Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Misnotaði fötluð frændsystkin sín Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir gróf kynferðisbrot gegn andlega fötluðum bróðurbörnum sínum, dreng og stúlku. Hann var dæmdur til að greiða stúlkunni 1,5 milljónir króna í miskabætur og drengnum eina milljón króna. Þá var hann sakfelldur fyrir vörslu á miklu magni af barnaklámsmyndum, sem sýndu gróft ofbeldi gegn börnum. Það var Héraðsdómur Norðurlands-eystra sem kvað dóminn upp. 30.8.2010 05:30
Loka lauginni vegna ásóknar Metaðsókn var í sundlaugina í Stykkishólmi í júlí síðastliðnum samanborið við síðustu ár. Alls komu 13.233 gestir í laugina í júlí síðastliðnum. Á sama tíma í fyrra voru þeir tæplega þrettán þúsund og árið þar á undan voru þeir rétt rúmlega níu þúsund. Þetta kemur fram í Stykkishólmspóstinum. 30.8.2010 05:30
Hækkun gjaldskrár kemur í bakið á OR Guðlaugur Gylfi Sverrisson, fyrrverandi stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, segir ekki þörf á því að fara jafn bratt í hækkanir á gjaldskrá Orkuveitunnar og raun ber vitni. Sýnt hafi verið fram á að mögulegt sé að fara mun hægar í sakirnar til að standa undir skuldbindingum fyrirtækisins til skamms tíma. Mat Guðlaugs gengur þvert á niðurstöðu stjórnar og orð núverandi stjórnarformanns, Haraldar Flosa Tryggvasonar. „Ég vil meina að menn hafi valið hag fyrirtækisins á kostnað neytenda,“ segir Guðlaugur. 30.8.2010 05:00
Skorar á Pál að nefna dæmi Páll Hjaltason, formaður skipulagsráðs, ætti að nefna hvaða mál það eru sem hann hefur erft frá síðasta meirihluta, sem hafa skapað borginni skaðabótaskyldu, segir Júlíus Vífill Ingvarsson, fyrrum formaður skipulagsráðs fyrir Sjálfstæðisflokk. 30.8.2010 04:30
Tveir Íslendingar með CTD Tveir Íslendingar hafa verið greindir með CTD-sjúkdóminn á Landspítalanum. Þetta eru nánir ættingjar, og eru lausir við öll einkenni, svo sem mikla þreytu og ýmis óþægindi sem sjúkdómnum fylgja. Fólkið hefur fengið meðferð við sjúkdómnum. 30.8.2010 04:00
Kynferðisofbeldi ekki liðið Samstarfshópur á vegum Þjóðkirkjunnar og annarra kristinna trúfélaga mun hleypa af stokkunum átaki gegn kynferðislegu ofbeldi næstkomandi þriðjudag. Alls taka fimmtán trúfélög þátt í átakinu. 30.8.2010 03:30
Hamraborgin iðaði af lífi Hamraborgarhátíð í Kópavogi var haldin í fyrsta sinn á laugardaginn. Hátíðin var haldin á vegum Kópavogsbæjar í samstarfi við verslanir og fyrirtæki í Hamraborginni. 30.8.2010 03:00
Umsýsla málefna fatlaðra gagnrýnd Ríkisendurskoðun gagnrýnir hvernig haldið er utan um málefni fatlaðra. Í nýrri skýrslu er meðal annars gagnrýnt að ekki liggi fyrir formlega samþykkt heildarstefna um þennan málaflokk og að fjárveitingar taki ekki mið af reglulegu mati á þörf fyrir þjónustu. Einnig sé eftirliti með þjónustunni ábótavant og því ekki tryggt að jafnræði ríki meðal þjónustuþega. 30.8.2010 02:45
Skráð viðtöl 2,1 á hvern íbúa Skráð viðtöl, vitjanir, símtöl og önnur samskipti á heilsugæslustöðvum landsins voru ríflega 2,5 milljónir árið 2009. Að símtölum frádregnum voru þau 5,8 á hvern íbúa landsins. 30.8.2010 02:30
Mikill munur á viðbrögðum kirkjunnar Þótt margir séu ósáttir við hvernig þjóðkirkjan hefur brugðist við ásökunum á hendur Ólafi Skúlasyni heitnum er mikill munur á viðbrögðum kirkjunnar fyrir fjórtán árum og nú. 29.8.2010 19:06
Lundastofninn að hverfa Ef áfram heldur sem horfir mun lundastofninn í Vestmannaeyjum hverfa á næstu árum, segir Erpur Snær Hansen líffræðingur. Ástæðan er algert hrun í sandsílatofninum. 29.8.2010 17:35
Ósáttur við lögreglu eftir bílslys Foreldrar ungs manns sem lenti í bílsslysi á Reykjanesbraut á föstudag heyrðu fyrst af slysinu í símtali frá vini hans klukkutíma síðar. Þeir gagnrýna að lögreglan hafi ekki tilkynnt þeim um atburðinn. Bílslysið átti sér stað á vinnusvæði við Reykjanesbraut um áttaleytið á föstudag í Keflavík. Tveir ungir menn voru í bílnum. Beita þurfti klippum til að þeim úr flaki bílsins. 29.8.2010 18:45
Afstaðan liggur senn fyrir Atkvæðagreiðslu um nýgerðan kjarasamning Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Launanefndar sveitafélaga lýkur á hádegi á morgun. Atkvæðin verða talin strax á eftir og Sverrir Björn Björnsson, formaður Landssambandsins, segir að niðurstaðan verði kynnt strax á eftir eða á miðvikudaginn. 29.8.2010 13:24
Fjöldi fólks heimsótti Borgarleikhúsið í dag Fjöldi fólks heimsótti Borgarleikhúsið í dag en þar var opið hús til að kynna nýja leikárið. Leikhússtjórinn bakaði vöfflur handa gestum í tilefni dagsins. 29.8.2010 19:17
Ekki mistök að skerða fæðingarorlof Félagsmálaráðherra hafnar því að mistök hafi verið að skerða fæðingarorlof um áramótin, en feðrum í orlofi hefur fækkað hlutfallslega meira en mæðrum. Hann sér ekki fyrir sér hærri framlög til sjóðsins á komandi ári. 29.8.2010 18:52
Atlantshafsbandalagið í tilvistarkreppu Atlantshafsbandalagið hefur átt í tilvistarkreppu og hefur verið að leita leiða til að réttlæta tilveru sína, segir Árni Þór Sigurðsson, þingmaður VG og formaður utanríkismálanefndar Alþingis um hugleiðingar Anders Fogh Rasmussens, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins. Fogh reifaði hugmyndir sínar um aukið samstarf milli bandalagsins og Evrópusambandsins í viðtali við Evrópusambandið í danska blaðinu Berlingske Tidende. 29.8.2010 15:58
Von á miklu mannlífi í Hafnarstræti Hafnarstræti hefur nú verið verið lokað fyrir bílaumferð við Pósthússtræti til að gefa gangandi, hjólandi og verslunum betra rými. Þeir sem reka verslanir í götunni ætla að nýta sér hana með ýmsu móti í september til dæmis með sölutjöldum. 29.8.2010 13:35
Ný stjórnarskrá óþörf Það er óþarfi að fara í heildarendurskoðun á stjórnarskránni, segir Sigurður Líndal, fyrrverandi lagaprófessor við Háskóla Íslands. Hann segir að best sé að sé að breyta stjórnarskrám í áföngum en ekki í heild. 29.8.2010 10:51
Ráðast í átak gegn kynferðisofbeldi Samstarfshópur á vegum Þjóðkirkjunnar og annarra kristinna trúfélaga heypa af stokkunum átaki gegn kynferðislegu ofbeldi næsta þriðjudag. Alls taka 15 trúfélög þátt í átakinu. 29.8.2010 10:37
Tillaga um að hætta ESB viðræðum verði afgreidd sem fyrst Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingar, tekur undir með Þorsteini Pálssyni sem skrifaði í Fréttablaðið í gær að Alþingi eigi að afgreiða sem fyrst þingsályktunartillögu um að hætta viðræðum við Evrópusambandið. 29.8.2010 09:51
Höfðu afskipti vegna hávaða í heimahúsum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti þó nokkrum sinnum að hafa afskipti af hávaða í heimahúsum víðsvegar um bæinn í nótt þar sem fólk tók ekki tillit til næstu nágranna. Þá var nokkuð um pústra á milli manna í miðbænum að sögn lögreglumanns sem fréttastofa talaði við. Í heildina litið fór þó allt nokkuð vel fram í skemmtanalífinu þessa nóttina að sögn lögreglumannsins. 29.8.2010 09:28
Þrjú útköll vegna elda í matarpottum Talsverður erill hefur verið hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í dag og í kvöld sem hefur þurft að sinna þremur útköllum eftir tilkynningar um elda í matarpottum í íbúðarhúsum. Þá fóru sjúkraflutningamenn í yfir 30 sjúkraflutninga í dag. 28.8.2010 20:30
Lögreglan endurgreiddi dópsmyglara eina milljón auk vaxta Fíkniefnalögreglan þurfti að skila dæmdum dópsmyglara einni milljón króna í reiðufé sem lögreglan hafði haldlagt vegna gruns um að féð væri illa fengið. Dópsmyglarinn fékk vexti á fé sitt greidda frá lögreglunni. 28.8.2010 19:43
Stærstu flokkarnir á Íslandi hafa enga stefnu í málefnum kirkjunnar Stærstu stjórnmálaflokkarnir á Íslandi hafa enga opinbera stefnu um samband ríkis og kirkju. Vinstri grænir eru eini fokkurinn á Alþingi sem opinberlega vill aðskilnað, en það er hægara sagt en gert því samband ríkis og kirkju er bundið sterkum böndum sem varin eru af stjórnarskránni. 28.8.2010 18:30
Bæjarstjórinn bjartsýnn Bæjarsjóður Akureyrar kemur fyrst um sinn að rekstri menningarhússins Hofs og er bæjarstjórinn bjartsýnn þrátt fyrir stóran bita í bókhaldi bæjarins. Vígsluathöfn hússins fór fram síðdegis og húsið iðaði af lífi og list. 28.8.2010 19:28
Helmingur sýnanna reyndust menguð Helmingur sýna sem Heilbrigðiseftirlit Suðurlands tók á Þingvöllum í vikunni reyndust menguð, en saurgerlar fundust í einu þeirra. Enn er óvíst hvort Holræsa- og stífluþjónustan verði ákærð fyrir að losa seyru á vatsnverndarsvæði Þingvalla. 28.8.2010 18:43
Vann tæpar 26 milljónir Einn heppinn spilari var með allar tölur réttar í lottói kvöldsins og fær hann 25,6 milljónir í sinn hlut. Vinningsmiðinn var seldur verslun N1 við Borgartún. Sex voru með fjórar tölur réttar auk bónustölunnar og fengu viðkomandi spilarar rúmar 60 þúsund krónur hver. 28.8.2010 19:33
Borgarbúa súpa seyðið af fjárfestingarstefnu Orkuveitunnar Verðtryggð lán heimilanna hækka um á fimmta milljarð króna alls vegna verðbólguáhrifa af hækkun gjaldskrár Orkuveitu Reykjavíkur. Hagfræðingur segir Reykvíkinga súpa seyðið af fjárfestingarstefnu fyrirtækisins. 28.8.2010 19:15
Tilkynnt um eld í Trönuhjalla Slökkviliði höfuðborgarsvæðsins barst tilkynning um eld í íbúðarhúsi við Trönuhjalla í Kópavogi á sjöunda tímanum í kvöld. Dælu- og sjúkrabílar fóru á vettvang. Ekki fengust frekari upplýsingar um málið hjá varðstjóra. 28.8.2010 18:48
Gunnar Rúnar hafður í einangrun Gunnar Rúnar Sigurþórsson sem í gær var úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um morðið á Hannesi Helgasyni verður að öllum líkindum ekki yfirheyrður um helgina. Hann er hafður í einangrun á Litla-Hrauni og verður það áfram eins lengi og lögreglan telur nauðsynlegt vegna rannsóknahagsmuna. Hann var úrskurðaður í fjörgurra vikna gæsluvarðhald í en sá úrskurður hefur verið kærður til Hæstaréttar. Gunnar neitar sök. 28.8.2010 18:36
Ekki ágreiningur um fækkun ráðuneyta Árni Þór Sigurðsson, þingmaður VG og varaformaður allsherjarnefndar, segir engann ágreining vera innan stjórnarflokkanna um fækkun ráðuneyta. Málið þurfi einfaldlega meiri undirbýnings. 28.8.2010 18:22
Dregur úr spítalasýkingum Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, segir að innlagnarsjúklingum hafi fækkað allmikið að meðaltali hjá spítalnum og verulegur árangur hafi náðst í baráttu við að koma í veg fyrir spítalasýkingar. Þetta er meðal þess sem fram kemur í pistli Björns á heimasíðu Landspítalans þar sem hann fjallar um svokallað skorkort fyrir spítalann í heild sinni með rekstrartölum fyrir fyrstu sex mánuði ársins. 28.8.2010 17:41
Lokadagur Íslandsmótsins í dag Lokdadagur Íslandsmóts í hestaíþróttum á Sörlavelli í Hafnarfirði fór fram í dag. Töltkeppni í A-úrslitum var æsispennandi en þar náði Viðar Ingólfsson að verja titil sinn á Tuma frá Stóra-Hofi og sigraði með einkunnina 8,43 en Jakob Svavar Sigurðsson og Sigurbjörn Bárðarson voru jafnir í 2.-3 sæti með einkunnina 8,42. 28.8.2010 17:12
Ætla að efla samskiptin Til stendur að efla samskipti Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna mun frekar en nú er. Þetta er á meðal þess sem ákveðið var á fundi utanríkisráðherra ríkjanna í Riga í Lettlandi í gær. Unnið verður að þessu í samræmi við tillögur sem Sören Gade fyrrverandi varnarmálaráðherra Dana og Valdis Birkavs fyrrverandi forsætis- og utanríkisráðherra Letta unnu. 28.8.2010 16:58
Hækkunin gríðarlega erfið fyrir garðyrkjubændur Hækkun á gjaldskrá Orkuveitu Reykjavíkur er gríðarlega erfið fyrir garðyrkjubændur, segir Bjarni Jónsson, framkvæmdastjóri Sambands garðyrkjubænda. Hann segir að kostnaður fyrir garðyrkjubændur vegna hækkunarinnar geti numið milljónum á ársgrundvelli fyrir hvern garðyrkjubónda. Bjarni ætlar að óska eftir fundi með forsvarsmönnum Orkuveitu Reykjavíkur í næstu viku. 28.8.2010 15:01
„Orð Sigurðar dæma sig sjálf“ Ólafur Þ. Hauksson sérstakur saksóknari sér enga ástæðu til að bregðast við ummælum Sigurðar Einarssonar í Fréttablaðinu í dag. 28.8.2010 13:36
Almennir notendur bera gjaldskrárhækkun OR einir Framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna gagnrýnir að almennir notendur beri gjaldskrárhækkun Orkuveitu Reykjavíkur einir, erfiðleikar Orkuveitunnar stafi ekki af þjónustu við þá. Orkuveitan hækkaði gjaldskrá sína um allt að 40% í gær. 28.8.2010 11:58
Björguðu manni úr sjónum Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn fóru að Faxagarði um tvöleytið í nótt þar sem maður hafði fallið í sjóinn og þurfti aðstoð til að komast aftur á þurrt. Ekki liggur fyrir hvernig maðurinn komst í sjóinn. 28.8.2010 09:51
Á fjórða tug milljóna söfnuðust Yfir 32 milljónir söfnuðust í átakinu „Á allra vörum" sem endaði með sjónvarspútsendingu á Skjá einum í gærkvöld. Gróa Ásgeirsdóttir, ein af forsvarskonum átaksins, segir að til viðbótar þessu komi afrakstur sölu á glossum. Heildarupphæðin kunni því að ná yfir 40 milljónir króna. 28.8.2010 09:42
Handtekinn fyrir líkamsárás í Austurstræti Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn í Austurstræti í nótt eftir að hann hafði ráðist á tvo menn á þrítugsaldri og nefbrotið annan þeirra. Árásarmaðurinn var í annarlegu ástandi og var látinn gista fangageymslur yfir nótt. 28.8.2010 09:40
Björgunarsveitarmenn leituðu sofandi manns Björgunarsveitamenn frá Akranesi voru ræstir út um hálfþrjúleytið í nótt til leitar að manni sem hafði verið saknað síðan upp úr miðnætti. Maðurinn fannst rétt fyrir klukkan níu í morgun nálægt sumarbústað sem hann hafði dvalið í. Í ljós kom að hann hafði sofnað undir berum himni án þess að samferðarfólk hans vissi af. Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi hafði verið óskað eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar og var hún rétt ófarin í loftið þegar að maðurinn fannst. 28.8.2010 09:35
Vill skaðabætur vegna sumarmarkaðar í Hafnarfirði „Ég mun leita réttar míns fyrir dómstólum," segir Jón Hlíðar Runólfsson sem telur Hafnarfjarðarbæ hafa farið á bak við sig og svikið samninga þegar bærinn kom á fót sumarmarkaði á Thorsplaninu nú í sumar. Jón Hlíðar hafi sjálfur farið þess á leit við bæinn að halda utan um sumarmarkað í sömu götur og fengið jákvæðar viðtökur. 27.8.2010 21:39
Sóley kallar á viðræður við Norðurál Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi VG, leggur til að leitað verði eftir viðræðum við Norðurál um raforkusölusamninga með það að markmiði að auka tekjur Orkuveitu Reykjavíkur. Hún segir að tillögur Orkuveitunnar um gjaldskrárhækkanir hefðu þurft aukna „pólitíska rýningu" af hálfu stjórnar. 27.8.2010 21:20
Situr uppi með ónýta afmælisgjöf Barbara Þóra Kjartansdóttir keypti tölvuleik handa syni sínum í afmælisgjöf. Þegar litli drengurinn ætlaði að spila leikinn virkaði hann ekki og Barbara fór með diskinn aftur í búðina en henni til mikillar undrunar og ama - fær hún ekki að skila leiknum. 27.8.2010 00:01
Útilokar ekki frekari hækkanir Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður OR, útilokar ekki að til frekari gjaldskrárhækkana komi að ári. Í samtali við Heimi Má Pétursson í kvöldfréttum Stöðvar 2 sagði hann ekki víst að þessi hækkun dyggði til að rétta kútinn hjá Orkuveitunni, stjórnendum fyrirtækisins hefði verið gefin heimild til að taka frekari ákvarðanir um gjaldskrárhækkanir tvisvar á ári með hliðsjón af hækkun neysluvísitölu. 27.8.2010 20:01