að brottför Herjólfs vrður kl. 12 frá Eyjum og kl. 17 frá Þorlákshöfn. Aðeins verður farin ein ferð í dag og því ferðir dagsins sameinaðar í eina. 26.1.2012 09:49
Náðu þjófi á hlaupum með kannabisplöntu í fanginu Lögreglan fékk ábendingu um að brotist hafi verið inn í hús við Hverfisgötu í Reykjavík rétt fyrir miðnætti, og náði innbrotsþjófnum á hlaupum skömmu síðar. Hann reyndist vera með kannabisplöntu á sér, sem hann hafði stolið í húsinu. 26.1.2012 09:43
Illfært í húsagötum - 35 tæki vinna við ruðning Vegna snjóþyngsla er víða illfært í Reykjavík, einkum í húsagötum og á bílastæðum. Klukkan fjögur í nótt voru um 35 tæki Reykjavíkurborgar og verktaka á hennar vegum farin af stað til snjóhreinsunar samkvæmt tilkynningu frá borginni. 26.1.2012 09:38
Norska varðskipið Bergen sent til leitar á Noregshafi Norska varðskipið Bergen er á leið á hafsvæðið þar sem togarinn Hallgrímur SI-77 sökk í gærdag. 26.1.2012 08:44
Reykjanesbraut aftur lokuð í báðar áttir Reykjanesbrautin er aftur lokuð í báðar áttir. Lögreglan á Suðurnesjum segir að hinsvegar sé nú opið frá Sandgerði og Garði upp á Keflavíkurflugvöll og til Keflavíkur. 26.1.2012 08:09
Telja tölvupóst frá Steingrími setja málið í sérkennilegt ljós Óútskýrð atburðarás fór af stað vorið 2009, eftir að Baldri Guðlaugssyni, fyrrverandi ráðuneytisstjóra, var tilkynnt um niðurfellingu máls hans af hálfu Fjármálaeftirlitsins og hann hugðist snúa aftur til starfa í fjármálaráðuneytinu. Þetta sagði verjandinn Karl Axelsson þegar hann flutti málsvörn Baldurs fyrir Hæstarétti í gær. Í greinargerð Baldurs til réttarins segir að atburðarásin setji málið í besta falli í sérkennilegt samhengi. 26.1.2012 08:00
Fyrri ferð Herjólfs frestast til kl. 10 Fyrri ferð Herjólfs í dag hefur verið frestað til kl. 10 vegna ófærðar til og frá Þorlákshöfn, að því segir í tilkynningu. 26.1.2012 07:46
Búið að opna Reykjanesbrautina í suðurátt Búið er að opna Reykjanesbraut í aðra áttina eða frá Hafnafirði til Keflavíkur en ekki búið að hleypa umferð á frá Keflavík til Hafnafjarðar. Þetta kemur fram í uppfærðri tilkynningu frá Vegagerðinni. 26.1.2012 07:41
Reykjanesbrautin lokuð um óákveðinn tíma Vegna veðurs verður Reykjanesbrautin, Hellisheiði og Þrengslin lokuð um óákveðin tíma. Hættustigi hefur varið lýst yfir á Súðavíkurhlíð og Eyrarhlíð og eru þessar leiðir því lokaðar. 26.1.2012 07:19