Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gíslatökumaður skotinn til bana Lögregla í Maryland í Bandaríkjunum skaut í gær til bana mann sem hafði ráðist inn á starfsstöð Discovery sjónvarpsstöðvarinnar og tekið þrjá starfsmenn í gíslingu. Hann var vopnaður skammbyssu auk þess sem hann hafði spent á sig nokkrar áldósir sem lögregla óttaðist að væru sprengjur. 2.9.2010 08:33
Mörg fordæmi fyrir því að dómsmálaráðherra sé ekki löglærður Ögmundur Jónasson, þingmaður VG, mun, eftir því sem heimildir herma, taka við embætti dóms- og mannréttindamálaráðherra á ríkisráðsfundi sem boðaður hefur verið í hádeginu í dag. 2.9.2010 08:30
Kveikt í rusli og mikið að gera í sjúkraflutningum Eldur var kveiktur í rusli uppi á þaki í leikskóla í Grafarvogi um tíu leytið í gærkvöldi, en slökkviliðinu tókst að ráða niðurlögum eldsins áður en hann ylli teljandi tjóni. Þakið er slétt og klætt tjörupappa, þannig að eldhaf hefði orðið, ef ekki hefði verið slökkt í tæka tíð. Talið er að börn eða unglingar hafi verið þarna að verki. 2.9.2010 07:32
Rafmagnstruflanir víða um land Eldur kviknaði í raftengibúnaði álversins á Grundartanga í gærkvöldi og truflanir urðu líka í álverinu í Straumsvík og á Reyðarfirði, vegna rafmagnstruflana víða um land á tíunda tímanum í gærkvöld. 2.9.2010 07:23
Óvíst hvern Jóhanna velur Óvissa ríkti um það í gærkvöldi hver kæmi nýr inn í ríkisstjórn fyrir hönd Samfylkingarinnar. Ögmundur Jónasson verður nýr ráðherra Vinstri grænna en úr Samfylkingunni eru nöfn Guðbjarts Hannessonar og Oddnýjar G. Harðardóttur helst nefnd. 2.9.2010 06:30
Breyttur miðbær er á umræðustigi „Allt er þetta svolítið í höndum Strætós enn þá,“ segir Karl Sigurðsson, borgarfulltrúi Besta flokksins og formaður umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkur. Strætó bs. kynnti í gær hugmyndir sem miða að því að færa skipti- og endastöð vagna frá Hlemmi að BSÍ og breyta akstri um miðborg Reykjavíkur. 2.9.2010 06:15
Stefnir í aðhaldsaðgerðir Reykjanesbær freistar þess nú að selja eignir til að geta greitt upp 1,8 milljarða króna lán, og er undir smásjá stjórnvalda vegna fjárhagsvanda. Bæjarstjórinn segir að skýrast muni í september hvert framhaldið verði og hvort bærinn þurfi að ráðast í harkalegar aðhaldsaðgerðir. 2.9.2010 06:00
Einoka aðgang að ljósleiðara Upplýsingatækni Míla vinnur gegn markmiðum ríkisins um samkeppni á fjarskiptamarkaði með því að meina Vodafone um aðgang að ljósleiðarahringtengingu um landið. Þetta er mat Vodafone sem fengið hefur afhentan frá utanríkisráðuneytinu einn af átta ljósleiðaraþráðum í svokölluðum NATÓ-ljósleiðara sem Varnarmálastofnun hafði áður umráð yfir. 2.9.2010 06:00
Yfirheyrslur enn í gangi „Það eru yfirheyrslur í gangi og verða áfram,“ segir Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, spurður um gang rannsóknar á morðinu sem framið var í Hafnarfirði í síðasta mánuði. 2.9.2010 05:45
Niðurstöður þingmannanefndar fyrirferðarmestar Tveggja vikna septemberþing verður sett í dag. Það er fyrst og fremst hugsað til að afgreiða mál sem ekki tókst að klára fyrr í ár. Fjölmiðlalög og lagabálkur um útlendinga og flóttamenn meðal þess sem ræða á. 2.9.2010 05:45
Fjarskiptasjóður er að ljúka verki sínu Lög um Fjarskiptasjóð gera að verkum að hann getur ekki styrkt verkefni á borð við ljósleiðaratengingu Öræfasveitar. Við jaðar útbreiðslusvæðis Fjarskiptafélags Öræfinga kunna hins vegar að vera staðir sem falla undir styrkhæfar aðgerðir sjóðsins. 2.9.2010 05:15
Ljósleiðaratenging meiri bylting en hringvegurinn Formleg opnun ljósleiðaranets fyrir um 50 sveitabæi í Öræfasveit fer fram á morgun, föstudaginn 3. september. „Haldin verður opnunarhátíð í Hólmgarði í Öræfasveit,“ segir Knútur Bruun, stjórnarformaður Fjarskiptafélags Öræfinga. „Bæjarstjórinn á Höfn telur þetta meiri framfarir en opnun hringvegarins. Enda getur maður nú setið í Öræfasveit og átt viðskipti við heiminn allan, auk möguleika í tengslum við fjarkennslu og annað slíkt. Þetta bætir öll búsetuskilyrði og heldur ungu fólki heima í sveitinni.“ 2.9.2010 05:15
Eldhús OR kostar 120 milljónir á ári Eldhús í húsnæði Orkuveitu Reykjavíkur (OR) kostaði 61 milljón í uppsetningu. Eldhúsið var sett upp árið 2003 og þremur árum síðar var bætt við innréttingum fyrir 9 milljónir til viðbótar. Rekstrarkostnaður eldhússins árið 2009 var 119,7 milljónir króna. 2.9.2010 05:00
Ellisif Tinna skilar góðu búi Ellisif Tinna Víðisdóttir, forstjóri Varnarmálastofnunar, var leyst undan reglubundnum starfsskyldum sínum frá og með deginum í gær. Hún verður á launum til áramóta þrátt fyrir engar sérstakar starfsskyldur þangað til. 2.9.2010 05:00
Segja ráðherra brjóta lögin Niðurstaða lögfræðiálits sem Landssamband íslenskra útvegsmanna lét vinna er að sjávarútvegsráðherra hafi farið á svig við lög þegar hann ákvað að gefa ekki út aflamark í úthafsrækju fyrir komandi fiskveiðiár. 2.9.2010 04:45
Endurgerð Vaktarabæjarins að ljúka Framkvæmdum við endurgerð Vaktarabæjarins, næstelsta timburhúss Grjótaþorpsins, lýkur á næstu tveimur mánuðum að sögn Þorsteins Bergssonar, framkvæmdastjóra Minjaverndar. 2.9.2010 04:30
Tvö þúsund blöðrur í loftið Nemendur í leik- og grunnskólum munu sleppa 2.000 blöðrum til himins þegar ljósanótt í Reykjanesbæ verður sett í 11. sinn við Myllubakkaskóla í dag. Nemendur koma til athafnarinnar í skrúðgöngu með trommuslætti þar sem þeir flagga litum skólanna. Gítarsveit nemenda Gítar Myllos stjórnar fjöldasöng sem endar á fyrsta ljósalaginu, Velkomin á Ljósanótt, og Árni Sigfússon bæjarstjóri setur hátíðina. 2.9.2010 04:00
Reykurinn í rofasal Bilun varð í rofahúsi álvers Norðuráls á Grundartanga í kvöld sem varð til þess að rafmagn var slegið af álverinu. Minniháttar bruni olli því að reykur kom úr rýminu og fóru lögreglu- og slökkviðiliðsmenn á vettvang. Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá lögreglunni í Borgarnesi var fólk ekki í hættu. Starfi slökkviliðsmana lýkur innan skamms en nú er unnið að því að hleypa rafmagni á álverið á nýjan leik. 1.9.2010 22:22
Ósátt við ákvörðun Guðlaugs Þórs Stór hluti landsmanna er óánægður með þá ákvörðun Guðlaugs Þór Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, að segja ekki af sér þingmennsku. Að sama skapi eru fjölmargir ósáttir við þá fyrirætlun Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, fyrrverandi varaformanns Sjálfstæðisflokksins, að setjast á nýjan leik á þing í haust. Þetta kemur fram í könnun sem MMR vann fyrir Viðskiptablaðið og greint er frá á vef blaðsins í kvöld. 1.9.2010 21:50
Ósátt við vinnubrögð eftir slys Fleiri en eitt dæmi eru um að láðst hafi að tilkynna foreldrum að börn þeirra hafi lent í alvarlegum slysum þegar að þau lenda á slysadeildum. 1.9.2010 21:00
Björgvin gerir upp bankahrunið Aðdragandi og eftirmálar efnahagshrunsins á Íslandi haustið 2008 er veigamikill þáttur í bók sem Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, skrifar um þessar mundir. Hann nýtur aðstoðar Karls Th. Birgissonar, blaðamanns og fyrrverandi framkvæmdastjór Samfylkingarinnar, við skrifin. 1.9.2010 20:00
Flokksráð VG ekki kallað saman Þingflokkur Vinstri grænna kemur saman klukkan níu í fyrramálið í þinghúsinu. Flokksráð VG verður ekki boðað til fundar vegna uppstokkunar á ríkisstjórninni. „Það er þingflokkurinn sem raðar upp sínum ráðherrum,“ sagði Bergur Sigurðsson, framkvæmdastjóri þingflokksins, í samtali við fréttastofu í kvöld. 1.9.2010 21:00
Reykur í álverinu á Grundartanga Reykur kom upp í rými í álverinu á Grundartanga nú undir kvöld og var slökkviliðið á Akranesi kallað út vegna þess. Ekki er vitað á þessari stundu hvað veldur reyknum. Allt starfsfólk sem var inni í álverinu þegar að reyksins varð vart er komið út úr húsinu, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akranesi. 1.9.2010 21:31
Senda persónuupplýsingar um flugfarþega til bandarískra yfirvalda Íslensk flugfélög þurfa að senda persónuupplýsingar úr farþegaskrám sínum til bandarískra yfirvalda á grundvelli samkomulags sem stjórnvöld hér á landi og í Bandaríkjunum hafa gert. Samkvæmt samkomulaginu njóta upplýsingarnar sömu verndar og upplýsingar um flugfarþega sem miðlað er til Bandaríkjanna frá ríkjum Evrópusambandsins. Greint er frá þessu á vef Persónuverndar. 1.9.2010 20:33
Samninganefndin heldur ótrauð áfram „Okkar vinnu Íslandsmegin miðar vel. Það er engin bilbugur á okkar fólki og góður taktur í þessu öllu saman og ég held að það sama verði að segja ESB-megin,“ segir Stefán Haukur Jóhannesson, formaður samninganefndar Íslands í aðildarviðræðum við Evrópusambandið. 1.9.2010 20:02
Móta þarf stefnu til að draga úr fátækt íslenskra barna Hátt í 700 manns sóttu um mataraðstoð hjá Mæðrastyrksnefnd og Fjölskylduhjálp í dag. Breskur sérfræðingur í barnafátækt segir mikilvægt að stjórnvöld móti stefnu sem styður við börn sem búa í fátækt. 1.9.2010 19:32
Gerður Kristný verðlaunuð Gerður Kristný fékk Vest-norrænu barnabókaverðlaunin í dag fyrir bók sína Garðurinn. Vestnorrænu barnabókaverðlaunin eru veitt annað hvert ár og fara dómnefndir yfir tilnefndar bækur frá Íslandi, Færeyjum og Grænlandi. Verðlaunin hafa verið veitt fimm sinnum og er þetta í fjórða skiptið sem íslenskur höfundur vinnur til verðlaunanna. 1.9.2010 19:27
Öflugri flugsveitir vekja spurningar Ákvörðun bandaríska flughersins, að senda hingað á morgun mun öflugri flugsveit til loftrýmisgæslu en áður hefur tíðkast, hefur vakið spurningar innan íslenska stjórnkerfisins hvort hún tengist áhuga herforingja NATO á að Íslandi verði komið upp eftirlitsmiðstöð fyrir norðurslóðir. 1.9.2010 19:15
Nánast útilokað fyrir ríkisborgara utan EES að fá atvinnuleyfi Nánast útilokað fyrir ríkisborgara utan EES að fá atvinnuleyfi Nánast útilokað er fyrir ríkisborgara landa utan EES að fá atvinnuleyfi hér landi miðað við núverandi atvinnuleysi. Þetta segir forstjóri Vinnumálastofnunar. 1.9.2010 19:06
Tvískinnungur íslenskra útgerðarmanna Evrópusambandssinnar segja það til marks um tvískinnung íslenskra útgerðarmanna að á sama tíma og þeir berjast gegn aðkomu útlendinga í íslenskum sjávarútvegi kaupi þeir upp kvóta innan lögsögu Evrópusambandsins. 1.9.2010 18:59
Vilja ekki bæði Ögmund og Jón í ríkisstjórn Mikil óánægja er innan Samfylkingarinnar með að Ögmundur Jónasson sé á leið inn í ríkisstjórn á sama tíma og Jón Bjarnason situr þar áfram, en þeir eru báðir sagðir tilheyra órólegu deildinni í Vinstri grænum. Af þessum sökum hefur forsætisráðherra ákveðið að kalla saman flokksstjórnarfund í Samfylkingunni í fyrramálið. 1.9.2010 18:53
Heilsutengd starfsemi í gömlu Heilsuverndarstöðinni Allt bendir til þess að gamla Heilsuverndarstöðin við Barónsstíg muni aftur hýsa heilsutengda starfssemi en viðræður þessa efnis standa nú yfir milli eigenda hússins og heilbrigðisyfirvalda. 1.9.2010 18:45
Fær sekt fyrir að leka seyruvökva úr rotþróm Sýslumaðurinn á Selfossi hefur fallist á að Holræsa- og stífluþjónusta Suðurlands greiði 200 þúsund krónur í sekt fyrir að leka seyruvökva úr rotþróm út í umhverfið á vatnsverndarsvæði á Þingvöllum. Félag sumarbústaðaeigenda kærði atvikið til lögreglu en heilbrigðiseftirlit Suðurlands hafði áður veitt Holræsa- og stífluþjónustu Suðurlands áminningu. 1.9.2010 18:45
Ríkisráð kemur saman Ríkisráðsfundur verður haldinn á morgun á Bessastöðum klukkan tólf. Fundir ríkisráðs eru að jafnaði haldnir tvisvar á ári, um mitt ár og á gamlársdag, en einnig við ríkisstjórnar- og ráðherraskipti. 1.9.2010 17:57
Samfylkingin boðar til fundar Flokksstjórn Samfylkingarinnar hefur verið boðuð til fundar klukkan tíu á morgun á Hótel Loftleiðum til að ræða fyrirhugaða uppstokkun í ríkisstjórninni. Stefnt er að ráðherraskiptum á morgun áður en Alþingi verður sett eftir hádegi. 1.9.2010 17:37
Grípa til aðgerða gegn misnotkun á ritalini Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, hefur skipað vinnuhóp til að skipuleggja aðgerðir til að draga úr ofnotkun og koma í veg fyrir misnotkun á methýlphenídati, sem birtist umfram allt í mikilli notkun á Ritalini og Ritalin Uno, að því er segir á vef heilbrigðisráðuneytisins. 1.9.2010 16:57
Formaður SI vill að Kristján Möller sitji áfram sem ráðherra Helgi Magnússon, formaður Samtaka iðnaðarins, telur ástæðu til að óttast að uppstokkun í ríkisstjórn geti heft framgang samgönguframkvæmda hverfi núverandi samgönguráðherra, Kristján Möller, úr stjórn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum. 1.9.2010 16:39
Fundað um Icesave í dag Viðræðunefndir Íslands, Bretlands og Hollands munu eiga fundi í Hollandi um Icesave-málefni í dag og á morgun samkvæmt tilkynningu sem finna má á vef fjármálaráðuneytisins. 1.9.2010 16:15
Körfuknattleiksmenn þurfa að skila sakavottorði frá FBI Frá og með deginum í dag þurfa Bandaríkjamenn sem sækja um dvalarleyfi hér á landi að skila inn sakavottorði frá bandarísku alríkislögreglunni, FBI. Þetta gildir um þá sem búið hafa í Bandaríkjunum í fimm ár eða lengur. 1.9.2010 15:58
Á annað hundrað manns veðja á niðurstöðu Hæstaréttar Veðmálavefurinn Betsson.com býður uppá veðmál um það hver niðurstaða Hæstaréttar Íslands um greiðslu skuldar vegna vanskila á bílasamning, verða. Niðurstaða Hæstaréttar verður kunngerð 6. september næstkomandi en á annað hundrað manns hafa þegar tekið þátt í veðmálinu. 1.9.2010 15:56
Ökufantur og sprengjuvargur handteknir Karl á þrítugsaldri var staðinn að hraðakstri í Ártúnsbrekku í Reykjavík í gærmorgun en bíll hans mældist á 137 kílómetra hraða. Að auki var maðurinn að tala í síma án þess að notast við handfrjálsan búnað. 1.9.2010 15:29
Þórunn Sveinbjarnardóttir grínast í fréttamanni RÚV „Þetta var nú bara smá grín hjá henni," segir Ægir Þór Eysteinsson, fréttamaður á Ríkisútvarpinu. Hann tók viðtal við Þórunni Sveinbjarnardóttur, þingflokksformann Samfylkingarinnar, fyrir utan stjórnarráðið fyrr í dag. Í fréttatíma RÚV heyrðist Þórunn segja í lok viðtalsins: „Segðu frænda þínum að hoppa upp í rassgatið á sér.“ Nú hefur komið í ljós hvað þar lá að baki. 1.9.2010 14:59
Semja við Gaflaraleikhúsið um rekstur til þriggja ára Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðarbæjar hefur ákveðið að ganga til samninga við Gaflaraleikhúsið um rekstur leikhúss að Strandgötu 50, til næstu þriggja ára. 1.9.2010 14:32
Óvíst hvort viðræður um ráðherraskipti klárist í dag Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, er mætti stuttu fyrir klukkan tvö í dag á þingflokksfund Samfylkingarinnar. Þar eru meðal annars fyrirhuguð ráðherraskipti kynnt. 1.9.2010 14:04
Mótmælir hreppaflutningi stuðningsfulltrúa „Það eru ekki aðallega launin sem við erum með áhyggjur af heldur aðild starfsmanna að lífeyrissjóði og aðild að styrktarsjóði BSRB. Við viljum að það sé félagafrelsi og að fólk sé ekki flutt hreppaflutningum,“ segir Vésteinn Valgarðsson, stjórnarformaður Félags ráðgjafa og stuðningsfulltrúa, FRS. 1.9.2010 13:30