Fleiri fréttir

Verjandi Geirs vill að málið verði fellt niður

Verjandi Geirs Haarde, fyrrverandi formanns Sjálfstæðisflokksins, vill að Alþingi felli niður málshöfðun gegn Geir vegna meintra brota á ráðherraábyrgð. Þetta kemur fram í bréfi Andri Árnason, lögmaður Geirs, sendi forseta Alþingis í fyrradag, samkvæmt heimildum Vísis.

Össur við bændur: Enginn er barinn til ásta

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hvetur íslenska bændur til að taka þátt í aðildarviðræðum vegna mögulegrar aðildar Íslands að Evrópusambandi og telur að bændur vanmeti samningsstöðu sína. „Staðreyndin er einfaldlega sú, að samningsstaða íslensks landbúnaðar er betri en þeir telja, sem ekki vilja láta á hana reyna," segir Össur í bréfi til Bændasamtakanna. Að hans mati verða fulltrúar bænda að hafa sjálfstraust til að taka þátt í samningaviðræðunum af fullum þrótti til að tryggja hag þeirra sem best.

Listamenn kynna störf sín fyrir Ásbirni

Ásbjörn Óttarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins, situr nú fund með stjórn Bandalags íslenskra listamanna í Iðnó. Í tilkynningu frá félaginu segir að Ásbirni hafi verið boðið á fund með stjórninni þar sem ekki sé vanþörf á að uppfræða þjóðkjörna fulltrúa um störf og stöðu listamanna.

Leggur til að menning og listir verði lagðar niður í sólarhring

Hljómplötuútgefandinn Baldvin Esra Einarsson, sem rekur Kimi Records, er kominn með nóg af árlegri umræðu um sóun fjármuna í listir á Íslandi. Hann hvetur Bandalag íslenskra Listamanna (BÍL) til þess að fara í eins dags allsherjarverkfall til þess að minna á mikilvægi listarinnar.

Ísland í forgrunni í Frankfurt - ekkert skorið niður

Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra var viðstödd blaðamannafund sem haldinn var í Frankfurt í morgun þar sem helstu viðburðir tengdir Íslandi á Bókasýningunni í Frankfurt á næsta ári, en þar skipar Ísland heiðurssess.

Ásbjörn biður listamenn afsökunar

Ásbjörn Óttarsson, þingmaður sjálfstæðismanna, biðst afsökunar á ummælum sínum á þingi um að listamenn gætu fengið sér vinnu eins og venjulegt fólk. Hann segist þó ekki vera hlynntur listamannalaunum.

Allir nema sjálfstæðismenn ræddu skuldavandann

Nefnd fimm ráðherra og fulltrúa stjórnarandstöðunnar funduðu í forsætisráðuneytinu í morgun um mögulegar aðgerðir til að létta á skuldavanda heimilanna. Sjálfstæðisflokkurinn var eini flokkurinn sem ekki átti fulltrúa á fundinum.

Undrast hve langan tíma Svandís tók til lýsa sig vanhæfa

Ráðamenn Ölfuss undrast að nærri hálft ár skyldi líða frá því þeir sendu inn aðalskipulag sveitarfélagsins til staðfestingar þar til umhverfisráðherra lýsti sig vanhæfan í málinu. Þeir segja að þetta muni meðal annars tefja tvöföldun Suðurlandsvegar.

Skólabörn gengu við trommuslátt í rigningunni

Nemendur og starfsfólk Grunnskólans á Hólmavík fóru í sameiginlega gönguferð um bæinn í tilefni af alþjóðlega Göngum í skólann-dagsins sem var í gær. Nemendurnir gengu við fjörugan trommuslátt og sungu hin ýmsu lög í rigningunni.

Færri ríkisstofnanir reknar með halla

Í skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga fyrstu átta mánuði þessa árs kemur fram að tekjur ríkisins á tímabilinu voru 13 milljarða króna yfir áætlun. Skýringin er eingöngu sú að sala eigna skilaði meiri tekjum en reiknað var með. Tekjur af sköttum voru hins vegar í heild minni en áætlað var. Gjöld ríkisins voru 25 milljarða undir áætlun og munar þar mestu um að rekstrargjöld stofnana voru minni en reiknað var með. Afkoma ríkissjóðs var því 38 milljónum króna betri á tímabilinu en búist var við í upphafi ársins. Engu að síður varð 52 milljóna k´rona halli á rekstrinum. Að mati Ríkisendurskoðunar þarf að draga útgjöld verulega saman og/eða auka tekjur á næsta ári eigi markmið stjórnvalda um að rekstur ríkissjóðs skili afgangi árið 2013 að nást.

Karlmenn á háum hælum ganga gegn ofbeldi

Tveir karlmenn hafa tekið sig saman og ætla að ganga á háum hælum til að vekja athygli á ofbeldi gegn konum. Þeir eru bjartsýnir á að góður hópur karlmanna verði með þeim og þegar hefur ein kona sem notar stóra skó boðist til að lána þá til karlanna.

Sigríður og Helgi Magnús verða saksóknarar

Sigríður J. Friðjónsdóttir verður tilnefnd sem saksóknari Alþingis og Helgi Magnús Gunnarsson verður tilnefndur sem varasaksóknari í málinu gegn Geir Haarde fyrrverandi forsætisráðherra, samkvæmt heimildum fréttastofu.

Sruli sýknaður af því að flytja inn hnúajárn

„Ég var sýknaður og fæ regnhlífarnar til baka,“ segir hönnuðurinn Sruli Recht, en hann var ákærður fyrir að flytja inn fjögur hnúajárn. Dómarinn sýknaði hann í morgunn á þeim forsendum að hnúajárnin væru ekki vopn þegar þau voru fest við regnhlíf.

Hrafnistumenn etja kappi við bæjarfulltrúa

Bæjarstjórinn og nokkrir bæjarfulltrúar í Hafnarfirði mæta galvaskir á Hrafnistu í Hafnarfirði í dag til að etja kappi við heimilismenn í árlegri púttkeppni á vellinum við heimilið.

Fremstu vefhönnuðir heims til landsins

„Ísland, Sílíkondalur norðursins, er meðal mest spennandi staða í tæknibransanum um þessar mundir. Hér er nóg af góðum hugmyndum, flottum nýsköpunarfyrirtækjum og umhverfisvænum orkuskýjum.“

Líknandi meðferð deyjandi sjúklinga flutt frá Suðurnesjum

Hjúkrunarráð Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja lýsir yfir verulegum áhyggjum vegna 25 prósenta niðurskurðar á fjárlögum 2011. „Að óbreyttu hefur þetta í för með sér gífurlega skerðingu á þjónustu við íbúa svæðisins. Sýnt er að fæðingaþjónusta, þjónusta við hjarta og lungnasjúklinga, endurhæfing, þjónusta við langveika og krabbameinssjúklinga og líknandi meðferð deyjandi sjúklinga svo eitthvað sé nefnt mun flytjast til Reykjavíkur,“ segir í tilkynningu frá hjúkrunarráðinu.

Slóðaskapur kostaði útkall

Óttast var um afdrif dragnótabáts með sjö manna áhöfn um miðnætti í gærkvöldi og var björgunarskip frá Vestmananeyjum kallað út.

Innbrot í Hveragerði

Brotist var inn í íbúðarhús í Hveragerði í nótt og þaðan stolið fartölvu og farsíma og fleiru smálegu.

Bjarni Benediktsson átti einkafund með David Cameron

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins átti síðdegis á þriðjudaginn einkafund með David Cameron forsætisráðherra Bretlands og leiðtoga breska Íhaldsflokksins. Fundur Bjarna og Cameron fór fram í Birmingham en þar stendur yfir flokksþing breska Íhaldsflokksins.

Vill ekki einkavæða auðlindir

„Maður heyrir að fólki finnist að sérstaklega núna í kreppunni höfum við ekki efni á að hlífa náttúrunni,“ segir Björk Guðmundsdóttir tónlistarmaður í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag.

Flöt afskrift er vond hugmynd segir AGS

Að mati AGS er ástæðulaust að afskrifa skuldir eignafólks. Sjóðurinn hefur frá upphafi verið á móti hugmyndum sem viðraðar hafa verið um flata skulda­afskrift. Efnahagsáætlun stjórnarinnar byggir á því að hjálpa þar sem þörf er á.

Þingið svipti flesta brotaþola bótunum

Lagabreyting frá síðasta ári gerir það að verkum að sárafá fórnarlömb afbrota fá nokkru sinni bætur sem þeim eru dæmdar fyrir tjónið. Breytingin á að spara ríkinu um 60 milljónir á ári.

Ísland og ESB munu helst deila um fisk

Mikið var rætt um sjávarútvegsmál á fundi sameigin­legrar þingnefndar Alþingis og Evrópuþingsins í Þjóðmenningar­húsinu á þriðjudag. Full­trúar Íslands og ESB telja að einna erfið­ast verði að ná samkomulagi um sjávarútvegsmál í aðildar­viðræðum.

Tilboð langt undir áætlun

Verktakafyrirtækið Háfell átti lægsta tilboð, eða tæplega 179 milljónir króna, í seinni áfanga Suðurstrandavegar sem er um 41% af áætluðum kostnaði, 433 milljónum króna.

Ákærðu benda hver á annan

Sakborningarnir þrír í svokölluðu Exeter-máli sérstaks saksóknara vísa hver á annan um ábyrgð á veigamiklum atriðum í málinu. Þetta kemur fram í greinargerðum verjenda sem Fréttablaðið hefur undir höndum. Enginn þeirra telur þó að lög hafi verið brotin í viðskiptunum.

Gekkst undir lífsýnatöku

Karlmaður sem grunaður er um að hafa ráðist á konu í Hveragerði í lok síðasta mánaðar og slasað hana alvarlega hefur undirgengist lífsýnatöku eftir úrskurð Héraðsdómur Suðurlands þar að lútandi.

Fallið frá kröfu meintrar dóttur

Krafa Marilyn Felonia Young sem hún gerði í dánarbú skákmeistarans Bobby Fischer fyrir hönd dóttur sinnar hefur verið felld niður eftir að í ljós kom með DNA-rannsókn að Fischer var ekki faðir stúlkunnar.

Vilja úrbætur í avinnumálum

Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi standa fyrir opnum borgarafundi í Stapa í Reykjanesbæ kl. 16.30 í dag. Auk þeirra standa fjölmargir hagsmunaaðilar að fundinum og mun fundarstjórn vera í höndum Gylfa Arnbjörnssonar forseta Alþýðusambands Íslands.

Mótmæli gegn niðurskurði

Fyrirhugaður niðurskurður í heilbrigðismálum kemur ver við sum svæði en önnur og hefur verið boðað til tveggja borgarafunda til að mótmæla þeim hugmyndum.

Boða til mótmæla í Eyjum

Hópur fólks hefur ákveðið að efna til mótmæla á Stakkagerðistúni í Vestmannaeyjum klukkan 16.30 í dag. Mótmælin beinast að niðurskurði í heilbrigðismálum og hyggst fólkið mynda hring utan um Sjúkrahúsið í Eyjum.

Skal greiða sekt vegna vændis

Maður var dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær til að greiða áttatíu þúsund krónur í sekt vegna vændiskaupa. Annar maður, sem einnig var ákærður fyrir vændiskaup, var sýknaður.

Aldrei fleiri í september

Aldrei hafa fleiri ferðamenn sótt Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Reykjavík í septembermánuði en í nýliðnum mánuði. Í tilkynningu kemur fram að alls heimsóttu 29.170 ferðamenn upplýsingamiðstöðina.

Færðu lán á milli banka með afslætti

Lánasöfn gamla Kaupþings voru færð yfir til Arion banka með sextíu prósenta afslætti. Bæði Arion banki og Íslandsbanki hafa á síðustu átján mánuðum uppfært virði lánasafna, enda reikna þeir með betri heimtum en gert var ráð fyrir í kringum bankahrunið.

Uppgjörið tók eitt og hálft ár

Slitameðferð ALMC, sem áður hét fjárfestingarbankinn Straumur, lauk í fyrradag. Ný stjórn tók þá til starfa og tekur hún við af skilanefnd sem stýrt hefur bankanum frá því FME greip inn í reksturinn. Óttar Pálsson, forstjóri félagsins, á sæti í nýju stjórninni. Kröfuhafar Straums eignuðust bankann fyrir mánuði.

Aðför að heilbrigðisþjónustu

Bæjarráð Bolungarvíkur mótmælir harðlega þeirri aðför að heilbrigðisþjónustu á svæðinu sem birtist í fjárlagafrumvarpinu.

Sjá næstu 50 fréttir