Fleiri fréttir

Bílvelta á Vesturlandsvegi

Ökumaður velti bíl sínum á Vesturlandsvegi á fimmta tímanum í dag. Tækjabíll frá slökkviliðinu var kallaður út auk lögreglu og sjúkraliðs, en ekki er vitað hvort alvarleg meiðsl hafi orðið.

Þroskahamlaðir borga meira fyrir matinn en borgarfulltrúar

Þroskahamlaðir starfsmenn Reykjavíkurborgar greiða meira fyrir hádegismat en borgarfulltrúar og embættismenn í Ráðhúsi Reykjavíkur. Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi VG, vekur máls á þessu atriði á bloggi sínu á vefsvæði Smugunnar.

Straumsvíkursmygl: Meintur smyglari áfram í gæsluvarðhaldi

Hæstiréttur Íslands staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóm Reykjavíkur yfir karlmanni sem er grunaður um að hafa smyglað tæpum tíu kílóum af amfetamíni, rúmlega átta þúsund MDMA töflum og talsverðu magni af sterum til landsins

Fólk beðið um að spara rafmagnið

Erfiðlega gengur að koma rafmagni á alla notendur í Ólafsvík og Hellissandi rafmagn fór af bæjunum og Rifi um klukkan níu í morgun þegar bilun varð á flutningslínunni frá Vegamótum til Ólafsvíkur.

Mæðgur frá Brisbane sáu norðurljósin en ekki Lárus Welding

"Við erum bara ævintýragjarnar konur," sagði Margret Murphy sem, ásamt dóttur sinni, sátu í þingfestingu dómsmáls gegn Lárusi Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, og Guðmundi Hjaltasyni, fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Glitnis. Hvorugir mættu í þingfestingu Svartháfsmálsins svokallaða í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag því báðir voru þeir staddir erlendis.

Frost á Langjökli - veðrið hamlar tökum

Rúmlega tuttugu manna kvikmyndatökulið er nú að tygja sig niður af Langjökli sökum veðursins sem gengur yfir landið. Verið er að gera hörkuspennandi íslenskan vísindatrylli sem á að heita Frost en myndin er í leikstjórn Reynis Lyngdal.

Fékk sér PIP brjóst og missti hárið

Tveggja barna móðir byrjaði að missa hárið eftir að hún fékk sílíkonpúða frá PIP. Hún fann fyrir margs konar öðrum óþægindum og hafði samband við landlækni, sem aðhafðist ekkert.

Nokkrir klukkutímar þar til álið storknar

Starfsmenn Norðuráls eru í miklu kappi við tímann eftir að rafmagnslaust varð í álverinu á Grundartanga. Nú er búið að vera rafmagnslaust í tvo og hálfan klukkutíma - en samkvæmt upplýsingum frá Norðuráli er talið að ekki megi vera rafmagnslaust lengur en þrjá til fjóra klukkutíma.

Eldur í fjölbýlishúsi

Eldur er kominn upp í fjölbýlishúsi að Grensásvegi 60. Allar stöðvar slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins eru á leið á vettvang. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu eru að minnsta kosti þrír sjúkrabílar og tveir slökkviliðsbílar fyrir utan blokkina. Nánari upplýsingar þegar þær berast.

Álverið á Grundartanga án rafmagns - mikið tjón getur orðið

Rafmagnslaust er í álverinu á Grundartanga og vinnur nú Landsnet að viðgerð. Ágúst Hafberg, upplýsingafulltrúi Norðuráls, segir í samtali við fréttastofu að ekki sé ljóst hvað olli því að rafmagnið í álverinu sló út en líklega sé það vegna veðurs. Ef álverið er án rafmagns í meira en örfáa klukkutíma getur tjónið hlaupið á milljörðum. Rafmagn hefur slegið út víðsvegar um land í dag og í kvöld.

Rafmagnslaust á Akranesi

Rafmagnslaust er á Akranesi en rafmagn í bænum sló út fyrir nokkrum mínútum síðan. Að sögn bæjarbúa sem fréttastofa talaði við fyrir stundu er allt svart og kertaljós eru í öllum gluggum. Ekki er vitað hvenær rafmagnið kemst aftur á. Ekki náðist í upplýsingafulltrúa Orkuveitu Reykjavíkur við vinnslu fréttarinnar.

Opnar nýjan vef um ferðamennsku

Fyrirtækið Já opnar nýjan vef sem ætlað er að veita erlendum ferðamönnum betra aðgengi að upplýsingum um Ísland og vörur og þjónustu sem þeim standa til boða hér á landi. Vefurinn, sem verður á slóðinni www.iceland.ja.is er samstarfsverkefni Já og aðila í íslenskri ferðaþjónustu, og verða íslensk fyrirtæki sýnilegri ferðamönnum bæði áður en þeir koma til landsins og á meðan á dvöl þeirra stendur. Öll þau fyrirtæki sem þegar eru skráð hjá Já verða sjálfkrafa skráð á hinn nýja vef þeim að kostnaðarlausu.

Reykjanesbrautin þokkalega fær þrátt fyrir éljagang

Loka þurfti Reykjanesbraut til móts við Stekki um tíma rétt fyrir hádegið vegna umferðaróhapps. Tveir bílar skullu saman enda skyggni með eindæmum slæmt. Engin meiðsli urðu á fólki. Brautin hefur verið opnuð aftur og að sögn lögreglu þokkalega fær þótt ekki sé færðin góð. Gengið hefur á með mjög dimmum og hvössum éljum og hefur það gert ökumönnum mjög erfitt fyrir á stundum.

Lekir PIP púðar fjarlægðir - ríkið borgar

Konur sem fengu ígrædda PIP-brjóstapúða á árunum 2000 - 2010 og eru sjúkratryggðar hér á landi munu fá bréf á næstu dögum þar sem þeim verður boðið að koma sér að kostnaðarlausu í ómskoðun á brjóstum til að kanna ástand púðanna. Reynist púðar lekir tekur ríkið þátt í kostnaði við að fjarlægja þá samkvæmt almennum reglum um greiðsluþátttöku hins opinbera vegna aðgerða. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra kynnti aðgerðaáætlun heilbrigðisyfirvalda vegna þessa máls á fundi ríkisstjórnar í dag.

Reykjanesbrautin lokuð vegna óhapps

Búið er að loka Reykjanesbrautina frá Stekk, til Reykjavíkur vegna umferðaróhapps. Þar er slæm færð, mikil hálka og ekkert ferðaveður. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum má gera ráð fyrir því að vegurinn verði lokaður næsta hálftímann.

Gáfust upp á að moka Hellisheiðina

Starfsmenn Vegagerðarinnar gerðu tilraun til þess að skafa Hellisheiðina í morgun. Þeir gáfust upp um klukkan hálftíu í morgun, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi. Veðrið á Heiðinni mun vera vonlaust til slíkra framkvæmda og hefur heldur bætt í þar heldur en að það hafi dregið úr.

Seinkanir hjá Strætó og ekki ekið út á land

Ófærðin á höfuðborgarsvæðinu og í nágrannasveitarfélögum hefur komið niður á almenningssamgöngum. Ekki hefur verið ekið austur fyrir fjall eða upp á Akranes vegna færðarinnar og þá eru seinkanir á flestum leiðum á höfuðborgarsvæðinu. Strætó biður viðskiptavini sína velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta veldur.

Víkurskarði yrði að loka fyrir göngin

Pálmi Kristinsson stingur upp á því að Víkurskarði verði lokað til að tryggja tekjur Vaðlaheiðarganga. Pálmi gagnrýnir vinnubrögð fjármálaráðherra.

Vara sérstaklega við aðstæðum í Kollafirði

Umferðarstofa varar sérstaklega við því að brimið getur gengið yfir veginn í botni Kollafjarðar vegna hvassviðrisins og á köflum sé mjög erfitt að greina aðstæður vegna slæms skyggnis þar. Það geti verið óþægilegt fyrir ökumenn þegar þeir aka skyndilega ofan í vatnið á veginum. Ef ekki sé ekið varlega og á litlum hraða geta hjólin flotið með þeim afleiðingum að menn missa stjórn á bílnum. Það er mjög slæm færð og veður víðast hvar á landinu og vill Umferðarstofa hvetja ökumenn til að fara sér hægt og leggja ekki upp í för nema á vel útbúnum bílum.

Vilja aðgerðir gegn ólöglegu niðurhali

Samtök rétthafa horfa til fyrirhugaðra lagabreytinga í Noregi sem eiga að taka á ólöglegu niðurhali. Vona að frumvarp verði lagt fram hér fyrir vorið. Spænskir dómstólar geta nú lokað fyrir vefsíður.

Rútuferðum frestað vegna veðursins

Áætlunferðum sérleyfisbifreiða Sterna sem áttu að fara frá Snæfellsnesi til Reykjavíkur og frá Reykjavík til Akureyrar, Búðardals og Hólmavíkur í morgun var frestað. Ekkert varð heldur af ferðinni sem fara átti frá Akureyri til Reykjavíkur í morgun. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að athuga eigi klukkan hálf tólf hvort lagt verði af stað klukkan tólf.

Ekkert tilfelli af riðuveiki í fé

Ekkert nýtt tilfelli af riðuveiki greindist í sauðfé hér á landi á síðasta ári. Er það í fyrsta sinn, sem það gerist, síðan baráttan við þessa skaðræðisveiki hófst fyrir alvöru fyrir meira en 30 árum.

Rannsókn sýnir fram á skaðleg áhrif

Öndunarfæraeinkenni hjá fólki sem býr við raka í híbýlum sínum eru 30 til 50 prósent algengari en hjá þeim sem ekki búa við neinn raka.

Fjórir af hverjum tíu föngum fengu aldrei heimsókn í fyrra

Um 40 prósent fanga á Litla-Hrauni og Bitru fengu aldrei heimsóknir í fangelsið á síðasta ári. Þeim föngum hefur fjölgað frá árinu 2010, þegar hlutfallið var um 25 prósent. Verst yfir hátíðarnar, segir forstöðumaður.

Hellisheiði lokuð en unnið að mokstri í Þrengslum

Hellisheiði er enn lokuð vegna veðurs og ófærðar en búið er að opna fyrir umferð á Sandskeiði og unnið að mokstri í Þrengslum en þar er þæfingsfærð og stórhríð. Á Suðurlandi er annars víðast hvar þæfingsfærð ásamt éljagang og skafrenning er færð farin að spillast.

ÍTR skoðar opnun Skálafells

Skíðadeild KR hefur boðist til þess að starfa í sjálfboðavinnu í Skálafelli um helgar til þess að auðvelda opnun svæðisins, að því er Anna Laufey Sigurðardóttir, formaður deildarinnar, greinir frá. KR er með skíðaskála í Skálafelli og hefur ekki getað nýtt hann þar sem svæðið hefur verið lokað. Að sögn Önnu Laufeyjar er nýr mótor í stólalyftunni sem er 1.200 m löng.

Togaranum Bergey bjargað úr fárvirði

Togarinn Vestmannaey kom með togarann Bergey í togi til Eskifjarðar upp úr klukkan fjögur í nótt, en í þann mund fór vindhraðinn í firðinum upp í 35 metra á sekúndu, eða yfir 12 vindstigin gömlu, sem er fárviðri.

Ekkert lát á óveðri og ófærð á landinu

Björgunarsveitir víðast hvar á landinu voru kallaðar út í gærkvöldi til að aðstoða fólk í mörgum tugum bíla, sem sátu fastir og björgunarsveitir á Egilsstöðum, Reyðarfirði og í Neskaupstað voru kallaðar út til að hefta fok.

Ein björgunarþyrla í tvær til fjórar vikur

Landhelgisgæslan mun þurfa að reiða sig á eina björgunarþyrlu í allt að fjórar vikur frá miðjum janúar. Ákveðið hefur verið að leigja norska þyrlu til að leysa TF-LIF af hólmi meðan að skylduskoðun fer fram. Leiguþyrlan verður hins vegar ekki tilbúin til notkunar fyrr en tveimur til fjórum vikum eftir að LÍF fer af landi brott.

Skoða stöðu Jens eftir viðbrögð stjórnvalda

Jens Kjartansson verður áfram yfirmaður lýtalækninga á Landspítalanum, að minnsta kosti um sinn. Forstjóri spítalans bíður eftir ráðuneyti og landlækni. Tæplega fjörutíu konur hyggjast lögsækja Jens vegna hættulegra sílíkonpúða.

Kjaraskerðing verði afturkölluð nú þegar

Kjaranefnd Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni krefst þess að kjaraskerðing aldraðra og öryrkja frá 1. júlí 2009 verði þegar í stað afturkölluð með gildistíma frá 1. október 2011.

Útdeila sandi og salti til borgarbúa í hálku

Hálkan og ófærðin tekur á taugar íbúa höfuðborgarsvæðisins og sveitarfélögin fá á sig skæðadrífu gagnrýni. Borgarstjóri segir ekkert til sparað. Í Reykjavík fær fólk sand og salt á hverfastöðvum. Salta á allar götur í Kópavogi í vikunni.

Félagar glæpagengja ganga um vopnaðir

Greiningardeild telur glæpagengi smygla skotvopnum til landsins og bera þau á götum úti. Erlend gengi séu skipuð stórhættulegum mönnum sem hlotið hafi herþjálfun. Framleiðsla á mjög sterku amfetamíni hefur stóraukist hér á landi.

Loðnuveiðin fer bærilega af stað

Loðnuveiðin fór vel af stað á nýju ári. Hjá HB Granda hefur vinnsla gengið vel en 25 til 30 prósent af loðnunni henta til frystingar, að sögn Vilhjálms Vilhjálmssonar, deildarstjóra uppsjávarsviðs.

Búið að koma fólki niður af Hellisheiðinni

Björgunarsveitir úr Árnssýslu og Reykjavík og Vegagerðarmenn hafa í kvöld aðstoðað fólk á 20 til 30 bílum í vondu veðri og afleitri færð á Hellisheiði og í Þrengslum.

Herjólfur siglir ekki í fyrramálið vegna veðurs

Fyrri ferð Herjólfs á morgun fellur niður vegna veðurs. Spáð er 8 til 10 metra ölduhæð og 18 til 20 metra vindhraða. Farþegar eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við afgreiðslu Herjólfs í fyrramálið í síma 481 - 2800 til að breyta pöntunum sínum. Athugun með síðari ferð Herjólfs (frá Eyjum 15.30 og Þorlákshöfn 19:15) verður gefin út kl 12:00 á þriðjudag.

Sjá næstu 50 fréttir