Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eldur í rútu Eldur kviknaði í rútu fyrir stundu í Hafnarfirði. Eldurinn blossaði upp undir rútunni en enginn farþegi var í bifreiðinni þegar eldurinn kviknaði. 9.10.2010 15:00
Tvöhundruð manns vilja fá endurgreitt frá meintri svikamyllu Um tvö hundruð fjárfesta leita nú allra leiða til þess að endurheimta fé sem þeir töpuðu í meintu svikamyllunni Finanzas Forex. 9.10.2010 14:21
Viðbragðsáætlun sett fram vegna niðurskurðar Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur sett fram viðbragðsáætlun vegna þess mikla niðurskurðar sem boðaður hefur verið á heilbrigðisstofnunum landsins og fjöldauppsagna sem reikna má með að gripið verði til, ef fjárlagafrumvarpið verður að lögum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. 9.10.2010 12:56
Útflutningur á hrossum hafinn á nýjan leik Útflutningur á hrossum er hafinn að nýju eftir langt hlé vegna hrossapestarinnar. Hrossaræktendur segjast bjartsýnir, en brýnt er að engin sýkt hross fari úr landi, það gæti haft alvarlegar afleiðingar. 9.10.2010 12:19
Elliði Vignisson: Ríkisstjórnin hefur ekki lengur umboð þjóðarinnar Bæjarstjóri Vestmannaeyja segir að ríkisstjórnin hafi ekki umboð frá þjóðinni og þurfi að fara frá. Stjórnvöld ætli að leggja niður heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni á meðan enn séu góðærisbitar í fjárlögunum sem fyrst þurfi að taka á. 9.10.2010 12:16
Björn Zoëga: Ekkert samráð við spítalann um niðurskurð Forstjóri Landspítalans segir að ekki sé búið að meta áhrif boðaðs niðurskurðar á landsbyggðinni á spítalann. Ekkert samráð var haft við Landspítalann um tillögurnar. 9.10.2010 12:10
Haffi Haff syngur fyrir Ragnar Emil í dag Poppstjarnan Haffi Haff mun taka lagið í verslunarmiðstöðinni Firðinum klukkan tvö í dag. 9.10.2010 11:45
Spáð bongóblíðu um helgina Ekkert lát virðist vera á einhverju lengsta og hlýjasta sumri hérlendis í manna minnum og lofar veðurspá helgarinnar góðu. Þannig spáir Veðurstofan allt að 13-14 stiga hita í dag, bæði sunnan- og vestanlands, og einnig á Mið-Norðurlandi. 9.10.2010 11:15
Móðir neitaði fyrirtæki að gera markaðsrannsóknir á syni sínum „Það var hringt og spurt um leyfi til þess að tala við son minn,“ segir móðir tólf ára gamals drengs en Capacent-Gallup hafði samband við hana og vildi gera markaðsrannsóknir á drengnum í vikunni. 9.10.2010 10:40
Yrsa og Nóbelskáld hjá sama risaforlaginu Bandaríska risaforlagið Macmillan tryggði sér í gær á bókamessunni í Frankfurt útgáfuréttinn á Ösku eftir Yrsu Sigurðardóttur. Á sýningunni náðust einnig samningar við Quetzal Editores um útgáfu á bókinni í Portúgal. 9.10.2010 10:12
John Lennon sjötugur í dag Tónlistarmaðurinn John Winston Lennon, sem seinna kastaði millinafninu og tók upp nafnið John Ono Lennon, hefði orðið sjötugur í dag hefði hann lifað. 9.10.2010 10:06
Gistu í fangageymslum - á sitthvorum forsendunum þó Þrír ungir menn fengu að gista fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt. Mennirnir voru mjög ölvaðir og tóku ekki tiltali lögreglunnar að sögn varðstjóra lögreglunnar á Akureyri. Þar að auki höfðu þeir lent í stympingum fyrr um kvöldið. 9.10.2010 10:05
Þarf að leggja grunn að nýrri þjóðfélagssátt Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að leggja þurfi grunn að nýrri þjóðfélagssátt. 9.10.2010 10:03
Læknar sprengdu fjárlögin Kostnaður Sjúkratrygginga Íslands vegna sérfræðilækna stefnir í að vera 37 prósentum hærri í ár en fjárlög gera ráð fyrir. Munurinn er 1.600 milljónir króna. 9.10.2010 08:45
Segir Evu Joly hafa spillt Exeter-málinu Lögmaður fyrrverandi forstjóra MP banka segir Evu Joly hafa mælt fyrir um óhefðbundnar rannsóknaraðgerðir í svokölluðu Exeter-máli og þær hafi í ýmsum tilvikum leitt til ólögmætra aðgerða við rannsóknina. Vísa beri málinu frá vegna þess að sérstakur saksóknari hafi ekki haft lögbundið sjálfstæði í störfum sínum. Hann hefur sent ráðherrum bréf vegna málsins. 9.10.2010 08:30
Ómar gæti verið á leið í dýrlingatölu Það að fæðingardagur Ómars Ragnarssonar hafi verið valinn sem Dagur íslenskrar náttúru er gott dæmi um að það er að mörgu leyti pólitískt fremur en náttúrulegt fyrirbrigði þegar einstaklingar eru gerðir að þjóðardýrlingum, segir Jón Karl Helgason, bókmenntafræðingur og dósent við Háskóla Íslands. 9.10.2010 08:15
Innleiðingu þriðja dómstigsins flýtt Eining var meðal dómara og lögmanna á málþingi í gær um að koma beri á þriðja dómstiginu hið fyrsta. Ögmundur Jónasson dómsmálaráðherra segir málið komið á ákvörðunarstig. 9.10.2010 07:30
Óvissa ríkir um störf hjá E.C.A Óvissa er um hversu mörg störf myndu skapast ef hollenska hernaðarfyrirtækið E.C.A fengi að flytja hingað óvopnaðar herþotur til útleigu. Þetta kemur fram í bréfi sem Flugmálastjórn hefur sent samgönguráðherra um málið. 9.10.2010 07:00
Starfsfólk hannaði brospinna Starfsfólk á geðsviði Landspítala hefur hannað brospinna sem seldir verða í þágu geðdeilda spítalans. Fyrstu pinnarnir voru afhentir Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur forseta Alþingis og Jóni Gnarr borgarstjóra í gær. 9.10.2010 06:45
Sumir svara: Ég ætla ekki að gera neitt „Við frestum uppboðum ef fólk gerir eitthvað í sínum málum,“ segir Ásta H. Bragadóttir, framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs. 9.10.2010 06:30
Svínaflensan kemur þegar líður á vetur „Það má heita nokkuð víst að svínaflensan sé að taka völdin og að það verði hún sem kemur í vetur.“ Þetta segir Haraldur Briem sóttvarnalæknir. Senn verður boðið upp á hefðbundna flensusprautu fyrir veturinn. 9.10.2010 05:30
Bréf til bænda frá gömlum Mýramanni Gott og náið samstarf við bændur og forystu þeirra telur Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra forsendu þess að hagur þeirra verði sem tryggastur gegnum viðræðurnar um aðild Íslands að Evrópusambandinu (ESB). „Staðreyndin er einfaldlega sú, að samningsstaða íslensks landbúnaðar er betri en þeir telja, sem ekki vilja láta á hana reyna,“ segir í bréfi Össurar í Bændablaðinu á fimmtudag, svari við bréfi Bændasamtakanna til hans. 9.10.2010 05:00
Ræddu um friðarverðlaunhafa Nóbels Jón Gnarr, borgarstjóri, fundaði í dag með Sir. John Ralston Saul, forseta alþjóðlega rithöfundasambandsins PEN. Tilefni fundarins var áskorun Jón til kínverskra stjórnvalda vegna Liu Xiaobo sem hlýtur friðarverðlaun Nóbels í ár. Þetta var tilkynnt í Osló í morgun. Liu situr nú í fangelsi í heimalandi sínu fyrir að hvetja til pólitískra umbóta og aukins tjáningar- og trúfrelsis. 8.10.2010 20:38
Sparnaði hugsanlega dreift á fleiri stofnanir Heilbrigðisráðherra útilokar ekki að niðurskurðinum verði dreift á fleiri heilbrigðisstofnanir til að koma í veg fyrir að þjónusta skerðist of mikið í ákveðnum landshlutum. 8.10.2010 19:48
Niðurfærslur bitna á lífeyrisþegum Framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða segir útilokað að fara í almennar niðurfærslu lána án þess að skerða greiðslur til ellilífeyrisþega. 8.10.2010 18:39
Fjörutíu fangar sviku út atvinnuleysisbætur Fjörutíu fangar hafa þegið atvinnuleysisbætur á þessu ári. Dæmi eru um að einstaklingar hafi setið í fangelsi í nokkra mánuði og svikið út atvinnuleysisbætur um leið. Áætlaður sparnaður vegna eftirlitsstarfsemi Vinnumálastofnunar er um 700 milljónir króna á eins árs tímabili. 8.10.2010 18:30
Fjárhagsvandanum ekki reddað með tattúi og bleikum jakkafötum Reykjavíkurborg þarf að greiða tvö hundruð milljónum króna meira á ári í rafmagn og hita vegna gjaldskrárhækkana Orkuveitunnar. Þetta jafngildir rekstri tveggja meðalstórra leikskóla í Reykjavík. Borgarfulltrúi segir að vandi borgarsjóðs verði ekki leystur með bleikum jakkafötum og tattúum. 8.10.2010 18:23
Tjarnarbíó opnað að nýju Nærri hundrað ára gamalt hús í hjarta Reykjavíkur, sem til stóð að loka fyrir fimm árum, var í dag opnað með pompi og pragt eftir gagngerar endurbætur. Tjarnarbíó er húsið og það var borgarstjóri Reykjavíkur sem opnaði það formlega í viðeigandi skærbleikum jakkafötum á þessum baráttudegi gegn krabbameini kvenna. Sirkus Íslands og Margrét Eir skemmtu fólki við opnunina. 8.10.2010 19:36
Söfnunin fyrir Ragnar Emil gengur afar vel Fjölskylda Ragnars Emilssonar, sem er þriggja ára gamall og á við erfiðan hrörnurnarsjúkdóm að stríða, á ekki orð til að lýsa viðbrögðum við söfnun sem nú stendur yfir í Hafnarfirði. Meira en ein og hálf milljón hefur þegar safnast sem gerir það verkum að lífsgæði Ragnars aukast til muna. 8.10.2010 19:21
Svæfingalæknir falsaði reikninga Efnahagsbrotadeild hefur ákært svæfingalækni fyrir að blekkja Tryggingastofnun ríkisins til að ofgreiða sér tæpar fimm milljónir króna á tveggja ára tímabili. Læknirinn framvísaði 265 röngum reikningum til stofnunarinnar. Brotin varða allt að sex ára fangelsi. 8.10.2010 19:00
Niðurskurði harðlega mótmælt Mótmælaalda ríður nú yfir vegna boðaðs niðurskurðar í heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Mikill uggur er meðal íbúa og óttast fólk um framtíð sveitarfélaganna. Mörg þúsund manns mótmæltu í gær og í dag og hafa fleiri mótmælafundir verið boðaðir á næstu dögum. 8.10.2010 18:57
Mótmæltu í Eyjum Fjölmargir Vestmannaeyingar komu saman á útifundi á Stakkagerðistúni seinnipartinn í dag. Þar var niðurskurður í heilbrigðiskerfinu ræddur. Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár munu Vestmannaeyingar verða fyrir barðinu á niðurskurði, eins og svo mörg önnur sveitarfélög. 8.10.2010 18:04
Svandís svarar Samtökum atvinnulífsins fullum hálsi Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, gefur lítið fyrir bréf Vilmundar Jósefssonar, formanns Samtaka atvinnulífsins til forsætisráðherra. Hún segir að Vilmundur verði að sætta sig við að hér sitji lýðræðislega kjörinn þingmeirhluti. Svandís segir þörf á meira skapandi mönnum í forystu Samtaka atvinnulífsins. 8.10.2010 17:29
Rúmlega 50% vilja að kosið verði innan 6 mánaða Rúmlega 50% svarenda í skoðanakönnun MMR vilja að kosið verði til Alþingis innan 6 mánaða, en rúm 30,7% vilja að kosið verði í lok kjörtímabilsins. Könnunin var gerð dagana 5. - 8. október síðastliðinn. 8.10.2010 17:14
Næstum 70% andvígir því að fyrirtæki styrki stjórnmálamenn Um 68% Íslendinga eru andvígir því að íslenskum stjórnmálamönnum og stjórnmálasamtökum sé heimilt að taka á mótum fjárframlögum frá fyrirtækjum. Um 15% eru því hlynntir en 17% eru hvorki hlynntir né andvígir því. Þetta sýna niðurstöður könnunar sem Capacent Gallup gerði fyrir Hreyfinguna í september. 8.10.2010 16:20
Ágóði af bolasölu fer í menningarsjóð Lennon 66°norður styrkir menningarsjóðinn Imagine Peace - Reykjavík Culture Fund með því að selja boli og plaköt. Ágóði af sölunni rennur í sjóðinn. Sjóðurinn verður formlega stofnaður á morgun þegar kveikt verður á Friðarsúlunn í Viðey. Reykjavíkurborg stofnar hann í samvinnu við Yoko Ono í tilefni af 70 ára fæðingarafmæli John Lennon. 8.10.2010 15:53
SA: Svandís hefur stórskaðað endurreisn íslensks atvinnulífs Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka Atvinnulífsins hefur sent Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra bréf þar sem skorað er á hana að sjá til þess að ríkislögmaður falli þegar frá áfrýjun vegna ógildingar héraðsdóms á ákvörðun umhverfisráðherra að synja aðalskipulagi Flóahrepps staðfestingar. Han segir að Svandís Svavarsdóttir hafi með ákvörðun sinni stórskaðað endurreisn íslensks atvinnulífs. 8.10.2010 15:30
Forseti Alþingis ræddi við mótmælendur - aftur mótmælt Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, boðaði fimm konur sem stóðu að baki mótmælunum við setningu Alþingis og við stefnuræðu forsætisráðherra á fund til sín í morgun. 8.10.2010 15:29
Jóhanna: Samráð verði haft við stofnanir um niðurskurð Jóhanna Sigurðardóttir segir að verið sé að leita samráðs við heilbrigðisstofnanir úti á landi hvort hægt sé að finna lausn á málefnum stofnananna en mikill niðurskurður er fyrirhugaður í flestum landshlutum, samvkæmt nýju fjárlagafrumvarpi. 8.10.2010 15:16
Enginn afsláttur gefinn á öryggi sjúklinga Það er algjörlega ljóst að þjónustustig hefur minnkað á spítalanum enda átti enginn von á öðru í þeim mikla niðurskurði sem verið hefur síðustu árin, segir Björn Zoëga, forstjóri Landspítala Íslands, í föstudagspistli sínum. 8.10.2010 15:01
Gissur Pétursson gefur kost á sér á stjórnlagaþing Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar ætlar að gefa kost á sér til setu á stjórnlagaþingi. Þetta staðfesti Gissur í samtali við fréttastofu. Framboðsfrestur til stjórnlagaþings rennur út eftir tæpan hálfan mánuð en ekki eru tiltækar upplýsingar um hversu margir hafa þegar boðið sig fram. Jónas Kristjánsson fyrrverandi ritstjóri hefur einnig lýst yfir framboði, en það gerði hann á bloggsíðu sinni í vikunni. 8.10.2010 14:33
Fljúga í Fokker frá Reykjavík til Noregs Flugfélag Íslands mun fljúga milli Íslands og Noregs um næstu jól og áramót. Flogið verður frá Reykjavíkurflugvelli til Stavanger, Bergen og Þrándheims, samkvæmt upplýsingum frá flugfélaginu. 8.10.2010 14:01
Óforsvaranlegt að bankar skili hagnaði en fjölskyldur séu bornar út Framsóknarkonur telja að það sé óforsvaranlegt að nýju bankarnir skuli krefja almenning um fulla endurgreiðslu lána sem voru keypt af gömlu bönkunum með 45% afslætti. Þetta leiði meðal annars til þess að þeir skili hagnaði á sama tíma og fjölskyldur séu bornar út af heimilum sínum. Þetta kemur fram í ályktun sem Landssamband Framsóknarkvenna sendi frá sér í gær. 8.10.2010 13:57
Bæjarráð Seyðisfjarðar: Aðför gerð að landsbyggðarfólki Bæjarráð Seyðisfjarðar hefur nú bæst í hóp fjölmargra sveitastjórna sem mótmælt hafa niðurskurðaráformum ríkisstjórnarinnar. Í nýrri bókun ráðsins lýsir ráðið algjörri andúð sinni á þeirri aðför að landsbyggðinni og afkomumöguleikum fólks þar, sem birtist í framlögðum niðurskurðartillögum í Fjárlagafrumvarpi 2011 um fyrirkomulag heilbrigðisþjónustu á Austurlandi. 8.10.2010 13:42
Yoko býður almenningi til Viðeyjar Í tilefni af tendrun Friðarsúlunnar á 70 ára fæðingarafmæli John Lennon, býður Yoko Ono gestum í fría kvöldsiglingu til Viðeyjar á laugardags- og sunnudagskvöld. 8.10.2010 13:37