Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rostungur í Flateyjardal „Þetta var ógleymanlegt að standa þarna fáeina metra frá þessari gríðarlegu skepnu og mynda hana í krók og kring, vitandi það að ekki mjög margir hafa fengið slíkt tækifæri hérlendis,” sagði ljósmyndarinnar Víðir Pétursson sem tók fyrr í dag myndir af rostungi sem flatmagaði í fjörunni í Flateyjardal. Fjallað er um málið á þingeyska fréttamiðlunum Skarpur.is. 3.9.2010 17:09
Eldur kom upp í Aðalstræti 9 Eldur kom upp í herbergi í Aðalstræti 9 í dag. Slökkviliðið var kallað á staðinn og slökkti eldinn. Slökkvistarf gekk greiðlega. 3.9.2010 16:24
Nýbyggð hjúkrunarrými ekki nýtt vegna fjárskorts Framkvæmdum er að ljúka vegna viðbyggingar við dvalarheimilið Jaðar í Ólafsvík og var gert ráð fyrir að þar væri hægt að bæta við tólf hjúkrunarrýmum áður en árið er úti. Stjórn dvalarheimilisins sótti um leyfi fyrir þeim rýmum til félags- og tryggingamálaráðuneytisins en hefur nú borist bréf þar sem aðeins er veitt leyfi fyrir tíu rýmum. Ef það er endanleg niðurstaða er ljóst að dvalarheimilið situr uppi með tóm hjúkrunarrými á sama tíma og fólk er á biðlista vegna þeirra rýma. 3.9.2010 16:02
Sprengjulistamaður segir niðurrifið í raun gálgahúmor „Manni sýnist þetta vera nokkuð hefðbundin leið kerfisins til þess að takast á við vandamál. Það er auðveldast að rífa niður og henda,“ segir listamaðurinn Þórarinn Jónsson en starfsmenn Faxaflóahafnar bútuðu niður og hentu gálga sem Þórarinn hafði smíðað og haft til sýnis á listasýningunni „Slipp my mind“. 3.9.2010 16:00
Starfsmenn hafnarstjóra hentu gálganum „Við bútuðum þetta bara niður,“ segir Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafnar, en starfsmenn hafnarinnar bútuðu niður og hentu gálga sem listamaðurinn Þórarinn Jónsson reisti á Daníelsslippi. Gálginn var hluti af listasýningunni „Slipp my mind“ sem var opnuð á laugardaginn. 3.9.2010 15:21
Leikskólinn rýmdur á örfáum mínútum Leikskólinn Urðarhóll var rýmdur snemma í morgun eftir að reykur kom upp í þvottavél og rafmagn sló út. Leikskólastarfsmenn settu af stað viðbragsáætlun og var leikskólinn rýmdur. 3.9.2010 15:19
Kristján Már ráðinn fréttastjóri Stöðvar 2 Fyrr í dag var kynnt nýtt skipurit fyrir fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis. Kristján Már Unnarsson var ráðinn fréttastjóri Stöðvar 2. 3.9.2010 15:12
Árni Sigfússon: Segist oft hafa verið bjartsýnni „Loksins þegar verið er að herða eina skrúfuna í atvinnumálum af mörgum, þá losar önnur hönd ríkisstjórnarinnar aðra jafnóðum,“ segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, um viðbrögð vegna ákvörðunar Kristján Möllers, fyrrverandi samgöngu- og sveitastjórnarráðherra, um að heimila flugstjórn að skoða mögleikann á því að skrá herþotufyrirtækið ECA program hér á landi. 3.9.2010 14:49
SAMFOK fagnar framtaki foreldra í vesturbænum Stjórn SAMFOK, samtaka foreldra grunnskólabarna í Reykjavík, fagnar framtaki foreldra í málefnum Vesturbæjarskóla samkvæmt tilkynningu sem samtökin sendu á fjölmiðla. 3.9.2010 14:18
Greiðslur til bænda rangfærðar í bókhaldi ríkisins Í nýrri skýrslu Rikissendurskoðunar um framkvæmd búvörusamninga er gagnrýnt að hluti greiðslna til bænda sé rangfærður í bókhaldi ríkisins og lögð áhersla á að útreikningar að baki greiðslunum séu gagnsærri. 3.9.2010 13:07
Aska frá jöklinum berst yfir höfuðborgarsvæðið Aska frá svæðinu í kringum Eyjafjallajökul berst um þessar mundir yfir höfuðborgarsvæðið en hvöss suðaustlæg átt er ríkjandi á Suðurlandi. Svifryk hefur því aukist hratt síðustu klukkustundir og er líklegt að hálftímagildi geti verið yfir mörkum af og til. 3.9.2010 13:06
Vilja funda vegna kreppunnar Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í efnahags- og skattanefnd Alþingis hafa óskað eftir því að nefndin komi saman í tilefni af nýbirtum hagtölum Hagstofunnar sem sýna mikinn samdrátt í landsframleiðslu og fjárfestingu. 3.9.2010 12:52
Herjólfi seinkar vegna veðurs Seinkun hefur orðið á ferðum Herjólfs frá Vestmannaeyjum í dag en ferð sem fara átti klukkan 10:30 var frestað til klukkan 13:00 og aftur til klukkan 14:00. 3.9.2010 12:33
Steingrímur fékk ekkert veður af lögfræðiálitum Steingrímur J. Sigfússon fékk ekkert veður af lögfræðiálitum sem bárust viðskiptaráðuneytinu á sínum tíma frá Seðlabankanum og lögmannsstofunni Lex. Álitin voru á þá leið að gengistrygging myntkörfulána væri ólögleg. Þetta kom fram í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Sigurðar Kára Kristjánssonar þingmanns Sjálfstæðisflokks. 3.9.2010 12:24
„Ég óttast ekki dómstólaleiðina“ Nýr innanríkisráðherra, Ögmundur Jónasson, sem hætti á sínum tíma sem heilbrigðisráðherra vegna andstöðu við Icesave-málið er nú bjartsýnn á að farsæl niðurstaða fáist í málinu. Samningaviðræður standa yfir í Hollandi. 3.9.2010 12:15
Ögmundur um ECA: „Misskilningur og bráðræði“ Forsvarsmenn fyrirtækisins ECA Program Limited líta svo á að fullnaðarleyfi hafi verið veitt fyrir starfsemi sinni á Íslandi. Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, er ósammála því og segir það misskilning og bráðræði af hálfu fyrirtækisins. 3.9.2010 12:15
Tilboð í strandsiglingar auglýst í næsta mánuði Ríkisstjórnin hefur ákveðið að bjóða út strandsiglingar við Ísland og verður útboð auglýst í næsta mánuði. Siglingar munu spara viðhald á vegum en skipafélögin eru afar ósátt við áformin. 3.9.2010 12:09
Felgulyklaárásarmaður tjáir sig ekki um sakarefni Karlmaður um tvítugt sem ákærður var fyrir að ráðast inn í íbúð manns og ráðast á hann með felgulykli vildi hvorki lýsa yfir sekt sinni né sakleysi við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykavíkur í dag. 3.9.2010 12:05
Glansmyndir og afneitun á Alþingi Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að ríkisstjórnin dragi upp ótrúlega glansmynd af stöðu efnahagsmála en forsætisráðherra segir að stjórnarandstaðan vilji ekki sjá ljósið. 3.9.2010 12:01
Hreyfingin segir fjórflokkinn ekkert hafa lært af hruninu Þingmenn Hreyfingarinnar telja hina stjórnmálaflokkana ekki hafa lært af hruninu. Til marks um það segja þeir hvernig frumvarp um breytingar á lögum um fjárframlög til stjórnmálaflokka sé keyrt í gegn um þingið. 3.9.2010 12:01
Gálga stolið af sprengjulistamanni „Það virðist hafa verið tekinn í sundur og fjarlægt,“ segir listamaðurinn Þórarinn Jónsson en fjögurra metra hár gálgi sem stóð á Daníelslippi er horfinn. Gálginn var listaverk og tilheyrði sýningunni „Slipp my mind“. Sjö aðrir listamenn sýndu einnig verk sín á sýningunni. Þau verk fengu að standa í friði. 3.9.2010 11:45
Eygló spyr um fjárfestingar lífeyrissjóða Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur lagt fram fyrirspurn til fjármálaráðherra um fjárfestingar lífeyrissjóða. Hún spyr hvernig fjárfesting sextán lífeyrissjóða í Framtakssjóði Íslands samræmist lögum um fjárfestingar lífeyrissjóða og óskar eftir skriflegu svari frá Steingrími J. Sigfússyni. Fyrirspurnina lagði hún fram á Alþingi í gær. 3.9.2010 11:33
Nýr bæjarstjóri tekinn við á Ísafirði Að loknum fundi bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar í gærkvöldi afhenti fráfarandi bæjarstjóri, Halldór Halldórsson, eftirmanni sínum, Daníel Jakobssyni, lykla að skrifstofu bæjarstjóra. Gengið hafði verið frá ráðningu Daníels á fundi bæjarstjórnar skömmu áður og hefur hann nú formlega tekið við störfum. 3.9.2010 11:06
Morðrannsókn: Niðurstöður úr DNA rannsókn komnar Fyrstu bráðabirgðaniðurstöður úr DNA rannsókn á morðinu í Háabergi þann 15. ágúst síðastliðinn eru komnar til landsins frá Svíþjóð. 3.9.2010 10:40
ECA lítur svo á að fullnaðarleyfi hafi verið veitt Forsvarsmenn fyrirtækisins ECA Program Limited líta svo á að fullnaðarleyfi hafi verið veitt fyrir starfsemi sinni á Íslandi. Þetta kemur fram á vef fyrirtækisins. Þar birtist í gær frétt með fyrirsögninni: „Icelandic government grants ECA final operating license" sem á íslensku útleggst sem: „Íslensk stjórnvöld veita ECA endanlegt starfsleyfi. 3.9.2010 10:39
Álit á umsækjendum um dómarastöðu kynnt eftir helgi Nýr hæstaréttardómari hefur enn ekki verið skipaður þótt málflutningur hafi byrjað í Hæstarétti á miðvikudaginn. 3.9.2010 10:28
Lögreglan braut hugsanlega á mannréttindum í þvagleggsmálinu Umboðsmaður Alþingis kemst að þeirri niðurstöðu í frumkvæðisathugun sinni að lögreglan á Selfossi hafi brotið á mannréttindum konu sem var neydd til þess að gefa þvagsýni í gegnum þvaglegg. 3.9.2010 10:24
Tveir fluttir á gjörgæsludeild Tvö af ungmennunum fimm sem flutt voru á slysadeild eftir alvarlegt umferðaslys á Hafnarfjarðavegi í nótt eru komin á gjörgæsludeild Landspítalans. Þau eru bæði alvarlega slösuð og er öðru þeirra haldið sofandi í öndunarvél. Hin þrjú eru enn á slysadeild en verða að öllum líkindum útskrifuð þaðan í dag, samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á deildinni. 3.9.2010 09:31
Vafasöm ummæli Þórunnar á bolla og boli Ummæli þingflokksformannsins, Þórunnar Sveinbjarnardóttur, hafa heldur betur slegið í gegn en á dögunum sagði hún frænda fréttamannsins Ægis Þórs Eysteinssonar, „að hoppa upp í rassgatið á sér.“ 3.9.2010 09:06
Frjálshyggjumaður býður sig fram til formanns Heimdallar Aðalfundur Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna, verður haldinn í september. Hlynur Jónsson gefur kost á sér sem formaður Heimdallar og Magnús Júlíusson sem varaformaður. Þeir segja í sameiginlegri tilkynningu að þeir vilji með framboði sínu opna og efla til muna starfið í þessu stærsta stjórnmálafélagi landsins með hugsjónir um frelsi einstaklingsins að leiðarljósi. 3.9.2010 08:56
Barist um bitana hjá Vegagerðinni Verktakar heyja óvenju harða baráttu um þau fáu verk, sem Vegagerðin býður út og nýjasta dæmi um það er að verktaki bauðst til að vinna tiltekið verk fyrir rétt liðlega helming af kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar. 3.9.2010 08:40
Óvenju mikið drykkjulæti í nótt Óvenju mikið var um drykkjulæti og óspektir á höfuðborgarsvæðinu í nótt og þurfti lögregla að taka sex menn úr umferð og vista þá í fangageymslum. Hvað eftir annað var lögregla kölluð út vegna hávaða í heimahúsum og sumstaðar voru einhverjir pústrar, en þó hvergi alvarlegir. 3.9.2010 08:36
Nýtt hringtorg opnað í Reykjanesbæ Í tilefni af Ljósanótt í Reykjanesbæ verður nýtt hringtorg á Reykjanesbraut við Grænás opnað í dag klukkan tíu 3.9.2010 08:36
Mótmæla hækkunum Orkuveitunnar Hagsmunasamtök heimilanna mótmæla áhrifum af hækkunum Orkuveitu Reykjavíkur um rúm 28 prósent nýverið. 3.9.2010 07:10
Handtekin við hassreykingar á Akureyri Lögreglan á Akureyri handtók fjögur ungmenni, sem voru að reykja hass í bíl í nótt. Lítilsháttar af hassi fannst í bílnum og var fólkinu sleppt að yfirheyrslum loknum. Ökumaður var einnig tekinn úr umferð á Akureyri í nótt, grunaður um að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna. 3.9.2010 07:08
Fimm ungmenni slösuðust í bílslysi Fimm ungmenni slösuðust, þar af tvö alvarlega, á mótum Hafnarfjarðarvegar og Nýbýlavegar í Kópavogi um klukkan eitt í nótt. 3.9.2010 07:02
Gapandi brunarúst kvelur fjölskylduna „Ósk mín er að gengið sé til þess að rífa þetta hús sem fyrst,“ segir frænka manns sem fórst í eldsvoða á Hverfisgötu í ákalli til Jóns Gnarr borgarstjóra. 3.9.2010 06:15
Hálfur milljarður í fráveitu Bláa lónsins HS Orka þarf að fara út í um fimm hundruð milljóna króna framkvæmdir á næstu árum til að veita umframvökva úr Bláa lóninu til sjávar. Eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu er yfirborð lónsins orðið of hátt þar sem niðurfallsholur eru stíflaðar og flæðir jafnvel upp á veg á köflum. 3.9.2010 06:00
Söluskáli hjá Leifsstöð skapi tekjur fyrir Keili Keilir - miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs hefur óskað eft því við sveitarfélagið Garð að fá allt að fimm þúsund fermetra lóð undir „fjölnota orkustöð" hjá síðasta hringtorginu áður en beygt er inn að Leifsstöð. Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis, segist sjá fyrir sér þjónustumiðstöð á borð við Staðarskála þar sem leiðirnar í Leifsstöð, Keflavík og Sandgerði mætast. 3.9.2010 05:45
Ætlaði aldrei að koma aftur heim Kristján Jóhannsson óperusöngvari ætlaði sér aldrei aftur að koma til Íslands, eftir fjaðrafokið sem varð út af umdeildum styrktartónleikum í Hallgrímskirkju og umtöluðu Kastljósviðtali í framhaldi af því. Þetta er meðal þess sem kemur fram í væntanlegri ævisögu Kristjáns, Il grande tenore, sem Þórunn Sigurðardóttir skráir. 3.9.2010 05:30
Stærsta seglskip heims Stærsta seglskip heims sótti Reykjavíkurhöfn heim klukkan níu í gærmorgun. Skipið ber nafnið Sedov og kemur frá Rússlandi og mun dvelja í Reykjavík fram til laugardags. Það er 120 metra langt og 15 metra breitt og verður þar með talið það stærsta í hópi seglskipa af eldri gerð. Hæstu masturstoppar skipsins eru 58 metrar. 3.9.2010 05:30
Gera kröfu um að fá að velja sér stéttarfélag Stjórn Félags ráðgjafa og stuðningsfulltrúa (FRS) mótmælir kröfu Sambands íslenskra sveitarfélaga, um að félagar FRS verði skyldaðir til að ganga í starfsmannafélög sveitarfélaga. Um áramótin mun málaflokkur fatlaðra færast frá ríki til sveitarfélaga, en starfsfólk svæðisskrifstofa málefna fatlaðra vill engu að síður halda aðild sinni að stéttarfélaginu SFR. 3.9.2010 05:00
Árásin mikið áfall fyrir DV Fréttavefur DV varð fyrir árás tölvuhakkara í fyrradag og þurfti að loka síðunni í kjölfarið. Árásin átti sér stað klukkan 17.40 á miðvikudaginn og var síðunni lokað um hádegi í gær. Forsvarsmenn DV benda þeim notendum síðunnar sem hafa farið þar inn á milli klukkan 17.40 á miðvikudeginum til 11.50 í gær að gæta fyllstu varúðarráðstafana og skanna tölvur sínar fyrir vírusum. 3.9.2010 05:00
Hverri lundapysju tekið fagnandi Útlit er fyrir að mjög fáar lundapysjur komist á legg í Vestmannaeyjum í sumar. Egg hafa ýmist verið afrækt eða pysjurnar drepist fljótlega eftir klak í öllum þeim holum sem Náttúrustofa Suðurlands fylgdist með í sumar. 3.9.2010 05:00
Fjallahjólabraut í Kjarnaskógi Fyrsta sérhannaða fjallahjólabraut landsins verður vígð á laugardag í Kjarnaskógi við Akureyri. Þriggja kílómetra braut var lögð sumarið 2008 og segir í tilkynningu frá Skógræktarfélagi Eyfirðinga að hún hafi strax orðið vinsæl. Hjólreiðafólk sæki mikið í Kjarnaskóg en umferð gangandi og hjólandi fari ekki alltaf saman. 3.9.2010 05:00