Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kirkjuráð biðst fyrirgefningar Kirkjuráð biður fórnarlömb Ólafs Skúlasonar biskups fyrirgefningar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá kirkjuráði. Þar kemur fram að Kirkjuráð trúi frásögnum þeirra Sigrúnu Pálínu Ingvarsdóttur og Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur og fyrir hönd þjóðkirkjunnar biðji kirkjuráð þær og aðra þá sem brotið hefur verið á af hálfu starfsmanna og þjóna kirkjunnar fyrirgefningar. 25.8.2010 17:21
Lögreglan lýsir eftir Jóni Helga Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Jóni Helga Lindusyni. Hann er fæddur þann 24.07.1993, er um 168 sm á hæð og 60 kg. Hann er með dökkt hár og ljósar strípur. Hann fór frá Hamarskoti í Flóa þann 12. ágúst. Talið er að hann dvelji í Reykjavík og ábendingar hafa borist um að hann hafi sést á ferð í Breiðholti. Þeim sem geta gefið upplýsingar um ferðir Jóns Helga er bent á að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444 1180. 25.8.2010 16:33
Nýjar vísbendingar um tengsl mígrenis og hjartaáfalla Fólk á miðjum aldri sem þjáist af mígrenihöfuðverkjum ásamt undanförum þeirra, sem geta verið sjóntruflanir, svimi og dofi, deyja frekar vegna hjarta og æðarsjúkdóma en þeir sem ekki þjást af slíkum höfuðverk 25.8.2010 16:30
Biskup ræddi við Pétur Hafstein um sannleiksnefnd Karl Sigurbjörnsson biskup fundaði i dag með Pétri Kr. Hafstein um að sá síðarnefndi taki að sér að kanna möguleika á skipun nefndar til þess að fara yfir mál Ólafs Skúlasonar heitins biskups. Tillögur að nefndinni eiga að vera tilbúnar fyrir næsta kirkjuþing sem haldið er síðar á árinu. 25.8.2010 14:55
Kynungabók komin út Mennta- og menningarmálráðuneytið hefur gefið út Kynungabók, upplýsingarit fyrir ungt fólk um jafnrétti kynja. Markmið með útgáfu Kynungabókar eru að veita raunsæja mynd af stöðu kynjanna í samfélaginu 25.8.2010 14:12
Fullnægjandi lyktir í máli Geirs Niðurstaða fundar Karls Sigurbjörnssonar, biskups Íslands, og Geirs Waage, sóknarprests í Reykholti, í morgun er fullnægjandi að mati Guðbjargar Jóhannesdóttur, formanns Prestafélags Íslands. Geir hafði verið gagnrýndur fyrir að segja í blaðagrein að hann teldi þagnaskyldu presta vera algera. Eftir fund hans og biskups í morgun lýsti sá síðarnefndi því yfir að Geir myndi hlýða tilkynningaskyldu. 25.8.2010 14:00
Ögmundur: Jón er ekki einn Ögmundur Jónasson, þingmaður VG, segir menn fara hamförum gegn samflokksmanni hans, Jóni Bjarnasyni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og líkja megi því við einelti. Ögmundur segir að Jón sé ekki einn í afstöðu sinni að vera andvígur aðildarviðræðum við Evrópusambandið. 25.8.2010 13:25
Lögreglan sýnilegri við skólana á næstunni Framhaldsskólar og grunnskólar á höfuðborgarsvæðinu eru teknir til starfa að loknum sumarleyfum og má því búast við að umferð þyngist á álagstímum. Í tilkynningu biður lögreglan ökumenn um að hafa þetta í huga og gera ráð fyrir að ferðatími til og frá vinnu kunni að aukast nokkuð frá því sem verið hefur. 25.8.2010 12:55
Fundur um makrílveiðar smábáts mikilvægari Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kaus á funda með eigendum lítils sjávarútvegsfyrirtækis á Rifi á Snæfellsnesi, um reynslu af makrílveiðum smábáts, fremur en að sitja ríkisstjórnarfund í gærmorgun. 25.8.2010 12:12
Peningar í óskilum Peningar, sem fundust í vesturbæ Reykjavíkur, eru í óskilum hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Eigandinn getur vitjað þeirra í afgreiðslu lögreglunnar á Hverfisgötu 115, Reykjavík, sem er opin virka daga frá kl. 8-16. Afhending fer fram gegn staðfestingu á eignarhaldi, segir í tilkynningu frá lögreglunni. 25.8.2010 12:09
Grænland datt í lukkupottinn Fréttir í gær um að gas hefði fundist undan ströndum Grænlands og vísbendingar um olíu eru taldar auka áhuga alþjóðlegra olíufyrirtækja að hefja olíuleit allt í kringum þetta næsta nágrannaríki Íslands. 25.8.2010 12:07
Enginn í haldi lögreglu vegna morðsins Enginn er nú í haldi lögreglu vegna morðsins á Hannesi Þór Helgasyni að sögn rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Rannsókn er enn í fullum gangi og voru nokkrir aðilar yfirheyrðir í gærkvöldi. Yfirheyrslum verður framhaldið í dag að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar yfirlögregluþjóns. Tíu dagar eru nú liðnir síðan Hannes fannst myrtur á heimili sínu við Háaberg í Hafnarfirði. 25.8.2010 12:00
Þjófagengi í Árbæ: Tveimur sleppt Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók fimm karlmenn í Árbæjarhverfi í gærmorgun vegna rannsóknar á innbrotum í Árbæ og á Ártúnshöfða að undanförnu. Samkvæmt lýsingum sjónarvotta þusti hópur lögreglumanna inn í íbúð í hverfinu og leiddi hina grunuðu út í járnum. 25.8.2010 12:00
Ágreiningur leystur í Svíþjóð vegna ákvæða í samningi Norðurál hefur stefnt HS Orku fyrir gerðardóm í Svíþjóð vegna ágreinings um magn og verð á raforku fyrir álver í Helguvík. Ástæða þess að ágreiningurinn verður leystur í Svíþjóð er ákvæði í samningi HS Orku og Norðuráls og hefur ekkert með eignarhaldið á HS Orku að gera. 25.8.2010 12:00
Síra Geir hlýðir tilkynningaskyldu Síra Geir Waage, prestur í Reykholti, mun hér eftir sem hingað til hlýða þeirri tilkynningaskyldu og samsvarandi ákvæðum sem kveðið er á um í siðareglum þjóðkirkjunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Biskupsstofu. Síra Geir fundaði með Karli Sigurbjörnssyni biskupi Íslands í morgun. 25.8.2010 11:47
Týr aðstoðar vélarvana togara Varðskipið Týr kom um klukkan fjögur í nótt að erlendum togara sem hann var vélarvana um 490 sjómílur vestsuðvestur af Reykjanesi. Varðskipið lagði úr höfn síðdegis á mánudag til aðstoðar togaranum sem er 60 metra langur. Þegar varðskipið kom að togaranum í nótt var dráttarlínu skotið yfir og gekk aðgerðin vel, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. Hagstæða veðurskilyrði eru á svæðinu og standa vonir til að varðskipið verði komið í Faxaflóa á laugardag. 25.8.2010 11:43
Starfsmenn Gæslunnar fræddir um Senegal Starfsmenn Landhelgisgæslunnar sem héldu til Afríkuríksins Senegals um síðustu helgi fengu áður færðslu um landið. Fram í október mun TF-SIF, flugvél Gæslunnar flaug sinna landamæraeftirliti fyrir Frontex, landamærastofnun Evrópusambandsins. Varðskipið Ægir hefur sinnt sama verkefni frá byrjun maí. 25.8.2010 11:23
Biskup fundar með síra Geir Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, og síra Geir Waage, sóknarprestur í Reykholti, funda nú saman á Biskupsstofu. Biskup boðaði Geir til fundarins vegna blaðagreinar sem hann skrifaði um helgina. Þar sagði Geir að þagnaskylda presta gagnvart þeim sem skrifta væri alger. 25.8.2010 11:04
Eyjafjallaaskan braut náttúrulögmál Askan úr Eyjafjallajökli fauk mun lengri vegalengd en mögulegt ætti að vera. Þýskir vísindamenn hafa rannsakað öskuna frá fjallinu. 25.8.2010 10:59
Biskup biðjist afsökunar Séra Þórhallur Heimisson, sóknarprestur í Hafnarfjarðarkirkju, segir vaxandi stuðning meðal presta við að skipuð verði sannleiksnefnd til að rannsaka meint kynferðisbrot Ólafs Skúlasonar, fyrrverandi biskups. Hann segist skilja gremju almennings til Þjóðkirkjunnar sem telji að ekki sé verið að gera málin upp. Þórhallur vill að Karl Sigurbjörnsson, biskup, biðjist afsökunar fyrir hönd kirkjunnar. 25.8.2010 10:17
Ölvaðir ökumenn greiða tryggingafélögum milljónir Vátryggingafélag, sem greitt hefur bætur vegna tjóns af völdum ökutækja, á endurkröfurétt á hendur þeim, sem veldur tjóni af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi. Slíkar endurkröfur á tjónvalda í umferðinni hafa aldrei verið fleiri en í fyrra, samkvæmt tilkynningu sem endurkröfunefnd sendi frá sér í morgun. 25.8.2010 10:09
Ólafur Skúlason hlaut fálkaorðuna fjórum sinnum Ólafur Skúlason, fyrrverandi biskup Íslands, hlaut fálkaorðuna fjórum sinnum á meðan að hann lifði. Orðustigin sem forseti Íslands veitir eru fimm og hlaut Ólafur þau öll nema æðsta stigið sem er keðja ásamt stórkrossstjörnu. 25.8.2010 08:00
Sex ráðherrar vilja aðskilnað ríkis og kirkju Helmingur ríkisstjórnarinnar vill aðskilnað ríkis og kirkju. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagðist íhuga að segja sig úr þjóðkirkjunni á blaðamannafundi að loknum ríkisstjórnarfundi í gær en vildi þó ekki gefa upp hvort það væri í ljósi atburða síðustu daga. 25.8.2010 06:30
Fimm manna þjófagengi handtekið Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók fimm karlmenn í Árbæjarhverfi í gærmorgun vegna rannsóknar á innbrotum í Árbæ og á Ártúnshöfða að undanförnu. Samkvæmt lýsingum sjónarvotta þusti hópur lögreglumanna inn í íbúð í hverfinu og leiddi hina grunuðu út í járnum. Mennirnir voru í haldi síðdegis í gær og stóðu yfirheyrslur þá enn yfir. 25.8.2010 06:15
Olíufundur þar ýtir undir áhuga á rannsóknum hér Fundur skoska olíufélagsins Cairn Energy á gasi og olíu í sandlagi á hafsbotni undan vesturströnd Grænlands kann að ýta undir áhuga á olíurannsóknum á íslenska landgrunninu. Cairn upplýsti í gær að fundist hefðu vísbendingar um olíu í fyrstu tilraunaborholu félagsins á Baffinsflóa. Í umfjöllun Berlingske Tidende í gær var félagið sagt hafa fengið „bingó“ eftir sex vikna leit. 25.8.2010 06:00
Erum neðst Vestur-Evrópuríkja Ísland er staðsett á milli Egyptalands og Papúa Nýju-Gíneu á lista yfir lönd þegar borinn er saman hagvöxtur í þeim síðustu tvo áratugi. 25.8.2010 05:00
Bannað að selja heitt vatn til Hvergerðinga Fyrirtækið Ræktunarmiðstöðin sf. sem verið hefur í rekstri gróðrarstöðvar og jarðverktöku fær ekki að selja Hvergerðingum heitt vatn og gufu. 25.8.2010 05:00
Eyjamenn vilja fleiri ferðir Herjólfs Vestmanneyingar vilja að ferðum Herjólfs milli Eyja og Landeyjahafnar verði fjölgað. Einungis er mánuður frá því að ný Landeyjahöfn var tekin í notkun og ferðum var fjölgað verulega en bæjarstjóri Vestmannaeyja segir að skipið anni ekki eftirspurn að óbreyttu. 25.8.2010 04:00
Stærsta laxi sumarsins var sleppt „Hann var eins og fallegt, feitt konulæri,“ segir Geir Gunnarsson, forstjóri Honda-umboðsins, sem í gær veiddi stærsta lax sumarins, 110 sentimetra langan og 51 sentimetra að ummáli. 25.8.2010 02:30
Kýldi mann og kinnbeinsbraut Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir líkamsárás. 25.8.2010 02:00
Sló og sparkaði í fangavörð Ríkissaksóknari hefur ákært konu á fimmtugsaldri fyrir brot gegn valdstjórninni. 25.8.2010 01:45
Ráðherrar hitta iðnaðarnefnd Iðnaðarnefnd Alþingis ætlar að fá umhverfisráðherra og iðnaðarráðherra á sinn fund á morgun til þess að ræða stækkun friðlandsins í Þjórsárverum og áhrif þeirrar stækkunar á áform um Norðlingaölduveitu. 25.8.2010 01:30
Skáru göt á sextíu heyrúllur Skorið var á 62 heyrúllur við bæinn Vatnsleysu í Biskupstungum í síðustu viku. Lögreglan á Selfossi hefur málið til rannsóknar en skemmdarverkin voru unnin fimmtudagskvöldið 19. ágúst eða aðfaranótt föstudagsins. 25.8.2010 01:00
Búið að slökkva eldinn Eldur kviknaði í íbúð að Jörfabakka í Breiðholti fyrir stundu. Um er að ræða fjölbýlishús. Samkvæmt varðstjóra var eldurinn ekki kominn á gang hússins og þurfti ekki að flytja aðra íbúa út úr húsinu vegna eldsins. 24.8.2010 22:29
Eldur í fjölbýlishúsi í Breiðholti Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út fyrir stundu að Jörfabakka í Breiðholtinu. Um er að ræða fjölbýlishús. 24.8.2010 22:12
Geir Waage á fund biskups í fyrramálið Séra Geir Waage mun mæta á fund biskups Íslands klukkan tíu í fyrramálið samkvæmt upplýsingum frá biskupsstofu. 24.8.2010 21:22
Guðrún Jónsdóttir: Vonsvikin yfir getuleysi kirkjunnar Til að standa undir nafni sem sálgæslustofnun þarf þjóðkirkjan að lýsa því yfir á óvéfengjanlegan hátt að hún muni standa sig í kynfeðisafbrotamálum og hafi þar engin undanbrögð. 24.8.2010 20:05
Kókaínsmyglarar áfram í gæsluvarðhaldi Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur mönnum sem fundnir voru sekir um stórfelldan fíkniefnainnflutning í sumar. 24.8.2010 17:14
Ungliðar krefjast afsagnar Jóns Bjarnasonar Ungir Jafnaðarmenn krefjast tafarlausrar afsagnar Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, vegna ummæla hans um ESB og birtust í Morgunblaðinu í dag. 24.8.2010 18:00
Skemmdarvargar brutu úrkomumæli í Vestmannaeyjum Óprúttnir aðilar unnu skemmdir á úrkomumæli Veðurstofu Íslands í vikunni sem leið í Vestmannaeyjum. 24.8.2010 17:14
Hundruð manna til Þjóðskrár Hundruð manna hafa lagt leið sína á skrifstofu Þjóðskrár Íslands í dag. Samkvæmt heimildum Vísis hefur stór fjöldi þeirra verið þar til að skrá sig úr Þjóðkirkjunni en nákvæmar tölur um það liggja ekki fyrir. 24.8.2010 16:00
Ökumanninum sleppt eftir skýrslutökur Maðurinn sem var handtekinn ölvaður eftir að hafa keyrt inn í anddyri Íslandsbanka er laus úr haldi lögreglunnar. Honum var sleppt eftir hádegi í dag eftir skýrslutökur á lögreglustöð. 24.8.2010 15:10
Um 80 þúsund tóku strætó Um 80.000 farþegar tóku strætó á Menningarnótt, sem er með því mesta sem almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu hafa flutt á einum degi frá upphafi. 24.8.2010 15:20
Atkvæðagreiðsla um kjarasamning hafin Atkvæðagreiðsla um nýgerðan kjarasamning milli Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Launanefndar sveitafélaga hófst í dag. Hún mun standa til næsta mánudags. Gögn um samninginn voru send trúnaðarmönnum í gær í tölvupósti. Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn 24.8.2010 14:36
Færri og stærri heilsugæslustöðvar gætu skilað tíu prósenta sparnaði Til að tryggja að fólk leiti að jafnaði fyrst til heilsugæslunnar, áður en það fer til dýrari sérfræðinga, er lagt til að leggja mishá komugjöld á sjúklinga í heilbrigðiskerfinu, í vinnuskýrslu um eflingu heilsugæslunnar. Fækkun og stækkun heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu gæti skilað tíu prósenta sparnaði. 24.8.2010 12:53