Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þremur Hollendingum sleppt - fjórir í haldi í Hollandi Þremur Hollendingum, sem handteknir voru á Seyðisfirði í tengslum við smygl á þremur tonnum af hassi, var sleppt í gærkvöldi. Fjórir eru í haldi í Hollandi vegna málsins. 18.5.2010 18:38
Ríkið bregst við fíklamömmum Barnaverndaryfirvöldum berst árlega fjöldi tilkynninga vegna mæðra sem þykja ógna lífi og heilsu ófæddra barna sinna með áfengis- og fíkniefnaneyslu. 18.5.2010 18:31
Meirihlutinn kolfallinn á Akureyri Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Akureyrar er fallinn samkvæmt könnun Stöðvar tvö og Fréttablaðsins. Sjálfstæðisflokkurinn geldur afhroð og missir tvo af fjórum bæjarfulltrúum. 18.5.2010 18:25
Tveir á slysadeild eftir hópslagsmál Tveir voru fluttir á slysadeild eftir að hópslagsmál brutust út í Töllakór í Kópavoginum samkvæmt varðstjóra slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu. 18.5.2010 17:57
Spúir 200 tonnum af jarðvegi á sekúndu - öskufall talsvert Um tvöhundruð tonn af jarðvegi koma upp úr gígnum úr Eyjafjallajökli á sekúndu samkvæmt stöðumati Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands. 18.5.2010 17:51
Starfsmannafjöldinn þrefaldist - fjárþörf dómstóla einnig metin Gert er ráð fyrir því að starfsmannafjöldi hjá sérstökum saksóknara þrefaldist frá því sem nú er og verði allt að 80 manns en ríkisstjórnin hefur samþykkt að stórauka fjárveitingu til embættisins og verður fimm milljörðum veitt allt í allt til embættisins. Í greiningu á kostnaðarþáttum sem embættið skilaði inn er gert ráð fyrir að meginþungi rannsókna verði á árunum 2010-2011 og að þeim verði lokið að fullu á fyrri hluta ársins 2013. 18.5.2010 16:24
Askan nær til borgarinnar Aska frá Eyjafjallajökli berst nú yfir höfuðborgarsvæðið í suðaustlægri átt sem nú er ríkjandi. Gildi svifriks á mælum í borginni hafa hækkað hratt en búist er við úrkomu og þá er reiknað með að gildin lækki hratt á ný. Klukkan hálffjögur var hálftímagildi svifryks í mælistöðinni á Grensásvegi 318 míkrógrömm á rúmmetra að því er fram kemur í tillkynningu frá Reykjavíkurborg. Einnig eru gildin há í mælistöðinni í Hafnarfirði. 18.5.2010 16:11
Dagur gagnrýnir Árna Pál flokksbróður sinn Dagur B. Eggertsson oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn Reykjavíkur hefur komið á framfæri „alvarlegum athugasemdum“ við forystu ríkisstjórnarinnar og Árna Pál Árnason félagsmálaráðherra vegna yfirlýsinga Árna um nauðsynlegan niðurskurð í velferðarkerfinu. Á dögunum sagði Árni óhjákvæmilegt að fækka starfsmönnum hins opinbera. Borgarstjóri spurði Dag út í ummæli flokksfélaga síns á borgarstjórnarfundi í dag. 18.5.2010 15:34
Rannsóknarskýrslan rædd í fræðilegu ljósi Háskóli Íslands mun bjóða stúdentum sérstakt fjölfræðilegt námskeið í sumar þar sem fjallað verður um hrunið í fræðilegu ljósi. Um er að ræða tvö 6 eininga námskeið á BA stigi, sem haldin eru í samfellu. Hið fyrra verður frá 20. maí til 8. júní og hið síðara frá 10. júní til 29. júní. Nemendur geta tekið hvort sem er 6 eða 12 einingar, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá HÍ. 18.5.2010 15:18
Tæp 11% treysta Alþingi vel Einungis 10,5% landsmanna bera mikið traust til Alþingis, ef marka má nýja könnun MMR. Þeir voru 18% í sömu könnun MMR frá því í september. Jafnframt fjölgar þeim sem segjast bera lítið traust til Alþingis, eru nú 56,4% en voru 52,4% í september 2009. 18.5.2010 14:54
Vilja fá Magma til að minnka nýtingarréttartímann Á ríkisstjórnarfundi í morgun var samþykkt að fara þess á leit við forsvarsmenn Magma Energy að nýtingarréttur HS Orku á orkuauðlindum verði minnkaður í 40 til 45 ár í stað þess að hann verði 65 ár eins og nú er. 18.5.2010 14:38
Sérstakur saksóknari fær milljarða til að ljúka rannsóknum Embætti sérstaks saksóknara verður styrkt verulega með 470 milljóna aukafjárveitingu í ár og 960 milljóna fjárveitingum á næsta og þarnæsta ári. Þetta var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í dag. Heildarframlög til embættisins hafa því verið aukin gríðarlega en gert er ráð fyrir að saksóknarinn ljúki störfum árið 2014 og á því tímabili hafi það fengið fimm milljarða króna frá ríkinu. 18.5.2010 14:22
Besti flokkurinn til umræðu á Alþingi Þór Saari þingmaður Hreyfingarinnar ræddi um Besta flokkinn í umræðu um störf þingins á Alþingi í dag. Þór segir að Besti flokkurinn sé gríðarleg háðsádeila og ef hann fái fylgi í samræmi við skoðannakannanir muni það vekja heimsathygli. 18.5.2010 14:12
Lyklafrumvarpið fast í nefnd í sjö mánuði Óli Björn Kárason þingmaður Sjálfstæðisflokksins skorar á Allsherjarnefnd Alþingis að afgreiða frá sér svokallað lyklafrumvarp Lilju Mósesdóttur þingmanns Vinstri grænna. Óli Björn segir að þetta frumvarp hafi nú setið fast í nefndinni í sjö mánuði. 18.5.2010 13:47
Mistur yfir Hvolsvelli en engin aska Aska úr Eyjafjallajökli virðist nú vera að falla norðan við Hvolsvöll. Að sögn lögreglunnar í bænum hefur askan ekki náð inn í bæinn ennþá en Veðurstofan gerir ráð fyrir austanátt á svæðinu í dag. Lögregla segir að hálfgert mistur liggi yfir bænum en vonir standa til að honum verði hlíft við öskufallinu að minnsta kosti í dag. Askan virðist aðallega vera að falla til jarðar á hálendinu og mögulega inni í Þórsmörk. Hvolsvallarbúar hafa nú verið lausir við öskufallið í tvo daga. 18.5.2010 13:24
Samstarf um bætta öryggismenningu í fiskiskipum VÍS og Slysavarnaskóli sjómanna hafa skrifað undir þriggja ára samstarfssamning sem felur í sér formlegt samstarf um bætta öryggismenningu um borð í fiskiskipum og um auknar forvarnir gegn slysum meðal sjómanna. Liður í samstarfinu er að VÍS mun afhenda Slysavarnaskóla sjómanna 10 flotgalla árlega næstu þrjú árin til að nota við kennslu í sjóbjörgun. Í tilkynningu frá VÍS segir ennfremur að tekið verði upp samstarf við útgerðir sem tryggja hjá VÍS með það að markmiði að sporna við slysum meðal sjómanna á fiskiskipum þeirra. 18.5.2010 13:08
Sigurður kærir handtökuskipun til Hæstaréttar Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, hefur kært handtökuskipun sem gefin var út á hendur honum til Hæstaréttar. Interpol hefur lýst eftir Sigurði en sérstakur saksóknari vill fá hann til viðtals. Í hádegisfréttum RÚV var greint frá því að kæran hafi borist í gærdag og að frestur málsaðila til þess að skila gögnum renni út í dag. Þá sagði að líklegt væri að Hæstiréttur felli úrskurð sinn fljótlega. 18.5.2010 13:01
Dagur vonar að ruglið endi á kjördag Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, segir ánægjulegt hvernig Besta flokknum hefur tekist að hreyfa við borgarstjórnarpóltíkinni en vonar að ruglið sem hann segir hafa einkennt kjörtímabilið endi á kjördag. 18.5.2010 12:36
Árni bæjarstjóri: Óvíst hvaða áhrif hærra orkuverð hefur Óvíst er hvaða áhrif boðanir forstjóra Magma á hækkun á orkuverð til stóriðju mun hafa á aðkomu fjárfesta að álverinu í Helguvík. Þetta segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, hann segist þó telja að svigrúm sé til hækkanna. Hann hafnar fullyrðingum um að kaup Magma séu fjármögnuð með opinberu fé. 18.5.2010 12:21
Ráðgátan um falsaða fimmþúsundkallinn upplýst Fölsun á 5.000 kr. peningaseðli og framvísun hans í verslun á Ísafirði í gær hefur verið upplýst af lögreglunni á Vestfjörðum. Málið kom upp í gær en í tilkynningu frá lögreglu segir að tveir ungir drengir hafi viðurkennt verknaðinn. Að sögn lögreglu verður mál þeirra tilkynnt til barnaverndaryfirvalda. 18.5.2010 12:09
Hollendingarnir frjálsir ferða sinna Hollendingarnir sem handteknir voru á Seyðisfirði um helgina hafa verið látnir lausir. Þeim var sleppt í rétt fyrir miðnætti í gær að sögn Karls Steinars Valssonar yfirmanns fíkniefnadeildarinnar. Þremenningarnir eru allir í áhöfn skips sem kom til hafnar á Seyðisfirði á laugardag en leit var gerð um borð í skipinu. Rannsóknin er unnin í samvinnu við lögregluyfirvöld í Hollandi og tengist haldlagningu á þremur tonnum af marijúana þar í landi. 18.5.2010 10:52
Tæplega tvö þúsund manns skráðu sig úr Þjóðkirkjunni 1. janúar síðastliðinn voru fullorðin sóknarbörn í Þjóðkirkjunni, 18 ára og eldri 186.697 eða 78,8% mannfjöldans. Kaþólska kirkjan er næstfjölmennasta trúfélag landsins með 6559 félagsmenn 18 ára og eldri. Utan trúfélaga voru 8483 fullorðnir einstaklingar skráðir 1. janúar, en 15.682 í óskráð trúfélög eða ótilgreint. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands í dag. 18.5.2010 10:36
Heimsækja ferðaþjónustuaðila á gossvæðinu Samráðshópur stjórnvalda og ferðaþjónustu hefur verið starfandi frá upphafi goss í Eyjafjallajökli undir forystu iðnaðarráðherra. Viðbragðsteymið heimsækir í dag ferðaþjónustuaðila, forsvarsmenn sveitarfélaga og almannavarna á Hvolsvelli, í Vík og á Moldnúpi undir Eyjafjöllum. 18.5.2010 10:03
Flogið frá Reykjavík Fyrstu vélar Flugfélags Íslands og Ernis leggja upp frá Reykjavík klukkan tíu, en völlurinn var lokaður í morgun vegna ösku í lofti. Hvorki verður þó flogið til Akureyrar eða Egilsstaða þar sem vellirnir þar eru enn lokaðir. Egilsstaðaflugvöllur gæti opnast fljótlega, en Akureyrarflugvöllur verður hugsanlega lokaður í allan dag. 18.5.2010 09:58
Þingmenn VG koma skilaboðum til ráðherra með fréttatilkynningum Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins segir undarlegt að stjórnarliðar sendi frá sér fréttatilkynningar þegar þeir vilja koma einhverju á framfæri við sína eigin ríkisstjórn. Þar vísar hún til tilkynningar sem þingflokkur VG sendi frá sér í gærkvöldi varðandi söluferlið á HS orku. Þar ítrekar þingflokkurinn þá grundvallarstefnu sína að allar auðlindir þjóðarinnar eigi að vera sameign hennar. 18.5.2010 09:46
Háskólastarfi stefnt í hættu Sigurður Guðmundsson, forseti heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands og fyrrverandi landlæknir, telur að gangi niðurskurðarhugmyndir stjórnvalda í menntamálum eftir muni Háskóli Íslands verða færður áratugi aftur í tímann hvað varðar gæði kennslu og rannsókna. 18.5.2010 08:44
Heildaraflinn minni milli ára Heildarafli íslenska fiskiskipaflotans var 20 prósentum minni í tonnum talið í síðasta mánuði, en í sama mánuði í fyrra, samkvæmt Hagstofutölum. 18.5.2010 08:20
Gerðu ítarlega leit í skipi við Seyðisfjarðarhöfn Ekki liggur fyrir hvort þrír Hollendingar, sem voru handteknir um borð í gömlu fiskiskipi í Seyðisfjarðarhöfn, hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna gruns um fíkniefnamisferli, en fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur tekið við rannsókn málsins. 18.5.2010 08:08
Þrír ungir menn handteknir með riffil Þrír ungir menn voru handteknir með ólöglegan riffil og skotfæri í fórum sínum, þar sem þeir voru staddir við Ísólfsskála austan við Grindavík seint í gærkvöldi. Það var vitni sem sá til þeirra og gerði lögreglu viðvart. 18.5.2010 08:03
Ekki flogið frá Reykjavík Fyrstu vélar Flugfélags Íslands og Ernis hafa ekki lagt upp frá Reykjavík samkvæmt áætlun núna í morgunsárið, þar sem völlurinn hefur verið lokaður. Horfur eru á að hann opnist innan tíðar en hinsvegar eru vellirnir á Akureyri og Egilsstöðum lokaðir vegna öskufalls, en Egilsstaðaflugvöllur gæti opnast fljótlega. Hinsvegar er núna útlit fyrir að Akureyrarflugvöllur verði lokaður í dag, en það getur breyst þegar líður á daginn. Keflavíkurflugvöllur er opinn og er millilandaflug um hann í fullum gangi. 18.5.2010 07:17
Stjórnvöld vilja stytta leigutíma Magma á auðlindum Kanadíska fyrirtækið Magma Energy hefur eignast 98,53 prósenta hlut í HS Orku. Sænskt dótturfélag þess keypti hlut Geysis Green Energy í fyrirtækinu. Stjórnvöld höfðu óskað eindregið eftir því að beðið væri með undirskrift þar til eftir ríkisstjórnarfund í dag, ekki var orðið við þeirri ósk. 18.5.2010 06:00
Askan getur hindrað alla sjúkraflutninga Vegna öskufalls kom sú staða upp í Vestmannaeyjum um helgina að erfitt eða ómögulegt hefði verið að koma veikum eða slösuðum undir læknishendur utan eyjanna. Sjúkraflug, hvort sem er með flugvél eða þyrlu, var óhugsandi vegna öskufallsins og vafasamt að fara sjóleiðina. 18.5.2010 06:00
Lögreglumenn leiða hvor sinn listann Oddvitar framboðslistanna tveggja í Skaftárhreppi eru lögregluþjónarnir tveir sem starfa í hreppnum, Guðmundur Ingi Ingason varðstjóri og Þorsteinn Kristinsson lögreglustjóri. „Við erum fagmenn á okkar sviði, það er langt því frá að þessi staða trufli okkur," sagði Þorsteinn þegar Fréttablaðið grennslaðist fyrir um málið. 18.5.2010 05:30
Flytja þarf mörg þúsund fjár af öskusvæðum Fyrstu kindurnar verða fluttar af öskufallssvæðunum undir Austur-Eyjafjöllum á beitarsvæði innan varnarlínu í dag. Að sögn Hermanns Árnasonar, starfsmanns hjá Búnaðarsambandi Suðurlands, verða á annað hundrað lambær fluttar á jörðina Þverá í Skaftárhreppi. 18.5.2010 05:00
Mun verjast af fullum krafti Jón Ásgeir Jóhannesson sendi frá sér yfirlýsingu vegna afsagna sinna úr stjórnum bresku fyrirtækjanna House of Fraser og Iceland Foods. Þar segir að ákvörðun um afsagnirnar hafi verið tekin í kjölfar málsóknar slitastjórnar Glitnis á hendur Jóni Ásgeiri og fólki sem honum tengist. 18.5.2010 05:00
Rannsaka þurfi allt söluferlið á HS orku Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs ítrekar, í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í gærkvöldi, þá grundvallarstefnu sína að allar auðlindir þjóðarinnar eigi að vera sameign hennar. 18.5.2010 04:45
Lyfjafyrirtæki þegar hætt að skrá ný lyf Farið er að bera á því að lyfjafyrirtæki hætti við að skrá ný lyf á markað hér á landi þar sem stjórnvöld voru ekki tilbúin til að borga sambærilegt verð og fæst fyrir lyfin á hinum Norðurlöndunum, segir Jakob Falur Garðarsson, framkvæmdastjóri Frumtaka, samtaka framleiðenda frumlyfja. 18.5.2010 04:15
Kókaínsmygl og peningaþvætti Tveir menn og tvær konur hafa verið dæmd í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir stórfellt fíkniefnasmygl og peningaþvætti. Sá sem þyngstan dóm hlaut, David Erik Crunkleton, var dæmdur í átján mánaða fangelsi. Hinn karlmaðurinn var dæmdur í sex mánaða fangelsi, þar af þrjá á skilorði. Önnur konan var dæmd í tíu mánaða fangelsi en hin í fjóra mánuði á skilorði. 18.5.2010 04:00
Mikil eldvirkni á Íslandi um þessar mundir Hrina eldgosa í Vatnajökli sem hófst árið 1996 er í samræmi við rannsóknir sem íslenskir vísindamenn gerðu og voru birtar fyrst fyrir rúmum áratug. 18.5.2010 03:00
Sextándi hver íbúi á Vesturlandi er í kjöri Óvenjulega margir eru nú í framboði á Vesturlandi, en það helgast af því að í Dalabyggð er enginn listi í boði. Við slíkar aðstæður eru allir íbúar sveitarfélagsins, sem kjörgengir eru, í framboði, nema þeir sem setið hafa í sveitarstjórn og gefa ekki kost á sér. 18.5.2010 02:00
Fjölskyldufólk í áfalli eftir hópslagsmál í Kórahverfinu „Það þorir enginn að senda börnin sín út nema þegar maður veit að þessi maður er í varðhaldi,“ segir sjónarvottur í Kórahverfinu sem varð vitni að blóðugum hópslagsmálum fyrr í dag. Þar börðust sjö menn vopnaðir hnífum, hafnaboltakylfum og exi. Átökin eru talin tengjast fíkniefnaviðskiptum. 18.5.2010 19:51
Hreiðar og Ingólfur lausir úr gæsluvarðhaldi Hreiðari Má Sigurðssyni og Ingólfi Helgassyni, fyrrverandi forstjórum Kaupþings, hefur verið sleppt úr gæsluvarðhaldi en báðir voru úrskurðaðir í farbann síðdegis í dag. Þetta staðfesti Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari í samtali við Vísi í kvöld. 17.5.2010 21:31
Skilyrði fyrir samstarfi að viðkomandi hafi horft á The Wire „Ég bjóst við meiru. Það var sjokkerandi að heyra að það væru ekki fleiri að kjósa Besta flokkinn,“ segir Jón Gnarr sem er ótvíræður sigurvegari í skoðanakönnun sem MMR gerði fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Stöð 2 greindi frá en þar kemur í ljós að Besti flokkurinn nær 6 fulltrúum inn í borgarstjórn fari kosningar eins og könnunin gefur til kynna. 17.5.2010 20:32
Sóley Tómasdóttir: Hversu fyndið er það þegar framtíð barnanna er í húfi „Tiltrú almennings á stjórnmálum hefur farið minnkandi og það er náttúrulega fyrst og fremst hrunflokkunum um að kenna,“ segir Sóley Tómasdóttir, oddviti borgarstjórnarflokks Vinstri grænna en samkvæmt skoðanakönnun sem MMR gerði fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Stöð 2 birti, þá er grínframboðið Besti flokkurinn orðið að stærsta stjórnmálaafli Reykjavíkurborgar. 17.5.2010 19:32
Erfiður dagur fyrir Víglund eftir ævistarf hjá BM Vallá Eitt stærsta iðnfyrirtæki landsins, BM Vallá, var tekið til gjaldþrotaskipta í dag. Stjórnarformaðurinn Víglundur Þorsteinsson hefur starfað við félagið í hálfa öld og sér nú á bak ævistarfinu. 17.5.2010 18:52