Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Segjast ekki umbera vændi - óska eftir viðræðum við Stóru systur Eigendur vefsíðunnar einkamál.is, sem legið hefur undir ámæli frá aðgerðahópnum Stóru systur vegna meintra vændisauglýsinga, segja að vændi sé ekki liðið á síðunni. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að stórfé hafi verið kostað til að vinna gegn vændi með því að þróa hugbúnað og með því að vera með starfskrafta sem vinna við að yfirfara og leita uppi vændisauglýsingar. „Skiptir þá engu hvort viðkomandi býður eða leitar eftir vændi, lokað er á viðkomandi notendur." 21.10.2011 15:19
Yfirmaður í Arion sakaður um kynferðislega áreitni "Bankinn lítur mál af þessum toga mjög alvarlegum augum,“ segir upplýsingafulltrúi Arion Banka, Haraldur Guðni Eiðsson, en þar hefur starfsmaður bankans farið í leyfi á meðan ásakanir á hendur honum um kynferðisáreitni á vinnustað eru skoðuð. 21.10.2011 15:05
Bjarni vill leggja Bankasýslu ríkisins niður Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, segir á Facebook-síðu sinni, að Bankasýsla ríkisins sé óþörf stofnun með öllu. 21.10.2011 14:45
Haarder verður forseti Norðurlandaráðs Bertel Haarder, fyrrverandi samstarfsráðherra Danmerkur og ráðherra til margra ára, verður næsti forseti Norðurlandaráðs. 21.10.2011 14:12
Bleika boðið í Hörpu Krabbameinsfélag Ísland heldur Bleika boðið í Hörpu fimmtudaginn, 27. október. Þar mæta 1000 konur í fjölbreytta skemmtun – en margir af fremstu listamönnum þjóðarinnar leggja sitt af mörkum til að gleðja gesti. Miðasala fer fram á vefnum bleikabodid.is og er verði haldið í lágmarki. Miðaverð er 1.200 krónur. Aðgöngumiða fylgir einnig happdrættismiði, en happdrættið er til styrktar Bleiku slaufunni og eru veglegir vinningar í boði. 21.10.2011 13:43
Íbúar komi að endurhönnun Hofsvallagötu Hofsvallagata var til umræðu í gærkvöldi á fjölmennum íbúafundi Hverfisráðs Vesturbæjar í gærkvöldi. Í tilkynningu frá hverfisráðinu segir að fundarmenn hafi verið einhuga um að bílaumferðin á götunni væri of hröð. Hraðinn ógni öryggi gangandi vegfarenda og geri götuna óvistlegri. Þá var bent á að gatan skeri í sundur skóla- og tómstundahverfi og rýrir að mati margra fundarmanna lífsgæðin í hverfinu. 21.10.2011 13:11
Konurnar sem létust voru systur Tvær íslenskar systur, báðar á níræðisaldri, biðu bana þegar bíll þeirra rakst á rútubíl skammt frá flugvellinum á Alicante á Spáni í gærkvöldi. 21.10.2011 13:05
Lokað á Stóru systur á Einkamálum Einkamál hefur lokað fyrir nokkra reikninga Stóru systur á vefnum eftir að hún sendi vændiskaupendum skilaboð um hvar þeir gætu leitað sér hjálpar. Talsmaður Einkamála segir að tölvukerfi vefsins loki reikningum fólks sem ítrekað sendir fjöldapósta. 21.10.2011 12:09
Skattbyrðin færst yfir á hátekjufólk Skattbyrði lágtekjufólks hefur í auknum mæli færst yfir á hátekjufólk í kjölfar breytinga á skattakerfinu. Þetta kemur fram í vefriti fjármálaráðuneytisins. Helmingur hjóna greiðir nú lægra hlutfall af tekjum sínum í tekjuskatt. 21.10.2011 11:52
Þrennt handtekið vegna fíkniefnabrota Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á tæplega 100 grömm af amfetamíni við húsleit í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti um miðja vikuna. 21.10.2011 11:34
Viðvörunarljósið bilaði - Kaupmannahafnarflug frestast Flugvél Iceland Express á leið til Alicante á Spáni sem lenti vegna bilunar í Manchester í Bretlandi í gærkvöldi, fer frá Manchester til Alicante kl. 12:15 að íslenskum tíma samkvæmt tilkynningu frá ferðaskrifstofunni. 21.10.2011 11:17
Páll Magnússon fundaði með Steingrími Páll Magnússon, nýráðinn forstjóri Bankasýslu ríksins, fundaði með Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra, þann 10. október síðastliðinn, þar sem ráðherrann kom sjónarmiðum sínum á framfæri. Fundurinn var haldinn fyrir milligöngu Þorsteins Þorsteinssonar, stjórnarformanns Bankasýslu ríkisins. 21.10.2011 10:56
Aftur réttað yfir lögreglumanni vegna kynferðisbrots Það er óalgengt að dómar fjölskipaðs héraðsdóms séu ómerktir og þeim snúið aftur í hérað eins og raunin varð þegar Hæstiréttur ómerkti sýknudóm yfir lögreglumanni á Norðvesturlandi, sem var ákærður fyrir kynferðisbrot gegn fimmtán ára gamalli stúlku. Slíkt er þó alls ekki einsdæmi. 21.10.2011 10:23
Vill ræða um að setja þak á eignaréttinn Dr. Herdís Þorgeirsdóttir prófessor vill taka umræðu um hvort ekki þurfi að setja þak á eignarétt manna. Herdís var gestur í Bítinu á Bylgjunni í morgun þar sem hún ræddi þá mótmælaöldu sem hófst á Wall Street og hefur breiðst út um hinn vestræna heim. 21.10.2011 10:12
Landsfundur Samfylkingarinnar settur í dag Jóhanna Sigurðardóttir formaður Samfylkingarinnar setur 6. landsfund Samfylkingarinnar í íþróttamiðstöð Vals að Hlíðarenda í dag kl. 16.30. 21.10.2011 09:24
Rolexránið á sér hliðstæður í þremur Evrópulöndum Framkvæmd ránsins í úraverslun við Laugaveg á mánudagsmorgun, þykir sláandi lík nokkrum ránum, sem framin hafa verið í Danmörku, Sviss og í Bretlandi undanfarna mánuði. 21.10.2011 07:56
Sigurganga Íslands á HM í bridge heldur áfram Sigurganga íslenska liðsins á heimsmeistaramótinu í Bridge heldur áfram og sigraði liðið Pakistana, Egypta og Búlgara í gær. 21.10.2011 07:52
Stöðvuðu bát á ólöglegum veiðum út af Siglufirði Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar stóð línubát að meintum ólöglegum veiðum í lokuðu hólfi á Fljótagrunni, norðvestur af Siglufirði í gærkvöldi og var skipstjóranum gefin fyrirmæli um að hætta veiðum og halda til Siglufjarðar. 21.10.2011 07:46
Skemmdarverk á Selfossi Mikil skemmdarverk voru í nótt unnin á stórri vinnuvél, sem stóð við steypustöðina í útjaðri Selfoss. 21.10.2011 07:41
Farþegar á leið til Alicante gistu í Manchester Flugvél Iceland Express, sem var á leið til Alicante á Spáni, varð að lenda í Manchester í Bretlandi í gærkvöldi, eftir að viðvörunarljós gaf til kynna að eldur væri laus í einu farangursrými vélarinnar. 21.10.2011 07:38
Flugfreyjur fresta verkfalli Flugfreyjur hjá Icelandair undirrituðu nýjan kjarasamning við félagið hjá ríkissáttasemjara í gærkvöldi og verður hann nú borinn undir atkvæði. 21.10.2011 07:29
Enn ein hryssan fyrir barðinu á dýraníðingi Enn ein hryssan varð fyrir barðinu á níðingi eða níðingum fyrr í vikunni er hún reyndist vera með djúpan skurð í leggöngum og annan minni á ytri kynfærum, þegar ódæðið komst upp. Málið var kært til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu síðdegis í gær. Er þetta fjórða níðingsmálið sem kært er til lögreglu á undanförnum mánuðum. 21.10.2011 07:00
Vildu orku á 5 árum en ekki ræða verðið Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir að Alcoa hafi ekki fengist til viðræðna um orkuverð fyrir mögulegt álver á Bakka, þrátt fyrir óskir Landsvirkjunar þar um. Hann segir Alcoa hafa óskað eftir afhendingu orkunnar innan fimm ára. Landsvirkjun hafi hins vegar talið lengri afhendingarfrest nauðsynlegan, um tíu til tólf ár, þar sem jarðvarmavirkjanir þurfi að byggja upp í skrefum. 21.10.2011 06:00
Margir vildu hitta Khagendra Fjöldi fólks mætti í verslanir Eymundsson í gær til að hitta minnsta mann í heimi samkvæmt bókinni Ripley"s, Khagendra Thapa Magar. Hann er hér á landi í tengslum við útgáfu bókarinnar Ripley"s ótrúlegt en satt. 21.10.2011 06:00
Rannsóknarnefnd átelur siðanefnd HÍ Þriggja manna rannsóknarnefnd hefur komist að því að verulegir annmarkar hafi verið á starfi siðanefndar Háskóla Íslands þegar hún hafði til meðferðar kæru Vantrúar á hendur guðfræðikennara við skólann. 21.10.2011 05:00
Viðbrögð við kynferðisbrotum rædd Herra Karl Sigurbjörnsson biskup fundaði með dr. Marie Fortune og fagráði þjóðkirkjunnar á Biskupsstofu í gær. Eins og greint hefur verið frá er dr. Fortune stödd hér á landi til að halda námskeið og málþing á vegum þjóðkirkjunnar um kynferðisbrot innan kirkjunnar og viðbrögð hennar við því. 21.10.2011 04:00
Borgarahreyfingin ræðir við Hreyfinguna Ný stjórn Borgarahreyfingarinnar hefur samþykkt að ganga til viðræðna við þingflokk Hreyfingarinnar um samstarf. Þetta kemur fram í bloggfærslu Friðriks Þórs Guðmundssonar, stjórnarmanns í Borgarahreyfingunni. 21.10.2011 04:00
Batnandi staða en lánasöfn viðkvæm Staða stóru viðskiptabankanna þriggja hefur batnað talsvert síðustu misseri. Eiginfjárstaða bankanna er hlutfallslega góð og lausafjárstaða þeirra einnig. Þetta er mat Fjármálaeftirlitsins (FME) sem fjallaði um stöðu viðskiptabankanna á blaðamannafundi í gær. 21.10.2011 03:15
Viðvörunarljós bilaði í vél Iceland Express Flugvél Iceland Express sem fór frá Keflavíkurflugvelli laust eftir klukkan fimm í kvöld til Alicante varð að lenda í Manchester í Bretlandi vegna viðvörunarljóss í stjórnborði flugvélarinnar sem gaf til kynna að eldur gæti verið laus í einu farangursrými hennar. Flugvélin lenti í Manchester um klukkan átta að íslenskum tíma og reyndist bilunin vera í viðvörunarljósinu sjálfu og því var aldrei nein raunveruleg hætta á ferðum. 20.10.2011 21:50
Hefur ekkert heyrt í Hönnu Birnu Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, gerir alveg eins ráð fyrir því að Hanna Birna Kristjánsdóttir bjóði sig fram gegn honum á landsfundi í nóvember. Hann er fullur sjálfstrausts fyrir landsfundinn en segist ekkert hafa rætt við Hönnu Birnu síðan í júlí. 20.10.2011 19:30
Bjarni Ben: Við munum draga allar skattahækkanir til baka Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að Sjálfstæðisflokkurinn leggi á það áherslu að allar skattahækkanir ríkisstjórnarinnar verði dregnar til baka, líka auðlegðarskatturinn. 20.10.2011 19:15
Lögðu hald á 2600 lítra af áfengi Tollurinn lagði hald á 2600 lítra af áfengi á síðasta ári og 150 þúsund sígarettur. Áætlað er að það séu aðeins um tíu prósent af því sem reynt er að smygla til landsins. 20.10.2011 19:00
Segir kreppuna geta seinkað uppbyggingu á Norðurlandi Forstjóri Landsvirkjunar getur engu lofað um uppbyggingu í Þingeyjarsýslum á næstunni og hefur verulegar áhyggjur af því að efnahagskreppan í Evrópu seinki framkvæmdum. Iðnaðarráðherrra segir að annað álfyrirtæki en Alcoa sé meðal fimm fyrirtækja í viðræðum um orkuna. 20.10.2011 18:45
Hæstiréttur staðfestir þriggja og hálfs árs nauðgunardóm Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag þriggja og hálfs árs fangelsisdóm héraðsdóms yfir karlmanni sem þvingaði stúlku til samræðis og að hafa við sig munnmök. 20.10.2011 16:47
Sýknudómur í kynferðisbrotamáli ómerktur Hæstiréttur ómerkti og vísaði aftur í hérað sýknudómi yfir karlmanni sem var ákærður fyrir kynferðisbrot gegn fimmtán ára stúlku í þvottahúsi á heimili sínu. Manninum var gefið að sök að hafa káfað tvisvar innanklæða á rassi stúlkunnar Í héraðsdómi var komist að þeirri niðurstöðu að framburður vitna, sem báru að stúlkan hefði sagt þeim frá atvikinu, sýndi að stúlkan hefði verið sjálfri sér samkvæm. 20.10.2011 16:40
Össur vill reyna opna helming allra kafla fyrir áramót Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti í gærkvöldi fund með Stefan Füle, stækkunarstjóra Evrópusambandsins, sem er staddur hér á landi. 20.10.2011 16:13
Brjálaðist út af þvottinum og sló lögregluþjón Tæplega þrítugur karlmaður var dæmdur í tveggja mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir að slá lögreglumann hnefahöggi þegar hann ætlaði að rétta honum vatnsglas. 20.10.2011 15:46
Heiða Kristín: Það stefnir allt í hreinan meirihluta "Mér finnst þetta mjög áhugavert. Þetta er nokkurskonar þjófstart,“ segir Heiða Kristín Helgadóttir, sem ásamt Guðmundi Steingrímssyni, vinna að nokkurskonar systurframboði Besta flokksins til alþingiskosninga 2013. 20.10.2011 15:01
Húsleit eftir fíkniefnaakstur á Akureyri Í morgun stöðvaði lögreglan á Akureyri mann á fertugsaldri grunaðan um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna. Í framhaldinu var gerð húsleit á heimili hans þar sem fundust um 30 grömm af kannabisefnum auk tækja og tóla til fíkniefnaneyslu sem voru haldlögð. Maðurinn var látinn laus að lokinni yfirheyrslu og telst málið upplýst. Er þetta í fimmta skipti á stuttum tíma þar sem lögreglan á Akureyri stöðvar ökumann grunaðan um akstur undir áhrifum fíkniefna og framkvæmir í framhaldinu húsleitir þar sem í öllum tilfellum hefur verið lagt hald á fíkniefni. 20.10.2011 15:00
Sýknaður fyrir misheppnaða ránstilraun - dæmdur fyrir önnur rán Rétt tæplega tvítugur karlmaður hefur verið dæmdur í tólf mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir vopnuð rán, þjófnað, eignaspjöll og fíkniefnalagabrot. 20.10.2011 14:53
Unnu stórsigur á Egyptum Ísland vann stórsigur á Egyptum í Bridge nú rétt í þessu, 20-10 og bætti stöðu sína enn frekar í hópi efstu sveita á heimsmeistaramótinu sem nú stendur yfir í Hollandi. 20.10.2011 14:42
Garðeigendur hvattir til að klippa tré sem vaxa út fyrir lóðamörk Trjágróður sem vex út fyrir lóðamörk getur skapað óþægindi og jafnvel hættu fyrir gangandi og akandi vegfarendur og hvetur Reykjavíkurborg nú garðeigendur til að bregðast við og klippa tré sín svo þau hvorki hindri vegfarendur, hylji umferðarskilti né dragi úr götulýsingu. 20.10.2011 14:27
Fartölvum og iPod stolið Brotist var inn í fjóra bíla í Reykjavík og Kópavogi í gærkvöld og nótt. Úr þeim var stolið meðal annars fartölvum, greiðslukortum og iPod. Í tilkynningu ítrekar lögreglan að verðmæti séu ekki skilin eftir í bílum. Sé það óumflýjanlegt er mikilvægt að slíkir hlutir séu ekki í augsýn. 20.10.2011 14:09
Játaði vörslur á barnaníðsefni Ríkissaksóknari hefur ákært karlmann á fertugsaldri fyrir vörslu ljósmynda og hreyfimynda sem sýna börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Maðurinn játaði sök fyrir dómi. 20.10.2011 14:00
Iðnaðarráðherra: Alcoa einnig áhugalausir Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, gaf til kynna að áhugaleysi Alcoa hefði einnig orðið til þess að fyrirtækið ákvað að byggja ekki álver á Bakka nærri Húsavík í sérstökum umræðum um málið á Alþingi í dag. 20.10.2011 13:58