Fleiri fréttir

Jóhanna: Samráð verði haft við stofnanir um niðurskurð

Jóhanna Sigurðardóttir segir að verið sé að leita samráðs við heilbrigðisstofnanir úti á landi hvort hægt sé að finna lausn á málefnum stofnananna en mikill niðurskurður er fyrirhugaður í flestum landshlutum, samvkæmt nýju fjárlagafrumvarpi.

Enginn afsláttur gefinn á öryggi sjúklinga

Það er algjörlega ljóst að þjónustustig hefur minnkað á spítalanum enda átti enginn von á öðru í þeim mikla niðurskurði sem verið hefur síðustu árin, segir Björn Zoëga, forstjóri Landspítala Íslands, í föstudagspistli sínum.

Gissur Pétursson gefur kost á sér á stjórnlagaþing

Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar ætlar að gefa kost á sér til setu á stjórnlagaþingi. Þetta staðfesti Gissur í samtali við fréttastofu. Framboðsfrestur til stjórnlagaþings rennur út eftir tæpan hálfan mánuð en ekki eru tiltækar upplýsingar um hversu margir hafa þegar boðið sig fram. Jónas Kristjánsson fyrrverandi ritstjóri hefur einnig lýst yfir framboði, en það gerði hann á bloggsíðu sinni í vikunni.

Fljúga í Fokker frá Reykjavík til Noregs

Flugfélag Íslands mun fljúga milli Íslands og Noregs um næstu jól og áramót. Flogið verður frá Reykjavíkurflugvelli til Stavanger, Bergen og Þrándheims, samkvæmt upplýsingum frá flugfélaginu.

Óforsvaranlegt að bankar skili hagnaði en fjölskyldur séu bornar út

Framsóknarkonur telja að það sé óforsvaranlegt að nýju bankarnir skuli krefja almenning um fulla endurgreiðslu lána sem voru keypt af gömlu bönkunum með 45% afslætti. Þetta leiði meðal annars til þess að þeir skili hagnaði á sama tíma og fjölskyldur séu bornar út af heimilum sínum. Þetta kemur fram í ályktun sem Landssamband Framsóknarkvenna sendi frá sér í gær.

Bæjarráð Seyðisfjarðar: Aðför gerð að landsbyggðarfólki

Bæjarráð Seyðisfjarðar hefur nú bæst í hóp fjölmargra sveitastjórna sem mótmælt hafa niðurskurðaráformum ríkisstjórnarinnar. Í nýrri bókun ráðsins lýsir ráðið algjörri andúð sinni á þeirri aðför að landsbyggðinni og afkomumöguleikum fólks þar, sem birtist í framlögðum niðurskurðartillögum í Fjárlagafrumvarpi 2011 um fyrirkomulag heilbrigðisþjónustu á Austurlandi.

Yoko býður almenningi til Viðeyjar

Í tilefni af tendrun Friðarsúlunnar á 70 ára fæðingarafmæli John Lennon, býður Yoko Ono gestum í fría kvöldsiglingu til Viðeyjar á laugardags- og sunnudagskvöld.

Saksóknaranefnd valin á þriðjudag

Saksóknaranefnd Alþingis vegna málshöfðunar gegn Geir Haarde verður kosin á þriðjudag, strax eftir að saksóknari og varasaksóknari hafa verið kjörnir. Nefndin er kosin á grundvelli laga um landsdóm og er gert ráð fyrir að um fimm manna nefnd sé að ræða sem fylgist með málinu og sé saksóknara Alþingis til aðstoðar.

Hertar aðgerðir gegn svartamarkaðsbraski

Boðaðar hafa verið hertar aðgerðir gegn svartamarkaðsbraski með rjúpur, segir Sigmar B. Hauksson, formaður Skotveiðifélags Íslands. Verulega hefur dregið úr rjúpnaveiði á undanförnum árum enda þykir stofninn vera allt of lítill. Það breytir því ekki að margir sem hafa vanist því að borða rjúpnakjöt á jólunum eru enn sólgnir í slíkan mat. Þetta skapar forsendur fyrir svörtum markaði.

Síminn vill nánari útfærslu á internetskatti

STEF, samtök tónskálda og eigenda flutningsréttar, vilja taka upp sérstakt gjald á internetnotkun til að milda fjárhagslegt högg sitt vegna ólöglegs niðurhals. Talsmaður Símans segir fyrirtækið ekki slá hugmyndina út af borðinu.

Bleikur föstudagur í dag

Í dag klæðist fólk einhverju bleiku og vefsíður, byggingar og fleira eru skreyttar bleiku til að sýna samstöðu í baráttunni gegn krabbameinum hjá konum.

Salmann Tamimi: Moska verður að vera á íslenskum forsendum

Talsmaður Menningaseturs múslíma sem á að vera í Ýmishúsinu í Skógarhlíð segist ekki hafa verið rekinn úr Félagi múslíma eins og formaður þess, Salmann Tamimi, heldur fram. Nú stefnir í að félagið fái lóð undir mosku.

Gleymdu að stimpla sig en vilja samt atvinnuleysisbætur

Tvö mál bíða afgreiðslu úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þar sem einstaklingar krefjast þess að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að hafa staðfest atvinnuleit sína eins og lög gera ráð fyrir.

Nauðungarsala blasir við 240 íbúðareigendum

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að flest bendi til þess að um 230 til 240 íbúðir, þar sem eigandi á lögheimili, fari að óbreyttu á lokasölu í október. Ætlunin er að þessir aðilar fái nú flýtimeðferð hjá Umboðsmanni skuldara og embættið fái afdráttarlausar heimildir til að stöðva nauðungarsölur í slíkum tilfellum. Nú er unnið því að hafa samband við þá 230-240 aðila sem standa í þessum sporum og reynt að leita lausna í samráði við þá.

Skipt um rúður í Alþingishúsinu

Iðnaðarmenn voru í óða önn að skipta um rúður í Alþingishúsinu í morgun. Sjö rúður voru brotnar þar í fyrrinótt og enn fleiri á mánudagskvöldið þegar stefnuræða forsætisráðherra fór fram.

Niðurskurði mótmælt á Blönduósi

Bæjarráð Blönduósbæjar mótmælir harðlega þeim niðurskurði sem gert er ráð fyrir hjá Heilbrigðiststofnun Blönduóss og birtist í fjárlagafrumvarpi 2011. Bæjarráðið segir að stofnunin hafi á undangegnum árum þurft að sæta miklum niðurskurði og nú sé svo komið að vegið er að grunnþjónustu og velferð íbúa í Austur-Húnavatnssýslu.

Ætla að byggja heilsuþorp á Flúðum

Sveitastjórn Hrunamannahrepps hefur kynnt umhverfisráðuneytinu áform um fyrirhugaða byggingu heilsuþorps á Flúðum, samkvæmt yfirlýsingu sem send var fjölmiðlum í morgun.

Fæðingarþjónusta leggst af í Árborg

Bæjarfulltrúar í Árborg mótmæla harðlega þeim niðurskurði sem boðaður er í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2011 á rekstrarframlögum til Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.

Safna fyrir hjólastólarampi handa fötluðum dreng

Ragnar Emil Hallgrímsson er þriggja ára drengur sem aðeins nokkurra mánaða gamall greindist með alvarlegan hrörnunarsjúkdóm. Vegna veikinda sinna þarf Ragnar Emil að nota öndunarvél og fer ferða sinna í rafmagnshjólastól.

Nær fjögur þúsund mótmæla niðurskurði víða um land

Hátt í fjögur þúsund manns,samtals, mótmæltu niðurskurði í heilbrigðisþjónustunni á borgarafundum á Húsavík, Ísafirði og í Reykjanesbæ í gærkvöldi og mótmælaaðgerðir eru fyrirhugaðar í Vestmannaeyjum í dag.

Enn í haldi eftir líkamsárás í gærkvöldi

Karlmaður á þrítugsaldri er enn í haldi lögreglu, vegna rannsóknar á líkamsárás þrigga manna á ungan mann af erlendum uppruna á mótum laugavegar og Vitastígs í Reykjavík á sjötta tímanum í gærkvöldi.

Sextán ára stúlka velti bil á miklum hraða

Sextán ára stúlka og 19 ára piltur voru flutt á slysadeild Landsspítalans eftir að bíll, sem stúlkan ók, fór út af Vatnsleysustrandarvegi laust fyrir miðnætti, valt þar nokkrar veltur og gjör eyðilagðist.

Eftirlýstir af Interpol fyrir glæpi hérlendis

Fjórir erlendir karlmenn eru eftirlýstir af alþjóðalögreglunni Interpol fyrir alvarleg brot sem þeir hafa framið hér á landi. Hinn fimmti, sem eftirlýstur var til skamms tíma, hefur nú verið handtekinn og situr í fangelsi í Líbanon.

Sjálfseignarkerfið að komast á endastöð

Á síðustu árum og húsnæðisverðiára­tugum hafa langflestar fjölskyldur keypt sitt eigið húsnæði, enda fáir aðrir kostir í boði. Þeir sem hafa þurft eða kosið að fara út á leigumarkaðinn hafa oft á tíðum mátt búa við mikla óvissu. Stjórnvöld telja að breyta þurfi húsnæðiskerfinu og gefa fólki aðra valkosti en eigið húsnæði.

Fjöldi ófeðraðra mynda enn á huldu

„Þeir eru búnir að viðurkenna þessi mistök og málið er úr sögunni af minni hálfu,“ segir Eygló Sigurðardóttir, sem á fjórar ljósmyndir í 35 mynda verki Ólafs Elíassonar.

Bíður tillagna forstöðumanna

„Það eru sívaxandi kröfur um ákveðna tækni og ákveðna færni og kunnáttu í læknis­þjónustu en það er ekki hægt að dreifa þessu um allt land heldur verður að koma henni fyrir á fáum stöðum, til dæmis höfuðborgarsvæðinu og Akureyri,“ segir Guðbjartur Hannesson heilbrigðisráðherra.

Gat ekki fallist á ályktunina

Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vildi ekki standa að ályktun sameiginlegrar þingmannanefndar Íslands og Evrópusambandsins, sem hélt sinn fyrsta fund á þriðjudag.

Svandís áfrýjar dómi vegna óskýrra laga

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur áfrýjað dómi Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem synjun hennar á þeim hluta aðalskipulags Flóahrepps er varðar Urriðafossvirkjun var ógilt. Hún segir ástæðuna vera þá að hún vilji skýrari leiðsögn um það hver megi koma að kostnaði við skipulagsgerð.

Mikill vilji hjá skipulagsráði

Mikill vilji er hjá skipulagsráði Reykjavíkur að ganga frá úthlutun lóðar undir mosku og menningarsetur Félags íslenskra múslima. Það segir Páll Hjaltason, formaður skipulagsráðs, í samtali við Fréttablaðið.

Skemmdirnar óafturkræfar

„Ég er ekki viss um að fólk átti sig á því að það er verið að eyðileggja varanlega Alþingshúsið, sem er þjóðargersemi,“ segir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis.

Vilja rukka netnotendur

Samband tónskálda og eigenda flutningsréttar (STEF) vill sporna við ólöglegu niðurhali á tónlist hér á landi með því að leggja meðal annars gjöld á nettengingar. Gjöldin myndu gefa notendum aðgang að tónlist á netinu með löglegum hætti og fara í sameiginlegan sjóð sem yrði síðan útdeilt til höfundarréttarhafa.

Borgarstjóri: Yndislegur fundur með Yoko Ono

Jón Gnarr, borgarstjóri, segir á færslu í dagbók sinni á samskiptavefnum Facebook að hann hafi átt yndislegan fund með Yoko Ono, ekkju Johns Lennons, eftir borgarráðsfund í dag. Næstkomandi laugardag verða 70 ár liðinn frá fæðingardegi Johns.

Skilur viðbrögð almennings

„Vinnan er rétt að hefjast en sjokkið er komið hjá þeim sem hafa fengið kynningu á því hvernig frumvarpið stendur,“ segir Þuríður Backman, formaður heilbrigðisnefndar Alþingis. Borgarafundir hafa verið haldnir v

Kalla eftir einingu á meðal ráðamanna

„Reyknesingar hafa fengið sig fullsadda af óeiningu ráðamanna, atvinnuleysi, gjaldþrotum, nauðungarsölum, endalausum töfum og aðgerðarleysi. Nú þarf að hafa skýra sýn og taka á málum með festu," segir í ályktun borgarafundar sem haldinn var í Stapa í Reykjanesbæ í kvöld. Fundurinn var haldinn í samvinnu við Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi. Hann var þétt setinn, að því er fram kemur á vef Víkurfrétta.

Leiðtogi múslima óttast að öfgaöfl skjóti hér rótum

Fjársterkir útlendingar hafa keypt hús í Reykjavík sem á að vera moska múslíma. Formaður Félags múslíma á Íslandi sver hópinn af sér. Hann hefur tilkynnt mennina til lögreglu og segist óttast að öfgaöfl nái að skjóta hér rótum.

Fjórir handteknir eftir líkamsárás

Karlmaður var fluttur á slysadeild Landspítalans eftir alvarlega líkamsárás á horni Laugavegar og Vitastígar í dag. Fjórir menn voru handteknir eftir árásina og eru enn í haldi lögreglunnar. Ekki liggur fyrir hve alvarlegir áverkar mannsins sem ráðist var á eru.

Sex bíla árekstur við Bústaðaveg

Sex bíla árekstur varð á gatnamótum Bústaðavegar og Flugvallarvegar fyrir stundu. Fjórir voru fluttir á slysadeild úr tveimur bílum en samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu er ekki um alvarleg meiðsl á fólki að ræða. Umferðartafir gætu orðið við gatnamótin fram á sjöunda tímann í kvöld vegna slyssins.

Gleymdi potti á eldavélinni

Betur fór en á horfðist þegar gleymdist að slökkva á eldavélarhellu í kjallaraíbúð í vesturborginni síðdegis í gær. Þar var ungur maður að sjóða fisk í potti fyrir heimilisköttinn en skrapp frá og gleymdi að slökkva á hellunni.

Grunaður um að lemja konu og hrinda fötluðum manni

Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag gæsluvarðhald yfir manni sem er grunaður um að hafa lamið fyrrverandi kærustu sína með hnúajárni og stórslasað hana. Maðurinn skal sæta gæsluvarðhaldi til 1. nóvember.

Dómur þyngdur yfir ofbeldismanni

Hæstiréttur Íslands þyngdi dóm yfir Ólafi Gottskálkssyni í dag en hann hlaut tíu mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að ryðjast inn á heimili manns, misþyrma honum og hafa tölvu á brott með sér.

Sjá næstu 50 fréttir