Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Urða verslunarhöll á meðan kreppan ríkir Reginn, dótturfélag Landsbankans, sem leysti til sín risavaxna lóð með sökkli að tólf þúsund fermetra verslunarmiðstöð er nú að láta moka yfir allan grunninn. 27.8.2010 08:00
Leyfi til stækkunar bíður deiliskipulags Gert er ráð fyrir að breyting á deiliskipulagi Reyjaness og Grindavíkur verði staðfest um mánaðamótin október nóvember þegar Skipulagsstofnun hefur farið yfir hana, að sögn Magneu Guðmundsdóttur, formanns umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar. 27.8.2010 07:30
Með skýrt umboð til að breyta borginni Besti flokkurinn er með skýrt umboð til breytinga í Reykjavík og tími kominn til að láta verkin tala, í góðri sátt við íbúa. Þetta má lesa í viðtali blaðsins við nýjan formann skipulagsráðs, Pál Hjaltason. 27.8.2010 06:45
Sumar skoðanir Beatys taldar birtingarhæfar en aðrar ekki Iðnaðarráðuneytið hefur afhent Fréttablaðinu hluta af bréfi sem Ross Beaty, forstjóri Magma, sendi Katrínu Júlíusdóttur iðnaðaráðherra 18. ágúst síðastliðinn. Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra, var sent afrit af bréfinu. 27.8.2010 06:45
Segja tuttugu upp störfum Jarðboranir hafa sagt upp tuttugu starfsmönnum og tilgreina tafir á framkvæmdum vegna álvers í Helguvík sem ástæðu uppsagna í fréttatilkynningu sem send var út í gær. 27.8.2010 05:30
Umdeilt málverk af Ólafi Skúlasyni fært Búið er að færa málverkið af Ólafi Skúlasyni, fyrrverandi biskupi, til á biskupsstofu. Málverkið öðlaðist óvænta frægð þegar mynd af þeim Karli Sigurbjörnssyni og Geir Waage birtist á Vísi og í Fréttablaðinu þar sem Ólafur Skúlason horfði yfir öxl þeirra. 26.8.2010 21:56
Alvarlegt ef ekki má tryggja börn með ADHD Björk Þórarinsdóttir, formaður ADHD samtakanna, segir alvarlegt ef börn með ADHD njóti ekki sömu tryggingaréttinda og önnur börn. Hún segir það geta hvatt til þess að fólk forðist greiningu og meðhöndlun á röskuninni. 26.8.2010 21:32
Neysluvatn í Hveragerði ekki mengað Ekki er arsenikk í drykkjarvatni Hvergerðinga. Þetta segir Elsa Ingjaldsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands en bóndi í sveitinni segist hafa misst tvær kýr vegna arsenikk mengunar í drykkjarvatni. 26.8.2010 20:47
Dregur umsókn til baka vegna hugmynda ráðherra Ásta Bragadóttir starfandi framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, hefur ákveðið að draga umsókn sína um starf framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs til baka í kjölfar hugmynda félagsmálaráðherra að skipa valnefnd til að meta hæfi umsækjanda um stöðu framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs. 26.8.2010 22:15
Segir Suðurnes í heljargreipum Vinstri grænna Viðræður um orkusölu til álversins í Helguvík eru komnar í loft upp og kveðst forstjóri HS Orku líta svo á að orkusölusamningur við Norðurál sé runninn úr gildi. Bæjarstjórinn í Garði segir Suðurnesjum vera að blæða út í atvinnuleysi og þau séu í heljargreipum Vinstri grænna. 26.8.2010 18:55
„Þörfnumst þess að málið sé upplýst" Útför Hannesar Þór Helgasonar sem fannst myrtur á heimili sínu á sunnudaginn fyrir viku fór fram í dag. Fjöldi listamanna söng við afhöfnina. Kirkjan var þétt setin. 26.8.2010 18:42
Kennir aresenikkmengun frá Hellisheiðarvirkjun um skepnudauða Bændur í nágrenni Hveragerðis óttast að neysluvatn hafi mengast af arsenikki, sem hugsanlega komi frá Hellisheiðarvirkjun. Tvær kýr drápust á bænum í fyrra af ókunnum ástæðum. 26.8.2010 18:30
„Sæll félagi Össur“ - Magma bað ráðherra um frið fyrir Vinstri grænum Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, hlutaðist til um kaup Magma Energy í HS Orku nokkuð eftir að hann hætti sem iðnaðarráðherra, þótt orku- og auðlindamál heyrðu ekki undir hann. Ásgeir Margeirsson, forstjóri Magma á Íslandi, bað iðnaðarráðherra um frið fyrir Vinstri grænum í bréfi sem hann sendi á síðasta ári. 26.8.2010 18:30
Arsenikkmengun: Vísindamenn vilja rannsókn Vísindamenn telja að rannsaka þurfi betur arsenikkmengun í tengslum við gufu frá Hellisheiðarvirkjun. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands fullyrðir að neysluvatn á Friðarstöðu og í Hveragerði sé í lagi. 26.8.2010 18:20
Óttast greiðsluþrot Reykjanesbæjar Kristinn Jakobsson, oddviti Framsóknarmanna í Reykjanesbæ, segist óttast að bærinn gæti verið settur undir eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaganna. Hann segir skuldir bæjarsjóðs nema um 400% prósent af árstekjum og þetta hlutfall fari hækkandi. Bærinn hafi bjargað sér fyrir horn vegna gengishagnaðar en reksturinn sé of dýr. 26.8.2010 17:33
Óttast arsenikkmengun i neysluvatni Bændur í nágrenni Hveragerðis óttast að neysluvatn hafi mengast af arsenikki, en tvær kýr drápust á bænum í fyrra af ókunnum ástæðum. 26.8.2010 17:09
Pétur Guðgeirsson má dæma í máli níumenninga Hæstiréttur hefur staðfest að Pétur Guðgeirsson héraðsdómari mun ekki þurfa að víkja sæti í máli fólksins sem ákært er fyrir árás á Alþingi. 26.8.2010 16:54
Öllum brugðið í Vesturbæjarskóla Fólki var brugðið þegar að það sá tvo skúra sem voru svona illa útlítandi, segir Hildur Hafstað, skólastjóri í Vesturbæjarskóla. Vísir sagði frá því fyrr í dag að foreldrar barna í Vesturbæjarskóla væri reiðir vegna tveggja hrörlegra skúra sem settir voru upp við Vesturbæjarskóla í gærkvöld. Þeir eiga að hýsa sjö ára gamla nemendur skólans. 26.8.2010 16:30
Morðrannsóknin: Þriðji karlmaðurinn látinn laus Karl á fertugsaldri, sem verið hefur í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá því gær vegna rannsóknar á andláti Hannesar Þórs Helgasonar, hefur verið látinn laus. 26.8.2010 15:34
Fjölmenni við útför Hannesar Fjölmenni var við útför Hannesar Þórs Helgasonar sem var gerð frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði klukkan eitt í dag. Færri komust að í kirkjunni en vildu og var athöfninni því varpað á skjá í íþróttasal Víðistaðaskóla. 26.8.2010 15:22
Breytingar hjá efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóri hefur gefið út nýtt skipurit fyrir efnahagsbrotadeild embættisins sem gerir ráð fyrir að tveir saksóknarar starfi á rannsóknar- og ákærusviði deildarinnar. Eins og Vísir greindi frá í vor hefur Sigríði Elsu Kjartansdóttur, sem skipuð er saksóknari hjá embætti ríkissaksóknara, verið falið að gegna starfi saksóknara við efnahagsbrotadeild. Þá hefja fleiri nýir starfsmenn störf við deildina á næstunni. 26.8.2010 14:02
Foreldrar í Vesturbæjarskóla æfir yfir aðstöðuleysi Mikil reiði ríkir á meðal foreldra í Vesturbæjarskóla eftir að færanlegar skólastofur voru fluttar á lóð Vesturbæjarskóla í gærkvöld. Skúrarnir voru fluttir á lóðina í gærkvöld. Þeim er ætlað að hýsa sjö ára gömul börn á meðan að skólastarfið stendur yfir í vetur. 26.8.2010 13:35
Svíar kanna einnig tengsl milli bólusetningar og drómasýki Sænska lyfjastofnunin er að athuga hvort samhengi geti verið milli bólusetningar við svínaflensu með bóluefninu Pandemrix og svefnflogum eða drómsýki. Hætt hefur verið að gefa bóluefnið við svínaflensu tímabundið í Finnlandi eða þar til endanlegar niðurstöður liggja fyrir um tengsl þess við sjúkdóminn. 26.8.2010 13:05
Kjör bænda skerðast um mánaðamótin Bændur verða fyrir kjaraskerðingu um þessi mánaðamót þegar ríkið hættir að greiða mótframlag atvinnurekenda í lífeyrissjóð þeirra. Framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs bænda segir erfitt fyrir þá að vega skerðinguna upp með hækkun afurðaverðs. 26.8.2010 12:12
Mistök gerð hjá Greiðslustofu lífeyrissjóðanna Tæknileg mistök hjá Greiðslustofu lífeyrissjóðanna höfðu í för með sér að upp undir þúsund ífeyrisþegar fengu rangan útreikning. Þar var tilkynnt um lækkun eða jafnvel niðurfellingu á lífeyrisgreiðslum. Öryekjabandalagið vekur athygli á þessu og segir að leiðréttingarbréf sé væntanlegt frá greiðslustofunni. 26.8.2010 11:47
Svíakóngur drakk kampavín á Austur Karl Gústav, konungur Svíþjóðar, ákvað að gera sér dagamun á veitingastaðnum Austur í gærkvöld. Þar var hann í nokkuð fjölmennum hópi fólks og drakk kampavín, samkvæmt heimildum Vísis. Starfsfólk Austur staðfesti fréttirnar þegar Vísir hafði samband þangað en vildi að öðru leyti ekkert láta hafa eftir sér um málið. 26.8.2010 11:40
Morðið í Hafnarfirði: Karlmaður í haldi Íslenskur karlmaður á fertugsaldri er í haldi lögreglu í tengslum við morðið á Hannesi Þór Helgasyni. Hann hefur ekki verið yfirheyrður áður í tengslum við morðið. 26.8.2010 11:26
Össur í Ríga Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, tekur þátt í árlegum samráðsfundi utanríkisráðherra Norðurlanda og Eystrasaltsríkja sem að þessu sinni er haldinn í Ríga í Lettlandi í dag og á morgun. 26.8.2010 11:15
Auðveldara að meta börn eftir átta ára aldur Tryggingafélagið Sjóvá metur hvort hægt sé að tryggja börn með þroskaröskun, eins og ofvirkni með athyglisbrest, eftir að barnið hefur náð átta ára aldri, samkvæmt vinnureglum fyrirtækisins. Þetta segir Valborg Sveinsdóttir, sérfræðingur í persónutryggingum hjá Sjóvá. Hún segir að ástæðan sé sú að eftir þann aldur sé auðveldara að meta barnið. 26.8.2010 11:11
Fleiri fóru til hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra Skráðum viðtölum hjá hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum á heilsugæslustöðvum fjölgaði töluvert milli áranna 2008 og 2009. Þetta kemur fram í Talnabrunni, fréttabréfi landlæknis um heilbrigðistölfræði. 26.8.2010 11:08
KFC og Góu lokað vegna útfarar Hannesar Vegna útfarar Hannesar Þórs Helgasonar, sem myrtur var á heimili sínu í Hafnarfirði fyrir ellefu dögum, verður lokað í dag hjá Sælgætisgerðinni Góu-Lindu, á veitingastöðum KFC og Taco Bell ásamt skrifstofum þessara fyrirtækja. Hannes verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði í dag klukkan 13. 26.8.2010 10:43
Ásta fundar með kvenþingforsetum ESB Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, situr fund kvenþingforseta aðildarríkja Evrópusambandsins í Varna í Búlgaríu á morgun í boði Tsetsku Tsachevu, forseta búlgarska þingsins. Til fundarins er boðið öllum kvenþingforsetum aðildarríkja ESB auk umsóknarríkja. Aðalumræðuefni fundarins eru samskipti ólíkra menningarheima í Evrópu og notkun veraldarvefsins í því samhengi, að því er fram kemur á vef Alþingis. 26.8.2010 10:01
Fær ekki að tryggja barn með athyglisbrest Sunna Albertsdóttir fékk ekki að tryggja sjö ára gamlan son sinn sem er greindur með ofvirkni og athyglisbrest. Hún gagnrýnir Sjóvá og segir tryggingarskilmálana afar undarlega - til dæmis sé ekki hægt að tryggja börn sem greind eru með lesblindu. 26.8.2010 10:00
Bæjarstjóri gáttaður á bréfi forstjóra Magma „Ég er gáttur á þessu bréfi og það setur málið í allt aðra stöðu," segir Ásmundur Friðriksson, bæjarstjóri í Garði, um bréf forstjóra Magma til iðnaðarráðherra. Hann segir að sett hafi verið upp leikrit í kringum sölu Íslandsbanka á hlut Geysis Green Energy í HS Orku til Magma í stað lífeyrissjóðanna eða Norðuráls. Hann telur að samkomulag hafi verið gert um að selja raforku HS Orku til annarra fyrirtækja en álvers Norðuráls í Helguvík. 26.8.2010 09:04
Japanir boða hvalveiðiþjóðir til fundar Japönsk stjórnvöld hafa boðið hvalveiðiþjóðum til fundar í nóvember til þess að efla samstöðuna um að taka upp hvalveiðar í atvinnuskyni að nýju. Um 40 þjóðum hefur verið boðið til fundarins og eru Íslendingar og Norðmenn á meðal þeirra sem fengið hafa fundarboð. 26.8.2010 08:04
Innbrot í fyrirtæki á Laugavegi Tilkynnt var um innbrot í fyrirtæki á Laugavegi um klukkan hálfsjö í morgun. Lögregla er á staðnum og rannsakar málið og málsatvik eru óljós sem stendur. Þá var einn ökumaður tekinn í höfuðborginni í nótt grunaður um ölvunarakstur en að öðru leyti var nóttin róleg hjá lögreglu. 26.8.2010 07:04
Evran hefði litlu breytt í hruninu „Ég átti satt að segja von á því að aðild að myntbandalaginu myndi skipta meira máli,“ segir Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands. 26.8.2010 07:00
Fóðra kanínur í trássi við reglur borgarinnar Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur íhugar nú hvort ástæða sé til að skera upp herör gegn kanínum sem hreiðrað hafa um sig í Elliðaárdalnum. 26.8.2010 06:30
Niðurstöðu senn að vænta Starfshópur um endurskoðun á fiskveiðistjórnunarkerfinu er að ljúka störfum. Drög að heildarskýrslu verða lögð fyrir á fundi hópsins í dag. Stefnt er að því að skýrslan líti dagsins ljós í næstu viku. 26.8.2010 06:30
Engin kvörtun borist ríkislögreglustjóra Ekkert erindi hefur borist embætti ríkislögreglustjóra varðandi ásakanir þess efnis að skráningum brotamála hjá lögreglu sé breytt þannig að þær gefi ranga tölfræðilega mynd af eðli og tíðni brota. 26.8.2010 06:00
Ofurtollum beitt gegn samkeppni Innflutningur á ostum og kjöti er nær útilokaður eftir að landbúnaðarráðherra breytti aðferð við álagningu tolla. Neytendur borga þúsundum króna meira fyrir hvert kíló af innfluttri vöru eftir breytingu. 26.8.2010 05:30
Mígreni tengt meiri líkum á hjartaáfalli Heilbrigðismál Auknar líkur eru á því að fólk með ákveðna tegund mígrenihöfuðverkja deyi af völdum hjarta- og æðasjúkdóma. Í niðurstöðum íslenskrar rannsóknar sem birt var í gær í vefútgáfu British Medical Journal (BMJ) kemur fram að fólk sem þjáist af mígreni með áru, en þá fylgja höfuðverknum sjón- eða skyntruflanir, sé í þessum áhættuhópi. Fólk með mígreni án áru er ekki í aukinni hættu. 26.8.2010 05:00
Aukið eftirlit við grunnskóla í borginni Lögreglan biður ökumenn að hafa í huga að framhalds- og grunnskólar á höfuðborgarsvæðinu eru teknir til starfa að loknum sumarleyfum og því megi búast við að umferð þyngist á álagstímum. Í tilkynningu biður lögreglan ökumenn um að gera ráð fyrir að ferðatími til og frá vinnu kunni að aukast nokkuð frá því sem verið hefur. 26.8.2010 03:00
Bjarni býr til hrægamm úr máfi Eyþór Arnalds, forseti bæjarstjórnar Árborgar, segir sveitarfélagið skoða það alvarlega að segja upp samningi við umhleðslustöð á gámasvæði Árborgar. Ástæðan er slæmur frágangur umhleðslustöðvarinnar sem hefur orðið þess valdandi að vargur hefur haft nægt æti í sumar og gert bæjarbúum lífið leitt. 25.8.2010 20:15
Hjóli stolið af uppistandara „Fundarlaun... ætli ég segi ekki bara þeim sem skilar mér hjólinu brandara," segir uppistandinn Þórdís Nadía en hjólinu hennar var stolið á menningarnótt. Þórdís hefur auglýst eftir hjólinu á Feisbúkk og hótar góðvinur hennar Halldór Halldórsson, eða Dóri DNA, að senda handrukkara á þjófinn - skili hann ekki hjólinu innan sólarhrings. 25.8.2010 22:20