Fleiri fréttir

Gætu þurft að borga yfirvöldum

Fyrirtæki á Leifsstöð og íslensk flugfélög gætu þurft að greiða gjald til lögregluyfirvalda fyrir afgreiðslu á starfsmannaumsóknum. Starfsfólk þarf viðurkenndan aðgangspassa frá yfirvöldum til að komast leiðar sinnar á flugvellinum.

Skákdagurinn haldinn í dag

Skákdagur Íslands er haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn í dag, á 77 ára afmælisdegi stórmeistarans Friðriks Ólafssonar.

Eyjamenn fá nýja ferju eftir þrjú ár

Ný ferja mun hefja siglingar milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja ekki síðar en árið 2015. Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að láta smíða skipið í ljósi þeirra vandamála sem komið hafa upp með siglingar Herjólfs til hafnarinnar síðan hún var tekin í notkun um mitt ár 2010. Talið er að ferjan kosti um fjóra milljarða króna.

Segja skýrsluna meingallaða

Skýrsla Hagfræðideildar Háskóla Íslands um kostnað við niðurfærslu íbúðarlána er meingölluð að mati Hagsmunasamtaka heimilanna.

Fundu mannlausan björgunarbát

Aftenposten í Noregi greinir frá því að leitarmenn hafi fundið mannlausan björgunarbát í kvöld. Þriggja manna er saknað eftir að skipið Hallgrímur SI-77 sökk um 270 kílómetrum frá Stad, nærri Álasundi, um klukkan hálf tvö í dag.

Togarinn sem sökk heitir Hallgrímur SI-77

Búið er að greina frá nafni skipsins sem sökk í Noregi í fjölmiðlum þar í landi. Togarinn heitir Hallgrímur SI-77 og er frá Siglufirði. Búið er að ná í alla aðstandendur mannanna sem voru um borð í togaranum. Eins og greint hefur verið frá þá hefur einum manni verið bjargað. Hann var fluttur til Álasunds og er ástand hans gott.

84 prósent af 4000 Ipod-spilurum voru keyptir erlendis

84 prósent iPod Nano-spilara, sem voru afturkallaðir hér á landi í nóvember á síðasta ári, voru keyptir í útlöndum. Þetta kemur fram í viðtali við Bjarna Ákason, framkvæmdastjóri hjá Epli.is, sem selur Apple vörur. Við hann var rætt í Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag þar sem þetta kom fram.

Sjómaðurinn vel á sig kominn - þriggja enn leitað

Maðurinn, sem var bjargað úr sjónum síðdegis, er kominn í land, og er vel á sig kominn. Þriggja er enn saknað eftir að íslenskur togari sökk um 270 kílómetrum norðvestur af Stad sem er nærri Álasundi.

Vill ívilnun frá iðnaðarráðherra til að leigja Grímsstaði

Kínverjinn Huang Nubo hefur á grundvelli nýlegra laga um ívilnanir sótt um undanþágu til iðnaðarráðherra til langtímaleigu á Grímsstöðum á Fjöllum í því skyni að reisa þar lúxushótel en einnig til að reisa fimm stjörnu hótel á Reykjavíkursvæðinu. Ósk Nubos í fyrrasumar um að kaupa Grímsstaði olli uppámi innan ríkisstjórnarinnar en svo fór á endanum að Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra synjaði fyrirtæki Nubos um undanþágu til að kaupa jörðina.

Átti að selja skipið í brotajárn - fárviðri á svæðinu

Skipið, sem sökk nærri Noregi, var á leiðinni þangað þar sem selja átti það í brotajárn. Ekki er gefið upp hvað togarinn heitir en þriggja manna er saknað eins og Vísir hefur greint frá eftir að skipið sökk fyrr í dag. Norskir fjölmiðlar telja að þeir séu allir Íslendingar.

Gagnrýna greinargerð hagfræðideildar harðlega

Hagsmunasamtök Heimilanna vísa greinargerð Hagfræðideildar Háskóla Íslands um kostnað við niðurfellingu íbúðalána til föðurhúsanna eins og það er orðað og segja samtökin greinargerðina meingallaða. Í tilkynningu frá þeim segir að farið sé rangt með tölur og að margar meinlegar villur sé þar að finna. Birting á greinargerðinni er því að mati samtakanna hvorki til þess fallin að styrkja orðspor Hagfræðistofnunar né auka traust til stjórnvalda.

200 þúsund sáu flugeldasýningu Íslendinga

Yfir 200.000 nýttu sér vefmyndavélar Mílu til að fylgjast með flugeldasýningu Íslendinga á gamlárskvöld. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að Míla hafi sett upp vefmyndavélar fyrir áramótin til þess að streyma beint frá áramótunum en vélar voru settar upp í Reykjavík og á Akureyri. Heimsóknir voru víðs vegar að úr heiminum, flestar frá Evrópu og Bandaríkjunum.

Rýming á Ísafirði vegna snjóflóðahættu

Lögreglustjórinn á Ísafirði, í samráði við Veðurstofu Íslands, hefur ákveðið að láta rýma iðnaðarsvæði undir Seljalandshlíð á Ísafirði vegna snjóflóðahættu. Það hefur snjóað mikið í dag á svæðinu en rýmingu á að vera lokið klukkan 17, samkvæmt upplýsingum frá Almannavörnum. Ákvörðun um frekari rýmingu verður tekin í kvöld. Vegirnir um Súðavíkurhlíð og Eyrarhlíð eru lokaðir vegna snjóflóðahættu og nokkur snjóflóð hafa fallið í dag á Siglufjarðarvegi.

Tafir á Reykjanesbraut við Mjódd vegna áreksturs

Árekstur varð á Reykjanesbraut nú fyrir stundu til móts við Mjóddina í Breiðholti. Samkvæmt upplýsingum frá árekstur.is eru miklar tafir í suðurátt vegna óhappsins og eru ökumenn beðnir um að sýna þolinmæði.

Landsbjörg varar ferðalanga við

Slysavarnafélagið Landsbjörg varar fólk eindregið við því að halda á fjöll á norðanverðum Vestfjörðum og á Norðurlandi nú þegar snjóflóðahætta er víða á svæðinu. Í tilkynningu segir að snjóflóð gætu einnig fallið víðar, sérstaklega þar sem fólk er á ferðinni, t.d. á vélsleðum og því ætti enginn að vera á ferð í fjalllendi nema kunna að meta snjóflóðahættu og vera með snjóflóðaýli, stöng og skóflu.

Yfirlýsing: Egill vill formlega rannsókn á röngum sakargiftum

Egill Einarsson, sem á síðasta ári var kærður ásamt unnustu sinni fyrir nauðgun segir að kæran eigi ekki við rök að styðjast og vísar í rannsóknargögn lögreglu. Hann hyggst fara fram á að lögregla rannsaki nú hvort um vísvitandi rangar sakargiftir á hendur sér hafi verið að ræða. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Egill sendir frá sér í dag. Ríkissaksóknari hefur kæruna á hendur Agli nú til umfjöllunar en á dögunum barst önnur kæra til lögreglu.

Vegum víða lokað vegna snjóflóðahættu

Nokkur snjóflóð hafa fallið í dag á Siglufjarðarvegi og hefur honum nú verið lokað að því er fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. Búast má við snjóflóðahættu víða á vegum á Vestfjörðum í dag miðað við veðurspá. Eins er búist við snjóflóðahættu í Ólafsfjarðarmúla og á norðanverðum Tröllaskaga í dag.

Með 53 kannabisplöntur

Karlmaður fæddur árið 1983 var dæmdur í sextíu daga fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár, fyrir fíkniefnalagabrot í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Maðurinn játaði að hafa tæplega hálft gramm af marijúana og fimmtíu og þrjá kannabisplöntur í fórum sínum. Maðurinn þarf að greiða rúmlega 70 þúsund krónur í málskostnað og þá voru ýmis tól og tæki sem notuð eru við kannabisræktun gerð upptæk.

Volvo V50 saknað

Dökkgrænum Volvo V50 station var stolið þaðan sem hann stóð fyrir utan húsnæði KFUM-K á Holtavegi í Reykjavík í gærkvöld, þriðjudagskvöldið 24. janúar. Númerið á bílnum er RD-526. Þeir sem hafa orðið varir við bílinn eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1000.

Lýtalæknar neita enn að afhenda landlækni upplýsingar

Lýtalæknar neita enn að afhenda landlækni upplýsingar um sílíkonaðgerðir á brjóstum. Málið er nú á borði Persónuverndar. Landlæknisembættið ítrekaði í ársbyrjun beiðni sína um gögn frá lýtalæknum og er fresturinn útrunninn.

Austfirðingar segja Reykjavík afsala sér hlutverki höfuðborgar

Samband sveitarfélaga á Austurlandi segir í bréfi til forsætisráðherra ljóst að Reykjavíkurborg muni afsala sér hlutverki sínu sem höfuðborg allra landsmanna, verði af áformum borgarstjórnar að leggja af Reykjavíkurflugvöll og nauðsynlegt sé að hefjast þegar handa um breytingar á opinberri stjórnsýslu.

Hættustigi lýst yfir á Súðavíkurhlíð - veginum lokað

Varúðarstiginu á Súðavíkurhlíð hefur nú verið breytt í hættustig og hefur veginum á milli Súðavíkur og Ísafjarðar verið lokað. Nokkur lítil snjóflóð hafa þegar fallið á veginn. Víðar á Vestfjörðum er hætta talin á snjóflóðum og er ófært frá Ísafirði til Flateyrar og Suðureyrar.

Yrsu sárnaði gagnrýni Kolbrúnar og Páls Baldvins

"Allt sem þau sögðu um mig var svo hrikalega neikvætt að ég varð orðlaus. Þau efuðust meira að segja um söluna á bókinni og að sölulistarnir væru réttir. Hvað með öll hin árin sem þessir listar hafa verið birtir? Mér fannst þau ekki sanngjörn," segir Yrsa Sigurðardóttir en henni sárnaði gagnrýni Kolbrúnar Bergþórsdóttur og Páls Baldvins Baldvinssonar á nýjustu bók hennar Brakinu í Kiljunni fyrir jól.

Ólæsir drengir stærsta vannýtta auðlind þjóðarinnar

"Í þessum fjórðungi stráka sem ekki geta lesið sér til gagns liggur stærsta vannýtta auðlind þjóðarinnar - tækifærin eru svo mörg að þau fylla heilu bókasöfnin. Ef ekki er brugðist við af krafti blasir við að strákarnir okkar og þjóðin öll - falli niður í þriðju deild," segir Andri Snær Magnason, rithöfundur, í grein í Fréttablaðinu í dag.

Ný Vestmannaeyjaferja í síðasta lagi 2015

Gert er ráð fyrir því að ný ferja geti hafið siglingar í Landeyjahöfn í síðasta lagi árið 2015. Þetta kemur fram í tilkynningu frá innanríkisráðuneytinu en ráðuneytið kynnti áformin á fundi í dag. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur ásamt Vestmannaeyjabæjar, Siglingastofnunar og Vegagerðarinnar farið yfir stöðuna varðandi siglingar í Landeyjahöfn og á þeim fundum hefur verið fjallað um smíði nýrrar ferju, fyrirkomulag siglinga þar til ný ferja verður komin í gagnið, líklega þróun sandburðar við Landeyjahöfn og rannsóknir sem framundan eru. "Við fjármögnun verður litið til verkefnisins í heild sinni, þ.e. smíði nýrrar ferju og aðgerða til aðlögunar Landeyjahafnar að breyttum náttúrulegum aðstæðum.“

Snjóflóðahætta: Varúðarstigi lýst yfir á Súðavíkurhlíð

Vegagerðin hefur lýst yfir varúðarstigi á Súðavíkurhlíð vegna snjóflóðahættu. Geir Sigurðsson hjá Vegagerðinni á Ísafirði segir að veginum á milli Súðavíkur og Ísafjarðar hafi ekki verið lokað, en að mælst sé til þess að fólk fari ekki um hann nema brýnustu nauðsyn beri til.

Vetrarvertíðin gengur vel í hvalaskoðuninni

Vetrarvertíðin í hvalaskoðun hefur gengið sérlega vel í ár að sögn Rannveigar Grétarsdóttur hjá Eldingu. Hún segir að mikið kapp hafi verið lagt á það að undanförnu að kynna Ísland sem ferðamannastað allt árið en á síðasta ári hófst samstarf opinberra aðila, einkaaðila og sveitarstjórna undir verkefnisheitinu "Ísland - Allt árið". Átakið hefur það að markmiði að jafna árstíðarsveiflu í komu ferðamanna, skapa ný störf í ferðaþjónustu og auka arðsemi af greininni.

Hefur safnað 40 milljónum: "Ótrúlega þakklátur fyrir stuðninginn"

"Ég fór út í þetta með það markmið að ég myndi ekki hætta fyrr en þetta myndi takast, en ég vissi ekki hversu langan tíma þetta tæki," segir Guðmundur Felix Grétarsson, sem hóf að safna fyrir handaágræðslu í september síðastliðnum en aðgerðin mun fara fram í Frakklandi.

Íslenski hesturinn á toppnum

Hestaleigan Íslenski hesturinn er í þriðja sæti ferðavefsíðunnar Tripadvisor yfir hluti sem mælt er með að gera í allri Evrópu. Leigan er eina hestaleigan í Reykjavík og er þjónustan lofuð í hástert af fyrrum viðskiptavinum.

Eldsvoði á Ísafirði

Nokkurt tjón varð þegar eldur kviknaði í háfi yfir eldavél á veitingastað í verslanamiðstöðinni Neistanum á ísafirði um sex leitið í gærkvöldi þannig að eldur og reykur stóðu upp úr húsinu.

Vonar að línur skýrist bráðlega

Línur eru ekki enn farnar að skýrast að ráði í bæjarstjórnarmálum í Kópavogi, en viðræður um meirihlutamyndun hafa nú staðið í rúma viku án árangurs.

Ögmundur boðar til blaðamannafundar

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur boðað til blaðamannafundar fyrir hádegi og er fundarefnið siglingar milli Landeyjahafnar og Eyja.

Ölvaður ökumaður ók á tvo ljósastaura

Ölvaður ökumaður var handtekinn á hlaupum í vesturborginni eftir að hafa ekið á tvo ljósastaura og hafnað á einskonar handriði við Landakotsspítala, þar sem bíllinn festist

Reynt að koma húsinu í rétt horf

Töluverðar skemmdir urðu á veitingastaðnum Sjávargrillinu á Skólavörðustíg þegar eldur kom upp í þvottahúsi í kjallara staðarins aðfaranótt þriðjudags. Talið er að eldurinn hafi kviknað út frá rafmagnstæki, hugsanlega þvottavél.

Sjö helgar kosta 13,5 milljónir

Stjórn skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins áætlar að það kosti 13,5 milljónir að reka skíðasvæðið í Skálafelli í sjö helgar í vetur. Nýtt belti á snjótroðara kostar 5 milljónir að sögn Diljár Ámundadóttur, formanns stjórnar.

Lögreglan stöðvaði mannrán á Ártúnshöfða

Karl og kona eru í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir að þau voru stöðvuð á bíl á Ártúnshöfða á ellefta tímanum í gærkvöldi og leikur grunur á að farþegi sem var með þeim í bílnum, hafi verið þar nauðugur, enda skelkaður en ómeiddur.

Sjá næstu 50 fréttir