Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Aðstandendur Hannesar viðstaddir í Héraðsdómi Þáttaskil urðu í rannsókninni á morðinu á Hannesi Helgasyni í dag þegar karlmaður á þrítugsaldri var úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna rökstudds gruns um að hann eigi aðild að andláti Hannesar. Aðstandendur Hannesar voru viðstaddir í Héraðsdómi Reykjaness þegar úrskurðurinn var kveðinn upp. 27.8.2010 18:24
Harður árekstur á Miklubraut Engin slys urðu á fólki þegar fólksbíll keyrði aftan á jeppa á Miklubrautinn um klukkan hálf sex í dag. Fólksbíllinn var mikið skemmdur og var fjarlægður af vettvangi af kranabíl. Lögreglan á staðnum sagði alla ómeidda, þetta væri bara vesen, en þung umferð var um Miklubrautina þegar áreksturinn varð. 27.8.2010 17:55
Gunnar Rúnar neitar sök Gunnar Rúnar Sigurþórsson neitar að hafa átt þátt í andláti Hannesar Þórs Helgason en Gunnar var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald siðdegis í Héraðsdómi Reykjaness. Hann hefur áfrýjað úrskurðinum til Hæstaréttar. 27.8.2010 16:26
Gunnar Rúnar leiddur fyrir dómara - myndband Gunnar Rúnar Sigurþórsson var leiddur fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjaness klukkan þrjú í dag. Þar var hann úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald sem rennur út 24. september næstkomandi. 27.8.2010 16:21
55 kaupsamningar þinglýstir Alls voru 55 kaupsamningar þinglýstir á höfuðborgarsvæðinu í vikunni. Þar af voru 45 samningar um eignir í fjölbýli, 8 samningar um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 1.262 milljónir króna og meðalupphæð á samning 22,9 milljónir króna. 27.8.2010 15:52
Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Gunnar Rúnar Sigurþórsson hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðahald í fjórar vikur vegna gruns um að hafa átt aðild að andláti Hannesar Þórs Helgasonar, sem var myrtur á heimili sínu 15. ágúst síðastliðinn. 27.8.2010 14:59
Lögðu hald á 150 lítra af landa á Akureyri Lögreglan á Akureyri lagði hald á 150 lítra af landa eftir húsleit í íðnaðarhúsnæði í gækvöldi. 27.8.2010 14:47
Morðrannsókn: Farið fram á gæsluvarðhald yfir grunuðum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur farið fram á gæsluvarðhald yfir manni á þrítugsaldri sem er grunaður um morðið á Hannesi Þór Helgasyni sem var ráðinn bani 15 ágúst. 27.8.2010 13:58
Starfsmenn Íbúðarlánasjóðs lýsa yfir stuðningi við umsókn Ástu Starfsmenn Íbúðalánasjóðs lýsa yfir fullum stuðningi við umsókn Ástu H. Bragadóttur um starf framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs og harma þá ákvörðun hennar að draga umsókn sína til baka samkvæmt tilkynningu sem þeir sendu á fjölmiðla upp úr hádegi. Þá sagði einnig í tilkynningunni að starfsmenn hefðu þær upplýsingar að Ásta hefði notið stuðnings meirihluta stjórnar Íbúðalánasjóðs. 27.8.2010 13:23
Ríkisendurskoðun: Það þarf að efla allt eftirlit með þjónustu við fatlaða Samþykkja þarf heildarstefnu um þjónustu við fatlaða og tryggja samræmi hennar milli stofnana og landshluta. Þá þarf að efla allt eftirlit með starfseminni samkvæmt úttekt Ríkisendurskoðunar. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar segir að samkvæmt fjárlögum munu framlög til þjónustu við fatlaða nema samtals 11,2 ma.kr. á þessu ári. 27.8.2010 13:14
Hanna Birna hafnar ásökunum um töffaragang Borgarstjóri Reykjavíkur segist efast um að geta átt samvinnu við Sjálfstæðisflokkinn og sakar hann um töffaragang. Oddviti Sjálfstæðisflokksins segir engan töffaragang í flokknum, og menn megi ekki taka ágreiningi persónulega. 27.8.2010 12:59
Engar eðlisbreytingar á umsóknarferlinu Formaður utanríkisnefndar segir engar eðlisbreytingar hafa átt sér stað á umsóknarferli Íslands að Evrópusambandinu. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir ótækt að sambandið ætli að styrkja umsóknina um fjóra milljarða króna. 27.8.2010 12:40
Árni Páll harmar ákvörðun Ástu Félagsmálaráðherra vonar að nýr forstjóri verði ráðinn til Íbúðalánasjóðs innan fárra vikna. Hann harmar að Ásta H. Bragadóttir starfandi forstjóri skuli hafa dregið umsókn sína til baka. Hann segir að ríkissjóður muni styrkja fjárhagslega stöðu sjóðsins. 27.8.2010 12:24
Plastic Ono Band endurreist á Íslandi í haust Yoko Ono ætlar að kalla saman hljómsveitina Plastic Ono Band í Reykjavík til að minnast 70 ára afmælis John Lennon hinn 9. október næst komandi. Alice Walker, höfundur bókarinnar the Color Purple er ein þeirra sem fær Lennon friðarverðlaunin í ár. 27.8.2010 12:16
Forstjóri Magma stoltur af því að geta kallað Össur „félaga“ Ásgeir Margeirsson, forstjóri Magma á Íslandi, segir að hann og Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hafi þekkst lengi og samskipti þeirra hafi verið á þeim nótum. Hann segir stjórnvöld aðeins hafa verið að vinna eftir gildandi lögum og ekkert óeðlilegt sé við tölvupóstssamskipti sín við ráðherra og embættismenn vegna fjárfestingar Magma í HS Orku. 27.8.2010 12:14
Böðvar Jónsson: Setjist niður og semjið svo fólkið fái atvinnu Formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar segir Suðurnesin búa við mesta atvinnuleysi á landinu og krefst þess að ráðamenn setjist niður og tryggi að framkvæmdir komist í gang. 27.8.2010 12:09
Segja aðlögunarferli fólgið í ESB-aðildarviðræðum Samtökin Ísafold, Félags Ungs Fólks gegn ESB-aðild, segja aðlögun fólgna í aðildarviðræðum við ESB. 27.8.2010 12:06
Morð í Hafnarfirði: Karlmaður að nýju í haldi lögreglu Karlmaður á þrítugsaldri er í haldi lögreglu vegna rannsóknarinnar á morðinu á Hannesi Helgasyni. 27.8.2010 12:02
ASÍ gagnrýnir landbúnaðarráðherra Hörð gagnrýni kom fram á Jón Bjarnason, landbúnaðarráðherra, á miðstjórnarfundi ASÍ í gær. Fundarmönnum hugnaðist ekki sú ákvörðun Jóns að gera breytingar á tolli á innfluttum landbúnaðarafurðum, að því er fram kemur á vef ASÍ. Þar segir að Jón hafi tekið ákvörðunina einhliða og að hún gangi gegn hagsmunum neytenda þar sem hún verð komi til með að hækka gríðarlega á innfluttum landbúnaðarafurðum. 27.8.2010 11:32
Samið um frumhönnun nýs Landspítala Gengið hefur verið frá samningi um frumhönnun og gerð útboðsgagna milli SPITAL hópsins, sem bar sigur úr bítum í sumar í hönnunarsamkeppni um nýjan Landspítala, og hlutafélagsins Nýr Landspítali ohf., sem stofnað var í vor til að standa að undirbúningi og útboði á byggingu nýs háskólasjúkrahúss við Hringbraut. Útboðsgögn vegna fyrstu framkvæmda eiga að liggja fyrir síðsumars 2011. Samkomulagið var undirritað í dag að viðstöddum heilbrigðisráðherra, rektor Háskóla Íslands og forstjóra Landspítalans. 27.8.2010 11:15
Ungir sjálfstæðismenn verðlauna Brynjar Níelsson og InDefence Samband ungra sjálfstæðismanna hefur ákveðið að veita Brynjari Níelssyni, hæstaréttarlögmanni og formanni Lögmannafélagsins, og InDefence hópnum svonefnd Frelsisverðlaun sambandins í ár. Verðlaunin fær Brynjar fyrir að vera ötull baráttumaður gegn pólitískum rétttrúnaði, líkt og það er orðað í tilkynningu SUS. Um InDefence segir að samtökin eigi hvað mestan heiður skilið fyrir að hindra að gengið yrði að kröfum Breta og Hollendinga Icesave málinu. 27.8.2010 10:55
Morðrannsókn: Húsleit hjá grunuðum manni Húsleit var framkvæmd í gærkvöldi heima hjá grunuðum manni, sem var handtekinn og yfirheyrður vegna morðmálsins í Hafnarfirði stuttu eftir að morðið var framið. Þetta kemur fram á fréttamiðlinum Pressan.is. 27.8.2010 10:45
Ökumenn til fyrirmyndar á Fornhaga Ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Fornhaga í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fornhaga í suðurátt, við Hagaskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 34 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum ekið á löglegum hraða en þarna er 30 km hámarkshraði. 27.8.2010 10:29
Facebook-síðu lokað eftir sjálfsmorðssprengjuhótun Facebook-síðu með yfirskriftinni „Við myndum fórna lífinu fyrir Ísland", hefur verið lokað en samtökin Sterkara Ísland kærðu sjálfsmorðshótun hópsins til lögreglunnar. 27.8.2010 10:03
Vilja mosku í Reykjavík Aðalfundur Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu skorar á skipulagsráð Reykjavíkur að koma til móts við óskir Félags múslíma og útvega þeim lóð undir mosku. Á aðalfundinum sem fór fram í gær var Claudia Overesch kjörinn formaður félagsins. 27.8.2010 09:45
Meirihluti telur hag sinn betri innan ESB Ný könnun Eurobarometer sýnir að meirihluti íbúa Norðurlandaþjóðanna í ESB telja hag sinn betri vegna aðildar að ESB. 27.8.2010 09:43
Jón Gnarr: Sjálfstæðismenn sýna mér hroka Jón Gnarr, borgarstjóri, segist efast um að hann geti unnið með Sjálfstæðisflokknum. Sjálfstæðismenn sýni honum hroka og fálæti. Hann segist fá lítið til baka frá þeim nema töffaragang. Jón spyr lesendur dagbókar sinnar á samskiptavefnum Facebook hvort hann eigi að hætta að brosa til þeirra sem beri ekki virðingu fyrir honum. 27.8.2010 08:28
Urða verslunarhöll á meðan kreppan ríkir Reginn, dótturfélag Landsbankans, sem leysti til sín risavaxna lóð með sökkli að tólf þúsund fermetra verslunarmiðstöð er nú að láta moka yfir allan grunninn. 27.8.2010 08:00
Leyfi til stækkunar bíður deiliskipulags Gert er ráð fyrir að breyting á deiliskipulagi Reyjaness og Grindavíkur verði staðfest um mánaðamótin október nóvember þegar Skipulagsstofnun hefur farið yfir hana, að sögn Magneu Guðmundsdóttur, formanns umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar. 27.8.2010 07:30
Með skýrt umboð til að breyta borginni Besti flokkurinn er með skýrt umboð til breytinga í Reykjavík og tími kominn til að láta verkin tala, í góðri sátt við íbúa. Þetta má lesa í viðtali blaðsins við nýjan formann skipulagsráðs, Pál Hjaltason. 27.8.2010 06:45
Sumar skoðanir Beatys taldar birtingarhæfar en aðrar ekki Iðnaðarráðuneytið hefur afhent Fréttablaðinu hluta af bréfi sem Ross Beaty, forstjóri Magma, sendi Katrínu Júlíusdóttur iðnaðaráðherra 18. ágúst síðastliðinn. Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra, var sent afrit af bréfinu. 27.8.2010 06:45
Segja tuttugu upp störfum Jarðboranir hafa sagt upp tuttugu starfsmönnum og tilgreina tafir á framkvæmdum vegna álvers í Helguvík sem ástæðu uppsagna í fréttatilkynningu sem send var út í gær. 27.8.2010 05:30
Umdeilt málverk af Ólafi Skúlasyni fært Búið er að færa málverkið af Ólafi Skúlasyni, fyrrverandi biskupi, til á biskupsstofu. Málverkið öðlaðist óvænta frægð þegar mynd af þeim Karli Sigurbjörnssyni og Geir Waage birtist á Vísi og í Fréttablaðinu þar sem Ólafur Skúlason horfði yfir öxl þeirra. 26.8.2010 21:56
Alvarlegt ef ekki má tryggja börn með ADHD Björk Þórarinsdóttir, formaður ADHD samtakanna, segir alvarlegt ef börn með ADHD njóti ekki sömu tryggingaréttinda og önnur börn. Hún segir það geta hvatt til þess að fólk forðist greiningu og meðhöndlun á röskuninni. 26.8.2010 21:32
Neysluvatn í Hveragerði ekki mengað Ekki er arsenikk í drykkjarvatni Hvergerðinga. Þetta segir Elsa Ingjaldsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands en bóndi í sveitinni segist hafa misst tvær kýr vegna arsenikk mengunar í drykkjarvatni. 26.8.2010 20:47
Dregur umsókn til baka vegna hugmynda ráðherra Ásta Bragadóttir starfandi framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, hefur ákveðið að draga umsókn sína um starf framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs til baka í kjölfar hugmynda félagsmálaráðherra að skipa valnefnd til að meta hæfi umsækjanda um stöðu framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs. 26.8.2010 22:15
Segir Suðurnes í heljargreipum Vinstri grænna Viðræður um orkusölu til álversins í Helguvík eru komnar í loft upp og kveðst forstjóri HS Orku líta svo á að orkusölusamningur við Norðurál sé runninn úr gildi. Bæjarstjórinn í Garði segir Suðurnesjum vera að blæða út í atvinnuleysi og þau séu í heljargreipum Vinstri grænna. 26.8.2010 18:55
„Þörfnumst þess að málið sé upplýst" Útför Hannesar Þór Helgasonar sem fannst myrtur á heimili sínu á sunnudaginn fyrir viku fór fram í dag. Fjöldi listamanna söng við afhöfnina. Kirkjan var þétt setin. 26.8.2010 18:42
Kennir aresenikkmengun frá Hellisheiðarvirkjun um skepnudauða Bændur í nágrenni Hveragerðis óttast að neysluvatn hafi mengast af arsenikki, sem hugsanlega komi frá Hellisheiðarvirkjun. Tvær kýr drápust á bænum í fyrra af ókunnum ástæðum. 26.8.2010 18:30
„Sæll félagi Össur“ - Magma bað ráðherra um frið fyrir Vinstri grænum Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, hlutaðist til um kaup Magma Energy í HS Orku nokkuð eftir að hann hætti sem iðnaðarráðherra, þótt orku- og auðlindamál heyrðu ekki undir hann. Ásgeir Margeirsson, forstjóri Magma á Íslandi, bað iðnaðarráðherra um frið fyrir Vinstri grænum í bréfi sem hann sendi á síðasta ári. 26.8.2010 18:30
Arsenikkmengun: Vísindamenn vilja rannsókn Vísindamenn telja að rannsaka þurfi betur arsenikkmengun í tengslum við gufu frá Hellisheiðarvirkjun. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands fullyrðir að neysluvatn á Friðarstöðu og í Hveragerði sé í lagi. 26.8.2010 18:20
Óttast greiðsluþrot Reykjanesbæjar Kristinn Jakobsson, oddviti Framsóknarmanna í Reykjanesbæ, segist óttast að bærinn gæti verið settur undir eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaganna. Hann segir skuldir bæjarsjóðs nema um 400% prósent af árstekjum og þetta hlutfall fari hækkandi. Bærinn hafi bjargað sér fyrir horn vegna gengishagnaðar en reksturinn sé of dýr. 26.8.2010 17:33
Óttast arsenikkmengun i neysluvatni Bændur í nágrenni Hveragerðis óttast að neysluvatn hafi mengast af arsenikki, en tvær kýr drápust á bænum í fyrra af ókunnum ástæðum. 26.8.2010 17:09
Pétur Guðgeirsson má dæma í máli níumenninga Hæstiréttur hefur staðfest að Pétur Guðgeirsson héraðsdómari mun ekki þurfa að víkja sæti í máli fólksins sem ákært er fyrir árás á Alþingi. 26.8.2010 16:54
Öllum brugðið í Vesturbæjarskóla Fólki var brugðið þegar að það sá tvo skúra sem voru svona illa útlítandi, segir Hildur Hafstað, skólastjóri í Vesturbæjarskóla. Vísir sagði frá því fyrr í dag að foreldrar barna í Vesturbæjarskóla væri reiðir vegna tveggja hrörlegra skúra sem settir voru upp við Vesturbæjarskóla í gærkvöld. Þeir eiga að hýsa sjö ára gamla nemendur skólans. 26.8.2010 16:30