Félagar glæpagengja ganga um vopnaðir 10. janúar 2012 04:00 Fyrir fáeinum vikum lagði lögregla hald á vopnasafn sem í voru meðal annars skotvopn, alls kyns hnífar og skotheld vesti.
Greiningardeild telur glæpagengi smygla skotvopnum til landsins og bera þau á götum úti. Erlend gengi séu skipuð stórhættulegum mönnum sem hlotið hafi herþjálfun. Framleiðsla á mjög sterku amfetamíni hefur stóraukist hér á landi. Lögregla býr yfir upplýsingum þess efnis að skammbyssum sé smyglað inn í landið, að því er fram kemur í nýju hættumati greiningardeildar Ríkislögreglustjóra. Fyrir liggur að þekktir hópar afbrotamanna hafa á síðustu misserum lagt áherslu á að komast yfir vopn. Greiningardeild telur að þessa þróun megi rekja til tilkomu erlendra glæpahópa. Þá flokka fylla iðulega menn sem hlotið hafa herþjálfun erlendis og sýnt hafa af sér vilja til grófrar valdbeitingar, hömluleysi og hrottaskap. Greiningardeildin telur ástæðu til að óttast að aukin vopnaeign og -burður muni fylgja starfsemi glæpahópa. Fyrir hendi séu vísbendingar þess efnis að í vöxt færist að félagar í erlendum sem innlendum glæpahópum gangi um vopnaðir. Komi til átaka milli glæpahópa eða einstaklinga sem þeim tengjast er ljóst að almenningi kunni að vera hætta búin. Hættu á vopnuðum átökum telur deildin fara vaxandi. Greiningardeildin vekur enn fremur athygli á þaulskipulögðum innbrotum og þjófnuðum erlendra glæpagengja hér á landi og nefnir meðal annars ránið í úraverslun á Laugavegi í októbermánuði. Ætlunin hafi verið að flytja þýfið úr landi og vitað sé að slíkur „útflutningur“ hafi farið fram á undanliðnum árum. „Atburðir þessir vísa í senn til aukinnar hörku í íslenskum undirheimum og umsvifa erlendra glæpahópa hér á landi,“ segir í hættumatinu, þar sem jafnframt er vakin athygli á vöruskiptum glæpahópa þar sem þýfi er skipt fyrir fíkniefni. Greiningardeildin bendir á að peningaþvætti sé mikilvægur liður í alþjóðlegri glæpastarfsemi, svo sem fíkniefnaviðskiptum, vændi og mansali. Hruni fjármálakerfisins og miklum efnahagsvanda fylgi sú hætta að peningaþvætti færist í vöxt. Sú staða geti haft í för með sér að ágóða af sölu fíkniefna verði í auknum mæli varið til fjárfestinga. Greiningardeild segir framleiðslu á örvandi efnum og maríjúana hafa stóraukist hér á landi á undanförnum árum. Amfetamínframleiðslan hér skili sérlega sterkum og hættulegum efnum, sem geti gert menn stjórnlausa og ofbeldisfulla, auk hættu á sprengingum við framleiðsluna. Þessi framleiðsla sé því vaxandi samfélagsógn. jss@frettabladid.is
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Sjá meira