Fleiri fréttir

Borgin styrkir sumarbúðirnar í Reykjadal áfram

Velferðarsvið Reykjavíkurborgar styrkir þá þjónustu sem Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra veitir í Reykjadal um 2,5 milljónir króna á þessu ári og hafa framlög ekki verið lækkuð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá velferðarsviði vegna frétta af fjárhagsstöðu sumarbúða í Reykjadal.

Barnavernd tilkynnt um hassnotkun á Selfossi

Aðfararnótt sunnudags hafði lögreglan á Selfossi afskipti af sex ungmennum á aldrinum 16-19 ára sem urðu uppvís að neyslu kannabisefna í heimahúsi á Selfossi. Ungmennunum var komið til síns heima og forráðamönnum gert viðvart um afskipti lögreglu auk þess sem barnaverndarnefnd hefur verið send skýrsla um málið.

Stöðvuðu kannabisrækun

Lögreglan á Selfossi lagði í gærkvöldi hald á 18 kannabisplöntur eftir húsleit í íbúðarhúsi í umdæmi lögreglunnar. Ólíklegt er að ræktun af þessari stærðargráðu verði skýrð með eigin neyslu og mun eigandi þeirra þurfa að skýra tilvist þeirra nánar fyrir lögreglu, að því er fram kemur í dagbók lögreglunnar á Selfossi.

Truflaði sendiherraskipan vegna Wikileaks

Bandarískur þingmaður reyndi í síðustu viku að koma í veg fyrir að utanríkismálanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings staðfesti tilnefningu Luis Arreaga sem nýs sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi. Þingmaðurinn vildi að íslensk stjórnvöld lokuðu vefsíðunni Wikileaks en þar birtust nýverið viðkvæm gögn um framgang stríðsins í Afganistan. Birting gagnanna hefur verið harðlega gagnrýnd og hefur bandaríska varnarmálaráðuneytið krafist þess af forráðamönnum Wikileaks að þeir skili aftur gögnunum.

Einokun fest í sessi

Með mjólkurfrumvarpi landbúnaðarráðherra verður einokun fest í sessi þar sem nær útilokað verður fyrir nýja aðila að hefja starfsemi með úrvinnslu á mjólkurafurðum. Þetta er mat Samtaka verslunar og þjónustu en samtökin gera alvarlegar gera athugasemdir í umsögn við frumvarpið.

Ekki til marks um fjölgun smita

Á síðasta ári greindust 13 manns með HIV veiruna, en ekki hafa fleiri greinst á einu ári síðan 1985 þegar 16 greindust. Ekki stefnir í fjölgun smita það sem af er árinu 2010, en sóttvarnalæknir segir toppinn á síðasta ári ekki til marks um fjölgun smita.

Mataraðstoð Samverja hætt

Matarstoð Samverja hefur verið hætt en ein og hálf vika er í að hjálpastofnanir taki aftur til starfa eftir sumarfríi.

Landgræðslunni óheimilt að eyða lúpínu í Þórsmörk

Skógræktin neitaði Landgræðslunni um heimild til að eyða lúpínu í Þórsmörk í ár. Landgræðslan segist hafa fengið neitun þrátt fyrir skýra stefnu umhverfisráðuneytsins um að lúpínu skuli eyða þar sem hún sé talin óæskileg. Sviðsstjóri hjá Skógræktinni segir að lúpína í Þórsmörk, sé ekki meðal svæða sem nefnd séu í stefnumörkun ráðuneytisins.

Þingmaður Framsóknar: Ekkert nýtt í umsögn Samkeppniseftirlitsins

Fulltrúi Framsóknarflokks í landbúnaðarnefnd segir ekkert nýtt í umsögn Samkeppniseftirlitsins um mjólkurfrumvarp landbúnaðarráðherra, en eftirlitið gerir alvarlegar athugasemdir við frumvarpið. Hann segir að reglur þurfi að gilda um markaðinn og óheft samkeppni og markaðshyggja hafi ekki farið vel með Vesturlönd.

Útskrifuð af slysadeild

Kona sem sem datt af hestbaki í Þjórsárdal í gær hefur verið útskrifuð af slysadeild Landspítalans. Hún var þar yfir nóttina. Vakthafandi læknir segir að hún hafi ekki verið alvarlega slösuð og sé við ágæta líðan. Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti konuna á slysstað.

BHM styður slökkviliðsmenn

Bandalag háskólamanna lýsir yfir stuðningi við kjarabaráttu Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og tekur undir réttmæti þess að laun þeirra endurspegli þá sérþekkingu og sérþjálfun sem starf þeirra krefst og ekki síður þá ábyrgð gagnvart bæði verðmætum og mannslífum sem þeir bera í starfi. Þetta kemur fram í ályktun sem stjórn BHM samþykkti á fundi sínum í morgun.

Nýjar skólabyggingar teknir í notkun í Reykjavík

Í haust hefst skólastarf í þremur nýjum skólabyggingum í Reykjavík; Dalskóla, Sæmundarskóla og Norðlingaskóla. Undirbúningsstarf fyrir skólabyrjun er í fullum gangi og verða á fjórða tug skóla settir mánudaginn 23. ágúst.

Ásta Sigrún hefur störf sem umboðsmaður skuldara

Ásta Sigrún Helgadóttir tekur við starfi umboðsmanns skuldara í dag. Ingi Valur Jóhannsson, deildarstjóri í félagsmálaráðuneytinu, hefur sinnt starfi undanfarna daga eða frá því að Runólfur Ágústsson lét af embætti í síðustu viku eftir að fjölmiðlar fjölluðu fjármál hans og skuldugt einkahlutafélag sem áður var í eigu Runólfs.

Hjólar í kringum landið á tíu dögum

Læknaneminn Alissa Rannveig Vilmundardóttir lagði í morgun af stað í tíu daga hjólaferð kringum landið þar sem hún hyggst hjóla til styrktar Rannsóknastofu í krabbameinsfræðum.

Hvalveiðimenn bjóða upp á hvalaskoðun

Hvalveiðimenn í Kópavogi ætla að bjóða upp á hvalaskoðun samhliða veiðum. Þeir ætla að sýna áhugasömum hvernig hrefnuveiðar fara fram en þó án þess að veiða sjálf dýrin. Innyflin í formalíni verða í sýningarsal á dekkinu.

Fugl olli bifhjólaslysi

Ökumaður bifhjóls slasaðist alvarlega, en þó ekki lífshættulega, þegar hann kastaðist af hjóli sínu á móts við Golfvöllinn við Grindavík í gærkvöldi.

Ökumaður í tómu tjóni á Grensásvegi

Ökumaður, sem lögreglan stöðvaði á Grensásvegi í nótt vegna hraðaksturs, reyndist hafa sitthvað fleira á samviskunni, því hann var líka fullur.

Yfir 30 þúsund gestir voru í bænum

Yfir þrjátíu þúsund manns lögðu leið sína til Dalvíkur um helgina til að taka þátt í fiskideginum mikla. Hátíðin hélt upp á tíu ára afmæli sitt í ár.

Eldur gaus upp í bíl eftir útafakstur

Lögreglumenn á eftirlitsför sáu í nótt hvar ökumaður missti stjórn á bíl sínum og ók út af Hafnarfjarðarvegi á móts við Fífuhvammsveg.

Menntaskólastærðfræði kennd með hjálp tölvuforrita

Kennslubókin Stærðfræði í takt við tímann kom nýlega út en um er að ræða kennslubók í stærðfræði sem byggir á kennslu með notkun tölvuforrita. Bókin er ætluð framhaldsskólanemum en með henni skal nota stærðfræðiforritið Maple.

Stefnir allt í svarblátt haust

Allt virðist benda til þess að berjatíð verði með endemum góð í ár. Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og sérfræðingur í íslenskum berjum, segir berjatíðina vera almennt farna að lengjast.

Formaður stjórnarinnar lofaði nafnleynd

Árni Geir Pálsson var einn þriggja umsækjenda sem boðaðir voru í viðtal vegna stöðu framkvæmdastjóra Íslandsstofu, ásamt Margréti Jónsdóttur og Jóni Ásbergssyni. Kom það fram í fréttum RÚV í gærmorgun. Árni er mjög ósáttur með nafnbirtinguna og segir Friðrik Pálsson, formann stjórnar Íslandsstofu, hafa lofað sér nafnleynd sem umsækjanda.

Flest tilfelli af HIV í 25 ár

Fjöldi tilfella nýrra HIV-greininga hefur ekki verið meiri hér á landi síðan 1985. Á síðasta ári greindust þrettán tilfelli, en árið 1985 voru þau sextán. Mælingar hófust fyrst árið 1983 og var þá einn einstaklingur sem greindist með HIV-veiruna. Kemur þetta fram í skýrslu Landlæknisembættisins.

Bændur nýti sitt eigið landsvæði

Landgræðslustjóri segir skaðann af lausagöngu sauðfjár á gróður landsins hafa snarminnkað síðustu áratugi. Hross séu höfð innan girðingar að mestu leyti.

Óð út í beljandi Krossá og bjargaði ferðamönnum

Björgunarsveitarmaðurinn Ásmundur Þór Kristmundsson bjargaði tveimur frönskum ferðamönnum úr sjálfheldu þegar hann óð út í Krossá, tók á móti Frökkunum úr bíl sem þeir voru fastir í og hjálpaði þeim í land.

Verðlaus kvótaveð

Einu veð Byggðastofnunar fyrir 1,3 milljarða króna lánum sem stofnunin hefur veitt eru í verðlausum rækjukvóta, þrátt fyrir að slíkt stríði gegn lögum. Útlit er fyrir að afskrifa þurfi stóran hluta lánanna og því mun Ríkissjóður enn á ný þurfa að leggja stofnunni til meira fé. Forstjóri Byggðastofnunar segir eðlilegar skýringar á málinu.

Ganga 130 kílómetra svo að sumarbúðirnar loki ekki

Ég hlakka til þess að komast þangað allt árið. Svona svaraði drengur spurningu fréttamanns um hvernig honum þætti vistin í sumarbúðum sem Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra rekur í Reykjadal fyrir börn. Búðirnar hafa verið starfræktar í rúm fjörtíu ár en nú blasir við að þeim þurfi að loka vegna fjárskorts.

Þeir sem beita heimilisofbeldi dæmdir í sálfræðimeðferð

Til greina kemur að dæma menn sem beita maka sína heimilisofbeldi til sálfræðimeðferðar og skylda þá til að yfirgefa heimilið. Meðferð sem þessi hefur staðið til boða hér á landi í nokkur ár og hefur skilað árangri í tæplega 90% tilvika.

Vantraustyfirlýsing á lögfræðing Seðlabanka Íslands

Seðlabankastjóri gerir lítið úr aðallögfræðingi bankans, sem var sammála niðurstöðu lögfræðiálits um sennilegt ólögmæti gengislánanna, en bankinn þagði þunnu hljóði um niðurstöðuna. Þetta segir stjórnarmaður í hagsmunasamtökum heimilanna sem telur framferðið í raun vantraustsyfirlýsingu á lögfræðinginn.

Búið að opna Norðurlandsveg

Búið er að opna Norðurlandsveg eftir að minnsta kosti fimm bílar lentu í árekstri á Þjóðvegi 1 um Blönduhlíð, við Bólu, rétt við Öxnadalsheiði eftir hádegi í dag.

Þyrlan sótti konu sem datt af hestbaki í Þjórsárdal

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNÁ, sótti slasaða konu sem datt af hestbaki innst í Þjórsárdalnum um þrjúleytið í dag. Þyrlan fór í loftið klukkan 15:22 og var lent á slysstað 15:50. Ekki liggur fyrir hversu alvarlega konan er slösuð en þyrlan var sett í forgang.

Allt undir við fjárlagagerðina

Það er allt undir núna þegar verið er að skoða fjárlögin, segir Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar, aðspurður út í afstöðu Kirkjuþings til 9% niðurskurðarkröfu á Þjóðkirkjuna. Kirkjuþing samþykkir ekki

Brýnt að veita ofbeldismönnum meðferð

Félagsmálaráðherra telur brýnt að efla meðferðarúrræði fyrir unga ofbeldismenn og aðra karla sem beita konur og börn ofbeldi. Þetta kemur fram í þingsályktunartillögu um nýja jafnréttisáætlun til fjögurra ára sem Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra hefur kynnt.

Fjórar líkamsárásir í Reykjavík

Fjórar líkamsárásir voru kærðar til lögreglu í nótt. Tvær þeirra áttu sér stað í heimahúsum og tvær á miðborgarsvæðinu. Ekki er vitað til þess að neinn hafi meiðst alvarlega í þeim en tveir menn gistu fangageymslur vegna aðildar að þeim.

Umferðartafir við Bólu

Árekstur á milli að minnsta kosti fimm bíla varð á Þjóðvegi 1 um Blönduhlíð, við Bólu, rétt við Öxnadalsheiði eftir hádegi í dag.

Á slysadeild eftir dráttarvélarslys

Karlmaður og barn voru flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar á slysadeild í Reykjavík eftir að dráttarvél sem þau voru í valt á mótum Snæfellsvegar og Vatnaleiðar á sjöunda tímanum í gærkvöld. Samkvæmt upplýsingum frá Landspítala var maðurinn lagður inn á skurðlækningadeild en barnið fór heim að lokinni skoðun á slysadeild.

Maður stunginn á Dalvík

Ungur maður var stunginn í bakið á Dalvík í nótt en lögreglan segir að áverkar hans hafi ekki verið alvarlegir. Sá sem grunaður var um verknaðinn var handtekinn. Mennirnir eru báðir um tvítugt.

Bjóða allri þjóðinni að varðeldi

Skátar bjóða allri þjóðinni að skátavarðeldi sem hefst klukkan hálfníu í kvöld. Varðeldurinn markar hápunkt afmælismóts sem stendur núna yfir en íslenskir skátar ásamt gestum frá Bretlandi og Svíþjóð taka þátt í mótinu.

Lottópotturinn gekk ekki út

Lottópotturinn gekk ekki út að þessu sinni og því er ljóst að hann verður tvöfaldur næst. Þá gekk Jókerpotturinn heldur ekki út.

Ritalinneyslan líkist faraldri

Landlæknir segir að verið sé leita leiða til að draga úr mikilli misnotkun fullorðinna á lyfinu rítalíni. Yfirlæknir á Vogi líkir þróuninni við faraldur og segir lækna hafa ávísað lyfinu í óhófi. Heilbrigðisráðherra vill taka á málinu hið fyrsta.

Þyrlan aðstoðaði Breka

Leki kom að bátnum Stormur-Breki, sem er 70 tonna trébátur, laust fyrir klukkan fjögur í dag. Sjór var kominn í lest, vélarrými og framskip bátarins þar sem hann var staddur 8 sjómílur af Herdísarvík og stefndi til Þorlákshafnar.

Sjá næstu 50 fréttir