Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Herjólfur siglir á Þorlákshöfn alla þessa viku Það stefnir í stopular siglingar Herjólfs á milli Eyja og Landeyjahafnar í vetur og mun Herjólfur til dæmis sigla til Þorlákshafnar alla þessa viku. Í óveðrinu að undanförnu hefur sandur hlaðist upp utan við höfnina og er orðið of grunnt fyrir Herjólf. Breiðafjarðarferjan Baldur, sem hefur leyst Herjólf af að undanförnu á meðan Herjólfur var í slipp, kemst inn í Landeyjahöfn við mun erfiðari aðstæður en Herjólfur. 3.10.2011 08:54
Ammoníakleki á Sauðárkróki Ammoníak fór að leka úr frystikerfi í húsnæði loðdýrafóðurgerðar í útjaðri Sauðárkróks klukkan rúmlega fimm í morgun og var lögregla, slökkvilið og starfsmenn fóðurgerðarinnar kölluð á vettvang. 3.10.2011 07:07
Tekin tvisvar dópuð undir stýri með barnið í bílnum Þegar lögreglumenn stöðvuðu 32 ára konu á bíl í Skeifunni í Reykjavík rétt fyrir miðnætti, við hefðbundið eftirlit, kom í ljós að hún var undri áhrifum fíkniefna og var með sjö ára barn sitt í bílnum, auk þess sem hún var réttindalaus. 3.10.2011 07:02
Vilja ekki gera kjósendur sína reiða Stjórnmálamenn eru allt of tregir til að ganga gegn kjósendum sínum af ótta við að gera þá reiða. Ákveðinnar undanlátssemi gætir í samfélagsumræðunni og enginn vill stíga fram og segja að það sé of langt gengið þegar eggjum og öðrum hlutum er kastað í þingmenn á Austurvelli. Þetta er mat Stefaníu Óskarsdóttur stjórnmálafræðings. 3.10.2011 06:30
70 hættu að styrkja í september Sjötíu styrktaraðilar ABC barnahjálpar á Íslandi hafa hætt að styrkja samtökin í þessu mánuði. Samtökin finna sterkt fyrir erfiðu efnahagsástandi. 3.10.2011 06:30
Minnihluti undrast starfslokin Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, er ekki lengur í fullu starfi hjá fyrirtækinu. Fram kom í máli Jóns Gnarr borgarstjóra á borgarstjórnarfundi í síðustu viku að Haraldur Flosi hefði að eigin frumkvæði verið í hálfu starfi frá því í mars og hefði svo látið alfarið af störfum 1. júní. Hann hefði ekki talið þörf á kröftum sínum lengur. 3.10.2011 06:30
Erfitt að lækka verð lóða í Reykjavík „Við erum um þessar mundir að láta kanna lóða- og fasteignamarkaðinn á eigin spýtur. Ég get hins vegar hvorki sagt af né á hvort lóðaverðið muni breytast," segir Ágúst Jónsson, skrifstofustjóri á Framkvæmda- og eignasviði Reykjavíkurborgar. 3.10.2011 06:30
Byggja um of á væntingum ríkisstjórnar Kristján Þór Júlíusson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í fjárlaganefnd, óttast að fjárlögin byggi á meiri væntingum en innstæða sé fyrir. Áherslur og útlegging ríkisstjórnarinnar á fjárlögunum séu í hróplegu ósamræmi við skilning launþega og fyrirtækja á stöðunni á vinnumarkaði í dag. „Ég hef áhyggjur af því hvernig þær forsendur eru lagðar fram sem fjárlögin byggja á. Annars vegar er um að ræða þjóðhagsspá Hagstofunnar frá því í júlí sem maður setur ákveðinn fyrirvara við. Hins vegar á vöxtur í íslensku hagkerfi að byggja á einkaneyslu og fjárfestingu sem á að aukast um 15 prósent.“ 3.10.2011 06:30
Erlend fjárfesting bundin við álver Óvíða eru meiri hömlur á erlenda fjárfestingu en hér á landi. Ef litið er til síðustu áratuga sést að fjárfesting að utan hefur komið í slumpum og nánast verið bundin við áliðnaðinn. Starfshópur iðnaðarráðherra leggur til að lög um málaflokkinn verði afnumin og nefnd um erlenda fjárfestingu verði lögð niður. 3.10.2011 06:00
Níu ára hetja bjargaði heimili sínu Níu ára strákur í Reykjanesbæ bjargaði heimili sínu í gær þegar eldur í kamínu fór úr böndunum. Hann segir auglýsingu í sjónvarpinu hafa kennt sér á slökkvitækið. 2.10.2011 19:28
Stikla úr mynd Baltasars nýtur gríðarlegra vinsælda Kynningarstikla fyrir kvikmyndina Contraband í leikstjórn Baltasars Kormáks er vinsælasta myndbandið á YouTube þessa stundina. Myndin kostaði 25 milljónir dollara í framleiðslu og skartar stórleikurum á borð við Mark Wahlberg. 2.10.2011 19:12
Kvikmyndaskólinn með tilboð frá yfirvöldum Stjórn Kvikmyndaskóla Íslands hefur í rúma viku haft tilboð frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu um styrktarsamning til skoðunar. Böðvar Bjarki Pétursson, stjórnarformaður skólans, segir það skýrast um hádegi á morgun hvort tilboðinu verði tekið. Hann vill ekki gefa upp hvað stendur út af í samningaviðræðunum en segist þó vera bjartsýnn á að samningar náist. Fyrir liggur að tilboð ráðuneytisins hljóðar upp á styrk til skemmri tíma. 2.10.2011 18:51
Bankasýslan réði reynsluminnsta umsækjandann Páll Magnússon, nýráðinn forstjóri Bankasýslu ríkisins, er sá umsækjenda um starfið sem minnsta reynslu hefur af störfum fyrir fjármálastofnanir. Stjórnarformaður Bankasýslunnar telur að tengsl Páls við einkavæðingu bankanna sé ekki ókostur fyrir starfið. Aðrir umsækjendur um stöðuna voru: Karl Finnbogason sem starfar sem sérfræðingur hjá eignastýringu Bankasýslu ríkisins. Hann er með framhaldsmenntun í hagfræði og hefur um þriggja ára reynsla af stjórnunarstörfum hjá fjármálastofnunum. Kolbrún Jónsdóttir viðskiptafræðingur. Hún situr í stjórn Íslandsbanka fyrir hönd Bankasýslu ríkisins og hefur rúmlega áratugs reynslu af stjórnunarstörfum hjá fjármálastofnunum Ólafur Örn Ingólfsson hagfræðingur sótti einnig um. Hann hefur um 30 ára reynsla af störfum í fjármálastofnunum, stærstan hluta sem stjórnandi. Páll Magnússon er með BA í guðfræði og MPA í opinberri stjórnsýslu. Hann hefur sinnt fjölda trúnaðarstarfa fyrir Framsóknarflokkinn; vður bæjarritari hjá Kópavogsbæ, sviðsstjóri stjórnsýslusviðs, aðstoðarmaður ráðherra og stjórnarmaður hjá Landsvirkjun. Af þessu er ljóst að Páll er með minnstu menntunina og minnstu reynsluna þegar kemur að störfum hjá fjármálastofnunum. "Það er rétt hjá þér að Páll skoraði ekki fremst umsækjenda á þessum sviði en heildarmatið var honum í vil en það eru margir þættir sem eru metnir," segir Þorsteinn Þorsteinsson, stjórnarformaður Bankasýslunnar. Það er stjórn stofnunarinnar sem sá alfarið um ráðninguna, í samvinnu við Capacent. Aðspurður segir Þorsteinn að það hafi ekki verið neitt eitt atriðið sem gerði útslagið vegna ráðningar Páls. "Nei, ég mynd ekki segja það hefði verið eitt kannski. Hann stóð sig mjög vel í viðtölum og kom vel fyrir og fékk mjög góðmeðmæli," segir hann. Þorsteinn nefnir sérstaklega að Páll hefur víðtæka reynslu úr stjórnkerfinu og það hafi vegið þungt. Trúnaðarstörf fyrir Framsóknarflokkinn eru áberandi á ferillsskrá Páls. Þorsteinn neitar því aðspurður að pólitík hafi ráðið för við ráðninguna. "Nei, það var alls ekki nein pólitík," segir hann. Páll var aðstoðarmaður Valgerðar Sverrisdóttur, fyrrverandi viðskiptaráðherra, þegar bankarnir voru einkavæddir. Nú er hann óneitanlega nokkuð tengdur einkavæðingunni og þessi einkavæðing var gagnrýnd í rannsóknarskýrslu alþingis. Finnst þér þetta ekki óheppilegt? "Við ákváðum að líta ekki til þessa sérstaklega og töldum að við hefðum ekki rétt til þess í raun og veru að setja á hann neinn mínus fyrir þetta atriði sérstaklega," segir Þorsteinn. 2.10.2011 18:45
Ríkisráð kemur saman á morgun Reglulegur fundur ríkisráðs Íslands verður haldinn á Bessastöðum á morgun klukkan þrjú. Á fundinum mun Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, endurstaðfesta mál sem þegar hafa verið afgreidd, líkt og stjórnarskráin gerir ráð fyrir. 2.10.2011 15:59
Eins og Alþingishúsið hefði veðrast í öld Þrifin á Alþingishúsinu eftir þingsetningu og stefnuræðu í fyrra voru eins og húsið hefði veðrast eitt hundrað ár, segir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis. Hún segir í góðu lagi að fólk mótmæli við þessi tækifæri svo framarlega sem það beiti ekki ofbeldi eða skemmi eignir. 2.10.2011 13:45
Ósammála túlkun forsetans á tillögum stjórnlagaráðs Stjórnlagaráðsfulltrúi segir túlkun forseta á tillögum stjórnlagaráðs vera allt önnur en ráðið lagði upp með. Hann segir það eðlilega kröfu ráðsins að valdamenn reyni ekki að afbaka tillögurnar eftir pólitískum hagsmunum. 2.10.2011 12:19
Norræn tíska í Seattle „Stórsigur fyrir Norræna hönnun," segir Max Dager, forstjóri Norræna hússins, sem er nú staddur í Seattle á Norræna tískutvíæringnum ásamt forystuliði norræna hönnuða . Góð þátttaka hefur verið á sýningunni og málþinginu. 2.10.2011 12:08
Stjórnarandstaðan stýrir engri þingnefnd Stjórnarandstöðuflokkarnir sinna ekki formennsku í neinni þingnefnd, þrátt fyrir að gert sé ráð fyrir því í nýjum lögum um þingsköp sem tóku gildi í gær. Ákvörðun um þetta var tekin sameiginlega af þingflokksformönnum allra flokka. Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks, Ragnheiður Elín Árnadóttir, segir að þegar unnið var að útfærslu á lögunum hafi komið upp skoðanamunur milli flokka um það hvaða nefndir kæmu í hlut hvers þingflokks. "Í nýju þingskapalögunum er skýrt tekið fram og algjörlega ljóst hvernig formennska skiptist á milli þingflokka," segir hún og á þar við fjölda nefnda sem flokkur stýrir út frá þingstyrk. Hins vegar sé ekki skýrt hvernig ákveða skuli hvaða flokkur fær formennsku í hvaða nefnd. "Þess vegna þegar við vorum búin að fara yfir þetta mál þá var það ljóst að um þetta næðist ekki samkomulag og því varð út að við ákváðum sameiginlega að fresta þessum breytingum og vísa vinnu við útfærsluna í nýja þingskapanefnd," segir Ragnheiður Elín. Miklar breytingar felast í nýju þingskapalögunum og segir Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokks, mikilvægt að þær séu útfærðar að vel athuguði máli. Ragnheiður Elín tekur í sama streng. "Að mínu mati er þetta farsæl niðurstaða, að við vöndum okkur, útfærum þetta og gerum þetta með þeim hætti að okkur verði sómi að," segir hún. Uppi hefur verið orðrómur um að þingflokksformenn stjórnarandstöðunnar hafi hreinlega neitað að taka að sér formennsku í flokkunum. Spurður um þetta segir Gunnar Bragi að svo sé ekki. "Þetta er bara einhver saga sem er verið að reyna að breiða út," segir hann. 2.10.2011 12:00
Stefnir í kreppu út áratuginn Íslendingar verða í kreppu út áratuginn ef ríkisstjórnin grípur ekki til aðgerða til að örva fjárfestingu, segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann segir að hagvöxtur sé allt of lítill enn sem komið er. 2.10.2011 11:22
Sátu ekki undir ræðu forseta Íslands Álfheiður Ingadóttir og Davíð Stefánsson, sem bæði eru þingmenn VG, hlýddu ekki á ræðu Ólafs Ragnars Grímssonar, við setningu Alþingis í gær. "Við sátum ekki undir henni. Ég held það megi orða það þannig,“ segir Álfheiður Ingadóttir. Hún segir að ástæðan sé sú að henni finnist ekki við hæfi að blanda saman áróðursræðum forseta Íslands og þingsetningunni. 2.10.2011 10:52
Slökkvilið kallað á elliheimili Slökkviliðið var kallað að elliheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi um tíuleytið í gærkvöld. Þar hafði gleymst eggjabakki á eldavél og óttuðust starfsmenn afleiðingar þess. Enginn eldur hlaust af og sáralítill reykur þannig að slökkviliðið þurfti ekkert að aðhafast nema lofta út, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðsmanni. 2.10.2011 09:29
Ekið á gangandi vegfarendur Ekið var á tvo gangandi vegfarendur, karlmann og konu, í Lækjargötu um hálffjögurleytið í nótt. Karlmaðurinn fékk höfuðáverka en konan fótbrotnaði. Engar grunsemdir eru um að ökumaður hafi verið undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Mikið myrkur var þegar atvikið átti sér stað og vill lögreglan beina því til ökumanna, jafnt sem gangandi vegfarenda, að fara gætilega nú þegar farið er að rökkva á kvöldin. 2.10.2011 09:25
18 skátar fengu Forsetamerki Árleg afhending Forsetamerkis skátahreyfingarinnar fór fram í Bessastaðakirkjuí dag 1. október að viðstöddum viðtakendum viðurkenningarinnar, forystufólki BÍS, og aðstandendum viðtakenda. 1.10.2011 22:00
Fótbraut mann á bílastæði Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákært mann fyrir að fótbrjóta annan mann með fjórhjóli. 1.10.2011 22:00
Einn með allar tölur réttar Einn var með allar tölur réttar í lottóinu í kvöld. Vinningsmiðinn keypti miðann í Shellskálanum á Egilsstöðum og fær spilarinn tæplega 5,5 milljónir í sinn hlut. 1.10.2011 19:38
Landeyjahöfn ekki nógu djúp fyrir Herjólf - siglt til Þorlákshafnar Vegna óveðurs undanfarna daga og mikils öldugangs við Landeyjahöfn, þá eru vísbendingar um að dýpi í hafnarmynninu hafi minnkað það mikið að Herjólfur geti ekki siglt þar inn þegar hann hefur áætlun á mánudag. 1.10.2011 18:55
Varðstjóri hjá lögreglunni: Við eigum líka skuldir og heimili Formaður landssambands lögreglumanna segir það gjörsamlega óþolandi að skikka menn til vinnu og stilla þeim varnarlausum upp gegn mótmælendum. 1.10.2011 18:38
Þingmönnum brugðið þegar Árni Þór féll Það er óhætt að segja að þeim þingmönnum sem næst stóðu Árna Þór Sigurðssyni hafi verið brugðið þegar hann féll í götuna eftir að hafa fengið egg í gagnaugað. Þeir voru þó fljótir að átta sig og komu honum til bjargar. Árni Þór sagði í samtali við Vísi fyrr í dag að hann hefði skilning á því að fólk mótmælti en það væri synd ef mótmælin fælu í sér skemmdir eða ofbeldi. 1.10.2011 17:01
Niðurskurðurinn á sjöunda milljarð Útgjöld ríkissjóðs verða skorin niður um 6,6 milljarða króna á næsta ári, samkvæmt fjárlagafrumvarpi ársins. Skorið verður niður um 3% í almennri stjórnsýslu og þjónustu og 1,5% í velferðamálum, s.s. heilbrigðisþjónustu, skólamálum, löggæslu, bótakerfum og sjúkratryggingum. 1.10.2011 16:35
Vörðu ráðherra og þingmenn með regnhlífum Lögreglumenn og öryggisverðir á vegum Alþingis nýttu regnhlífar til þess að hlífa ráðherrum og þingmönnum við eggjakasti þegar gengið var frá Dómkirkjunni til Alþingishússins, þar sem setning Alþingis fór fram. Það kom þó ekki í veg fyrir að fjöldi þingmanna yrði útbíaður út í eggjum sem kastað var af Austurvelli. Sigurjón Egilsson, Þorsteinn Magnússon og Gísli Berg, sem allir eru starfsmenn fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis, voru staddir á Austurvelli og fönguðu stemninguna. Hákon Logi Sigurðarson klippti myndskeiðið. 1.10.2011 15:24
Sóknargjöld lækka um 27 milljónir Sóknargjöld til þjóðkirkjunnar lækka um 27 milljónir króna, samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár. Ástæðan er endurmat á gjölda einstaklinga í skráð trúfélög, sóknargjöld til annarra trúfélaga hækka um 14 milljónir króna af sömu ástæðu. Þá munu framlög til kirkjugarða lækka um 18,3 milljónir frá gildandi fjárlögum að raungildi. Fram kemur í frumvarpinu að framlagið er lækkað um rúmar 25 milljónir króna vegna samdráttar í ríkisútgjöldum en á móti kemur 7 milljóna króna hækkun vegna endurskoðunar á reiknilíkani. 1.10.2011 14:30
Lögreglumenn upplifa sig sem mannlega skildi Lögreglumenn sem stóðu vaktina fyrir framan Alþingi við þingsetningu í dag höfðu ekkert val um það hlutskipti sitt, segir Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna 1.10.2011 14:10
Dorrit missti af messunni Dorrit Moussieff forsetafrú tók sér stöðu meðal almennings og ræddi við mótmælendur fyrir setningu Alþingis í dag. Svo upptekin var hún af samskiptum við fólkið að hún missti af guðsþjónustunni. 1.10.2011 13:29
Þingmenn líti í eigin barm Þjóðin gerir kröfu til breyttra vinnubragða og að þingmenn líti í eigin barm og finni til ábyrgðar sem einstaklingar og kjörnir fulltrúar. Þetta sagði Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, við þingsetningu í dag. 1.10.2011 12:31
Árni Þór vankaðist við eggjakastið "Ég smá vankaðist svona,“ segir Árni Þór Sigurðsson, þingmaður VG, sem fékk egg í höfuðið á leið úr Alþingishúsinu til guðsþjónustu í dag. "Þetta kom illa á gagnaugað rétt fyrir ofan eyrað og ég vankaðist smá og datt,“ segir Árni Þór. 1.10.2011 12:09
Alþingi þarf að móta afstöðu fyrir forsetakosningarnar Alþingi þarf að móta skýra afstöðu til tillagna stjórnlagaráðs þótt breytingar á sjálfri stjórnarskránni hljóti ekki endanlegt gildi fyrr en að loknum næstu þingkosningum. Þetta sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, í ræðu sinni við setningu Alþingis í dag. 1.10.2011 11:48
Mótmælin eru hættumerki Sú staðreynd að þúsundir manna telji sig ár eftir ár tilbúna til þess að mótmæla í hörðum mótmælum við þingsetningu er hættumerki sem okkur ber öllum að taka alvarlega, sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, við setningu Alþingis í dag. 1.10.2011 11:25
Mjúki maðurinn er ekki til Einu sinni las ég viðtal við Mads Mikkelsen, þú veist, danska leikarann. Þegar blaðamaðurinn ætlaði að fara að spyrja hann einhverra persónulegra spurninga svaraði hann: Ég held alltaf fjölskyldunni utan við vinnuna. Ég er ekki Mads Mikkelsen en er samt að spá í að taka hann mér til fyrirmyndar. Mér finnst mjög óþægilegt að tala um sjálfan mig og mér finnst mitt persónulega líf ekki koma neinum við. Aumingja konan mín er gift mér og greyið dóttir mín á mig fyrir pabba. Það er ekki þeim að kenna að ég er í þessari vinnu.“ 1.10.2011 11:00
Þingmaður féll í götuna Mótmælandi kastaði aðskotahlut í höfuð Árna Þórs Sigurðssonar, þingmanns VG, þegar hann gekk úr Alþingishúsið í Dómkirkjuna í morgun. Við þetta féll Árni í jörðina. Hann steig aftur upp og virtist ekki hafa orðið meint af. 1.10.2011 10:59
Töluverður fjöldi mótmælir Töluverður fjöldi fólks er samankominn á Austurvelli til að mótmæla við þingsetningu Alþingis. Lögreglan fylgist með svæðinu og tryggir að allt fari vel fram. Það er ýmsu mótmælt, meðal annars eftirlaunaforréttindum þingmanna og svo eru sumir sem vilja koma breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfið. 1.10.2011 10:22
Angraði fólk á veitingastað Karlmaður var handtekinn eftir að hann angraði gesti og dyraverði á veitingastaðnum Volcano í Vestmanneyjum í nótt. Maðurinn var drukkinn og var látinn sofa úr sér í fangageymslum lögreglunnar. 1.10.2011 10:03
Datt í sjóinn við Hörpu Karlmaður datt í sjóinn við Faxagarð, rétt við Hörpu, í nótt. Kafarabíll frá sjúkraliðinu var kallaður til, en maðurinn var kominn upp úr af eigin rammleik áður en bíllinn mætti á staðinn. Maðurinn var ekki slasaður en var fluttur kaldur til aðhlynningar á slysadeild. Þá björguðu lögreglumenn og björgunarsveitamenn manni sem hljóp í sjóinn í Hólmavík um tvöleytið í nótt. Sá var einnig ölvaður. 1.10.2011 09:57
Þingsetning í beinni á Vísi Alþingi verður sett með guðsþjónustu í Dómkirkjunni klukkan hálfellefu í dag. Eftir það ganga Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands, handhafar forsetavalds og þingmenn í Alþingishúsið þar sem forsetinn setur þingið. Eins og venja er mun fjárlagafrumvarpinu jafnframt verða dreift. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra hélt blaðamannafund klukkan níu í morgun þar sem helstu atriði frumvarpsins verða kynnt. Við munum segja nánar frá þingsetningu í hádegisfréttum okkar klukkan tólf og á Vísi. 1.10.2011 09:49
Akranesbær bíður svars frá ráðuneyti í máli skólabarna Mennta- og menningarmálaráðherra mun eftir helgi kveða upp úr með það hvort bæjaryfirvöldum á Akranesi sé heimilt að flytja börn milli skóla gegn neitun foreldra þeirra. 1.10.2011 09:00
Þjóðin kjósi um stjórnarskrá Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra vill að þjóðin greiði atkvæði um frumvarp stjórnlagaráðs um nýja stjórnarskrá samhliða forsetakosningunum á næsta ári. Niðurstaðan verði ráðgefandi fyrir Alþingi er það fjallar um málið. 1.10.2011 08:30