Fleiri fréttir

Fíkniefnahundurinn Jökull fann mikið af fíkniefnum

Um miðjan dag í gær framkvæmdi lögreglan á Akureyri húsleit í íbúð manns á fertugsaldri vegna gruns um fíkniefnamisferli. Hald var lagt á um 30 grömm af amfetamíni og nokkur grömm af kannabisefnum. Einnig voru haldlögð um 40 grömm af muldum e-töflum og mikið magn lyfseðilsskyldra lyfja sem ekki voru stíluð á húsráðanda.

Ísland ekki tilbúið í viðræður um byggðamál

Íslendingar eru ekki í stakk búnir til þess að hefja viðræður við Evrópusambandið um byggðamál. Þetta kemur fram í svari fastafulltrúa Póllands sem sent hefur verið íslenskum stjórnvöldum samhliða þess að vinnu við rýniskýrslu er varðar málaflokkinn er lokið. Forsenda þess að hefja samningaviðræður um byggðamál er að íslensk stjórnvöld leggi fram ítarlega og tímasetta aðgerðaáætlun þar sem fram komi "skýr markmið að því er varðar framkvæmd byggðastefnunnar og þá stjórnsýslu sem nauðsynleg er."

Umferðartafir í Mosó

Vegna framkvæmda við þverun Vesturlandsvegar í Mosfellsbæ milli Langatanga og Reykjavegar má búast við truflunum á umferð milli klukkan 10 og 12 í dag, fimmtudag.

Sárafá skip á sjó vegna brælu

Sárafá fiskiskip eru á sjó við landið enda bræla á flestum miðum. Mörg skipanna, sem eru úti, eru í vari eða halda sjó, og eru því ekki að veiðum. Ekki er vitað til að nein áföll hafi orðið vegna veðursins.

Yfir 70% sjálfstæðismanna styðja Hönnu Birnu sem formann

Liðlega 70 prósent stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins treysta Hönnu Birnu Kristjánsdóttur betur til að gegna formennsku í flokknum, en Bjarna Benediktssyni, núverandi formanni, samkvæmt nýrri könnun, sem MMR gerði fyrir Viðskiptablaðið.

Tölvuþjófar á kreiki á höfuðborgarsvæðinu

Tölvuþjófar voru á kreiki á höfuðborgarsvæðinu í nótt og eru ófundnir. fyrst var reynt að brjótast inn í tölvuverslun í Kópavogi upp úr miðnætti, en styggð virðist hafa komið að þjófnum og hann forðað sér án þess að stela neinu.

Líknardeild lokað á LSH

Líknardeild öldrunardeildar Landspítalans á Landakoti verður lokað og starfsemi hennar færð til líknardeildarinnar í Kópavogi. Talið er að breytingin muni spara 50 milljónir króna og er hún liður í niðurskurðarferli Landspítalans vegna fjárlaga næsta árs. Framlög til spítalans eru í fjárlagafrumvarpi skorin niður um 630 milljónir króna og talið er að það muni hafa áhrif á um 90 störf innan spítalans.

Um 90 manns missa vinnuna

Talið er að niðurskurðarkrafa á Landspítalann um 630 milljónir geri það að verkum að um 90 manns missi vinnuna innan spítalans. Sparnaður á síðasta ári var rúmar 600 milljónir króna og þurfti því að fækka 85 stöðugildum innan spítalans. Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, segir að ef rýnt sé í tölur síðasta árs sé hægt að sjá hvað er í vændum varðandi uppsagnir.

Tölvan segir nei við móður í fjárhagsklípu

„Ég er auðvitað ekki sátt við þetta. Það er farið að líða á mánuðinn og mínir peningar farnir að minnka verulega. Mig nauðsynlega vantar þennan pening sem þau höfðu engan rétt til að taka af mér,“ segir Lilja Rós Sigurðardóttir, 23 ára gömul einstæð móðir sem segir farir sínar ekki sléttar eftir samskipti við stjórnsýslu Reykjavíkurborgar.

Hæstaréttardómari tjáir sig ekki um kæru

„Hann veitir ekki viðtal,“ voru skilaboðin sem starfsmaður Hæstaréttar bar Fréttablaðinu eftir að það hafði ítrekað falast eftir viðtali við Árna Kolbeinsson hæstaréttardómara.

Kallar eftir rökstuðningi

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir mjög óheppilegt ef ekki ríkir traust og friður um ráðningar í lykilembætti í stjórnsýslunni. Þetta kom fram á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis í gærmorgun, þar sem Steingrímur var spurður um afstöðu sína til ráðningar Páls Magnússonar sem forstjóra Bankasýslu ríkisins.

Hélt ræðu um norðurslóðir

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, flutti ræðu á ráðstefnu um framtíð norðurslóða í Brussel í gær.

Olíuslys kveikja að kvenfatalínu

Hörmulegar afleiðingar olíumengunarslysa urðu kveikjan að nýrri fatalínu Kolbrúnar Ýrar Gunnarsdóttur. Útkoman er svartir kjólar sem minna á olíublauta fugla.

Æskudýrkun úthýst og gömlu gildin tóku við

Æskudýrkun í íslensku atvinnulífi á árunum fyrir hrun var mikil og einsleitni stjórnendahópa var að margra mati orðin til vansa. Eftir hrun má hins vegar segja að afturhvarf hafi orðið þar sem eldri og reyndari stjórnendur tóku á ný við stjórn fyrirtækja.

Lögmenn Eimskips fara yfir stefnuna

Fulltrúar Eimskips eru nú að skoða stefnu frá Samskipum, sem er löng og mikil, og fara yfir stöðu mála, að sögn Ólafs Williams Hand, upplýsingafulltrúa Eimskips. Samskip krefjast 3,7 milljarða króna auk vaxta í skaðabætur vegna samkeppnisbrota Eimskipafélags Íslands á árunum 1999 til 2002.

Erlingur Halldórsson látinn

Erlingur E. Halldórsson rithöfundur er látinn, 81 árs að aldri. Erlingur fæddist 26. mars 1930 á Arngerðareyri við Ísafjarðardjúp. Foreldrar hans voru Halldór Jónsson, bóndi þar, og eiginkona hans, Steinunn Jónsdóttir.

Jákvæð þróun í stuttum skrefum milli ára

Önnur framvinduskýrsla framkvæmdastjórnar ESB um aðildarferli Íslands var gefin var út í gær. Timo Summa, sendiherra ESB á Íslandi, kynnti skýrsluna og sagði við það tilefni að ferlið gengi vel fyrir sig og skýrslan undirstrikaði jákvæða þróun mála. Ekki kemur á óvart að Ísland er talið uppfylla mörg aðildarskilyrði, þá sérstaklega þau sem lúta að málum sem heyra undir samninginn um Evrópska efnahagssvæðið og Schengen-samstarfið.

Áfram siglt til Þorlákshafnar

Herjólfur heldur áfram að sigla til Þorlákshafnar að minnsta kosti fram í næstu viku. Tekin verður ákvörðun um breytingar á siglingaleiðinni næsta mánudag. Þetta kemur fram á vef Eyjafrétta.

Deilt um forsendur fjárlaga

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sat fyrir svörum á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis í gær. Þar var farið yfir forsendur tekjuhliðar fjárlaga. Stjórnarandstaðan gagnrýndi þær og einnig ýmsar aðgerðir sem grípa á til, svo sem hækkun skattþrepa.

130 kannabisplöntur teknar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í miðborginni í fyrradag. Við húsleit var lagt hald á rúmlega 130 kannabisplöntur, á ýmsum stigum ræktunar.

Segir málverk á uppboði falsað

Forvörðurinn Ólafur Ingi Jónsson telur að listaverk sem var boðið upp í Kaupmannahöfn í síðustu viku, og er sagt vera eftir Svavar Guðjónsson, sé falsað. Þetta kom fram í kvöldréttum RÚV.

Sogn var upphaflega barnaheimili

Réttargeðdeildinni á Sogni verður lokað og starfsemi hennar flutt í stærra húsnæði á Kleppi. Tvöföld öryggisgirðing er meðal þess sem reisa þarf við Klepp áður en nýja deildin opnar.

Útilokuðu almenna niðurfellingu skulda

Efnahags- og viðskiptaráðherra útilokaði almenna niðurfellingu skulda á Alþingi í dag. Hann sagði skuldir aldrei verða fluttar af þeim sem stofnuðu til þeirra á eignalaust fólk sem á ekkert nema lífeyrisréttindi sín. Tekist var á um afskriftir bankanna í þingsal.

Lést í umferðarslysi

Stúlkan sem lést í umferðaslysi í Fagradal í morgun hét Þorbjörg Henný Eiríksdóttir. Hún var sautján ára gömul og búsett á Eskifirði.

Segir sveitarfélögin eins og mismunandi konungsdæmi

„Í dag virkar þetta eins og konungsdæmi sem verður ekki hróflað við nema á fjögurra ára fresti,“ sagði Gestur Ólafsson, skipulagsfræðingur og arkitekt í viðtali í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag þegar skipulagsmál voru rædd.

Ekki mikið slösuð

Stúlka sem flutt var á slysadeild Landspítalans í Reykjavík eftir bílslys í Fagradal í morgun er ekki mikið slösuð, samkvæmt vakthafandi lækni á deildinni. Hún verður undir eftirliti á spítalanum í einhvern tíma.

Elti stúlku til að neyða hana upp í bíl

Foreldrar barna í Álftamýrarskóla voru varaðir við þremur ungum karlmönnum sem reyndu að lokka til sín börn í dag. Í tilkynningu frá skólastjóra kom fram að mennirnir hefðu reynt að lokka stúlku upp í silfurlitaðan bíl. Þegar hún neitaði að fara í bílinn elti einn mannanna hana á hlaupum. Hún komst þó undan.

Banaslys þegar krani féll á Djúpavogi

Alvarlegt vinnuslys varð við höfnina á Djúpavogi laust fyrir klukkan þrjú í dag þegar verið var að losa salt úr skipi. Krani úr landi sem notaður var við verkið brotnaði og féll niður á mann sem þarna var við vinnu sína, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. Maðurinn, sem var rúmlega fertugur, lést við slysið. Lögreglan á Eskifirði fer með rannsókn málsins ásamt Vinnueftirliti ríkisins.

Össur tekur undir gagnrýni á dóminn yfir Tímósjenkó

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra lýsir yfir miklum vonbrigðum með dóminn yfir Júlíu Tímósjenkó, fyrrum forsætisráðherra Úkraínu, sem var dæmd til sjö ára fangavistar í gær fyrir misbeitingu valds. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir að ráðherra taki undir yfirlýsingu Evrópusambandsins þar sem framkvæmd réttarhaldanna yfir Tímósjenkó er gagnrýnd harðlega og mun Össur styðja samhljóða ályktun sem lögð verður fyrir hjá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu,ÖSE, í vikunni.

Ólafur Ragnar ræddi um Norðurslóðir í Brussel

Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson flutti í morgun ræðu á ráðstefnu um framtíð Norðurslóða sem haldin er í Brussel. Ráðstefnuna sækja forystumenn og fulltrúar aðildarríkja Norðurskautsráðsins sem og sérfræðingar og vísindamenn en hún er haldin af International Polar Foundation í Brussel. Í tilkynningu frá forsetaembættinu segir að meðal ræðumanna í morgun hafi verið Maria Damanaki, framkvæmdastjóri Evrópusambandsins í málefnum sjávarútvegs og sjávarauðlinda. „Fjallaði hún um áherslur Evrópusambandsins í málefnum Norðurslóða.“

Þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir vörslu barnakláms

Fimmtugur karlmaður var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa barnaklám undir höndum. Ákærði játaði brot sitt skýlaust fyrir dómi en á tölvu hans fundust 174 ljósmyndir sem sýndu börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Myndirnar fundust við húsleit lögreglu.

Siv braut þrjá fingur

Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknaflokksins, braut þrjá fingur á hægri hendi sinni með því að klemma sig á stálhurð í bílastæðakjallara Alþingis í gær. Hún var á leið á fund í allsherjar- og menntamálanefnd í forföllum Eyglóar Harðardóttur þegar óhappið varð, eftir því sem hún greinir frá á vefsíðu sinni.

Krefjast þess að hætt verði við lokun St. Jósefsspítala

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar mótmælir harðlega ákvörðun um lokun St. Jósefsspítala í Hafnarfirði og krefst þess að hún verði endurskoðuð og sameining við LSH gangi til baka. Í tilkynningu frá bæjarstjórninni segir að ákvörðunin gangi þvert á þá sátt sem lofað hafi verið og þau fyrirheit sem gefin voru, um að St. Jósefsspítali gegndi áfram mikilvægu hlutverki í nærþjónustu við íbúa í Hafnarfirði.

Ráðherrar geti vikið sæti á Alþingi

Þingmenn úr öllum flokkum á Alþingi nema Sjálfstæðisflokknum hafa lagt frumvarp þess efnis að ráðherra geti tekið ákvörðun uma að sitja ekki á Alþingi á meðan þeir gegna embætti. Tillagan hefur áður verið flutt en ekki verið samþykkt. Nýti ráðherra sér þennan möguleika yrði honum heimilt að taka þátt í umræðum á Alþingi en ætti ekki atkvæðisrétt.

Ferðir Herjólfs falla niður

Ekkert verður af frekari ferðum Herjólfs á milli lands og Eyja eins og áætlað hafði verið. Mjög slæmt veður er á svæðinu og er skipið nú á siglingu til Vestmannaeyja og er búist við því til hafnar klukkan fimm. Herjólfur siglir á 6 mílna hraða sökum sjólagsins en vindur fer í 30 metra á sekúndu í verstu kviðunum.

Opið hús í Höfða

Dagana 13. - 15. október verður opið hús í Höfða í tilefni af því að 25 ár eru liðin frá leiðtogafundi Ronald Reagans, forseta Bandaríkjanna, og Mikhail Gorbatsjevs, leiðtoga Sovétríkjanna, í húsinu árið 1986.

Bænastund vegna umferðarslyssins

Bænastund verður í Eskifjarðarkirkju klukkan í átta í kvöld vegna umferðarslyssins sem varð á Fagradal snemma í morgun. Stúlka á átjánda aldursári lést í slysinu og önnur flutt með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Slysið varð með þeim hætti að fólksbíll stúlknanna rakst á vörubifreið sem var að koma úr gagnstæðri átt. Ökumaður vörubifreiðarinnar var fluttur á heilsugæslu á Egilsstöðum minna slasaður.

Ég hata þig ekki

"Ég hata þig ekki. Ég vil miklu frekar elska þig.“ sagði Sigurður Guðmundsson, 88 ára, við þýska kafbátahermanninn Horst Koske þegar þeir hittust í sýningarskála Íslands á bókamessunni í Frankfurt í dag. Koske, sem er 84 ára, er eini eftirlifandi meðlimur áhafnar þýska U300 kafbáts nasista sem skaut á og sökkti Goðafossi út af Garðskaga hinn 10. nóvember 1944. Sigurður er einn af þeim fjórum úr áhöfn Goðafoss sem enn er á lífi.

Brotist inn á flatbökustað

Brotist var inn í Flatbökugerð Friðborgar á Þorlákshöfn aðfaranótt mánudags síðastliðins. Þaðan var stolið öllum bjór sem var í kössum, en bjórinn sem var í kæli var skilinn eftir. Þá var skiptimynt tekin úr sjóðsvél og 50" flatskjár var einnig tekinn. Innbrotsþjófarnir hafa ekki verið teknir, samkvæmt upplýsingum Vísis.

Nubo fær enga forgangsmeðferð hjá Ögmundi

Innanríkisráðherra segir það ekki óeðlilegt að ráðuneytið hafi beðið í fimm vikur með að óska eftir frekar upplýsingum um kínverska fjárfestinn Huang Nubo. Önnur mikilvægari verkefni hafi verið í forgangi í ráðuneytinu.

Sjá næstu 50 fréttir